Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Qupperneq 35
DV Sport
MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004 35
-----------------------------‘i
f> ^ -0 í SJÓNVARPINU
12. -13. apríl
Aston Villa-Chelsea
Villa vill vera stórlið en er í það
minnsta númeri of lítið fyrir
Ranieri og félaga. Chelsea í formi
og vinnur 0-3. Mán. 12.04 Sýn kl. 14.00
Fulham-Blackbum
Úff, þetta er virkilega vondur
leikur. Fulham ekki svipur hjá
sjón síðan Saha hvarf af vettvangi
og fæst orð bera minnsta ábyrgð
þegar kemur að Blackburn. Fáir
menn sem eru hæfir til að skora
fyrir utan Jon Stead. Hann gerir
gæfumuninn og reddar stigum
fyrir Blackburn. Mán. i2.04SýnkU9.oo
Man. Utd-Leicester
Þynnka og skortur á mannskap
hjá Leicester eftir La Manga
„reunion" partyið. Leicester-
strákamir hefna sín og kæra
stelpurnar fyrir nauðgun að þessu
sinni og selja News of the World
söguna. Þri. 13.04Sýn kl. 19.00
Liverpool-Charlton
Það er ýmist í ökkla eða eyra hjá
Liverpool. Ef þeir vinna em þeir
bestir, á réttri leið og allir höfðu
rangt fyrir sér. Ef þeir tapa þá eru
þeir óheppnir með meiðsli og
dómarinn var lélegur. Þeir sem eru
orðnir þreyttir á Houllier rétti upp
hönd...
Middlesb.-Southampton
Bæði þessi lið eiga það sameiginlegt
að hafa innan sinna raða stórstjörnur
sem hafa valdið miklum vonbrigðum í
vetur. Það verður framhald á þeim
vonbrigðum í þessum leik.
Portsmouth-Birmingham
Óskiljanlegt að þetta sé ekki
sjónvarpsleikur. Tvö stórlið með
endalaust af frábæmm leikmönnum
sem gaman er að horfa á. Að ég
minnist nú ekki á þann leiftrandi
sóknarbolta sem þau spila. Getur
aldrei orðið annað en í það minnsta
tíu marka leikur.
Wolves-Bolton
Farið að sjá á páskabjórsbirgðunum
hjá Samma og hann viðskotaillur
fyrir vikið. Finnur upp nýjan drykk í
kjölfarið - páskakoníak - og tekur
gleði sína á ný.
BOLTINN EFTIRVINNU
Wise bíður spenntur
Dennis Wise bíður spenntur eftir
hlaupinu og það hefur hreinlega
verið erfitt að sjá hvort gladdi hann
meira - að komast í úrslit bikarsins
eða vinna veðmálið við Paphitis.
„Það er alveg rétt hjá ykkur að ég
get ekki beðið. Ég minni líka
góðfúslega á að það er ekkert
sérstaklega stórt undir honum.
Hann hefur ekki enn þá gefið upp
hvar hann ætlar að hlaupa en við
sjáum til,“ sagði Wise sem er enn að
spila og hefur farið mfidnn með
lærisveinum sínum í vetur.
Hann mun mæta sjálfum Sir
Alex Ferguson í úrslitaleiknum
en mikill munur er á reynslu
þessara stjóra.
„Hugsunin um að mæta
einhverjum besta
framkvæmdastjóra allra
tíma er frábær og ég er
þegar farinn að telja niður
dagana að leiknum."
Eins og Paphitis sagði
sjálfur þá verður þetta
ekki falleg sjón og
spurning hversu margir
hafa áhuga á að sjá
miðaldra mann hlaupa
nakinn í stórborg.
Leikmennirnir ætla að leigja rútu
og þeir sætta sig ekki við stuttan
sprett í kringum húsið. Þeir vilja sjá
mig hlaupa nakinn langa
vegalengd," sagði Paphitis sem
lætur það ekki hafa áhrif á sig að
hann gæti verið handtekinn fyrir
athæfið.
