Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Side 3
ÖV Fyrst og fremst
MIÐVIKUDACUR 7. APRÍL 2004 3
ungar hins
Spaugstofumenn eru enn að, vinsælli
en nokkru sinni. Þeir hafa einokað
þá stöðu algerlega að vera konungar
grínsins á íslandi og nú í hartnær
tuttugu ár. Áhorfstölur sem þættir
þeirra í sjónvarpi allra landsmanna
hafa verið að fá eru með ólíkindum en þeir
hafa verið að sleikja 70 prósentin, met sem
sennilega
verður seint
slegið. „Ástæðu-
laust að breyta því sem virkar. Er það ekki?“ spurði Pálmi
Gestsson Spaugstofumaður í samtali við DV.
Myndin í fortíðarflandrinu að þessu sinni er frá árinu 1990
og er hún því tekin fyrir 14 árum en þarna má líta þá elskuðu og
Fortiðarflandur
dáðu félaga í góðum gír - að fagna á frétta-
stofunni. Næsta ár er talað um að Spaugstof-
an sé orðin tvítug en reyndar fer það eftir því
við hvað er miðað. Árið 1985 voru gerðir
sjónvarpsþættir með þessu nafhi en þá var
Laddi í hópnum, ekki Pálmi. Þegar þessi sig-
ursæli hópur var svo fullmótaður var komið
árið 1989: Örn Árnason, Pálmi Gestsson, Siggi
Sigurjóns, Randver Þorláksson og Karl Ágúst
Úlfsson. Áhöld eru því um hvert sé árið og ekki
bætir úr skák að nokkru fyrr höfðu Pálmi Siggi og Örn
rekið saman skrifstofu við Skólavörðustíg sem gekk undir
nafninu Spaugstofan. En almenn sátt ríkir um að miða við árið
1985, segir Pálmi og þá má ætla að skálað verði í kampavíni líkt
og þarna er gert á árinu 1990.
Spurning dagsins
Ætlar þú í kirkju um páskana?
Ég á ekki von á því
„Ég á nú ekki von á því að kíkja í kirkju
um páskana þó það komi trúnni kannski
ekki við. Ég trúi nú á hitt á þetta og á
sumum hlutum hefég reyndar tröllatrú.
Annars reyni ég að gera vel við mig og
mína á páskana. En ætli það sé ekki trú-
rækni sem minnir frekar á Rómverja en
Martein Lúter."
Kristján Jónsson myndlistarmaður
Ég verð að
syngja með kór
Landakots-
kirkju um pásk-
anasvo ég
kemst varla hjá
því. Páskarnir
hafa sérstaka
merkingu enda er ég, eins og
allir íslendingar, kaþólskur í
hjarta. Það er alkunna að sið-
bótinni var komið á með ofbeldi
og þjóðin sneri aldrei baki við
Jóni Arasyni né kaþólskunni.
Friðrik Erlingsson
rithöfundur
„Ég verð að
segja nei.
Vinnutiminn er
þannig að ég
vinn mikið
frameftir og
mér hefur alltaf
þótt gott að sofa út á sunnu-
dagsmorgnum. Ég hugsa samt
hlýtt til alls sem tilheyrir kirkj-
unni."
Úlfar Eysteinsson
matreiðslumeistari
„Ég reikna ekki
með að ég fari
í kirkju um
páskana. Von-
ast hins vegar
til að geta lok-
ið tilteknu
verki sem ég
þarfað Ijúka um páskahelgina.
En það er aldrei að vita með
föstudaginn langa en þá fer ég
oft og hlusta á passíusálmana.
Ég gæti allt eins gefið mér tíma
tilþess nú á föstudaginn."
Mörður Árnason
alþingismaður
„Nei, ég ætla
ekki í kirkju og
er ekki vön að
fara í kirkju
um páskana.
Þess í stað
ætla ég að
vera heima hjá mér og sinna
börnunum mínum og borða
góðan mat."
Svanhildur Konráðsdóttir,
framkvæmdastjóri menning-
arstofu Reykjavíkurborgar
Páskarnir eru helgasta hátíð kristinnar trúar en ekki er víst hvort
kirkjusóknin nái að toppa jólin sem helsti annatími kirkjunnar
manna.
