Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004
Fréttir DV
Mannfall í írak
Fjórir bandarískir land-
gönguliðar féllu í átökum
vestur af Bagdad í írak í
gærmorgun. Uppreisnar-
menn réðust að hermönn-
unum og felldu þá. Banda-
rísk hermálayfirvöld vildu í
gær ekki gefa nánari upplýs-
ingar um atvikið. Frá því
Bush lýsti yfir að stríðinu í
írak væri lokið hafa 426
bandarískir hermenn látist.
Dansmeyfær
bætur
Héraðsdómur Reykjavík-
ur hefur dæmt austurrískri
nektardansmey
225.000 krónur úr
hendi nætur-
klúbbs sem hún
vann hjá í fyrra.
Konan kom hing-
að til lands í fyrra-
vor og var ráðin til
að dansa í klúbbn-
um í einn mánuð.
Henni var sagt upp áður en
mánuðurinn var liðinn.
Konan sætti sig ekki við
launauppgjör og stefndi
klúbbnum.
Hinsegintap
„Ég er auðvitað svekkt
yfir þessum dómi," segir
Anna Kristín Gunnarsdóttir
sem í fyrradag tapaði dóms-
máli gegn Hinsegin dögum
og Reykjavíkurborg. Anna
slasaðist illa á Hinsegin dög-
um í ágúst árið 2002 þegar
skyggni féll á hana á Ingólfs-
torgi. Hafði fólk komið sér
fyrir ofan á skyggninu og fór
svo að það brast undan
þunganum með þeim af-
leiðingum að Anna varð
undir. Hún fór fram á sex
miUjónir í bætur en varan-
leg örorka hennar er metin
5% og varanlegur miski er
10%. Héraðsdómur metur
það svo að hvorki Hinsegin
dagar né Reykjavíkurborg
beri ábyrgð á slysinu.
Stefán Pálsson eryfirburöa-
maðurá flestum sviöum.
Hann þekkir vel til manna og
málefna, er fróöur um flesta
hluti. Menn koma ekki aö tóm-
um kofanum hjá Stefáni.
Hann heldur fast I hugsjónir
slnar og hvikar aldrei frá þvl
sem hann trúirá. Stefán er
glöggur meö afbrigöum og
kann þá list aö koma hlutun-
um skemmtilega frá sér.
Mary Craft, dómarinn sem dæmdi Aron Pálma í 10 ára fangelsi, segir að Mike
Trent saksóknari hafi nánast verið eins og í krossferð gegn íslendingnum Aroni.
Dómari segir saksóknara
í knosslenö gegn flroni
Þegar Aron Pálmi Ágústsson var dæmdur fyrir rúmum sjö árum
til tíu ára fangelsisvistar stóð hann frammi fyrir dómaranum
Mary Craft. Hún hafði fengið úrskurð um sakfellingu frá kvið-
dómi og stóð frammi fyrir því að úrskurða refsingu til handa
þessum dreng sem þá var nýorðinn 14 ára. Hún man vel eftir
máli Arons og var reiðubúin að ræða við DV um málið, annað
tveggja blaðaviðtala sem hún hefur veitt á ferli sínum.
„Mike Trent saksóknari var sérlega
ákveðinn í því að Aron fengi hörðustu
refsingu sem lög leyfa. Ég man ekki
eftir neinu öðru máli - og var ég dóm-
ari í 16 ár, sem fól í sér þetta þunga
refsingu fyrir brot af þessu tagi," segir
Mary Craft fyrrverandi dómari, sem
tapaði dómarasæti sínu í kosningum
árið 2002
f bandarískum rétti, ekki síst þar
sem kviðdómur úrskurðar um sekt
eða sýknu, ræður frammistaða lög-
manna, sækjanda og veijanda afar
miklu. Mary dómari ítrekar að Trent
saksóknari hafi verið sérlega fylginn
sér í þessu máli. „Það var nánast eins
og það væri krossferð fyrir hann að
koma Aroni á bak við lás og slá. “ En var
verjandinn þá lélegur? „Gæði vetjand-
ans er alltaf mikilvægur þáttur í mála-
rekstrinum og ég man ekki eftir öðm
máli með jafnharðri refsingu fyrir brot
af þessu tagi - og ætía ég þá ekkert að
gera lítið úr brotinu sjálfu. Ég ætía ekk-
ert að fúllyrða að verjandinn hafi verið
alslæmur en ég man einfaldlega ekkert
eftír honum og hans frammistöðu - ég
man þó vel eftir því að Mike Trent var
mjög fylginn sér.“
Þessu hefði átt að mótmæla
Aron Pálmi var ákærður fyrir brot
gegn sér mun yngri dreng og fólst
brotið í sér að hann hafði munnmök
við hann. Réttarhöld af þessu tagi em
tvískipt; fyrst er úrskurðað um sekt eða
sýknu en síðar em sérstök réttarhöld
til að ákvarða refsingu. Við refsi-
ákvörðunina lagði Mike Trent fram
gögn sem áttu að sanna frekari brot
Arons, en samt vom þetta brot sem
hann var hvorki ákærður né sakfelldur
fyrir. „Það h'tur út fyrir að þetta hljóti
að hafa verið eitthvað sem verjandi Ar-
ons hefði átt að mótmæla," segir Mary
dómari en ítrekar að hún muni ekki
fyllilega eftir þessum þætti réttarhald-
anna. Það er hins vegar leyft í banda-
rískum réttarsal að leggja fram gögn af
þessu tagi, að uppfylltum vissum skil-
yrðum. „Það em vissar lagareglur sem
Verjandinn Randy
Schaffer Tókstaö
snúa Mary dómara.
