Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Qupperneq 36
36 MIÐVIKUDAGUR 7.APRÍL 2004
Sport DV
Corey og
Arnarí eins
leiks bann
v Aganefnd KKf dæmdi í
gær Snæfellinginn Corey
Dickerson og Keflvíkinginn
Arnar Frey Jónsson í eins
leiks bann. Dickerson fær
bannið fyrir brottvísun í
öðrum leik liðanna en
Arnar fær bann vegna
atvika sem áttu sér stað í
sama leik en Snæfell lagði
fram myndband þar sem
Arnar sést ítrekað sýna af
sér óíþróttamannslega
framkomu. Þeir taka báðir
út bannið í fjórða leiknum
sem fer fram á laugardag.
. Sigurhjá
UConn
Connecticut-háskóli
bar sigur úr býtum í
háskólakörfuboltanum
í ár. Þeir lögðu Georgia
Tech í úrslitum, 82-73.
Þeir mættu Duke í
undanúrslitunum og
unnu þar 79-78. Emeka
Okafor hjá UConn var
valinn besti leikmaður
úrslitanna en almennt
er talið að hann verði
valinn fyrstur í nýliða-
valinu í sumar.
Eiginkona
Dalys játar
peningaþvott
Eiginkona golfarans
John Daly og foreldrar
hennar játuðu um helgina
að hafa staðið í peninga-
þvætti. Sherrie Miller Daly
giftist John árið 2001 en
það sem John vissi ekki var
að hún rak á þeim tíma
ólöglegt spilavíti og seldi
eiturlyf. Faðir Sherrie á yfir
höfði sér tveggja ára fang-
elsisdóm en mæðgurnar
' verða í stofufangelsi í hálft
ár og svo á skilorði í fimm
ár. Daly tekur þátt á
Masters-mótinu um
páskana. Hann vildi ekkert
tjá sig um málið við
ijölmiðla.
Keflvíkingar geta tryggt sér íslandsmeistaratitil karla í sjöunda sinn frá upphafi
með sigri í Qórða úrslitaleiknum gegn Snæfelli í Keflavík á laugardaginn. Keflavík
hefur unnið 31 heimaleik í röð gegn íslenskum liðum og hefur leikið 53 leiki á
þeim 185 dögum sem eru liðnir af tímabilinu.
54. leikurinn Enginn sér
hreytumerkii Kellavík
Eftir þriðja leik Snæfells og Keflavíkur um
fslandsmeistaratitil karla í körfubolta sem Keflavik vann
sannfærandi, 65-79, í fyrrakvöld vom margir að tala um
að lykilmenn Snæfells væm farnir að þreytast. En hvað þá
með Keflvíkinga sem vom að spila sinn sjötta leik í
úrslitakeppni á aðeins tíu dögum og 53. leik sinn á
tímabilinu. Það vom engin þreytumerki að sjá á sigurvissu
Keflavíkurliði sem hefur farið ótroðnar slóðir í vetur, tekið þátt
í evrópukeppni og komist í úrslitaleiki allra móta á vegum KKf.
Keflavík er komið með
undirtökiuí einvíginu gegn Snæfelli
eftir tvo sigra í röð sem jafnframt eru
tveir fyrstu tapleikir Snæfells í
úrslitakeppninni. Snæfellingar hafa
sýnt mörg veikleikamerki í
undanförnum tveimur leikjum og
það lítur út fyrir að Júnn ótrúlegi viji
leikmanna sé ekki lengur eins mikill
og menn líklega orðnir saddir eftir
ævintýrið mikla í vetur.
Keflavík hefur hrist af sér ofur-
álag og í stað þess að sýna
þreytumerki hefur liðið spilað betur
með hverjum leiknum. Liðið hefur
frábæra breidd og það er hún sem
hefur fleytt Keflavíkurliðinu í
gegnum þetta ótrúlega tímabil sem
hefur innihaldið 53 leiki á aðeins 185
dögum eða leik á þriggja og hálfs
dags fresti stanslaust í sjö mánuði.