Trúin bjangar brennivínsberserkjum
„Mér sýnist þetta einn stærsti
samfélagsvandi dagsins í dag og
langaði til að skilja hann aðeins bet-
ur en ég gerði. Ég er ekki alki, dópisú
eða frelsaður heldur venjulegur ís-
lendingur," segir Þorsteinn Jónsson
kvikmyndagerðarmaður. Á skírdag
verður frumsýnd heimildarmynd
eftir hann en hún fjallar um starf-
semi Byrgisins og skjólstæðinga for-
stöðumannsins Guðmundar Jóns-
sonar.
Þorsteinn var undanfarin tvö og
hálft ár að vinna myndina og var þá
reglulegur gestur í Rockville þegar
Byrgið var þar.
„Þarna kynnist maður því
hvernig dóp og brennivín breytir
manngerð fólks. Ég kynntist
mörgum þarna sem eiga heima á
Hrauninu og hafa átt þar
heima meðan þeir voru og
eru sjálfráða. En edrú er
þetta yndislegt fólk,
segir Þorsteinn og
bendir á að myndin
verði aðeins sýnd yfir
páskana, alla daga og
alltaf klukkan fimm í
gamla góða Tjarnarbíó.
Engin tilviljún er
að
Það sem þér viljið að
aðrir menn gjöri
yður, það skuluð þér
og þeim gjöra.
-Jesú.
Þorsteinn Jónsson Segist hafa
viljað kynna sér þetta eitt helsta
samfélagsmein á vímutímum og
skilja beturen hann gerði.
Guðmundur í Býrginu Frelsar slna skjól-
stæðinga á vímutímum og trúin hjálpar
þeim svo að finna réttu leiðina til baka i
samfélagið eftir að það hefur fariö alveg nið-
ur á botninn.
Þorsteinn velur sér þennan sýn-
ingarúma því þarna eru miklar
trúarlegar tilvísanir. Fólkið sem
er til umfjöllunar er læknað með
trúnni. „Guðmundur Jónsson,
forstöðumaður Byrgisins,
kristnar sína skjólstæð-
inga, þeir frelsast og trúin
hjálpar þeim áfram.
Þetta kemur vel fram í
myndinni hvernig
þetta gerist. Þetta má
því heita ákjósanleg
mynd fyrir trúarhátíð-
tna. Holl mynd - já,
nauðsynleg mynd
fyrir sálarheill lands-
manna nú á þessum
vímutímum."
jakob<s>dv.is
H
vao
Jesús eins og fornleifa-
fræðingar telja hann hafa
litið út.
Það veit enginn.
Hann er talinn hafa verið fæddur á árunum 6-4 fyrir Krist -
en fæðingarár hans var nefnilega vitlaust reiknað út af
munki nokkrum á miðöldum. Klassískt er að álíta hann hafa
verið 33 ára gamlan þegar hann var krossfestur en fyrir því
eru í raun engar marktækar heimildir. Hafi samt svo verið
hefur hann verið drepinn á árunum 27-29 eftir Krist.
Pontíus Pílatus var landstjóri Rómar í Palestínu á árunum 26-
36 svo það gæti út af fyrir sig staðist.
Flóknar rannsóknir hinna færustu spekinga í Nýja testa-
mentisfræðum hafa hins vegar leitt í Ijós að líklegra er að
hann hafi verið krossfestur á árunum 30-33. Flestir fræði-
menn hallast að árinu 31. En til að komast að niðurstöðu í
málinu verða menn að vísu að styðjast við ýmislegt í guð-
spjöllunum sem engan veginn er víst að nokkur fótur sé
fýrir. Rétt er þvísem sagt:
Það veit enginn.
GÓLFBÚNAÐUR
KJARANEHF • SÍÐUMÚLI 14. • 108 REYKJAVÍK
SÍMAR 510 5510 • 510 5500
OPIÐ VIRKA DAGA KL. 8-18
...... ...........".........
GLæsiLegt úrvaL
Sisal og Kókos
gólfteppa
100% náttúruefni
20%
afsláttur
Heimilis-
gólfdúkar
Tilboðsverð
Teppamottur
Stigateppi
Teppi horn í horn
I