Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Qupperneq 21
DV Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004 2 7
Hidalgo er nýjasta myndin af mörg-
um þar sem arabar eru í hlutverki
vonda gaursins. Arabar tóku við því
hlutverki um miðjan 9. áratuginn
þegar Rambó var búinn að gera útaf
við alheimssósíalismann.
Delta Force (1986)
Chuck Norris drap kommúnista í hrönn-
um í myndum eins og Missing in Action
j Invasion USA. Hér fær hann
gamla nasistabanann Lee
Marvin með sér að kála
Palestínumönnum, enda
samskiptin við Rússa óðum
að batna í kjölfar Glasnost.
Gaf raunverulega til kynna
stefnubreytingu hjá Bandaríkjunum.
Top Gun (1986)
Tom Cruise er á flugmóðurskipi í
Persaflóa. Eftir að hafa klúðrað verkefni
er hann sendur aftur í skóla að
læra að fljúga. Hann sefur
hjá kennaranum, og snýr
afturog skýtur niður
araba í hrönnum.Top
Gun-skólinn í dag er
skuggi af því sem hann var,
enda gerir flugherinn ekki lengur ráð fyr-
ir að berjast við óvini sem skjóta á móti.
Death Before Pishonor
(1987)
Heimskur diplómati vill reyna að bæta
samskipti við araba, og vill ekki brjóta
lög landsins sem hann dvelur í. Þetta
leiðir, eins og öll linkind, af sér
árásir hryðjuverkamanna, en
Fred Dryer (úr Hunter-þátt-
unum) tekur til sinna ráða,
brýtur allar reglur og drep-
uraraba (hrönnum.
Navy SEflts (1990)
Selurinn ódauðlegi Michael Biehn og
Charlie Sheen þurfa að ráðast djúpt inn
í heimalönd múslima til að bjarga gísl-
um. Þeir komast að því að óvinirnir hafa
undir höndum hættuleg
flugskeyti, sem þeir ákveða
að finna og eyða. Gæti út-
skýrt hvers vegna engin
hafa fundist síðan.
Patriot Games (1992)
Jack Ryan er hér staddur f Bretlandi og
þarf að kljást við IRA. Það kemur í Ijós
að IRA-menn hafa tengsl við
y araba, og ráðist er á æfing-
arbúðir þeirra. Arabar
ykoma einnig við sögu í
Sum of All Fears, en var
breytt í Evrópumenn til að
forðast að móðga nokkurn.
TrueLies (1994)
Arnie þarf áð kljást við brjálaða araba
með kjarnorkusprengjur, eiginkonu
sína og hrapandi vinsældir eftirThe
Last Action Hero. Hann vílar heldur ekki
fyrir sér að láta opinbera
starfsmenn sóa peningum
skattborgaranna við að
njósna um saklausan mann
sem hann heldur að sé að
sofa hjá eiginkonu sinni.
Executive Deeision (1996)
Arabískir hryðjuverkamenn ræna flug-
vél fullri af farþegum, og ætla að fljúga
með henni til Bandaríkjanna og henda
eitri á alla austurströndina. Sérsveitar-
mennirnir Kurt Russell og
Steven Seagal eru sendir á
svæðið til að bjarga far-
þegunum, sem verður að
teljast helduróraunsætt. f
raun myndu þeir að sjálf-
sögðu skjóta vélina niður.
61 Jane (1997)
Það eru ekki bara karlmenn sem geta
barið á aröbum, konur fá líka að vera
með. Demi Moore skráir sig
í Navy Seals, fyrsta konan
í sérsveitinni, og sam-
starfsmenn hennar hafa
litla trú á henrii. En þó
sameinast þau öll um
áhugamál sitt að drepa
araba.
The Sieue (1998)
Mynd sem vakti mjög hörð við-
brögð meðal múslima, þó
að gagnrýni hennar sé í
raun á Bandaríkjastjórn.
Hryðjuverkamenn ráðast á
New York. Brjálaði herfor-
inginn Bruce Willis notar
tækifærið til að afnema mannréttindi
og setja alla múslima í borginni í fanga-
búðir.
Saviour(1998)
Fjölskylda Dennis Quaid er myrt af
músltmskum öfgamönnum.