Dómshúsið (Harris-sýslu í Houston
heimila það, til dæmis til að sýna
ásetning eða hegðunarmynstur. En
það ætti að vera lfldegra að slflc gögn
væm lögð fram þegar sekt eða sýkna er
ákvörðuð fremur en við ákvörðun
refsingar," segir Mary Craft. Blaða-
maður ber undir hana orð Mike Trent
í viðtali við DV á dögunum þess efriis
að Aron hefði framið miklu alvarlegri
brot, meðal annars gegn þeim dreng
sem hann er þó ákærður fyrir að brjóta
gegn - en saksóknarinn átti erfitt með
að skýra hvers vegna hann saksótti
ekki fyrir þessi alvarlegu brot. Dómar-
inn tekur tmdir að það sæti nokkurri
fúrðu að leggja ekki slflc gögn fram í
ákæm, en draga þau fram við refsi-
ákvörðun."
Dæmdi 10 ár en Trent bað
um40
Saksóknarinn gerði kröfú um allt að
40 ára fangelsi en það er hámark
refsirammans fyrir kynferðisbrot. Verj-
andinn ákvað að leggja refsi-ákvörðun
fyrir dómarann en ekki kviðdóminn en
um það hefur sakbomingur val. Mary
Aron Pálmi Ágústsson Gengið hart fram Iað koma honum á bak við tás og slá.
Craft dórnari vísar til refsirammans í
þessu sambandi; „Hafi ég dæmt Aron í
10 ára fangelsi held ég þegar horft er til
baka að það hafi verið hæfileg refsing,"
segir dómarinn sem tekur fram að hún
og kviðdómurinn hafi verið sannfærð
um sektina. Eftir nokkra umhugsun
bætir hún við að löggjafinn hafi eftir á
að nokkm leyti bætt við dóminn. „Lög-
in em alltaf að breytasL Til dæmis
þurftu kynferðisbrotamenn ekki að
skrá sig hér áður fyrr og vom ekki sett-
ir á netið eins og nú er.“ Þetta íþyngi
mönnum þegar refsingu lflcur. „Nú
verður þú að skrá þig í 20 ár,“ segir
Mary Craft og vísar tfl laga sem gera ráð
fyrir því að Aron þurfi, þó að aíþlánun
hans ljúki að óbreyttu eftir þijú ár, að
skrá vemstað sinn hjá yfirvöldum allt
tfl ársins 2017. Hann verður því undir
stífu eftirlití og almenningur hefúr að-
gang að upplýsingum um hann á net-
inu allan þann túna.
Aron Pálmi átti eftir að koma aftur
í réttarsal Mary Craft í ungmennadóm-
stólnum í Harris-sýslu í Houston í
Texas. Þetta var fyrir rúmum þremur
árum þegar þess var krafist að Aron
yrði fluttur í fangelsi en hann var þá 17
ára. í þetta skipti var vöminni ekld áfátt
því að einn besti veijandi í Texas,
Randy Schafier, hafði tekið málið að
sér án endurgjalds. í þeirri barátm
mættí Mike Trent saksóknari ofjarli
sínum því Mary Craft dómari hafnaði
flutningsbeiðninni en eftír því sem
næst verður komist er þetta í fyrsta og
eina sinn sem slíkri flutningsbeiðni er
hafriað. Randy Schaffe telur tvennt
hafa skipt sköpum, annars vegar lagði
hann fram bréf þar sem Mike Trent
hafði sent tfl Giddings bamafangelsis-
ins þar sem kvartað er sáran yfir því að
Aron skyldi „aðeins" fá 10 ára fangelsi
og gagnrýndi hann Mary Craft harð-
lega fyrir linldndina. Hins vegar gat
Schaffer fært sönnur á að sálfræðingur
Giddings hefði logið, eiðsvarinn í rétt-
arsal.
