Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004
Fókus DV
Að tileinka feril sinn því að túlka
einn ákveðinn listamann komst
kannski fyrst í tísku með Elvis eftir-
hermunum. Stöðugt virðist fjölga í
þeirra hópi, og meðal hinna þekktari
eru Tortillelvis í hljómsveitinni
Dread Zeppelin og hinn Mexíkanski
El-Vis. Aðrar hljómsveitir sérhæfa sig
í Bítlunum eða Stones, eins og The
Beat-less, Beat the Meetles og Fab
Feux, eða The Rolling Clones, The
Strolling Bones ogThe Rollin Stoned.
Sumir sækja þó í örlítið nýrri jarðveg:
One Step Below eru skrefi fyrir neðan
Madness, sem gáfu út plötuna One
Step Beyond, 2U kemur til þín með
U2 lög og 4-5-94 spilar Nirvana lög,
en dagsetning vísar til dagsins sem
Cobain dó. Sumar kannski útskýra
sig sjálfar: Alike Cooper, Alanis More-
orless, Essex Pistols og að minnsta
kosti tvær hljómsveitir sem nefnast
Bad Flair Day og eru tileinkaðar
þungarokki 9. áratugarins. Surnar
eftirhermuhljómsveitir hafa einnig
annað undirþema. Til dæmis er Hells
Belles stelpuband sem spfiar AC/DC
lög, Mandonna er hljómsveit
dragdrottninga sem spilar
Madonnulög, og fyrirtækið Litde m-
an útvegar dvergvaxnar eftirhermur,
eins og Mini-Kiss og Mini-Elvis.
Abba frá íslandi til Tyrklands
Hljómsveitir sem spila lög eftir
Abba hafa náð hvað mestum vin-
sældum, og ber þar Björn Again höf-
uð og herðar yfir aðrar grúppur. En
margar aðrar eru til, svo sem
Abbacadabra, Abbalanche og
Abbamania, en sú síðastnefna hefur
tekið sér titilinn „eina raunverulega
Abbahljómsveit Skotlands." Sænski
kórinn Rosvikskoren hefur haldið
sýningar þar sem einungis eru flutt
Abbalög, bandaríski kórinn San
Francisco Gay Men's Chorus gaf út
plötuna ExtrABBAganza, Tyrkir settu
upp söngleikinn Swedish Style, sem
íjallar um síðustu ár hljómsveitar-
innar og ísraelska hljómsveitin I Can
Boogie syngur ABBA lög á hebresku.
Ekki eru þó allir á eitt sáttir, og eru
dæmi um að menn haldi úti mjög
hatursfullum áróðri gegn
Abbaböndum á vefsíðum.
íslendingar læra að
herma eftir
Ástralía, heimaland Björn Again,
hefur lengi verið helsta vígi eftir-
hermubandanna, enda úr alfaraleið
og ekki svo oft sem stórstjörnur
koma þangað. ísland er einnig úr al-
faraleið, og er landinn heppinn ef
hann fær að berja erlendar hljóm-
sveitir sem hann hefur áður heyrt
um augum oftar en einu sinni á ári.
Því er kannski undarlegt að það skuli
ekki vera til fleiri eftirhermuhljóm-
sveitir hér. í upphafl rokksins á ís-
landi var þó til flillt af þeim. Þannig
spiluðu Dátar í fyrstu helst lög eftir
The Kinks, og Zoo spilaði lög eftir
The Who. Peter Townshend og félag-
ar voru þekktir fyrir að eyðileggja
hljóðfæri og allar græjur í lok tón-
leika, en Zoo hafði ekki efni á að
fórna nema einum og einum simbal
við og við. Allar þessar hljómsveitir
fóru þó brátt að spila eigin lög eða
hættu ella.
