Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004 Fókus 0V Ragnheiður Ásta Pétursdóttir sú góðkunna útvarpsþula hefur starfað lengi hjá Ríkisútvarpinu. Hún var gift Jóni Múla einum ástsælasta út- varpsmanni þjóðar- innar. Hún átti með honum góða daga og saknar hans ævinlega. ísast klingir ekki mörgum bjöllum í kolli þeirra sem eru um þessar mundir að komast á manndómsár, þeg- ar minnst er á Ragnheiði Ástu Pétursdóttur. Nokkrir þeirra sem fetað hafa aldurinn aðeins ofar hafa heyrt á konuna minnst. En víst er að þeir sem alist hafa upp með Ríkisútvarpinu og engum öðrum ljósvakamiðli frá barns- aldri eru ekki í minnsta vafa þegar þeir heyra hennar mjúku og fallegu rödd. Rödd Ragnheiðar hefur verið tákngervingur útvarps rétt eins og rödd eiginmanns hennar heitins, Jóns Múla Árnasonar og föður henn- ar Péturs Péturssonar þular. Ragn- heiður Ásta er ung enn, rétt komin yfir sextugt og ber aldurinn vel. „Ég hef verið svo lengi í útvarpinu að ég gæti verið hætt og komin á 95 ára regluna fyrir löngu en þrátt fyrir það held ég áfram. Og ég ætla að halda áfram svo lengi sem ég get. Ætli ég láti ekki bera mig út þegar þar að kemur,“ segir hún hlæjandi og bendir á að þegar hún verður 71 árs þá eigi hún 50 ára þularafmæli. „Já, mig langar til þess að vinna svo lengi en ég hef alltaf jafn gaman af vinn- unni. Við skulum sjá hvernig fer,“ segir hún glettin og býður sterkt kaffi í fallegri íbúð sinni við Keldu- land í Fossvogi. Útsýnið yfir Foss- vogsdalinn er eins og best verður á kosið og Ragnheiður Ásta nefnir að oft hafl þau Jón Múli staðið við gluggann og fylgst með stjörnunum. „Hann var stjörnufræðingur eða ætti ég að segja mikill áhugamaður um himinhvolfið og kunni öllum stjörnum skil. Hann benti mér á og fræddi en nú hef ég hann ekld leng- ur til að segja mér hvað er hvað. Eg sakna þess og nú stend ég hér ein. Hann naut þess að horfa út um gluggann og sat ævinlega við hann þegar ég kom heim á daginn og beið eftir mér Fallegt heimili Húsgögnin eru í léttum dönskum elegant stíl og veggina prýða verk eftir meistara síðustu áratuga. „Já, ég kann vel við mig hér. Breytti dá- litlu eftir að Jón minn lést og þar á meðal stækkaði ég borðstofuna og keypti mér sófa í Epal. Það veitti ekki af því fjölskyldan er svo stór,“ út- skýrir hún og telur upp allan skar- ann. Já, það eru mín þrjú frá fyrra hjónabandi, þrjú frá Jóni og eitt sem við eigum sameiginlega," segir hún og nefnir.fleiri og fleiri sem tilheyra fjölskyldunni. Svo má ekki gleyma barnabörnum og barnabarnabörn- um,“ bætir hún við kankvís, þrátt fyrir að ekki beri hún með sér að vera langamma. „Ég var svo ung þegar ég átti börnin. Var í háskólan- um að lesa sögu og tungumál. Ég hætti þegar ég var búin að eiga Pétur og Eyþór og fór að vinna í út- varpinu," rifjar Ragnheiður upp en elstu börnin þrjú átti hún með Gunnari Eyþórssyni, síðar frétta- manni hjá útvarpinu. Hjónabandið varð endasleppt og þau skildu eftir níu ára hjónaband. „Nei, það var ekki neinn harmur í kringum það. Gunnar drakk mjög mikið og það gat ekki endað öðruvísi. Skömmu síðar tókust ástir með okkur Jóni Múla og það var ekki aftur snúið. Hann ól upp með mér börnin," segir hún. Ragnheiður Ásta segir það aldrei hafa verið neitt vandamál. Börnin þeirra beggja hafi alltaf verið góðir vinir og náð vel saman. „Jón og Eyþór áttu tónlistina sameiginlega og það fór afar vel á með þeim eins og Pétri reyndar og Birnu líka. Þeir voru miklir vinir. Jón Múli var mikið með dætur sínar í útvarpinu og ég þekkti þær vel þegar við tókum upp samband," segir hún og minnist þess að þær hafi í gríni kallað hana vondu stjúpuna. „Já, ég get alveg fallist á að það hafi verið öfugmæli því okkur hefur alltaf komið mjög vel saman og höldum góðu sam- bandi þrátt fyrir að Jón sér farinn." Tengdi þættina af einstakri snilld Árin með Jóni voru góð ár og þeim leið afar vel saman. Ragnheið- ur Ásta segir þau alltaf hafa verið góða vini. „Jón var gáfaðúr, fallegur og afar góður útvarpsmaður. Það var hrein unun að hlusta á morgunþætt- ina hans. Hann var líka svo árrisull og var „Gunnar drakk mjög mikiö og það gat ekki endað öðruvísi. Skömmu sfðar tókust ástir með okkur Jóni Múla og það var ekki aftursnúið. Hann ól upp með mér börnin." alltaf búinn að aka um bæinn áður en hann kom niður í útvarp. Þættina sína tengdi hann svo saman af ein- stakri snilld og ég veit að það var ekki aðeins ég sem naut þess að hlusta," segir Ragnheiður sokkin ofan í minningar. Hún lítur upp og heldur áfram. „Og svo vorum við samstiga í stjórnmálum. Ég er enn harður sósí- alisti og var það áður en ég kynntist Jóni. Skoðanir okkar lágu mjög víða saman og okkur þótti mjög vænt um hvort annað," segir hún hugsi. Ragn- heiður Ásta játar að hún sakni Jóns mjög og er ekki viss um að maður jafiú sig nokkru sinni á því að missa æviförunaut sinn. í mesta lagi sé hægt að læra að lifa með því en ekki sætta sig við það. „Mér verður mjög oft hugsað til hans og þrátt fyrir að ég trúi ekki á líf eftir dauðann fer ég út í kirkjugarð, sit á leiði hans og tala við hann. Nei, það er af og frá að ég trúi að við lendum saman einhvern tíma en það er í lagi að vona að þannig sé það," segir hún brosandi og stendur upp. „Ég fann spólu um daginn sem mér fannst að stæði gaui á og var að velta fyrir mér hvað þetta væri eigin- lega og þegar ég setti hana í tækið kom í ljós að Jón var að semja jarðar- fararstefið sem alltaf er leikið áður en dánarfregnir eru lesnar," segir hún og setur spóluna í og um stofuna hljómar þetta yndislega stef sem all- ir landsmenn þekkja og Sigurrós gerði ódauðlegt í íokatónunum í Englum alheimsins. „Auðvitað átti að standa gaul," segir Ragnheiður og hlær en Jón Múli samdi sfna músík á þennan veg. Hljómlistin hljómar um stofuna og undir niðri heyrist £ meistaranum sjálfum þar sem hann slær taktinn og bombar með. Ragn- heiður Ásta tekur undir að stefið sé fallegt og segist oft hlusta á þá tónlist sem Jón lét eftir sig. „Mér leiðist aldrei fyrir utan það að sakna Jóns en áður en hann dó keypt- um við áskrift af fjölvarpi og Stöð 2 sem hann hafði mikla ánægju af." pili

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.