Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Blaðsíða 13
DfV Fréttir
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 13
Sukkað í
Sandgerði
Lögreglunni í Keflavík
var tilkynnt um mann að
brjóta sér leið inn í hús við
Túngötu í Sandgerði s.l.
þriðjudagsmorgun. Er lög-
regla kom á staðinn var
maðurinn fyrir utan húsið
og reyndist með áverka á
höfði. í ljós kom að til átaka
hafði komið inni í húsinu.
Þar voru tveir aðrir menn
til staðar og var annar
þeirra einnig með áverka á
höfði. Þriðji maðurinn sem
var til staðar í húsinu var
handtekinn er á honum
fannst lítill poki með
meintu amfetamíni og einn
hassmoli. Við leit í húsinu
fundust síðan 33 hass-
plöntur sem voru í ræktun.
Við bifreið fundust svo
munir í tengslum við inn-
brot í 3 bifreiðar. Allir
mennirnir, sem voru ýmist
ölvaðir eða í annarlegu
ástandi, voru handteknir og
vistaðir í fangageymslu á
lögreglustöðinni í Keflavík.
Sumaropnun
leikskólanna
Fræðslunefnd Mosfells-
bæjar vill koma til móts við
foreldra með sumaropnun
leikskóla bæjarins. Skóla-
skrifstofu bæjarins hefur
verið falið að kanna þörfina
fyrir slíka sumarþjónustu.
Koma á þjónustunni á að
því tilskyldu að nægileg
þátttaka fáist. Leikskólar
bæjarins eru að öðru leyti
lokaðir í júlí.
Óánægðir
með Hafró
Sjómenn í Hollandi hafa
slitið öllu samstarfi við haf-
rannsóknastofnunina þar í
landi og íhuga að ráða sína
eigin fiskifræðinga til að
mæla stofnstærðir. Þeir
hafa misst trúna á opinbera
vísindamenn og eru nú
hættir að senda aflaupplýs-
ingar til stofnunarinnar.
Sjávarútvegsmiðillinn
skip.is greinir frá þessu, en
haft er eftir formanni sjó-
mannasamtakanna í
Hollandi að dýrt sé að
greiða iyrir sitt eigið hrun.
Sjómenn séu reiðir þar sem
verið sé að nota upplýsing-
ar um afla gegn þeim, en
fiskifræðingar vilja loka
Norðursjó fyrir öllum fisk-
veiðum. Sjómenn á íslandi
hafa löngum lýst efasemd-
um um áreiðanleika Haf-
rannsóknastofnunarinnar
hér á landi en aldrei gripið
til slíkra ráðstafanna.
Sérfræðingar OECD hafa gert athugasemdir við útreikninga íslenskra heilbrigðisyf-
irvalda á útgjöldum heilbrigðisþjónustunnar sem hlutfall af þjóðarframleiðslu. ís-
land er nú skráð í 8. sæti hvað varðar útgjöld en ætti að vera í 13.-15. sæti
Sérfræðingar OECD hafa gert athugasemdir
við útreikninga íslenskra heilbrigðisyfirvalda á út-
gjöldum heilbrigðisþjónustunnar sem hlutfall af
þjóðarframleiðslu. Þegar tekið er tillit til athuga-
semda OECD kemur í ljós að í stað þess að vera
með áttundu dýrustu heilbrigðisþjónustu í heimi
fellur fsland niður í 13,- 15. sæti og er landið þá á
svipuðu róli og ítalir, Nýsjálendingar og Japanir.
Athugasemdir þær sem hér um ræðir varða
hlut öldrunarþjónstunnar. í viðmiðunarlöndum
okkar er öldrunarþjónustan ekki tekin með sem
heilbrigðisútgjöld, heldur félagsleg, ef hlutur
læknis- og hjúkrunarkostnaðar er undir 50% af
rekstri viðkomandi stofnunar. Á íslandi hefur
þessu verið öfugt farið. Aðeins örfá lönd önnur
eins og t.d. Slóvenía hafa haft sama hátt á og ís-
lendingar þ.e. að flokka alla öldrunarþjónstu sem
útgjöld til heilbrigðismála. Nú hyggjast íslensk
heilbrigðisyfirvöld hinsvegar samræma sína út-
reikinga við það sem gengur og gerist í viðmiðtm-
arlöndum okkar.
Póiitískt spil
Ólafur Ólafsson formaður Félags eldri borgara
í Reykjavík segir að athugasemdir OECD sýni að
þau gögn sem heilbrigðisyfirvöld hérlendis.hafa
notað til að sýna góða stöðu á topp tíu lista OECD
hingað til hafi verið gölluð og því tímabært að
færa þau til samræmis við það sem gerist í við-
miðunarlöndum okkar. „Það var sérstök rann-
sókn á vegum hagffæðinga OECD sem leiddi í ljós
þetta misræmi," segir Ólafur Ólafsson „Nú er
hlutfall okkar skráð sem 9,2% en ætti sam-
kvæmt útreikingum OECD að vera rúmlega
„Ég efast ekki um að
hægt er að hagræða og
spara innan heilbrigðis-
kerfisins en siíkt verður
að gera á réttum for-
sendum en ekkimeð
þólitísku sjónarspili
8% og þar með ættum við að
13. til 15. sæti á listanum."
Ólafur segir einnig að
sér virðist sem pólitískt
hafi yfirvöld notfært sér
rangar tölur til að
sýna fram á að út-
gjöld til heilbrigðis-
mála hérlendis séu
hærri en þau í raun
eru samkvæmt þeim
stöðlum sem gilda
innan OECD. „Eg ef-
ast ekki um að hægt
er að hagræða og
spara innan heil-
brigðiskerfisins en
slíkt verður að gera á
réttum forsendum en
ekki með pólitísku sjón-
arspili," segir Ólafur
Ólafsson.
Ólafur Ólafsson for-
maður Félags eldri
borgara Sérstök rann-
sókn leiddi I Ijós mis-
ræmið
Fjölskyldurnar tvær í Vigur í ísafjarðardjúpi sagðar vera að selja eyjuna
Vigur metin á allt
aðlOO milljónir
Fjölskyldur bræðranna Salvars
ogBjörns Baldurssona, sem eiga eyj-
una Vigur í Isafjarðardjúpi munu
vera að selja hana. Salvar segir þó of
snemmt að segja til um hvort Vigur
sé seld eða ekki; til þess sé málið of
skammt á veg komið.
Vigur er einn alvinsælasti ferða-
mannastaður Vestfjarða og mikil
náttúruperla. Eyjan sjálf er ekki frið-
uð. Á hinn bóginn njóta þar ffiðunar
gömul hús sem frá því um miðja
nítjándu öld.
Vigur mun vera um tveggja kíló-
metra löng og 400 metra breið. Ábú-
endurnir hafa stundað sauðfjárrækt
auk þess sem þeir hafa sótt vinnu
upp á fastalandið. Mikil hlunnindi
eru af æðarfugli og lunda. Gríðarlegt
kríuvarp er einnig í Vigur. Veitinga-
sala er í Vigur á sumrin.
Ekkert liggur íyrir um hugsanlegt
söluverð Vigrar. Einstök náttúrufeg-
urð og vinsældir eyjunnar er þó talið
geta lyft verðinu verulega upp
þannig að það gæti orðið allt að 100
milljónir króna.
gar@dv.is
Vigur Fjölskyldur tveggja
bræðra hafa búið isátt og sam-
lyndi i Vigur. Sagt er að verið sé
að selja eyjuna en annar bræðr-
anna segir og snemmt að stað-
festa að svo sé.