Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004
Fréttir DV
Danir vilja dýralöggu
og ætla henni það hlutverk
að fylgjast með því að ekki
sé brotið á rétti dýra og að
dýraverndunarlög verði í
heiðri höfð. Þetta kemur
fram á undirskriftarlistum
sem tæplega fimmtíu þús-
und Danir skrifuðu undir og
var afhent dómsmálaráð-
herra Dana, Lenu Aspersen, á dögunum. Axel-
Erik Sörensen, formaður dýraverndunarsamtak-
anna Dýraréttindi, segir að undirskriftirnar á
listunum komi að mestu frá fullorðnu fólki sem
líti þessi mál alvarlegum augum og vilja að
stjórnvöld taki á þeim með festu. „Það er fyllsta
ástæða til að stjórnvöld taki ekki á þessum
málum með neinum silkihönskum. Þroskaðir
kjósendur standa að baki þessu og vandamálið
er viðvarandi. Nú er tíminn kominn," segir Axel.
Snotra dó næstum því
í fyrrasumar. Það varð tíkinni til bjargar að
Haraldur Gíslason rakst á tíkina hjá dýra-
læknunum í Garðabæ en þar beið hún dauða
síns. Haraldur er hundavinur mikill og fékk
að vita að eigendur Snotru hefðu gefist upp
á henni vegna þess að hún gerði stykkin sín
þar sem hún stóð og allir orðnir þreyttir á
henni. Hann ákvað engu að síður að taka
hana að sér og með hjálp dýralækna komst
hann að því að tíkina vantaði bara kven-
hormóna. Þá fékk hún og það var eins og
við manninn mælt að dýrið lifnaði allt við og hætti öllum
ótímabærum saur- og þvaglátum. Nú gefur Har-
aldur henni hormóna á hverjum degi og Snotra
er farin að leika sér eins og hvolpur þrátt fyrir
að verða átta ára í sumar.
Bergljót Davíðsdóttir
skrifar um dýr aföllum
stærðum og gerðum í DV
á fimmtudögum
bergljot@dv.is
Vissir þú..?
...að í Svíþjóð þar sem reglur um rekstur hundabúa eru
hvað strangastar á Norðurlöndum eru almennt ekki fleiri
dýr en tuttugu hundar á hverju búi. Flestir hundarækt-
endur í Svíþjóð eru með á milli 10-15
fullorðin dýr og alvöruræktendur ein-
beita sér að einni tegund. Þar þykir til-
tökumál ef fullorðnir hundar fara yfir
30 og eru þá undir ströngu eftirliti. Hér
á landi er eina búið sem starfrækt er
með leyfi yfirvalda með langt yfir 100
hunda af yfir 10 tegundum. Slík bú eru
ekki annað en framleiðsla og eiga
ekkert skylt við ræktun. Þau eru
nefnd á hinum Norðurlöndunum
Puppy Mill og í stað þess að halda
hlífiskildi yfir þau eins og hér er gert eru þau hundelt af
yfirvöldum og lokuð með það sama þegar þau finnast.
Smyrill um
ívarðskip
Gunnari Erni, stýrimanni á varð-
skipinu Tý, og Hreini háseta brá
nokkuð í brún á 4-8 vaktinni dag
nokkurn fyrir skömmu þegar smyrill
flaug skyndilega inn um brúarglugg-
ann. Skipið var þá statt á Selvogs-
banka við eftirlit. Smyrillinn var
borð
mjög sprækur og líkaði vel um borð í
varðskipinu. Hann var með varð-
skipsmönnum í stuttan tíma þar til
honum var sleppt við land. Á mynd-
inni má sjá þegar Guðjón bryt-
i gefur spökum smyrlinum að borða
með bestu lyst.
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVlK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Auglýsing um breyfingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur
2001-2014
[ samræmi við 2. mgr. 21. gr. skipulags- og byggingarlaga
nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til
kynningar tillaga að óverulegri breytingu á Aðalskipulagi
Reykjavíkur 2001-2024.
Bústaðavegur 151.
Tillagan lýtur að því að landnotkun lóðarinnar Bústaða-
vegur 151, sem skilgreind er sem íbúðasvæði og svæðis
norðan við lóðina sem nú er skilgreint sem opið svæði til
sérstakra nota, breytist í miðsvæði. Sú landnotkun
samræmist betur þeirri starfsemi sem heimil er á lóðinni í
dag þ.e. veitingastaður. Þá er gert ráð fyrir að heimilað
verði tímabundið að reka sjálfafgreiðslusölu fyrir bensín á
svæðinu norðan lóðarinnar.
Bæði veitingastarfsemin og bensínafgreiðslan eru leyfð
tímabundið þar sem gert er ráð fyrir að nauðsynlegt verði
að leggja svæðið undir gatnamót í framtíðinni. Þegar að
því kemur verður gerð breyting á aðalskipulagi á ný.
Nánar vísast um tillögu á uppdrætti.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og
byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl.
08:20 - 16.15 frá 7. apríl til og með 30. apríl 2004. Þeim
sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn
kostur á að koma með ábendingar og gera athugasemdir
við tillöguna. Ábendingum og athugasemdum skal skila
skriflega til skipulagsfulltrúa fyrir 30. apríl 2004. Einnig má
sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, skipbygg.is. Þeir sem
eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast sam-
þykkja tillögurnar.
Reykjavík, 7. apríl 2004.
Helga Bragadóttir, skipulagsfulltrúi.