Vildi dæma hann til íslands
Mike Trent sagði DV á dögunum að
bréfið sem hann hefði skrifað hefði
valdið því að dómarinn hefði ákveðið
að hefiia sín með því að hafiia flutn-
ingsbeiðninni. Þessu hafiiar Mary
Craft dómari algerlega. „Mike Trent
hefur gagnrýnt allt sem ég hef gert -
hann hefur aldrei sagt nokkuð jákvætt
um mig.“ Trent saksóknari fúllyrtí við
DV að Mary Craft hefði tapað dómara-
sætí sínu í kosningum vegna linldndar
í dómum. Þessu vísar Mary á bug sem
hreinni fimi. í Harris-sýslu í Houston
ráði öfgahópur kristinna hægrimanna
öllu réttarkerfinu. „Ég tapaði fyrir
manni sem var studdur af þessum
hópi og hafði málið ekkert með þyngd
minna dóma að gera enda snerist
þetta allt um fóstureyðingar og sam-
kynhneigða," segir Mary Craft, fyrrver-
andi dómari.
„Það sem ég vfldi gera í þessum
réttarhöldum um flutninginn var að
senda Aron tfl íslands, en það vom
nokkur atriði sem komu í veg fyrir það.
Ég man að ef það væri tryggt að hann
kæmi ekki tfl baka vfldi ég heldur að
hann færi tfl íslands en aftur í fangelsi
en því var haldið fram að ekki væri
hægt að tryggja að hann yrði áfram á
íslandi," segir Mary Craft.
Hún hefur aðeins einu sinni áður
veitt blaðaviðtal á dómaraferli sínum.
Allt að hundrað unglingar, margir undir lögaldri, sóttu fyllirísveislu í sal Eyverja
Unglingafyllirí í húsi Sjálfstæðisflokksins í Eyjum
80 til 100 unglingar sóttu risa-
partí í húsnæði Sjálfstæðisflokksins í
Vestmannaeyjum um þarsíðustu
helgi. Margir unglingar undir lög-
aldri voru ölvaðir í félagsheimilinu
og kom lögreglan á staðinn og leystí
samkomuna upp.
„Þetta virðist greinilega hafa farið
úr böndunum," segir Hera Ósk Ein-
arsdóttir, framkvæmdastjóri fjöl-
skyldu- og félagsmálasviðs Vest-
mannaeyjabæjar. Bærinn hefur um
tíu ára skeið unnið hörðum höndum
að því að minnka neyslu unglinga á
áfengi og öðrum vímuefhum. „Það
liggur ekki fyrir hversu stór hópur
var undir lögaldri."
Jóhannes Ólafsson, lögreglumað-
ur í Vestmannaeyjum, segir suma
unglingana hafa verið færða niður á
stöð en aðrir afliendir foreldrunum.
„Lögreglan fór á staðinn til eftirlits
og leystí upp þetta samkvæmi. Þar
voru unglingar bæði fyrir utan og
inni. Við færðum suma á lögreglu-
stöð og sendum suma til foreldra
sinna," segir hann.
Selma Ragnarsdóttir, formaður
Eyverja, félags ungra sjálfstæðis-
manna í Vestmannaeyjum, segir
málið hið leiðinlegasta en ekki á
ábyrgð sjálfstæðismanna. „Við bara
leigðum 19 og 20 ára gömlum strák-
um húsið og það var skilyrði að þeir
skiluðu salnum eins og hann var.
Við getum ekki verið að njósna um
þá sem leigja salinn," segir hún.
Hún segir það koma til greina að
Unglingafyllirí 80 til
7 00 unglingar voru i
partii i húsnædi Sjálf-
stæðisflokksins og var
lögregla kölluð til.
gera kröfu um að ábyrgðarmenn á
salnum verði orðnir tvítugir. „Það
eru eiginlega óskrifaðar reglur að
hleypa ekki yngri en 16 ára þarna
inn. Við höfum talað um þetta við
þá, en það er ekki skjalfest," segir
Selma og kveðst efast um að sömu
aðilum verði leigður salurinn á ný.
Um var að ræða íþróttafélagið Jak-
ana sem einbeitir sér að ísknattíeik.
jontrausti@dv.is