Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Síða 34
j4 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004
Sport DV
Birmlngham-Man. Utd
Steve Bruce myndi ekki leiðast að
klekkja á gamla læriföðurnum.
Man. Utd er aftur á móti komið á
góða siglingu. Menn eru að koma
inn úr meiðslum og Wes Brown
hefur breyst úr keilu yfir í
* varnarmann á ný sem eru ekki
slæmar fréttir fyrir Fergie og
Veit ekkert
um Arsenal
Jón Jósep Snæbjömsson, eða
Jónsi í Svörtum fötum eins og hann
er oftast kallaður, verður seint
LIÐIÐ MITT
10
sakaður um að vera fótboltafíkill.
Þótt hann hafi engan áhuga á
ícnattspymu þá á hann sér samt
uppáhaldslið í enska boltanum en
hann veit samt ekkert hvort þeir em
góðir eða lélegir.
„Ég held með Arsenal þar sem
hinir strákamir í hljómsveitinni halda
með Iiverpool og Manchester
United," sagði Jónsi hress og kátur
eins og hans er von og vísa. „Ég spurði
bara hver væri helsti andstæðingur
þeirra. Þeir sögðu Arsenal og þá ákvað
ég bara að halda með þeim. Þetta er
ekki mjög flókið mál né djúsi saga."
Veit ekkert um liðið
„Ég játa það samt fúslega að ég veit
ekkert um Arsenal. Ég heyri samt að
-jbeir séu á toppnum þannig að ég læt
eins og ég sé mjög ánægður með mína
menn. Mínir menn em að sjálfsögðu
bestir," sagði Jónsi og hló dátt en
hann segir að það hafi verið
nauðsynlegt að finna sér eitthvað lið
að halda með til að vera ekki
útskúfaður úr hljómsveitinni.
„Ég og Hrafnkell gítarleikari
áttuðum okkur ekki á því af hverju
það var ekki hægt að æfa á
sunnudögum en síðar kom í ljós að
það var alltaf einhver fótbolti í gangi á
sama tíma. Við urðum einfaldlega að
vera með og þá kom ekkert annað til
■greina en að velja sér lið."
Jónsi vakti athygli sparkspekinga
fyrir nokkmm misserum síðan þegar
hann fékk tólf rétta í
getraunum án þes
að vita nokkuð
um liðin. „Ég var
með 13 eftir 90
mínútur en þá
kom mark í ein-
hverjum leik sem
skaut mér í 12.
Fyrir vikið
missti ég af
28 milljón-
íim. Það var
frekar svekkj-
andi," sagði
Jönsi.
félaga. Slagur Robbie Savage og
Roy Keane ætti þó að vera
áhugaverður en Savage hefur
alltaf verið skíthræddur við
Keane. Lau. 10.04 stöð 2 kl. 14.00
Newcastle-Arsenal
Það verður nóg af villimönnum
og vitleysingum á vellinum
hérna. Leikmenn Arsenal eru
farnir að finna fyrir álaginu og ef
þeir lenda í vandræðum með
stólakastarann Bellamy og félaga
þá gæti hæglega soðið upp úr á
St. James's Park. Þetta er sex
stiga leikur. Sun. 11.04 Sýn kl. 15.05
Blackburn-Leeds
Hér má vart á milli sjá hvort liðið er
lélegra og ömurlegra. Maður hélt að
Leeds hefði náð botninum en þeir
töpuðu þó ekki 4-0 fyrir Liverpool
sem hefur verið þekkt fyrir allt
annað en að skora mörk síðustu
árin. Þar að auki er Blackburn
auðvelt heim að sækja þannig að í
fyrsta sinn í vetur er Leeds líklegra til
að sigra.
Bolton-Aston Villa
Bolton er með allt niðrum sig þessa
dagana en það bjargar geðheilsunni
hjá Samma að Páskabjórinn frá Egils
er kominn í ríkið. Spurning hvort
hann útdeili nokkrum kvikindum í
klefa fyrir leik því leikmenn Bolton
versna vart miðað við síðustu leiki
þótt þeir spili vel við skál.
Charlton-Portsmouth
Þegar leiðinleg miðlungslið mætast
verður útkoman klárlega miðlungs-
leikur. Þessi leikur verður ekki
peninganna virði og má reikna með
steindauðu 0-0 jafntefli.
Chelsea-Middlesbrough
Jimmy Floyd er með allt á hornum
sér þessa dagana og vill burt firá
félaginu. Það eru góðar fréttir fyrir
Chelsea því hann leikur aldrei betur
en þegar hann er fúll og reiður.
Leicester-Fulham
Steffen Freund er laus af gjörgæslu
eftir banatilræðið sem Stóri Dunc
veitti honum. Fagnar því með að
hringja í viðhaldið frá Þýskalandi og
bíður liðsfélögum í La Manga
„reunion" partý.
Man. City-Wolves
Eitt af síðustu tækifærum Úlfanna tfi
að bjarga sér frá falli. Því hljóta þeir
að vera afar ánægðir með að mæta
karakterlausu liði City. Þeir éta þá
upp til agna í þessum leik.