Þær Anna Þorgrímsdóttir og Þórhildur Björnsdóttir ættleiddu
tvo ketti úr Kattholti í vetur. Lið þeirra lá til himnaríkis þeg-
ar þær stöllur gripu inn í og færðu þær á heimsenda.
Á leið til himnaríkis
en endnðu á heimsenda
Hesta Pétur og Hesta Páll með lífgjöfum sínum Önnu Þorgrímsdóttur Þeir voru báðir
komnir við aldur og höfðu ýmsa fjöruna sopið áður en þær vinkonur völdu á til að búa á
heimsenda.
„Það má segja að leið þeirra hafi
legið til himnaríkis en þess í stað
lentu þeh á Heimsenda," segir Anna
Þorgrímsdóttir tónlistarkennari sem
ásamt vinkonu sinni. Þórhildi
Björnsdóttur eru með hross í húsi á
Heimsenda.
„Við reyndum að velja ketti sem
höfðu verið lengi í Kattholti og feng-
um þá félaga sem við köllum Hesta
Pál og Hesta Pétur. Þeir er yndislegir
og við vitum ekki betur en vistaskipt-
in fari vel í þá,“ segir Anna. Hún legg-
ur áherslu á að hestahúsketti þurfi
ekki síður að hugsa vel um en venju-
lega heimihsketti. „Það má segja að
við séum jafhvel meira hjá þeim í
hesthúsinu en heima en það er alltaf
einhver í þar meiri hluta dagsins.
Kosturinn við þá er einnig að hér sést
ekki mús en mýs geta verið kræfar í
fóðrinu og það er mjög gott að vera
laus við þær,“ segir Anna.
Þeir félagar eru að öllum líkindum
nokkurra ára gamlir og komu í mis-
jöfnu ástandi í Kattholt. Anna segir
Hesta Páll öllu sjóaðri en sjá megi á
eyrum hans að hann hefur ýmsa fjör-
una sopið í gegnum árin. „Já, eyrun
hafa grehúlega ekki farið varhluta af
slagsmálum en lífið hefur öllu betur
farið með Pétur. Hann hefur greini-
lega verið heimilisköttur sem villst
hefur að heiman," segir hún og bætir
við að þeir hafi báðir verið geltir í
Kattholti og með því dragi aðeins úr
flökkueðlinu. „Ég hef þá þó grunaða
um að vera dáh'tið að rannsaka um-
hverfið á nætumar en það er mikið
frelsi sem þeir lifa við báðir tveir,"
segirhún
Þeir félagar lifa eins og blóm í
eggi eiga sitt athvarf í kaffistofunni.
Þar er þeirra ríki. Páll er óvanur lux-
us fæði og lætur sér hvað sem er
lynda en Pétur hefur greinilega alist
upp við gott atlæti. Anna segir Pál
vera komast upp á bragðið með að
borða fisk og annað guorme sem
þeir fá alltaf annað kastið hjá þeim
vinkonum. „Þeir eru báðir miklar
gælur og finnst gott að láta strjúka
sér og klóra. Eins eru þeir miklir
persónuleikar og það er eitthvað í
svip Páls sem fær mann alveg til að
bráðna," segir Anna ánægð með
sínar kisur.
Þennan fugl vantar heimih sem
fyrst. Hann heitir Alex og er af teg-
undinni jandaya conure. Guðbjörg
Ágústsdóttir, eigandi hans, flutti
hann inn frá Hollandi ásamt fleiri
fuglum og í ljós kom að hún getur
ekki átt hann. Hún setti hann í um-
boðssölu í Dýraríki og þar kynntist
hann ást lífs síns. Þar var fugl af
sömu tegund en þau kölluðust á all-
an daginn og í þau voru komin
ungahljóð. Svo var komið að starfs-
fólk Dýraríkis gat ekki meira
og Guðbjörg varð að taka
hann heim aftur en
hún hefur ekki
á að
kærustuna, því
miður, Hún
þarf eigi
að síð-
ur að finna fyrir hann gott heimili;
heimili þar sem Alex má vera mið-
punkturinn. Hann þarf mikla athygfi
og er dálítið smeykur við ókunnuga.
Guðbjörg segir að við nánari kynni
sé hann óskaplega blíður og góður
og vilji helst láta klóra sér og kela.
Alex getur lært að tala ef einhver
góður vill gefa honum tíma en nú
þegar segir hann fáein orð. Hægt er
að hringja í Guð-
björgu í síma
8668884 og fá
upplýsingar.
Hún segir að
best sé fyrir
Alex að búa
með fólki sem
hefur tíma fyrir
hann. Hún býðst
til að passa hann
fyrir nýja eigendur ef
það verði vandamál.
Hver vill eiga mig?
Þessi svarti og hvíti kisu-
strákur býr um þessar mundir í
Kattholti. hann hefur verið þar
síðan í byrjun janúar og það
þarf ekki að spyrja að því að
hann langar
til að eign-
ast venju-
lega íjöl-
skyldu.
Hann er
vitaskuld
geltur og
sprautaður
og bíður
aðeins eftir að einhver góð-
hjartaður vilji taka hann að sér.
Sá hinn sami getur farið inn á
netsíðuna kattholt.is eða hringt
á Kattholt í síma 5672909 og tal-
að við Sigríði Heiðberg sem
fullyrðir að hann sé hvers
manns hugljúfi og efast ekki um
að hann muni veita nýjum eig-
endum gleði og ánægju.