Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Qupperneq 29
DV Fókus
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 29
Æskudýrkun fullorðinna tröllríður nú öllu og á sama tíma kvartar þetta fólk yfir
lágu sjálfsmati barna sinna, sem þurfa að standast harðar kröfur um líkamsburð
og klæðnað. En hvernig eiga börnin að vera sátt við að vera fimm kílóum of þung
í fötunum sem keypt voru í Hagkaupum, á meðan mamma sýnir sílikonið í gegn-
um DKNY-bolinn sinn og pabbi klæðist Armani og keyrir um á Audi TT?
Paul McCartney Glft-
ist konu sem er 25
árum yngri en hann,
lét lita á sér hár og
augabrúnir og flutti i
nýtt hús við hliðina á
tónlistarmanninum
Fatboy Slim.
og fara út með
hundinn eftir
vinnu, fara for-
eldrarnir í
Playstation áður en þeir mæta
á hárgreiðslustofuna til að láta
setja í sig nýjar strípur.
Fullorðið fólk vill verða börn
og böm vilja verða fullorðin.
Eini munurinn á þessum tveim-
ur þjóðfélagshópum virðist nú
liggja í líffræðinni, því hugsun-
arhátturinn er sá sami. Stúlkur
ala börn upp úr tvítugu og for-
eldrarnir aftur upp úr fertugu,
þannig að mörg nýfædd börn sam-
tímans eiga ófædd móður- eða föður-
systkin. Nostalgían hefur skapað
ringulreið þannig að brátt verða
ömmur og afar jafngömul barna-
börnum sínum.
Madonna Lesbiskur
barnabókahöfundur
eða bara ringluð móð-
ir? Einn daginn kyssir
hún Britney Spears en
hinn skrifar luin
barnabók.
Óvissa og óöryggi foreldranna
Sálfræðingar segja þessa nostalg-
íuhugsun miðaldra fólks svo sem ekki
vera nýja af nálinni en hún hefur auk-
ist mikið á síðustu árum. Meðalaldur
tölvuleikjaspilara var t.d. árið 1990 18
ár en var árið 2000 orðinn 29 ár. Sala
á barnabókum hefur aukist mikið á
þessum tíma og sífellt fleiri barna-
bækur hljóta verðlaun, einfaldlega
vegna þess að það er fullorðið fólk
sem er að lesa þær. Það sama má
segja um tónlist og kvikmyndir.
„Þessi hegðun ber vott um óöryggi
og óvissu fólks um hvað það vilji gera
í framtíðinni," segir breski sálfræð-
ingurinn Frank Furedi. „Þegar for-
eldrar eru farnir að blanda of miklu
geði t.d. við vini barna sinna, farnir að
hlusta á sömu tónlist og horfa
sömu kvikmyndir, er það yfír-
leitt vegna þess að þeim finnst
eitthvað vanta inn í sitt eigið
líf. Þannig hefur þunglyndis-
sjúklingum í aldurshópnum
25-35 ára fjölgað um 10% á
hverju ári síðustu ár og þetta
virðist haldast í hendur."
Það eru því ekki bara
blessuð börnin sem eru að
fara með alll til fjandans með fárán-
lega háum kröfum um útlit og annað,
þvf foreldrarnir eru alveg jafn slæmir.
Þetta sanna dæmin, s.s. Madonna
sem slefar upp í Britney Spears milli
þess sem hún skrifar barnabækur,
Tony Blair eignast börn upp úr fimm-
tugu og spilar á Fender-gítarinn sinn,
Paul McCartney giftist konu sem er
25 árum yngri og lætur lita á sér hár
og augabrúnir. Á sama tíma byrjar
Harrison Ford með stúlku sem er 20
árum yngri en hann sjálfur og kaupir
sér Harley-mótorhjól, Bill Clinton fer
í megrunarkúr, ferry Hall skilur við
Jagger og byrjar með manni sem er 10
árum yngri en hún, á sama tíma og
hún er aðalmódel fyrir nýju H&M
unglingalínuna. Kyn-
slóðirnar virðast vera
áð skipta um hlut-
verk.
Tony Blair Nýbakaður
fimmtugur faðir sem
gengur um igallabux-
um og spilar á raf-
magnsgitar þegar
Oowning-streetið er
ekki fullt af lordum og
oðrum tedrykkju-
mönnum.
Harrison Ford Hinn
rumlega sextugi Ford
° / sambandi við konu
sem er 20 árum yngri
°g keyrir um á Harley
Oavidson.
Þau hlusta á Sigur Rós og lesa
Harry Potter, ganga um í Levi’s bux-
um og Adidas-skóm, spila Playstation
og ferðast um á línuskautum. Þau
borða á Grænum kosti, drekka diet-
kók og horfa á klámmyndir. Svona
halda margir að unga fólkið sé í dag,
en því fer íjarri - þetta er fólkið sem er
komið yfir fertugt en neitar að trúa
því.
