Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Side 10

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1963, Side 10
104 TlMARIT VPI 1963 urinn stundum ekki verið óverulegur. Erfitt er að gera sér nákvæmlega grein fyrir því, hve mikið landsmenn hafi hagnazt á kaupunum vegna íslenzka sementsins, en sízt er of hátt áætlað, þótt sagt sé, að landsmenn hefðu þurft að verja 20 millj. kr. meira til sementskaupa und- anfarin fjögur ár, ef hinnar íslenzku framleiðslu hefði ekki notið við. Um sementið sjálft, og ekki síður notkun þess, mætti margt segja. En það verður að bíða síns tíma, og verð- ur rætt um hvort tveggja ýtarlega annarsstaðar. Reynsla manna af sementinu á undanfömum fjórum árum hefur staðfest það, sem prófað er daglega og jafnvel oft á dag í rannsóknarstofum verksmiðjunnar, að hér er um mjög góða vöru að ræða, og mun sjaldan hafa borizt betri vara til landsins. Fyllsta gagn er þó því aðeins hægt að hafa af sementinu, að rétt sé með það farið, en meðferðinni mun æði oft vera ábótavant. Það er og til staðfestingar á gæðum vörunnar, að búið er að selja hana á mjög vandlátum erlendum markaði um tveggja ára skeið, og hefur aldrei verið yfir henni kvartað. Framleiðsla sements innanlands hefur þvx orðið lands- mönnum til góðs, þeir hafa fengið góða vöru fyrir sann- gjamt verð og aldrei verið skortur á henni, eins og oft vildi brenna við áður. Og í framtíðinni ætti að verða enn meira gagn að þessari innlendu framleiðslu, bæði beint og óbeint, og eru ekki tök á að rekja það nánar hér. • Eins og að líkum lætur átti sú starfsemi, sem hér hefur verið gerð að umtalsefni, sér langan aðdraganda, reyndar mjög langan aðdraganda, og má jafnvel segja að til- viljanir hafi ráðið því að verulegu leyti, að úr fram- kvæmdum varð yfirleitt. Verður ekki hjá þvi komizt að rekja þá sögu örlítið í höfuðdráttum, enda þótt það sé mönnum enn í fersku minni, einkum þó síðasti þáttur- inn. Fátt hefur skort jafntilfinnanlega á þessu landi og varanlegt byggingarefni, og hefur svo verið allt frá upp- hafi Islands byggðar. Segja má með nokkmm sanni, að hver kynslóð hafi þurft að byggja yfir menn og mál- leysingja, og hefur ætíð þurft að vanda. til húsakosts vegna þess, hve veðurfar er erfitt. Hafa Islendingar átt við allt önnur kjör að búa í þessu efni en flestar aðrar þjóðir, og hefur þessi mannvirkjagerð að sjálfsögðu tak- markað mjög framkvæmdir á öðrum sviðum. Á síðari hluta síðustu aldar var nokkuð farið að bera á nýju byggingarefni erlendis, portlandsementi, og fyrir siðustu aldamót hófst notkun þess hér. Má svo segja, að því hafi verið tekið tveim höndum: og er innflutningur þess kominn upp í 1750 tonn árið 1905. Var það geysi- mikið magn á þess tíma mælikvarða. Framsýnir menn sáu, að hér var fengið byggingarefni, sem úr mætti gera varanlegar byggingar með hóflegum kostnaði hér á landi. Og einmitt um þetta leyti, á fyrsta tugi þessarar aldar, var fyrst gerð athugun á því, hvort framleiða mætti með árangri sement hér á landi. Athuganir þessar báru ekki árangur. Hvað valdið hef- ur, er mér ókunnugt, en gera má ráð fyrir, að það hafi verið hvort tveggja í senn: skortur á hentugum hráefn- um til framleiðslunnar og ónógur markaður, einkum þó hið fyrrnefnda, hið sama og síðar varð byggingu sem- entsverksmiðju að fótakefli lengi vel. Á næstu áratugum bar f ramleiðsla sements oft á góma, einkum var hugað að hentugum hráefnum, er afla mætti með nægilega auðveldum hætti, svo að