Þríryfir 1000 mínútur
Það hefur verið tekin tölfræði í 52
af 53 leikjum Keflavíkur í vetur og
þar má sjá að þrír leikmenn liðsins
hafa þegar náð að leika í yfir 1000
mínútur og tveir aðrir eru við það að
bætast í hópinn. Derrick Allen hefur
leikið mest, í 33,2 mínútur að
meðaltali í öllum 42 leikjunum, alls í
1727 mínútur. Nick Bradford kemur
þar skammt á eftir með 1699
mínútur og fyrirliðinn Gunnar
Einarsson er þriðji með 1070
mínútur. Þeir Magnús Þór
Gunnarsson (976) og Sverrir Þór
Sverrisson (922) koma síðan þar rétt
á eftir. Bæði Allen og Bradford hafa
skorað yfir 1000 stig með Keflavík í
vetur og hafa reynst liðinu
einstaklega vel enda er Keflavík eina
liðið í deildinni sem er enn með
sömu erlendu leikmenn og þegar
tfinabilið hófst í haust.
til þessa og þar má sjá hversu þétt
Keflvfldngar hafa spilað sína leiki.
Keflavík hefur mest fengið þriggja
daga hvfld en þeir hafa spilað sína
ellefu leiki á 26 dögum. Snæfell
hefur leikið fimm leikjum færra og
þeir fengu fimm daga hvfld fyrir
undanúrslitin og sex daga hvfld fýrir
úrslitaleikina gegn Keflavík.
Eftir langt og strangt tímabil gæti
verið aðeins einn leikur eftir. Hann
er nánast unninn fyrirfram ef litið er
á stórbrotið sigurhlutfall Keflavíkur-
liðsins á Sunnubrautinni þar sem 22
af 23 leikjum vetrarins hafa unnist
með evrópukeppninni meðtalinni.
Róðurinn verður því þungur fýrir
Snæfellsliðið, sem hefur oft og
mörgum sinnum komið til baka í
leikjum en á enn eftir að sýna fram á
í vetur að liðið geti komið til baka
eftir tvo tapleiki í röð.
ooj@dv.is
1 líl 111 lii
4
I I
18
'5
Mest þriggja daga hvíld
Hér til hægri má sjá yfirlit yfir
leikdaga liðanna í úrslitakeppninni
6
13 14 15 16 17
19 20 21 22 23 24
26 27 28 29 30
------ LEIKDAGAR KEFLAVÍKUR
------ LEIKDAGAR SNAEFELLS
LEIKIR KEFLAVÍKUR
Keflavík leikur á
laugardaginn sinn 54. leik á
keppnistímabilinu þegar liðið
tekur á móti Snæfelli í fjórða
leik liðanna um Islandsmeistara-
titilinn. Keflavík hefur komist í
úrslit allra keppna og einnig tekið þátt (evrópukeppni.
Leikir Keflavíkur í vetur: Deildin
Leikir 22
Sigrar-töp 15-7
Sigurhlutfall 68%
Orslitakeppnln
Leikir 11
Sigrar-töp 7-4
Sigurhlutfall 64%
Bikarkeppnin
Leikir 5
Sigrar-töp 5-0.
Sigurhlutfall 100%
Fyrirtækjabikar
Leikir 6
Sigrar-töp 5-1
Sigurhlutfall 83%
Meistarakeppni
Leikir . 1
Sigrar-töp 1-0
Sigurhlutfall 100%
Evrópukeppni
Leikir 8
Sigrar-töp 3-5
j Sigurhlutfall 38%
Samantekt Heimaleikir
Leikir 23
Sigrar-töp 22-1
■ Sigurhlutfall 96%
1 Utileikir og leikir á hlutlausum stað
j Leikir 30
[, Sigrar-töp 14-16
f Sigurhlutfall 47%
I Samtals
Leikir 53
Sigrar-töp 36-17
Sigurhlutfall 68%
Bestur þegar mest á reynir Nick
Bradford hefur átt misjafna leiki fyrir
Keflavík í vetur en alltafspilað vel þegar
mest á reynir. Bradford hefur spilað alla
53 leiki Keflavíkur til þessa en í þeim
52 sem hefur verið tekin
tölfræði hefur hann
skorað 1082stigá 1699
mínútum.
I