Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Page 18
e \ kws: aAvúRW .1
1 8 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004
Sport DV
1
Ósáttur Birkir Ivar Guðmundsson, markvörður Hauka, skilur ekkert Istjórn Hauka sem hafa
ekki lenguráhuga á að hafa Viggó Sigurðsson I vinnu.
Óskiljanleg
ákvörðun
Birkir ívar Guðmundsson,
markvörður Hauka, var felmtri
sleginn er DV Sport náði tali af
honum í gær og hann var vart
búinn að átta sig á því hvað hefði
gerst. Talað hefur verið um að ein
ástæðan fyrir brottrekstri Viggós sé
sú að leikmenn hafi verið óánægðir
með Viggó. Við það kannast Birkir
ívar ekki.
„Þetta kom leikmönnum
algjörlega í opna skjöldu. Þetta
kemur verulega á óvart. Ég kannast
síður en svo við það að leikmenn
hafi verið eitthvað óánægðir með
Viggó. Leikmenn hafa ekki fundað
um málið og það hefur aldrei
komið upp sú staða að við höfum
þurft að funda eitthvað sérstaklega
um Viggó. Hópurinn hefur aldrei
tekið þá ákvörðun að vilja Viggó í
burt,“ sagði Birkir ívar sem gjarna
hefði viljað halda Viggó hjá félaginu
sem og aðrir félaga hans í
Haukaliðinu.
Vildi halda Viggó
„Ég get ekki talað fyrir hönd
annarra en ég hefði persónulega
viljað hafa Viggó áfram. Ég talaði við
nokkra lykilmenn í liðinu á
þriðjudagskvöldið og þeir voru
nánast meira hissa á þessari
ákvörðun en ég,“ sagði Birkir ívar og
bætti við að leikmenn hefðu ekkert
verið hafðir með í ráðum áður en
ákvörðunin um að reka Viggó var
tekinn.
„Ég kannast ekki við það. Ég var í
það minnsta ekki spurður álits á
málinu sem og hópurinn í heild
sinni," sagði Birkir Ivar.
Mjög ósáttur
Það mátti greinilega heyra á Birki
ívari að hann var óánægður með
þessa ákvörðun og hann fór heldur
ekkert í felur með það.
„Ég er mjög ósáttur með þessa
ákvörðun. Eg vildi halda Viggó.
Hann er maðurinn sem fékk mig til
félagsins á sínum tíma og við höfum
átt mjög ánægjulegt samstarf," sagði
Birkir ívar en ástæðan að baki
þessari ákvörðun er honum hulin
ráðgáta.
„Ég hreinlega hef ekki hugmynd
um af hverju þessi ákvörðun var
tekin. Hún kemur þar að auki á mjög
skrítnum tímapunkti en við eigum að
spila tvo hörkuleiki um helgina. Liðið
hefur spilað nokkuð vel í vetur þótt
þátttakan í Meistaradeildinni hafi
aðeins komið niður á árangrinum í
deildinni. Á móti kemur að deildin
hér heima er í sjálfu sér ekki að byrja
almennilega fyrr en á föstudag. Þá
byrjar alvörubaráttan."
Getum ekkert gert
Birkir segir að leikmenn muni
eflaust ræða málið sín í milli á
næstunni.
„Við hljótum að Setjast niður á
næstunni og fara yfir málin. Það
verður bara að koma í ljós hvað
kemur út úr því en svo spyr maður
sig náttúrulega að því hvað getum
við gert? Það er búið að taka
ákvörðunina."
henry@dv.is
Páli boðið starfið
Það var nóg að gera hjá
forráðamönnum handknattleiks-
deildar Hauka í gær en fyrir
hádegi reyndu þeir að fá Viggó
Sigurðsson til að stýra liðinu út
leiktfðina en eftir að hann gaf
þeim endanlegt afsvar snéru þeir
sér aö Páli Ólafssyni,
aðstoðarmanni Viggós, og buðu
honum að stýra skútunni út þetta
tímabil.
„Ég heyrði í forráðamönnum
félagsins í dag og þeir buðu mér að
stýra liðinu út þessa leiktíð," sagði
Páll í samtali við DV Sport í gær.
„Ég mun samt ekkert gefa þeim
svar fyrr en á morgun [í dag. innsk.
blm.). Ég vil fá að hugsa málið í
einn dag hið minnsta.'1
Viggó mælti með Páli
Ekkert hefur verið rætt um það
hver muni aðstoða Pál ef af yrði að
hann tæki við liðinu. „Málið er
bara ekki komið svo langt. Nú
snýst þetta bara um að bjarga
okkur út úr þeim vandræðum sem
við erum komnir í,“ sagði Páll en
Viggó Sigurðsson lýsti því yfir í gær
að hann teldi Pál vera rétta
manninn til þess aö klára
tímabilið.
„Ég myndi aldrei gera lengri
samning en út þetta tímabil. Ég
held að það sé eðlilegast í stöðunni
að ég taki við liðinu í stað þess að
ráða inn nýjan mann á þessum
tímapunkti
Eiður þögull
Bölvanlega gekk að ná tali af
Eiði Arnarsyni, formanni
handknattleiksdeildar Hauka, ' í
gær en engar skýringar hafa enn
fengist frá Haukum varðandi það
af hverju þeir ákváðu að láta Viggó
fjúka. Þegar blaðamaður DV
Sports náði loks í Eið hafði hann
lítið að segja.
„Ég hef ekkert um málið að
segja á þessari stundu en þið
munið heyra frá mér fljótlega." Svo
mörg voru þau orð. henry@dv.is
„Mér finnst einnig
furðulegt að þeir
skyldu haida að ég
hefði áhuga á að
klára tímabilið
vitandi það að ég
nyti ekki trausts
stjórnarinnar sem
og einhverra
ieikmanna. Það er
furðulegt að þeir
hafi trúað því að
ég myndi sitja
áfram eins og
ekkert hefði í
skorist."
. .. . -A