það hentaði fram- leiðslu sem þessari, en hvergi var auga á þau komið. Allt mun þetta þó hafa verið laust í reipunum, unz komið var fram á 4. tug aldarinnar. Þá var gerð öflug atrenna til lausnar viðfangsefninu, fyrst gerð ýtarleg leit að hent- ugustu hráefnxmum og á grundvelli þeirra athugana gerð nákvæm áætlun um sementsverksmiðju. Var til þessa fenginn erlendur sérfræðingur, er starfaði með íslenzkum aðilum og ferðaðist víða um landið í þessu skyni sumar- ið 1936. Tekin voru til athugunar hráefni frá mörgum stöðum víðsvegar xrm landið og það tekið til rækilegastrar at- hugunar, er bezt þótti henta, magn hráefnanna athugað og samsetning þeirra rannsökuð. Kalkið til framleiðslunnar skiptir að sjálfsögðu mestu máli, því að af því er langmest notað. Var að gaumgæfi- lega athuguðu máli ráðgert að taka skeljasand í Pat- reksfirði, þar sem nægilegt magn átti að vera fyrir hendi til framleiðslu á 25 þús. tonnum sements í 100 ár. Átti að flytja skeljasandinn, sem inniheldur rúm 80% af kalki, frá Patreksfirði til Gufuness, austan Reykja- víkur, þar sem ráðgert var að reisa verksmiðjuna. Um 5% af hráefnum til framleiðslunnar átti að taka úr leir- bökkum við Elliðaárnar, en til að auka kísilsýruinnihald hráefnanna var ráðgert að sækja um 7% af hráefnun- um austan frá Hveragerði, meðan hverahrúðrið þar ent- ist, og að því búnu stóð til að nota hverahrúðrið frá Geysi í Haukadal. Var siðan gerð áætlun um verksmiðju, er notaði þessi hráefni til framleiðslunnar. Var áætlunin í alla staði vandvirknislega unnin, en í ljós kom, að framleiðslu- kostnaður sements í þeirri verksmiðju, er ráðgerð var, væri nokkru hærri en innflutt sement kostaði þá í Reykjavík, enda þótt um fulla nýtingu afkastagetu verk- smiðjunnar væri að ræða. 1 áætluninni var ekki reiknað með kostnaði á flutningi sements til annarra landshluta, en sá flutningur er ærið kostnaðarsamur. Vegna hins háa framleiðslukostnaðar á sementinu varð ekki úr framkvæmdum. Komu hér greinilega í ljós þau atriðin, sem mörgu iðnfyrirtækinu verða að falli hér á landi: kostnaðarsöm öflun hráefna og víðáttumikill markaður, sem notar tiltölulega lítið magn hverrar vöru- tegundar. Dreifingarkostnaður vörunnar, einkum flutn- ingskostnaður hennar, verður því oft tiltölulega mjög mikill, sérstaklega þó, ef um ódýra þungavöru er að ræða. 1 því máli, sem hér um ræðir, kom dreifingar- kostnaðurinn þó naumast til athugunar, þvi að öflun hráefnanna var svo kostnaðarsöm miðað við verðmæti framleiðslimnar, að ógerlegt var að hleypa fyrirtækinu af stokkunum. En hráefni, sem betur lægju við til fram- leiðslunnar og afla mætti með hagkvæmari hætti, voru ekki tiltæk, svo vitað væri á þeim árum, þrátt fyrir gaumgæfilegar athuganir þar að lútandi. Þótt ekki yrði úr framkvæmdum að sinni var enn haldið áfram athugunum á hráefnum, er betur lægju við til framleiðslunnar eða væru hentugri að öðru leyti. Beindist athyglin einkum að kísilsýrurikum steintegund- um, er nota mætti saman við leirinn, en þó jafnframt að skeljasandi á öðrum stöðum en þeim, er áður höfðu verið athugaðir. Á nokkrum stöðum fannst barnamold eða kísilleir, sem stundum reyndist allkísilsýruríkur, þegar um þurr- an leirinn er að ræða. En aðstæður allar við öflun hans eru að jafnaði erfiðar. Þá var og rannsakaður allná- kvæmlega sandur í önundarfirði. En ekki reyndist hann eins kalkríkur og skeljasandurinn í Patreksfirði og ekki

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.