Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Síða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Síða 32
32 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004 Fókus DV Fangelsi fyrir morð á kynferð- isbrotamanni Þegar Judith Smith hvarf lá eiginmaður hennar undir grun. Lögreglan í Philadelp- hiu hafði þó engar haldbærar sannanir gegn honum og enn þann dag í dag er mál- ið óupplýst. Stephen Hoath Drap manninn sem áreitti dóttur hans og fékk 14 ár i fangelsi fyrir. Bretinn Steph- en Hoath sem búið hefur í Danmörku síðustu 13 árin hefur verið dæmdur í 14 ára fangelsi. Hoath og danskur vin- urhans skutu Villy Andersen til bana en Hoath taldi hann hafa áreitt m'u ára dóttur sína kynferðislega. Þegar Hoath komst að því að hinn grunaði væri dæmdur kynferð- isbrotamaður fór hann til lög- reglunnar. Þegar lögreglan sagðist ekki geta gert neitt vegna skorts á sönnunargögn- um ákvað Hoath að taka málið í sínar hendur. Mágur Hoath, Malcolm Sanderson, telur dóm- inn of strangan. Hvorki hafi Ho- ath fengið að segja sína sögu í málinu né hafi skuggaleg fortíð Villys Andersen verið kynnt fyrir dómaranum. Andrezej Kunowski Sex árum eftir aðhann drap hina 12 ára Kater- inu var hann handtek- inn. Kunowski hafði auk þess nauðgað 70 börnum og konum. Katerina Koneva Hin 12 ára stúlka rétt áöur en hún var drep- in. Katerina hefði átt 19 ára afmæli á þessu ári hefði hún lifað. Faðirinn var grunaður Sex ára martröð Trajce Koneva lauk í seinustu viku þegar bamamðingurinn Andrezej Kunowski var handtekinn fyrir morðið á 12 ára dóttur hans Katerinu. Þegar lögreglan kom að stúlkunni látinni fyrir sex árum var faðir hennar fyrst gmnaður. „Mér var kastað inn í fangaklefa þar sem eng- inn trúði frásögn minni. Meira að segja konan mín hélt að ég hefði drepið hana," sagði Trajce. „Hvað hefurðu gert dóttur okkar?“ öskraði Zakalina Koneva á mann sinn. Dótturmissirinn varð til þess að hjónin skildu og Trajce reyndi oft að fremja sjálfsmorð. Sex árum eftir að dóttir þeirra var drepin fannst morðinginn. Hann hafði verið handtek- inn fyrir að nauðga 21 árs konu og eftir að DNA hafði verið rannsakað kom í ljós að hann var morðingi Kater- inu og nafn Trajce er því loks hreinsað. Neitarað hafa banað syni sínum Shahajan Kabir hefur verið kærð- ur fyrir að stinga tíu mánaða gamalt barn sitt til dauða. Kabir hefur ávallt neit- að sök en hann er einnig sakaður um að hafa stungið móður sína og ömmu í árásinni. Þær lifðu af en hinn ú'u mánaða gamli Hassan Martin lést af völdum áverka á hálsi. Atburðurinn átti sér stað í bak- aríi í bænum Carlisle í Cumbria í október á síðasta ári. Kabir hefur verið dæmdur í gæslu- varðhald þar til að réttarhöld- unum kemur en þau fara fram í júm'. til að hverla Hassan Martin Hinn tiu mánaða gamli drengur var stunginn tiidauða. Judith Smith ætlaði að skoða sig um í borginni á meðan maður hennar sæti ráðstefnu. Jeffrey Smith hafði því engar áhyggjur að hún myndi láta sér leiðast yfir einhverju lyfjafræðitali og tók hana með sér á ráðstefnuna í Philadelpiu. í apríl 1997 lögðu þau af stað en Judith snéri aldrei heim aftur. Þann 10. apríl, fyrsta dag ráð- stefnunnar, var Judith enn í rúminu meðan Jeffrey var að taka sig til fyrir fyrsta fundinn. „Ekki hafa áhyggjur af mér,“ sagði hún. „Ég er sjálf með fullskipaða dagskrá. Ég ætla að þræða söfnin og kíkja í búðir.