Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Síða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 07.04.2004, Síða 46
m46 MIÐVIKUDAGUR 7. APRÍL 2004 Síðast en ekki síst DV ,' t • ZrJ i ' VJ v-" %>S>. ‘ **V ■ " Rétta myndin Reykjavík sfðdegis. íslandsmót í jalapenjóáti Ha? „Það sýnir karlmennsku að borða jalapenjó," segir Kristinn Gísli Guð- mundsson sem keppir í dag í úr- slit- um íslandsmeistaramóts- ins í jalapenjóáti. Mótið er haldið á veitingastaðnum Uno í dag kl. 15 og hafa keppendur fimm mín- útur til að sporðrenna einu kílói af jalapenjó. Um 600 manns skráðu sig upprunlega til leiks en nú hefur kvarnast úr hópnum og em aðeins fjórir eftir í úrslitum. „Mitt markmið er bara að éta og hafa gaman af lífinu," segir Kristinn. „Jalapenjó er lika fínn matur; styrkir magann og kemur jafiivægi á maga- sýrurnar." Kristinn segist vera að renna blint í sjóinn; hann hafi ekki hugmynd um mótherja sína en ætíi að gera sitt besta. Valgeir Magnússon, skipuleggj- andi mótsins, segir keppnina hafa staðið yfir í einar fjórar vikur og ým- islegt hafi gengið á en til mikils er að vinna fýrir Islandsmeist- arann í jalapenjóáti. Veit- ingastaðurinn Uno heldur keppnina og verðlaunin eru 100.000 krónu inneign á staðnum. Úrslitin hefjast klukkan þrjú í dag og verða brot úr keppninni sýnd í 70 mínútum Popptíví í kvöld. Kristinn Gísli Guð- mundsson Ber græna pipamum góða söguna. • Eitthvað virðist það vefjast fyrir símafyrirtækjunum hver borgar brúsann þegar beðið er á línunni eftir að ná sam- bandi við fyrirtæki. Biðin getur oft orðið löng og neyt- andi sem sneri sér til Símans fékk ekki fullnægjandi skýringar á því hvernig gjaldtöku rværi háttað við þessar aðstæður. Og hjá Og Vodafone vom svörin álíka. Víst má þó telja að sá borgi sem bíður. Málið er í rannsókn... Síðast en ekki síst • Á árshátíð Lögfræðingafélagsins sem haldin var á Hótel Sögu fyrir skemmstu gerðist sá fáheyrði atburð- ur aðÁmiVil- hjálmsson lög- fræðingur sté á svið og settist við trommurnar hjá Stuðmönnum sem •iSéku fyrir dansi. Árni er gamall trommari og lék með Stuðmönnum í nokkur skipti í frumbernsku sveitarinnar. TókÁrni lögfræðingur þrjú lög með sínum gömlu félögum og fipaðist lítið... -,J“ ; Frábært uppátæki hjá Bergvini Oddssyni að ætla að slá heimsmetið I kollhnísum I Smáralind á skírdag þó blindur sé. Á Bergvin sannast að eng- in ástæöa er til að leggja árar í bát þó sjón bresti og flest verði öðruvísi en áður. Bergvin verður í Vetrargarð- inum I Smáralind í dag klukkan 73:30 og ætlar að velta sér íkollhnís fram eftir degi. Bergvin hefur verið blindur I þrjú ár eftir að hann fékk herpes-vírus I augun. buningsherbergi Heimtar teppalagt Þess er krafist að í búningsher- berginu verði fullkomin ró og friður, hvít blóm, teppalagt með hvítu og hvítur sófi. Senn líður að því að fiamenco- dansarinn og stórstjarnan Joaquín Cortés komi til landsins en hann mun vera með stórsýningu í Laugar- dalshöU seinna í þessum mánuði. Til marks um vinsældir hans þá er hann frægari en sjálfur Beckham á Spáni. 