Ringulreið nostalgíunnar
Æskudýrkunin virðist alltaf vera
að aukast. Ef litið er inn í tískuvöru-
verslun er ekki óalgengt að sjá tvær
stúlkur vera að skoða föt saman. Eru
þær vinkonur? Kannski systur? Nei,
þær eru mæðgur en það þarf svo sem
enginn að skammast sín fyrir mis-
skilninginn því mamman er í flegnari
bol en 16 ára dóttirin, helmingi sól-
brúnni og með mun strekktara andlit.
Sumir foreldrar virðast ekki sætta sig
við gang lífsins og að þeirra tími sé
liðinn. I stað þess að sjá um heimilið
Dcmi Mooie Ásamt
hinum unga elskhuga
sinum, Ashton Kutcher
Stjörnuspá
Jónas Kristjánsson, ritstjóri Eiðfaxa, er
64 ára í dag. „Hann
ætti að taka sinn
tíma og ekki hika
við að starfa í
þágu fólks af
sanngirni og auð-
mýkt," segir í
stjörnuspá hans.
Jónas Kristjánsson
VV Vatnsberinn (20.jan.-1s.febrj
'vY -----------------------------------
Miklar líkur eru á að þú náir
langt þegar draumar þínir eru annars
vegar, ef þú temur þér háttvísi gagnvart
náunganum og tileinkar þér að fyrirgefa
öðrum mistök sín. Rasaðu ekki um ráð
fram þegar frjármál eru annars vegar.
H
F\skm\t (19.febr.-20mars)
Hvar sem þú stígur niður fæti
Ijómar umhverfið sannarlega. Þú getur
orðið hvað sem þú vilt, hafðu það hug-
fast. Vinnugleði einkennir stjörnu fiska en
á sama tíma birtast hér stórir draumar
sem ekki mega gleymast.
Hrúturinn (21. mars-19. aprii)
Líkamleg áreynsla hleður orku-
stöðvar hrútsins svo um munar en á sama
tima ættir þú að byggja upp þlna eigin
sálarró með því að vera sérstaklega vak-
andi fyrir því jákvæða sem þú upplifir.
^ Nautið (20 apríl-20. mal)
Ákveddu hvert þú stefnir í raun
og veru, óháð öllu sem í kringum þig er.
Bjóddu kraftinum heim því stjarna nauts-
ins er fær um slíkt í febrúar. Þú laðar ef-
laust um þessar mundir að þér kraftaverk-
in og það sem kallast heppni.
nTvíburarnirpí . mal-21.júnl)
Þú ert án efa afkastamikil/l um
þessar mundir því kraftur þinn er mikill
hér þegar stjarna þín er skoðuð. Hlustaðu
gaumgæfilega næstu daga á það sem þú
upplifir og treystu því sem þú heyrir þeg-
ar sjálfið lætur þig vita hvað er þér fyrir
bestu.
Kttbb'm (22.júní-22.júll)
Settu líkamlega velferð þína
framarlega í forgangsröðina þessa dag-
ana. Stjarna krabbans þarfnast daglegrar
hreyfingar og útrásar á einhvern hátt svo
skapið þvælist ekki fyrir henni.
Ljónið(2ijii//-?2.^úst)
Þú birtist hérna spámanni sem
manneskja sem er sífellt á hlaupum.
Stjarna þín þráir hvíld á einhvern hátt og
skipulag þegar óklárað verkefni er annars
vegar.
115
Meyjan (21 ágúst-22. septj
Þér er ráðlagt að bera fram ósk-
ir þínar með því að segja einfaldlega
frammi fyrir sjálfinu og jafnvel öðrum
hvað þú þráir. Ekki hika við að trúa á eigin
getu til að skapa framtlð þlna.
Q Vogin (2lsept.-23.okt.)
Gleymduekkiaðaðrirleggja
jafn hart að sér og þú þegar nám eða við-
skipti eru annars vegar. Stjarna vogar ætti
að endurskoða lífsgildin sem hún lifir en
hún er eflaust meðvituð um að þótt hún
bjargi ekki heiminum er hún vissulega fær
um að leggja fram sinn skerf.
Sporðdrekinn (2iokt.-21.n0v.)
Hér bíða tækifæri eftir því að
vera uppgötvuð og framkvæmd en þú átt
það stundum til að forðast þau og trúna á
getu þína til afreka. Þegar þú hefur sæst
við sjálfið eflist orka þín og ekki síður
framkvæmdasemin.
/
Bogmaðurinnp2.nw.-2!.ítej
Þér er ráðlagt að hugsa ein-
göngu jákvætt og einbeita þér að því
góða I fari náungans. Líðan þín breytist
vissulega með árstíðunum þar sem hugs-
anir þínar og viðhorf til umhverfisins ein-
kenna þig á mismunandi vegu.
Steingeitin (22.des.-19.janj
Vertu meðvitaður/meðvituð um
í hvað þú eyðir tíma þínum og með hverj-
um, næstu daga og vikur. Reyndu fyrir
alla muni að segja hvað þér býr í brjósti
þegar fjölskylda þín er annars vegar.
SPÁMAÐUR.IS
Z