Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Side 15
DV Fókus
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004 15
Ragnheiður Ásta Byrjaði ung að árum að vinna i útvarpi og landsmenn allir, ungirsem
aldnir, þekkja rödd hennar vel. Faðir hennar er Pétur Pétursson þulur. Ragnheiður var að
auki gift Jóni Múla I áratugi, einum ástsælasta útvarpsmanni sem Island hefur alið.
Jón Múli og Ragnheiður Héreruþau
hjónin saman á góðri stundu en myndin
er úr einkasafni Ragnheiðar.
Jón Múli við ritstörf Jón varmikill
áhugamaður um djasstónlist og skrifaði
um áhugamálið afmikilli kunnáttu.
I afmælisveislu Þessi mynd er úr
myndasafni DVog tilefni myndatökunnar
var afmælisveisla sem þau hjónin héldu.
Alls ekki að koðna niður
Um þessar mundir eru tvö ár síð-
an Jón Múli lést. Ragnheiður Ásta
játar að þessi tími sem liðinn er síð-
an Jón dó hafi verið erfiður og þegar
hún minnist hans hreyfi það við til-
finningum. „Það er svo margt sem
minnir á. Það er heldur ekki langt
síðan ég missti móður mína en ég er
einkabarn og við vorum mjög sam-
rýmdar mæðgur. Já, það er högg að
missa sína nánustu en ég lifi mínu
lífi og er alls ekki að koðna niður. Ég
er svo lánsöm að eiga vínkonur sem
voru með mér í menntaskóla.
Ákveðinn hópur heldur saman og
við hittumst alltaf reglulega og ger-
um eitthvað skemmtilegt saman.
Við ferðumst mikið og heimsækjum
hvor aðra auk þess sem við erum í
mildu og góðu sambandi. Nú svo er
ég að læra ítölsku sem ég hef mjög
gaman af, vinn fulla vinnu og reyni
að ferðast eins og kostur er. Mér
leiðist aldrei fyrir utan það að sakna
Jóns en áður en hann dó keyptum
við áskrift af fjölvarpi og Stöð 2 sem
hann hafði mikla ánægju af,“ segir
„Pabbl hefur afar
gaman afað tala við
fólk og er ákaflega fé-
lagslyndur. Hann tal-
ar mikið í síma en ég
veit að hann saknar
þess að hitta ekki jafn
marga og hann helst
vildi."
hún og útskýrir að hann hafi ekki
komist mikið út síðustu árin. „Hann
var hjartasjúklingur og átti erfitt
með stigana. Það létti honum því
stundir að horfa á gott sjónvarps-
efni,“ segir Ragnheiður og bætir við
að sjálf hafi hún nú orðið gaman af
að horfa á sjónvarp.
Fjölmiðlafólk í fjölskyldunni
Talið berst að börnum þeirra
Jóns sem meira eða minna tengjast
fjölmiðlum. Hún hugsar sig augna-
blik um og samsinnir því síðan. „Já,
það er rétt, Oddrún og Ragnheiður
Gyða tvær dætur Jóns hafi alið sinn
starfsferil meira eða minna á Út-
varpinu. Þær hafa nú báðar flutt sig
yfir á DV og ég held að það hafi
verið rétt ákvörðun hjá þeim að
breyta til. Það getur verið skemmti-
legt að skipta um vinnu ef fólk er til-
búið til þess. Pétur minn var á Morg-
unblaðinu og síðan um tíma á
Fréttablaðinu og ég held að hann
hafi verið ánægður eins og með starf
sitt nú sem framkvæmdastjóri þing-
flokks Framsóknarmanna," segir
Ragnheiður Ásta. „Þau eru held ég
öll ánægð með það sem þau hafa
tekið sér fyrir hendur. Já, og ekki má
gleyma föður mínum sem vann öll
sín ár á útvarpinu. Já, þetta er
kannski eitthvað í blóðinu."