„Þetta verður ekki falleg sjón og
ég veit að mér verður stungið í
steininn ef löggan sér þetta en það
verður bara að hafa það.“
Rasistar hjá
Hinn ótrúlegi árangur Millwall í
ensku bikarkeppninni hefur vakið
mikla athygli en það er ekki allt sem
sýnist hjá þessu félagi. Það er mjög
umdeilt þar sem stór hópur
stuðningsmanna félagsins eru
úthrópaðir kynþáttahatarar og
stjómarformaðurinn, Theo Paphitis,
er ásakaður um að gera ekkert í
málinu.
Framkvæmdastjóri Burnley, Stan
Tement, varð brjálaður á dögunum
þegar þeldökkur leikmaður hans fékk
að kenna á hatri stuðningsmanna
Millwall.
„Hann fékk ljótar sneiðar úr
stúkunni og því er ekki hægt að neita.
Ég veit að Millwall er að gera lítið úr
Millwall
máhnu en ef Paphiús vill grafa
hausinn í sandinum þá er það hans
mál. Mér líkar vel við Theo en svona á
ekki að gerast á knattspymu-
leikvöngum í dag,“ sagði Tement.
Hnefaleikafrömuðurinn Frank
Maloney er harður stuðningsmaður
Millwall og hann segir allt tal um
rasisma hjá félaginu vera tómt bull.
„Það er alltaf verið að tala um að hér
séu tómir rasistar. Það er bara ekki satt
og ég er orðinn hundleiður á að hlusta
á þetta," sagði Maloney.
Það er ekki rétt ef eitthvað er að
marka Michael Johnson, dökkan
vamarmann Derby. „Það hefur aldrei
verið auðvelt að vera svartur
leikmaður gegn Millwall. Astandið
hefur bamað en er samt slæmt.“
Skapbeitur markaskorari
Craig Bellaniy er duglegur að
koma sér i vandræði utan
vallar og sakaskráin lengist
með degi hverjum.
Svakaleg sakaskrá
Framherji Newcastle, Craig
Bellamy, er enginn engill. Það er
þekkt staðreynd. Þessi magnaði
framherji er ákaflega skapheitur
og það er þetta mikla skap sem er
sífellt að koma honum í vandræði.
Hann hefur verið ákaflega iðinn
við kolann síðan f nóvember 2001
og sakaskráin er þétt allar götur
sfðan.
Craig var í uppreisnarhug í
nóvember 2001. Þá neitaði hann
að mæta í matarboð með
Newcastle-liðinu til heiðurs
stjórnarformanni félagsins er þeir
voru í æfingabúðum á Spáni. Hann
var í kjölfarið rekinn heim. Mánuði
síðar nældi hann sér í rautt spjald
fyrir að gefa Ashley Cole, vamar-
manni Arsenal, vænt olnbogaskot.
Réðst á stúlku
Craig byrjaði árið 2002 með
látum og í febrúar fékk hann
aðvörun frá lögreglunni eftir að
hann hafði lamið tvítuga stúlku á
djamminu.
Hann hélt sig á mottunni næstu
mánuði en í september sprakk
hann í leik gegn Dynamo Kiev í
Meistaradeildinni. Þá skallaði
hann ehm leikmann Dynamo.
Uppskeran þriggja leikja bann og
sektaður um tveggja vikna laun.
Desember sama ár mætti
Newcastle Inter í meistara-
deildinni. Bellamy vár nýkominn
úr þriggja leikja banninu en nældi
sér í nýtt þriggja leikja bann með
því að sparka í Marco Materazzi.
í apríl 2003 var hann ákærður
fýrir ósæmilega hegðun eftir leik í
ensku deildinni. Uppskeran þar
var eins leiks bann og 5000 punda
sekt.
Lamdi aðdáendur
í október í fýrra var hann
sektaður fyrir dómi í Cardiff fýrir
að vera með dólgslæú fyrir utan
skemmústað.