Djúpur Jimi
Þó mikið hafi verið um ballbönd
sem spiluðu lög eftir aðra varð það
ekki fyrr en með Deep Jimi and the
Zep Creams í kringum 1990 að aftur
komu upp kóverhljómsveit hérlend-
is sem einbeitti sér að einhverju tón-
leistarþema öðru en því að skemmta
fólki, og spiluðu þeir lög eftir þær
hljómsveitir sem nafnið var sett
saman úr. En það var meira en það
sem minnti á hippatímann því sonur
Rúnars Júl var á trommum. Þegar
hljómsveitin hafði safnað saman fé
með tónlist fallinna súpergrúppna
fóru þeir til New York með aurinn og
tóku upp plötu með frumsamdri
tónlist; Funky Dinosaur. Risaeðlan
funkaði sig ekld inn í hjörtu Banda-
ríkjamanna, og bandið kom heim og
gaf út eina aðra plötu áður en þeir
lognuðust útaf.
Stebbi, Eyvi og Birgitta
Haukdal
Aðrar hljómsveitir fylgdu í kjölfar-
ið á 10. áratugnum. Jafnvel menn
sem höfðu getið sér gott orð á öðrum
vettvangi tóku þátt í eftirhermuhark-
inu. Richard Scobie lék Bono í
hljómsveitinni U3, sem spiluðu U2
lög á Astró. Stórstjörnurnar Stebbi og
Eyvi komu fram með Simon og Gar-
funkel prógramm. Hótel ísland setti
upp sýningar tileinkaðar ákveðnum
hljómsveitum. í Abba sýningu birtist
ung söngkona að nafni Birgitta
Haukdal mörgum í fyrsta sinn, og á
sýningu tileinkaðri Queen birtist Ei-
ríkur Hauksson í fyrsta sinn í langan
tíma, sem flaug reyndar hingað frá
dvalarstað sínum í Noregi fyrir
hverja sýningu. Einnig hafa verið
sýningar tileinkaðar Bee Gees og El-
vis er heldur ekki dauður úr öllum
æðum, og hefur norski söngvarinn
DeepJimi Siggi Eyberg og félagar þén- Gildrumezz Gildran breytti um nafn og
uðuum tima vel á eftirhermubransanum einbeitti sérað Creedence
Stebbi og Eyvi Eiga það til að bregða sér i gervi Simon og Garfunkel
Þýska hljómsveitin Die Herren skemmtir á
NASA á fimmtudag og föstudag með lögum
eftir U2, og taka líklega talsvert minna fyrir
greiðann en Bono og félagar. Þær eru þó að-
eins ein afmörgum hljómsveitum sem herma
eftir frægum böndum. Kover-bönd eru að ryðja
sér rúms á íslandi. Nýtt trend í uppsiglingu.
Kjell Elvis sungið þar, jafnframt því
sem að önnur Elviskvöld hafa verið
haldin. Steinn Ármann hefur einnig
stundum komið fram sem Elvis. í
sumar lék hann víkinga Elvis á Vík-
ingahátið, og um þessar mundir fer
hann á kostum í leikritinu Eldað með
Elvis.
Creedence á Kaffi Reykjavík
Þó eru það enn gömlu
súpergrúppurnar sem heilla mest.
Gildran trekkti að fleiri en hún hafði
gert í langan tíma þegar hún breytti
nafninu í Gildrumezz og spilaði ein-
ungis lög eftir Creedence Clearwater
Revival, og gáfu jafnvel út plötu með
efni þeirra. Dúndurfréttir hafa verið
að gera það gott undanfarið með
lögum eftir Pink Floyd og kvöld hafa
verið haldin til heiðurs Deep Purple
og Black Sabbath, þar sem Eiríkur
Hauksson birtist eina ferðina enn.
Eitt nýjasta eftirhermubandið, Feel
Freeman, spilar lög eftir hina tiltölu-
lega ungu Red Hot Chili Peppers.
Sumir spila lög listamanna sem
aldrei hafa náð miklum söluhæðum,
en eiga þó sterka aðdáendakjarna.
Hljómsveitin Misery Loves Company
hefur við og við spilað Tom Waits
plötur í heilu lagi á Sirkús og Central
í miðbænum, og blaðamaður hefur
reyndar gefið út plötu með Leonard
Cohen lögum á íslensku. Hann getur
vottað fyrir það að maður ríður ekki
alltaf feitum hesti ífá slíku ljárhags-
lega, og því þarf oft að bæta það upp
með áhuganum.
valur@dv.is