Sem hefnd gengur Dennis
inn í mosku og drepur alla
þar, og fer svo til Bosníu
og gengur í lið með
Serbum til að geta drepið
enn fleiri múslima. Hann snýr
þó frá villu síns vegar og lærir að hætta
að drepa múslima.
Viggo Mortensen snýr aftur 1 myndinni Hidalgo, þar sem hann þarf að ferðast á
hestbaki þvert yfir Sádi-Arabíu. Myndin er páskamynd Sambíóanna og Háskólabíós.
A
Viggo og Omar
í eyðimörkinni
Viggó og Ómar Kannski eru kúrekar og arbbar nýjastá'
trendið i vidleitni Hollywood til að endurskrifa söguna?
Af sýnishorninu að dæma er Hi-
dalgo mynd mjög í anda Indiana
Jones, enda gerði leikstjóri hennar
áður þætti í seríunni um Indiana
Jones hinn unga. Maður með hatt
ferðast um Mið-Austurlönd og lend-
ir í ævintýrum. En framleiðundur
myndarinnar halda því hins vegar
fram að hún sé byggð á sannri sögu.
Frank Hopkins, sem var kúreki í
sirkussýningu Buffalo Bill, segir frá
því í ævisögu sinni að hann hafi árið
1890 ferðast til Sádi-Arabíu og tekið
þátt í þúsund ára gamalli útreiðar-
keppni yfir eyðimörkina. Sjónvarps-
stöðin The History Channel kannaði
málið, og fann engar heimildir fyrir
því að keppnin hafi verið haldin,
enda myndi hún enda í Rúmeníu ef
þeir hefðu ferðast 3000 mílur eins og
Hopkins hélt fram. Engu að síður er
sagan góð, og var Viggo Mortensen,
sjálfur Aragorn úr Hringadróttins-
sögu, fenginn tU að leika Hopkins.
Viggo hinn hálf danski, sem er orð-
inn 46 ára gamall, lék í um 30 mynd-
um áður en hann sló loksins ai-
mennUega í gegn í Hringadróttins-
sögu.
Hidalgo er fyrsta myndin sem
hann gerir eftir að þrUeikurinn kom
út, og það er spuming hvort honum
takist að stíga út úr skugga kóngsins
og hvort honum takist enn að heUla
kvenpeninginn stuttklipptur og rak-
aður. En hann fær að minnsta kosti
nóg að ríða. Ekki einungis eyddi
hann góðum hluta Hringadróttins-
myndanna. á hestbaki, heldur er
hann einnig þekktur fyrir að koma
hingað 111 lands og ríða í Laxnesi. Og
í Hidalgo ríður hann sem aldrei fyrr.
Hann hittir araba sem lítur út
eins og Omar Sharif, en hann er leik-
inn af Omar Sharif. Ómar hefur lítið
sést upp á síðkastið og var af flestum
talinn af. Hann er þekktastur utan
briddsheimsins fyrir hlutverk sitt
sem arabi á kameldýri í sádi-arab-
ískri eyðimörk í Arabíu-Lárens, og er
nú aftur kominn á gamalkunnar
slóðir. Omar fer létt með að leika
araba, enda sjálfur Egypti, en í kalda
stríðinu var hann oft látinn leika
Rússa og aðra kommúnista, svo sem
í Doktor Sjívagó, Pétri mikla og jafn-
vel Che Guevara í Che!.
Slátrunin á frumbyggjum Amer-
íku við Wounded Knee kemur oft
fýrir í bíó þessa dagana. Tom Cruise
þurfti að flýja tU Japan eftir að hafa
tekið þátt í henni, og Viggó er nú
kominn tU Sádi-Arabíu af sömu
ástæðum. Þessa dagana flykkjast
reyndar Bandaríkjamenn tU Mið-
Austurlanda í hrönnum tU að slátra
aröbum, og hafa sumir bent á að
arabarnir í þessari mynd séu jafn
stereótýpískir og indjánar í gömlu
vestrunum, enda séu arabar þessa
Hvaðan
kemur Viggo
Mortensen?