35 manna hópur fýlgir honum til landsins en Cortés tekur með sér ýmsa félaga sína með það fyrir aug- um að skoða land og þjóð. Cortés er frægur kvennaljómi og hefur hann átt í ástarsamböndum við súper- módelið Naomi Campell og söng- konurnar Madonnu og J-Lo. Cortés þykir enda með þeim flottari og hannar Georgio Armani öll föt á hann. Cortés mun hafa heyrt um ís- land frá Victoríu Abril leikkonu sem lofaði landið í hástert. Var það ekki síst þess vegna sem hann tók tilboði um að koma hingað og dansa. Spánverjarnir, sem eru í samstarfi við Júlíus Kemp og Ingvar Þórðarson sem sjá um komu Cortésar, eru nú á nálum vegna hryðjuverkaárásanna í Madríd en Cortes er einmitt frá Madríd. Hafa þeir krafist aukinnar öryggisgæslu langt umfram það sem tíðkast hefur hér á landi þrátt fyrir að ísland teljist tiltölulega ömggur stað- ur. Þá hafa verið lagðar fram kröfur um hvað þurfi að vera til staðar í búningsherbergi þessarar stjörnu í Laugardalshöllinni. Má sjá í með- fylgjandi töflu hvað það er sem Cortés vill hafa þar áður en hann stígur sinn tryllta dans. Ekki er hægt að segja þetta mikinn rokk og ról ryder. jakob@dv.is Búningsherbergi - almenn Eingöngu til nota fyrir listamennina og þeirra föruneyti. Ræsting skal hafa farið fram I búningsherbergi, á því svæði sem sviðið er og á sviðinu fyrir sýningu. I öllum búningsherbergjum skal vera: Einn spegill i likamsstærð Fullkomið rafkerFi með innstungum I lagi Salerni og vaskur með heitu og köldu vatni Úrval afsápum, sjampói og klósettpappir Snagar til að hengja upp föt Borð og stólar Búningsherbergi skulu vera teppalögð Joaquín Vortés Heimtar óliklegustu hluti í búningsherbergi sitt á Islandi. Joaquín Cortés - Star dressing room Veitingaborð Hægindastólar fyrir fjóra Tvær ruslafötur úr plasti Tveir fatapóstar Lítill mínibarmeð fjórum lítrum afAquari- us/Gatorade eða Isostar orkudrykkjum og fjórir litrarafEvian ölkelduvatni. Til reiðu skal vera stórt og vel lýst og notalegt herbergi fyrirjoaquin og hans nánustu sam- starfsmenn. Það verður að vera hvitt og með hvitum skreytingum: Hvít kerti, hvit blóm og þar skal vera eftirfarandi: Búningaborö með spegli og förðunartækjum Leoncie lætur allt vaða á Nellys Véðrið „Já, það verður sögu-st- und með Leoncie á Nellys í kvöld, svona storytellers eins og á VH1,“ segir , Halldór E. einn að- standenda sér- f ^^******' s t a k s s k e m m t i - kvölds þar sem prinsessan, sem kynnt | er sem einn elskaðastí I en umdeildasti lista- maður þjóðarinnar, mun syngja með þind- inni og tala frá hjart- anu. Tekið er sérstak- lega frarn að ekki verði Leoncie ritskoðuð að \ þessusinni. | „Enginn í fjöl- miðlum hérlendis gaf mér tæki- færi á að svara fýrir mig áður en Stöð 2 fór með lygaáróður gagn- vart mér,“ segir Leoncie. Hún lét afskaplega umdeild ummæli falla í morgunþætti Heimis Karlssonar og Ingu Lindar Karls- dóttur fýrir nokkru, um atburð sem átti sér stað í piparsveina- teiti Jóns Ólafssonar tónlistar- manns, og var í kjölfarið útilok- uð frá miðlum íslenska útvarps- félagsins. DV birti fréttir af téð- um viðburði og sagði sjálfur Laddi af þessu tilefni Leoncie ljúga. „Eins og þú getur rétt ímynd- að þér er þetta stór hópur sem kemur að. Reyndar er það ekki Ragnheiður Hansen sem er að flytja Leoncie ffá Sandgerði til íslands heldur tókumst við þetta á hendur Dassi skemmtanastjóri á Nellys og ég,“ segir Halldór. „Það er eins og gefur að skilja heilmikið mál að fá stjörnu af þessu kalíberi til Reykjavíkur frá Sandgerði. í fylgdarliði Leoncie er einn aðili (Viktor) og flytur hún með sér allt að 5 kíló af bún- aði. Samningaviðræður við Le- oncie hafa staðið lengi yfir og loks í gær náðist að ná endum saman eftir þessa 3 daga samn- ingalotu." Halldór telur vert fyrir fiöl- miðlamenn að mæta í hópum til að sjá hvaða dóma þeir hljóta hjá tónlistarprinsessunni frá Sandgerði. C2> +4 4 4 Nokkur vindur +3 * * Nokkur vindur Cb +4 Nokkur vindur Nokkur vindur * * Nokkur vindur Ch +6* * Gola „-jj* *, Nokkur vindur +4 +5 Gola +4 Nokkur vindur Gola +5 * * Nokkur vindur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.