Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Side 45
DV Fókus
MIÐVIKUDAGUR 7. APRlL 2004 45
Aðaláhugamál mitt er tónlist og
ég hlusta mest á þjóðlagatónlist.
Þetta er mjög sérhæfð tónlist og
það eru í sjálfu sér ekki margir í
Rússlandi sem þekkja til hennar, al-
veg eins og í rauninni kunna ekkert
allir rímur hérlendis.
Hér á íslandi hef ég hitt fólk sem
er kunnugt rímnakveðskapnum og
það er svo sérstakt að íslenskum
rímum svipar mjög til sönglaga sem
sungin voru í Norður-Rússlandi eða
á Arkangelsk-svæðinu í gamla daga.
Ef ég hefði meiri tíma færi ég að
rannsaka þetta. Kannski geri ég það
einhvern ú'ma en í bili er alltof mik-
ið að gera. Ég starfa á Landspítala -
háskólasjúkrahúsi og er kominn í
sérnám í lyflækningum. Það tekur
sinn tíma en ég spila samt mikið á
hljóðfæri engu að síður. Balalæka er
meðal minna hljóðfæra en svo hef
ég einnig sérhæft mig í að leika á
hefðbundinn trompet og hljóðfæri
sem heitir Zhaleika.
Zhaleika er blásturshljóðfæri
sem er skylt sekkjapípu en það er
kraftur kinnanpa sem er notaður í
stað belgsins hjá Skotum.
Ég er alinn upp við það að
hlusta á tónlist. Faðir minn spilar á
flðlu og þó hann hafl aldrei lært
það í neinum skóla, spilar hann al-
veg frábærlega vel. Meðan hann
var í heimsókn hér kenndi hann
mér svolítið á fiðluna. Það var í
fyrsta sinn sem ég tókst á við hana
eitthvað að ráði.
Ég er mjög ánægður hér á ís-
landi. Fjölskylda mín - það er móð-
ir mín og faðir og bróðir minn -
sakna mín mjög mikið og þegar
pabbi kom í heimsókn í fyrra varð
hann svo yfir sig hrifinn af landinu
og fegurð þess að hann tók heilar 50
filmur á myndavélina sína.
Núna er ég nýkominn til baka til
Reykjavíkur eftir að hafa verið að
leysa af á heilsugæslustöðinni á Eg-
ilsstöðum. Þar var mjög skemmti-
legt. Það er ótrúlegt hvað það er
auðvelt að kynnast fólki þar.
Á Egilsstöðum var líka áberandi
hversu margir virðast haldnir
brennandi tónlistaráhuga. Þar hitti
ég t.d. eldhugann Charles sem sett
hefúr upp marga söngleiki. Það sem
var sérstaklega gott fyrir mig var að
hann hefur svo I£k áhugamál og ég.
Landnámsmenn
Elísabet Brekkan
Við áttum saman margar góðar
stundir þar sem við spiluðum og
sungum hvor fyrir annan. Mér
finnst fólkið opnara þar en hér fyrir
sunnan. Ég gæti svo vel hugsað mér
að fara aftur á Egilsstaði. Sem betur
fer fékk ég tækifæri til þess að ferð-
ast um Austurland, en þar er mjög
fallegt og mig langar svo mikið til
þess að sjá skóginn í sumarskrúða
og býst við að skella mér þangað
með hækkandi sól.
Mér finnst mjög gott að vera hér
og íslendingar vera opnir og vin-
gjarnlegir almennt. Ætli ég verði
ekki áfram á íslandi í framú'ðinni.
Ég gæti best trúað því. Auðvitað
sakna ég Rússlands en hugsa að
héðan af fari ég bara í heimsókn til
Rússlands en búi hér.
Konstmtín Sjerbak
Hann kom hingað til lands sem skiptinemi í læknisfræði árið
2000. Hann var þá að ljúka læknanámi sínu við Moskvuháskóla og
útskrifaðist þaðan 2001. Meðfram læknisfræðinni var hann í tónlist-
amámi, fyrst í jazz-tónlistarskóla í tvö ár og síðan fór hann í þriggja
ára nám í tónlistarháskóla þar sem hann sérhæfði sig í þjóðlagatón-
list.
Þar var hann í kór sem söng forna tónlist og hefur sá kór gefið út
hljómdisk.
Konstantín kynntist konu á íslandi og þau rugluðu saman reyt-
um sínum og bjuggu sér heimili hér á landi. Hún leggur stund á
lyfjafræðirannsóknir og saman grilla þau grænmeú og góðan mat
hvernig sem viðrar. Það virðist alltaf vera sólskin hjá Konstantín.
Konstanún hefur verið boðið að leika á mjög frægri breskri þjóð-
lagaháú'ð, Glastenbury Festival of Modern Performing Arts, en þar
mun hann leika á balalækuog fleiri rússnesk þjóðleg hljóðfæri.
Hann vakti mikla athygli vegfarenda á Menningamótt 2003 þar sem
hann stóð f Bankastræúnu og lék á hljóðfærin sín.
Á meðfylgjandi mynd stendur hann í sólarlaginu í Skerjafirði og
leikur á gamla þjóðlega hljóðfærið Zahleika.
Ég er mjög ánægður hér á ístandi. Fjölskytda min - það er móðir min
og faðir og bróðir minn - sakna min mjög mikið og þegarpabbi kom
i heimsókn í fyrra varð hann svo yfírsig hrifínn afiandinu og fegurð
þess að hann tók heilar 50 fílmur á myndavélina sína.