“ Jef- frey sagði henni að skemmta sér vel Sérstæð sakamál og þau myndu hittast á herberginu klukkan hálf sex svo þau hefðu næg- an tíma til að taka sig til fyrir kvöld- verðinn. „Sjáumst hálf sex,“ sagði Judith um leið og hún kyssti mann sinn bless. Effir morgunverðinn fór Jeffrey aftur upp á herbergi og var Judith þá í sturtu. „Þú verður að fara niður og fá þér morgunmat. Hann er frábær," sagði hann. „Svona? Alls- ber?“ Spurði Juddith hlæjandi. Þetta var í síðasta skiptið sem Jeffrey sá konu sína. Til Philadelphiu til að hverfa Klukkan hálf sex var hún ekki komin til baka. Jeffrey hafði litlar áhyggjur þar sem kannski höfðu þau einungis misskilið hvort annað. Ef til vill hélt hún að þau hefðu ætlað að hittast á veitingastaðnum. En þegar hún var enn ókomin þegar kvöld- verðurinn byrjaði fór hann virkilega að hafa áhyggur og spurðist því fyrir um hana í móttöku hótelsins. „Ég er hræddur um að eitthvað hafi komið fyrir konuna mína,“ sagði hann við hótelstarfsmann. „Gætirðu hringt á bíl fyrir mig svo ég geti rúntað um hverfið og athugað hvort ég sjái hana?" Enginn hafði séð hana og um miðnætti hringdi Jeffrey í lögregluna sem sagðist ekki geta gert neitt fyrr en hún væri búin að vera horfin í lengri tíma. Þetta var byrjunin á slæmum samskiptum Jeffreys og lögreglunnar í Philadelphiu. „Þegar Judith hafði verið týnd í fjórar vikur voru þeir ennþá að tala um konur sem létu sig hverfa vegna athyglinn- ar og birtust síðan skömmu síðar. Ég sagði þeim að það væri ólíkt Judith. Hver ætti líka að fara til Philadelphiu til þess eins að láta sig hverfa?" Lög- reglan bar fyrir sig að flestar konur sem skráðar hefðu verið týndar létu sjá sig stuttu seinna en með tíman- um fóru þeir að efast um að Judith hefði nokkurn tímann komið til Philadelphiu. Þegar hjónin lögðu af stað frá Boston hafði Judith upp- götvað að hún hafði gleymt ökuskír- teininu sínu og væri því án persónu- skilríkja. Þar sem hún vissi að hún fengi ekki að fara um borð í flugvél- ina ákváð hún að snúa við og taka kvöldvélina. Jeffrey varð að mæta á fund sama dag svo hann hélt sinni áætlun. Samkvæmt Jeffrey hittust Jeffrey Smith og sonur hans Fjölskyldan þræddi götur Philadelphiu I von um að komast á slóðJudith. þau svo um kvöldið og Judith færði honum stóran blómvönd til að af- saka gleymskuna. Lögregluþjónarn- ir efuðust um að hann segði satt. Hafði hún í raun komið til Phila- delphiu? Jeffrey Smith Jeffrey var spikfeitur og þvi óiikiegt að hann hefði getað komið iikinu fyrir. Judith Smith Judith missti afvélinni þar sem hún gleymdi ökuskirteininu sinu. Ónotuð föt og engar snyrti- vörur Kvenkyns lögregluþjónn efaðist um að kona hefði búið á herberginu þar sem engar snyrtivörur voru þar og fötin voru öll ónotuð. Greinilegt var að Judith hafði farið í sömu fötin og hún ferðaðist í. Eftir að hafa rætt við börn þeirra fékk lögreglan stað- festingu á að það væri alls ekkert ólíkt Judith. í raun hafði enginn séð hana þar sem hótelmóttakan var lokuð kvöldið sem hún mætti á hót- elið. Sönnunargögnin ollu því að lögreglan gat ekki annað en grunað Jeffrey um græsku. „Við gátum ekki útilokað neitt og þar sem Jeffrey Smith neitaði að fara í lygamælis- próf var hann efstur á listanum." Næstu vikur þræddu Jeffrey og börn hans götur Philadelphiu í von um að öðlast einhverja vitneskju um hvað hefði gerst.'VVið leigðum hjól, við gengum um og leigðum bíla,“ sagði dóttirin Amy. „Þetta var hrikalegur tirni og sérstaklega þar sem flestir