Dagblaðið Vísir - DV - 05.02.2004, Page 31
í
DV Síðast en ekki síst
FIMMTUDAGUR 5. FEBRÚAR 2004 3 7
Hvernig heimastjórnarpartí
vildir bú?
Púður í horfinn tíma
Fyrir hundrað árum síðan fékk ísland
heimastjórn. í ræðum höfðingjanna er
þessum áfanga að þakka Hannesi Haf-
stein, fyrsta ráðherra íslands, en hann
fékk þetta víst í gegn árin þegar íslend-
ingar voru upp til hópa fátækir smælingj-
ar með hor. Eða þannig má skilja ræðurn-
ar. Nú erum við hinsvegar á flottum bílum
og ekkert svo fátæk og höfum öll skoðun
á því hvernig til tókst, í afmælinu góða.
Hefði viljað mark-
vissa fræðslu
„Ég hef lítið kynnt mér dagskrá
afmælisins og sé í raun engan til-
gang í því þar sem hátíðin er að
mestu haldin í Reykjavík en ég bý á
Akureyri," segir Hilda Jana Gísla-
dóttir sjónvarpskona á Akureyri.
„Ég hefði viljað að í tengslum við
heimastjórnarafmælið væri reynt að
virkja almenning og að meiri áher-
sla hefði verið lögð á fræðslu til al-
mennings og kynningarstarf í
grunnskólum. Ef áhugi þjóðarinnar
hefði markvisst verið vakinn með
fræðslu og umræðu um þennan
merka atburð, hefði verið enn
skemmtilegra að halda góða hátíð
fyrir alla þjóðina."
Aðspurð um deilur forseta og
forsætisráðherra hafði Hilda þetta
að segja. „Þetta er einfaldlega
kjánalegt mál. Deilur þeirra tveggja
minna helst á sandkassaleik og gera
lítið úr sjálfu tilefninu. Það er afar
sorglegt ef fólk á eftir að minnast
þessara tímamóta út frá þessu til-
gangslausa rifrildi. Þessir menn
verða að hafa manndóm í sér til
virða hlutverk hvors a.nnars."
„í stað þess að beina athyglinni svona mikið að persónu Hannesar Hafstein
hefði verið meira spennandi að byggja á þeim boðskap um áræðni og framkvæmd-
ir sem hann bar með sér inn í íslenskt samfélag,“ segir Jón Kaldal ritstjóri Skýs.
„Mér sýnist semsagt of mikið púður fara í horfinn tíma í stað þess að horfa fram
á veginn með hugmyndafræði Hannesar bakvið eyrað. Það hefði til dæmis verið
kjörið að stilla afmælishátíðinni upp á þá leið að velta því fyrir sér hvað við íslend-
ingar þurfum að gera til þess að næstu ár megi vera okkur jafn mikill gróskutími og
fyrstu ár heimastjórnarinnar þegar framfarahugur og bjartsýni náðu að leika um
allt þjóðfélagið,“ segir Jón og bætir við að ekki veiti af bjartsýninni miðað við þá
flokkadrætti og geðvonsku sem hafa verið áberandi undanfarið.
Formlegt og ætlað fáum
Lögmaðurinn „Cullið tæki-
færi gengut okkur úr greip-
um, segir Heidrún Jónsdóttir.
„I mínum huga er mikilvægt að við höldum upp á merka viðburði í Islandssögunni
með skemmtilegri og fjölbreyttri hátíðardagskrá sem höfðar meira til fjöldans og þá
ekki síður yngri kynslóðarinnar. Hátíðahöldin núna virðast hafa verið alveg á hinn veg-
inn, formleg og ætluð fáum fremur en fjöldanum," segir Heiðrún Jónsdóttir fram-
kvæmdastjóri lögmannsstofunnar Lex.
„Ungar og upprennandi kynslóðir í landinu þurfa að þekkja sögu lands og þjóðar
og hverjir helstu merkisdagar hennar eru. Og þá ekki síður hvaða áhrif slíkir atburðir
höfðu á þjóðina til lengri tíma litið - koma þeim stundum aðeins út úr nútímanum
sem er síbreytilegur, auðvelda þeim þannig að sjá söguna í samhengi. Hátíðahöld með
þeim hætti sem við höfum séð síðustu daga skila að mínu mati slakari árangri - og
gullið tækifæri til að skemmta og fræða ungu kynslóðina rennur okkur úr greipum."
Vil látlausa hátíð
Sjónvarpskonan „Hátiðin er
að mestu haldin i Reykjavik en
ég bý á Akureyri," segir Hilda
Jana Gisladóttir.