Sjálf hefur Ragnheiður Ásta feng-
ist við að yrkja og hefur meðal ann-
ars samið texta við tvö laga Borgar-
dætra en þar syngur Ellen Kristjáns-
dóttir, tengdadóttir hennar. „Ég
gerði það að gamni mínu því þær
„Mér verður mjög oft
hugsað til hans og
þrátt fyrir að ég trúi
ekkiá líf eftir dauð-
ann fer ég út í kirkju-
garð, sit á leiði hans
og tala við hann."
vantaði texta. Já, ég held að það hafi
bara tekist ágætlega til,“ segir hún
og viil ekki gera sérlega mikið úr
ljóðagerðinni.
Útvapið er henni kært
Pétur Pétursson er ekki síður
goðsögn í Rfkisútvarpinu en Jón
Múli og Ragnheiður Ásta sjálf. Hún
segir hann vera við góða heilsu eink-
um í andanum. „Pabbi hefur afar
gaman af að tala við fólk og er ákaf-
lega félagslyndur. Hann talar mikið í
síma en ég veit að hann saknar þess
að hitta ekki jafn marga og hann
helst vildi. Hann væri ánægðastur ef
við værum öll inni á gafli hjá honum
en hlutirnir eru ekki eins og þeir
voru. Hann er alinn upp við að kyn-
slóðirnar haldi saman en það er
breytt frá því hann ólst upp,“ segir
hún brosandi og segist oft hitta föð-
ur sinn sem sé alltaf gaman að
spjalla við.
Útvarpið er Ragnheiði Ástu kært.
Hún segist vinna með ákaflega
skemmtilegu fólki sem hún hafi
alltaf ánægju af að hitta. „Það er
ótrúlega margt gott fólk sem valist
hefur til útvarpsins og þar hef ég
eignast marga góða kunningja og
vini,“ segir hún og hugsar sig lengi
um þá spurningu hvort hún sé
ánægð með útvarpið. Hún lítur upp
einbeitt á svip og segir að kannski sé
ekki rétt að tala mikið um það. „Ég
get þó sagt að ég kvíði mörgu en er
vongóð með ýmislegt annað. Hvað
sem því líður ætía ég aö vera þar
eins lengi og mér er stætt á,“svarar
hún hlæjandi, sátt við tæpu fimmtíu
árin sem hún hefur átt þar.
bergtjot@dv.is
Fjallahjól
verð frá kr. 23.655 stgr.
GIANTÁIstell
frá kr. 29.925 stgr.
Lyftingabekkur
og lóð.
Bekkur með
fótaaefingum
og 50 kg lóðasetti.
Tilboð kr. 19.855 stgr.
Carving skíði
og skíðafatnaður
30% stgr.afsláttur.
Carving pakkar.
Tilboð frá kr. 27.900
Fermingargjafir
sem hitta í MARK
Snjóbretti E» SCOTTUSA
Brettaskór i
Bindingar
Gleraugu ZSVAVASrAXt
Hanskar
Snjóbrettafatnaður
30 % stgr. afsláttur.
Brettapakkar frá kr. 29.900 stgr.
Llnuskautar
Verð frá
kr. 10.355 stgr.
Úrval af hlifum
og hjálmum.
Boxpúðar
frá kr. 11.305 stgr.
Boxdropar,
Speedballs
Hanskar.
Bílliardborð
Pool
Snooker
Stærðir 4, 5 og
6 fet..
Verð frá
J kr. 15.105 stgr.
Heilt golfsett m/poka
frá kr. 23.655 stgr.
Kerrur frá kr. 3.990 stgr.
Mikið úrval af golfvörum.
Alvöru fótboltaspil
Vönduð stöðug borð, 2-8 geta leikið f einu.
Verð frá kr. 11.210 stgr.
AMRKIÐ
Kreditkortasamningar, upplýsingar veittar í versluninni
Varahluta- og viðgerðarþjónusta
Verslið þar sem þjónustan er. ^
www.markid.is • Sími: 553 5320 • Armúla 40