Nú og svo í síðasta mánuði slóst
hann við aðstoðarþjálfara
Newcastle á meðan þeir biðu eftir
því að fljúga til Mallorca. Vikuna á
undan hafði hann lent í rifrildum
og slagsmálum við aðdáendur
sína. Allt byrjaði það rólega með
því að Bellamy var að gefa eigin-
handaráritanir en hann missú
einhverra hluta vegna stjórn á
skapi sínu fljótlega. Fór að rífast
við aðdáendurna og endaði með
því að slást við þá. Þurfti að kalla tfi
lögreglu í því tilviki.
Er nema von að menn bíði
spennúr efúr næsta útspili.
Stjóri rasistafélags? Vandræðin hafa löngum elt Dennis Wise, stjóra Millwall. Félag hans er
afar umdeilt á Englandi enda margir stuðningsmanna félagsins vafasamir einstaklingar.
Leeds-Everton
Stóri Dunc neyðist til að fýlgjast með0
úr stúkunni þar sem hann er í
leikbanni eftir að hafa gert
heiðarlega tilraun til þess að myrða
Steffen Freund. Hittir hinn
„siðprúða" Jody Morris á
leikmannabarnum í hálfleik og með
þeim tekst mikill og góður vinskapur
enda eiga þeir félagar margt
sameiginlegt. Mála síðan bæinn
rauðan og enda í rauða hverfinu þar
sem þeir skrá sig í fjörlegan S&M-
klúbb. Átta sig um leið að þeir hafa
fundið sína köllun og spila aldrei
knattspyrnu á nýjan leik.
o
£ REMBINGURINN
Baráttan um
enska meistara-
titilinn er engan
veginn búin. Arsenal
er brothætt, eins og
þeir hafa sýnt áður, á
meðan Chelsea er sjóðheitt. Menn
spyrja sig að því
þessa dagana hvort
Chelsea muni ná
Arsenal og stela
titlinum. Ekki eru «
allir á einu máli í
þeirri umræðu og við fengum tvo
KR-inga til þess að segja sína
skoðun á málinu.
Arsenal klárar dæmið
„Þeir klára þetta dæmi en þó
með naumindum," sagði dáðasti
íþróttafréttamaður landsins, Bjarni
Felixson, en hann er jafnframt
harður stuðningsmaður Arsenal.
„Tapið gegn United í bikarnum á
eftir að hafa áhrif á þá en ég held að
þeir taki þetta samt. Þetta verður
mjög tæpt og Chelsea á efúr að
komast ansi nálægt þeim. Ég held , v
samt að Arsenal hafi þann andlega
styrk sem til þarf að klára þetta. Það
er líka mikil breidd hjá Uðinu. Það er
alveg hægt að vinna upp þetta
forskot en ég trúi því bara ekki að
Arsenal fari alveg yfir um og tapi
þessu. Ég
bara neita
að trúa
því,“ sagði
Bjarni
Felixson
sem er alls
óhræddur
við Chel-
sea.
Vonandi hikstar Arsenal
„Það er vissulega möguleiki á því
að Chelsea taki titilinn en ég held
samt að það sé meiri óskhyggja en
hitt hjá mér,“ sagði Willum Þór
Þórsson, þjálfari íslandsmeistara
KR. „Það yrði að sjálfsögðu hið
besta mál ef Arsenal fer eitthvað að
hiksta og Chelsea myndi nota
tækifærið og laumast fram fýrir þá,“
sagði Willum og bætú við að
Chelsea væri heitasta Uðið í
deildinni þessa stundina. Hann
telur að allt fjaðrafokið í kringum
Claudio Ranieri, þjálfara Chelsea,
hafi hjálpað liðinu.
Ánægður með Ranieri
„Það hefur haldið þeim við efnið
og þjappað þeim saman ef eitthvað
er. Ranieri má eiga það að hann
hefur byggt upp mjög sterka vörn ogy
hún er að fleyta liðinu mjög langt
eins og sést á þessum 1-0 leikjum
sem þeir eru að taka. Ég er að vona
að Arsenal hiksti eins og vissulega er
mögulegt en mig grunar samt að
þeir séu bara of sterkir
til þess að klúðra
þessu forskoti
niður. Enþetta
verður
hörkubarátta og
vonandi verður
spenna í enda
tímabUsins," sagði
WiUum Þór Þórsson,
þjálfari KR.
rjíf |mÍ