„Ég vil hófstillt og látlaust heimastjórnarafmæli,“ segir Valgeir
Guðjónsson tónlistarmaður. „Allar umræður og deilur um afmælið
í fjölmiðlum hafa verið ákveðið innlegg í skammdegið. Persónulega
hef ég ekki myndað mér skoðun en það er erfitt þegar horft er á gár-
ur á yfirborði án vitneskju um hvað leynist í djúpinu. Þjóðinni leið-
ist að minnsta kosti ekki á meðan.“
Valgeir segist að öðru leyti vona að hátíðahöldin í tilefni þessa
merka atburðar nái sínum tilætlaða árangri, sem sé að minnast
merkra tfmamóta í sögu þjóðarinnar og sjálstæðisbaráttu hennar.
Sjónvarpsmógúllinn „Væri
fyrirgefið á stundinni," segir
Pálmi Cuðmundsson.
Fyrirgefið á stundinni
„Eins og mér finnst hátíðin hafa tekist í
meginatriðum vel og vera þjóðinni til sóma
að þá er jafn hallærislegt að forseta lýð-
veldsins sé ekki boðið. Ólafur Ragnar hefur
mætt við minna tilefni og þess vegna finnst
mér ómögulegt að hann sé ekki á svæðinu,"
segir Pálmi Guðmundsson, markaðsstjóri
sjónvarpssviðs Norðurljósa.
„Einnig ber að hafa í huga að forsetinn
gerði doktorsritgerð um þetta málefni sem
gerir þetta mál enn furðulegra. Þeir sem
gerðu þessi mistök eiga að koma fram og
biðja forsetann og aðra afsökunar.
Fólk gerir alltof lítið af því að viðurkenna
mistök sín. Þetta væri fyrirgefið á stundinni
ef menn kæmu hreint fram.“
Veðurfræðingurinn „Hefði
viljað sjá forsetann vera við-
staddan afmælið,"segir
Sigurður Þ. Ragnarsson.
Nægursnjórí
íslenskum fjöllum
„Ég hefði viljað sjá forsetann vera við-
staddan afmælið, enda eru þetta mikil 1
tímamót,1' segir Sigurður Þ Ragnarsson |
veðurfræðingur á Stöð 2. „Forseti íslands er jú
æðsti handhafi framkvæmdavaldsins og það
hefði sett mikinn hátíðarbrag yfir afmælið
hefði hann séð sér fært að mæta. Hvað rík-
isráðsfundinn varðar tel ég það vera öllu
minna mál og óþarflega mikið gert úr honum.
Það er líka einkennilegt hvað forsetinn tekur j
þetta nærri sér þar sem hann ákvað nú sjálfur ;
að vera fjarverandi á afmælinu."
Sigurður bætir því hinsvegar við að allar I
umræður um þetta mál séu ágætar, enda veki :
þær fólk til hugsunar um hvernig stjórnskipan j
landsins sé háttað. „Þetta hristir upp í fólki og
það er alltaf jákvætt. Fjölmiðlar hafa auðvitað
velt fyrir sér ýmsum vinklum á málinu og
skapað skemmtilega umræðu," segtr
Sigurður. Bætir við að vonandi hafi skíðaferð
forsetahjónanna verið ánægjuleg, en að sama i
skapi megi benda á að nóg sé af snjó í íslen-
skum fjöllum og það hefði óneitanlega verið j
ánægjulegt að sjá forsetann spóka sig þar.
Barnagleði
(
„Afmæli eru fyrir börn. Og eiga að
vera það,“ segir Dagur B. Eggertsson
borgarfulltrúi. „Ég veit til þess að fjöldi
skóla og leikskóla hefur unnið verkefni
í tengslum við hundrað ára afmæli
heimastjórnar. Ég held að það hefði
miklu skemmtilegra að senda heilsu-
bætandi gulrótarköku með hundrað I
kertum í hvern þeirra heldur en að |
halda uppstríluð hóf fyrir fáa útvalda. j
Gleðin hefði án efa verið óskiptari.
Kannski hefði ekki heldur verið vit-
laust að gefa út myndasögu eða tölvu-
leik í tilefni tímamótanna. Ég veit ekki
hvort það verði biðröð á bókasöfhun-
um eftir Sögu stjórnarráðsins, eins
ágætt framtak og það getur þó án efa
talist. Ein hugmynd þarf heldur ekki
að útiloka aðra. Ætli afmælisnefndin
gerði ekki best í því að leggjast í bakst-
ur?“
I