Viggo Mortensen er flestum kunnugur í
hlutverki Aragorns í Hringadróttins-
sögu. Fæstir könnuðust við hann þegar
hann birtist í fyrstu Hringadróttinsmynd-
inni, en þá átti hann þegar um 30 myndir
að baki. Pabbi hans, Viggó eldri, er danskur
bóndi en hann kynntist mömmu hans sem
er frá Noregi. Þau fluttu svo til New York
þar sem Viggo yngri fæddist. Hann ólst þó
ekki upp iBandarikjunum heldurArgent-
inu, þar sem hann var sendur i mjög
strangan einkaskóla. Þegar hann var ellefu
ára skildu foreldrarnir og móðir hans flutt-
ist til Bandaríkjanna með hann og bræður
hans tvo.
Giftist pönksöngkonu
Viggo fór til New York, gerðist þjónn og fór
i tíma í leiklist, og fékk fyrsta hlutverkið í
myndinni Witness með Harrison Ford árið
1985. Tveimur árum síðar flutti hann til
Los Angeles og lék i myndinni Salvation,
og endaði með að giftast meðleikkonu
sinni Exene Cervenka, sem var söngvari I
pönkhljómsveitinni X. Þau voru gift 110 ár
og eignuðust saman soninn Henry. Næstu
árin lék Viggo smáhlutverk i myndum eins
og Texas Chainsaw Massacre III og Young
Guns II, en vakti fyrst talsverða athygii
gagnrýnenda þegar Sean Penn fékk hann
til að leika eitt aðathiutverkið i mynd sinni
The indian Runner. Upp frá þvi leik hann
auka-
hlutverk i ýms-
um stórmyndum, svo sem
Cariito's Way, Crimson Tide og Psycho,
og kom einnig fram á móti Demi Moore i
GlJane.
Vildi ekki leika Aragorn
Áriðl999 fékk hann loks hringingu frá Peter
Jackson, sem bauð honum hlutverk í
Hringadróttinssögu. Viggo hafði lítinn
áhuga á því þarsem það þýddi að hann
myndi þurfa að vera viðskila við son sinn, en
sonur hans er mikill aðdáandi bókanna og
hvatti hann eindregið til að taka við hlut-
verkinu. Svo fór, og Viggo varð i kjölfarið al-
þjóðleg stjarna, en virðist ekki endilega vera
sáttur við það hlutskipti. Hann kýs frekar að
yrkja tjóð, spila djasstónlist (hann hefur gef-
ið út þrjá diska) og fara i útreiðartúra, en
hann keypti hestana sem hann var á i bæði
Hringadróttinssögu og Hidalgo. Hidalgo er
fyrsta myndin sem hann leikur i á eftir
Hringadróttinssögu, en næstmun hann
leika Alatristei samnefndri biómynd, sem
fjallar um spænskan hermann á 16. öld.
upp með það. Kannski eru kúrekar
og arabar nýjasta trendið í viðleitni
HoUywood tU að endurskrifa sög-
una?
dagana að ganga í gegnum sitt eigið
Wounded Knee-tímabU. Segja þeir
að ef myndin sýndi gyðinga í jafn
slæmu ljósi myndi hún varla komast
The Whole 10 Yards frumsýnd í Smárabíói og Regnboganum
Willis og Perry
Strákamir úr Friends hafa aUir reynt fyrir sér í
bíómyndum, en sjaldnast með góðum árangri.
Myndin The Whole Nine Yards er sú fyrsta sem
einhver af þeim leikur í sem hefur náð umtals-
verðum vinsældum, en í henni lék Matthew
Perry (Chandler í Friends) tannlækni sem komst
að því að nágranni hans er leigumorðingi. Reyna
þeir að drepa hvorn annan, og verða miklir mát-
ar upp frá því. Félagamh* búa í Montreal í
Kanada, og er þetta þriðja myndin á jafn mörg-
um vikum sem er frumsýnd hér í bæ þar sem
Montreal kemur við sögu, hvað sem það annars
• • •
segir manni. Leigumorðinginn geðþekki er leik-
inn af Bruce WUlis, en í fyrri myndinni giftist
hann Amöndu Peet, einkaritara Perrys, meðan
Perry giftist Species-skrímslinu Natöshu Hen-
stridge. f framhaldinu er Natöshu rænt af ung-
versku mafíunni, og Perry þarf á aðstoð félaga
síns að halda til að endurheimta hana.
The Whole Ten Yard Matthew Perry og Bruce Willis snúa
aftur þegar Perry leitar til leigumorðingjans til að endurheima
konuna sina.