Nakinn kokkur
. eldar a se
liminn
Jamie Oliver, oft kallaður
kokkur án klæða, brenndi á
sér liminn þegar hann var
nakinn að elda fyrir kon-
una sína á Valenú'nusar-
daginn. Jamie klæddi sig
úr fötunum og læddist
fram í eldhús til að koma
konunni sinni Jools á
óvart. Það fór þó ekki
betur en svo að
hann fór of
nærri ofninum með fyrrgreindum
afleiðingum. „Ég var nakinn að elda
fyrir konuna þegar þetta gerðist. Ég
var að elda fyrir hana dýrindis kjöt-
máltíð en fór of nærri ofninum.
Þetta skemmdi algerlega fýrir mér
daginn og reyndar nóttina líka,“
sagði Jamie Oliver í viðtali fyrir
skömmu. „Ég fór þess vegna bara
með hana nokkrum dögum síðar úl
Parísar til þess að bæta upp fyrir
þetta," sagði Jamie.
Stjörnuspá
Magnús Þór Jónsson, Megas, er 59 ára í
dag. „Hann er reiðubúinn að veita eigin
tilfinningum sama frelsi og sjál-
stæði og hann sjálfur þráir en
P . ^ hugrekki mannsins er áber-
andi hérna. Hann lætur
aðra ekki hafa áhrif
á gjörðir sínar á
t neinn hátt því
, óttinn hefur
| ekki vald yfir
1 honum," segir í
j stjörnuspá
hans.
Megas
VV Mnsbemn (20. jan.-l8.febr.)
x\ ----------------------------------
Þú sjálf/ur veist sannarlega
best hvernig á að bæta úr hverri þörf
sjálfsins. Leitaðu eftir vellíðan innra
með þér til að byrja með áður en þú
leitar að hamingju í formi fjármuna.
Vertu þú sjálf/ur hvað sem aðrir aðhaf-
ast eða segja.
M
F\shíM (19. febr.-20.mars)
Aldrei máttu gleyma að rækta
huga þinn og sálu, hafðu það hugfast
dagana framundan.
CV5 Hrúturinn (2lmrs-19.apríl)
* Stundum gleymir þú að horfa
inn á við og þegar mikið liggur við eins
og um þessar mundir. Þú ættir ekki að
hika við að vera spurul/l þegar þú leitar
svara. Hugaðu vel að óskahlutverki þinu
ílífinu þessa dagana.
b
Nautið (20. april-20. mai)
n
Þú ættir með engu móti að ýta
ástvini burt ef þú ert ekki í góðu jafnvægi
þessa dagana. Leyfðu viðkomandi að hlúa
að þér og dragðu andann djúpt með já-
kvæðum huga. Hér er sönn vinátta á ferð-
inni þegar stjarna nautsins birtist.
Tvíburarnirr?;. mai-2l.jáni)
Þú birtist jákvæð/ur þegar
kemur að stjórnunarstöðu og mannleg-
um samskiptum í apríl mánuði og ættir
að nýta þér aðstöðu þína enn frekar til
aðstoðar við þá sem minna mega sín.
^7% K(dibbm(22.júni-22.júll)
--
Hvorki einblína á árangur
verka þinna né láta tilfinningar þinar
standa i veginum þessa dagana heldur
hugaðu vel að því að berjast fyrir afrek-
inu sem er um það bil að verða að veru-
leika þér og aðstandendum þínum til
mikillaránægju.
Ljónið (23.júli- 22. ágúst)
Hér kemur fram að hæfileiki
þinn til að anda hægt og djúpt er til
staðar en hér kemur að sama skapi aug-
Ijóslega í Ijós að þú átt það til að
gleyma að nýta þér hann.
Meyja n (23. ágúst-22. septj
c-
Fólk fætt undir stjörnu meyju
birtist um þessar mundir rausnarlegt
við fólkið sem það elskar og deilir auði
sem er jafn stór og allar auðlindir
heimsins með náunganum. Góðverk
þín koma til þín margföld innan tíðar.
Q Vogin (23.sept.-23.okt.)
““““ Hættu að vera móðgunar-
gjarn/gjörn og efldu með þér léttlyndi.
Ekki réttlæta langanir þínarfyrir sjálfinu
heldur fullvissaðu sjálfið að þrár þínar
komi til með að rætast í fyllingu tímans.
"l
Sporðdrekinn (24.„ia.-nnóv.)
Þegar þú hefur gert þér full-
komlega grein fyrir því hvað þú hefur
valið í þessu lífi og nærð að sætta þig
við núverandi aðstæður fullkomlega,
munu hlutirnir ganga upp hjá þér, vittu
til. Þú þráir hvíld um þessar mundir og
skipulag þegar óklárað verkefni er ann-
ars vegar. Ávextir verka þinna eru mun
meiri en þig grunar.
Bogmaðurinnp2m)i'.-/;.d«j
Opnaðu hjarta þitt upp á gátt
ef þú finnur fyrir einhverskonar vanlíð-
an þegar ástin er annars vegar kæri
bogmaður og gleymdu ekki að þér hef-
ur verið gefin góð vöggugjöf sem felst í
því að vera fær um að þiggja gjafir ást-
arinnar.
Steingeitin (22.des.-19.janj
Hugur þinn, líkami og andi
ættu að vinna mun betur saman hérna
og þú veist það svo sannarlega sjálf/ur.
Ef þú hefur tileinkað þér að umla skaltu
öskra af alefli sem fyrst og sjá, þér opn-
ast nýr heimur sem uppfyllir
dagdrauma þína.
SPAMAÐUR.IS
<