álitu að hún hefði bara látið sig hverfa." Fjölskyldan komst á slitr- ótta slóð hennar en missti jafnóðum af henni. Hún hafði sést í spiiavíti og vörubílstjóri sagðist hafa tekið hana upp í á leið til Washington. Jeffrey efaðist um að þessar sögur væru alltaf sannar en hann hélt í vonina um að hún findist á endanum. Þegar mánuðirnir liðu fór vonin um að Judith finndist á lífi minnkandi. Jef- frey hafði alltaf verið grunaður en Hús morðingjans rifið Faðir Holly Wells segist ánægð- ur með að húsið þar sem dóttir hans var drepin hafi verið rifið. Ian Huntley, sem drap Holly og vin- konu hennar Jessicu lan Huntley ian hafði kynnst stelp- S, unum ískólan- um þar sem hann starf- aði. Chapman árið 2002, bjó í húsinu ásamt kærstu sinni Maxine Carr. Líkin voru óþekkjanleg þegar þau fundust. „Fyrir mig og konuna mína er þetta góð byrjun til að geta háldið áfram að lifa án þess að þurfa að horfa á þetta hús. Bæj- aryfirvöld sýna okkur mikla mis- kunnarsemi með þessu." Skólalið- inn Huntley hafði sjálfur tekið þátt í leitinni að stúlkunum sem voru tíu ára gamlar þegar þær dóu. Húsið, bílskúrinn og garðskálinn voru öll rifin í von utn að íbúar bæjarins héldu áfram með lífið án þess að þurfa stöðugt að vera minnt á þá hryllilegu atburði sem þarna gerðust. þegar einn hótelgestanna gaf sig fram og sagðist muna eftir hjónun- um minnkaði sá grunur. Líkið finnst í september tók málið snöggleg- a breytingum. Veiðimenn á dádýra- veiðum höfðu rekist á beinagrind af kvenmanni. Beinin voru dreifð um allstórt svæði en fötin gáfu til kynna að konan hefði dáið vegna hnífs- tungu. Það voru hvorki veski né persónuskilríki í vösunum. Konan var á aldrinum 40 til 55 ára en líkið var svo rotnað að ómögulegt var að gera sér grein fyrir dánartíma. Eftir að bornar höfðu verið saman tann- læknaskýrslur kom í ljós að um Judith var að ræða. En hver hafði drepið hana? Hvernig hafði hún komist alla leið til Norður-Kar- ólínu? Hver hafði komið henni fyrir í þessari grunnu gröf? „Lögreglan í Philadelpiu taldi Jeffrey Smith sek- an,“ sagði leynilögreglumaðurinn Medford. „Ég hafði aldrei trú á því. Hann er í góðum holdum og getur varla gengið nokkur skref án þess að þurfa að kasta mæðinni. Hann hefði aidrei getað komið henni hér fyrir enda var Judith sjálf stórgerð kona.“ Medford eyddi mörgum vik- um í rannsókn málsins. „Einhver veit hvað gerðist og sannleikurinn mun koma í ljós.“ Jeffrey vissi að hann lægi enn undir grun en hann áttaði sig á að tíminn læknaði mörg sár. „Næturnar eru verstar," sagði Jeffrey. „Að vera aleinn í húsinu umkringdur hlutum sem hún átti. Ég elska sakamál en þetta er einum of raunverulegt. Ef ekki gerist kraftaverk munum við aldrei vita hvað kom fyrir Judith." Enn þann dag í dag er málið óupplýst. Eftirlýstur ellilíf- ly »þ< eynspegi James J. Bulger hefur verið eftír- lýstur í Bandaríkjunum um nokkurt skeið. Hann er rúmlega sjötugur og er grunaöur um amk. 18 morð, að stjóma glæpa- hring, fjárkúgun, eiturlyfjasölu og peningaþvættí. Jamesvarvirk- astur á áttunda og níunda áratugn- um í Boston Massachusetts en hefúr farið huldu höfði síðustu ár. Honum er lýst sem skapstórum og ofbeldishneigðum manni og að sjálfsögðu gerir FBI- lögregian bandaríska ráð fyrir að hann sé vopnaður öllum stundum. Upplýsingar sem gætu leitt til handtöku hans em vel þegnar af FBI og í boði em milljón dollarar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.