BOLTINN EFTIR VINNU
Úrfötunum kallinn minn
Oennis Wise vnr fljówr að
frrðma theo Paphitis eftir
leik Miíhvall og Smuierland
til pess að niinna liann n að
hann verBi að stando vid
stórti orðin oij hlanpa
nakinn inn götur London.
Stjórnarformaður Millwall, Theo Paphitis, er ekki í góðum
málum þessa dagana. Þegar Millwall komst í úrslit ensku
bikarkeppninnar, og um leið í Evrópukeppni, tapaði hann
veðmáli við framkvæmdastjóra félagsins, Dennis Wise. Gamli
harðjaxlinn Wise hafði tekið loforð af stjórnarformanninum að
ef hann kæmi liðinu í Evrópukeppni þá myndi hann hlaupa
nakinn um götur Lundúna. Paphitis segist vera maður orða
sinna og hann mun því fækka klæðum á næstunni og taka létt
skokk á Adamsklæðunum á strætum Lundúnar.
„Það er lítið annað að gera en að
klára dæmið. Leikmennirnir ætla
að leigja rútu og þeir vilja sjá mig
hlaupa nakinn langa vegalengd.
Þetta verður ekki falleg sjón og ég
veit að mér verður stungið í
steininn eflöggan sér þetta en það
verður bara að hafa það."
Dennis Wise greindi bresku
pressunni frá þessu máli fyrir
undanúrslitaleik Millwall og
Sunderland sem fór fram síðasta
sunnudag.
„Þetta er mjög áhugavert mál því
ég talaði við Theo eftir að við slógum
Bumley úr keppninni. Þá sagði ég,
hvað gerist ef við komumst í
Evrópukeppnina?" sagði Wise.
„Hann sagði bara: „Vertu ekki með
þessa vitleysu." En mér var fúlasta
alvara og spurði hann aftur að því
hvað hann væri til í að gera ef við
kæmumst í Evrópukeppnina. Þá
grínaðist hann við mig og sagðist
lofa því að fækka fötum og hlaupa
nakin í London. Ég sagði bara ok,
flott mál en get ég fengið þetta á
pappír? Hann neitaði því en loforð
er loforð."
Stendur við stóru orðin
Paphitis er harður á því að standa
við stóru orðin en leikmenn
félagsins eru reyndar tilbúnir að
skipta við hann. Hann sleppur við
að hlaupa ef þeir fá bónus fyrir að
komast í Evrópukeppni. Það eru
hlutir sem eru í samningum allra
leikmanna í efstu deild en ekki hjá
Millwall.
„Verum heiðarlegir. Ef
einhver leikmanna
minna hefði viljað fá
slíkt inn
samninginn sinn þá
hefðum við talið að
hann væri ekki
með öllum
mjalla," sagði
Paphitis sem
ætlar að hlaupa
frekar en að gefa
leikmönnunum
bónus.
„Þar sem
Dennis er
búinn að
greina
heiminum
frá þessu
þá er lítið
annað að
gera en að
klára
dæmið.
Ræður ekki við Ferrari
ír'
Það er óhætt að segja að það gangi
ekkert upp hjá Michael Ricketts þessa
dagana. Hann skorar ekkert og nú var
hann nærri búinn að drepa sig er
hann var að keyra Ferraríinn sinn í
bleytu.
Það er ekki langt síðan Ricketts
þótti einn efnilegasti framherji
Englands. Hann sló í gegn með Bolton
og velgengninni fylgdi mikill hroki
sem leiddi til þess að Bolton seldi
hann til Middlesbrough á væna
upphæð.
Þar hefur hann verið nær
meðvitundarlaus síðustu tvö árin.
Ekkert skorað og kemst vart í lið
®ngur. Til að bæta gráu ofan á svart þá
var hann ekki fjarri því að láta lífið um
síðustu helgi er hann klessti Ferraríinn
sinn með miklum látum.
Bíllinn ónýtur
Það var mikil rigning daginn sem
hann klessti bílinn en rigning er ekki í
uppáhaldi hjá Ferrari-eigendum þar
sem bíllinn er vart gerður fyrir rúnt á
Laugaveginum. Fór nú líka svo að
Ricketts missti stjórn á bílnum á
þjóðveginum og klessti svo illa að
hann er ónýtur.
Blessunarlega slapp Ricketts vel úr
slysinu og þurfti engrar aðstoðar við.
Hann hristi af sér mesta skrekkinn
síðan um kvöldið og var mættur
galvaskur á æfingu daginn eftir.
Á landsliðsæfingu Það er ekki langt síðan
Ricketts var viðloðandi enska landsliðið. Það
er liðin tið.
Skrautlegur Cantona
Það verður seint sagt um Eric
Cantona að hann bindi bagga sína
sömu hnútum og samferðamenn-
irnir. Kappinn hefur verið að semja
ljóð og leika í kvikmyndum frá því
hann lagði skóna á hilluna ásamt
því sem hann hefur leikið
strandbolta af miklum móð.
Eins og sjá má á þessari mynd
hefur kappinn breytt algjörlega um
útlit. Er kominn með sítt hár og
mikið, úfið skegg. í raun htur hann
út eins og útigangsmaður þessa
dagana. En eins og myndin sýnir
eru enn töffar í tánum á kallinum
en hann skorar hér mark gegn
Ítalíu með bakfallsspyrnu.