Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR I8.MAÍ2004
Fréttir 0V
Þór Ostensen og Arnheiður Ragnarsdóttir í Club Vegas dæmd fyrir skattsvik.
Hnakkrifust um reksturinn á meðan peningar hurfu úr sjóðum fyrirtækisins.
Fatafellurnar fengu greitt en skatturinn ekki.
Sprengiefni á
Reyðarfjörð
Sprengiefnageymsla
verður reist á Reyðarfirði
vegna framkvæmda sem
þar eru væntanlegar næstu
mánuði. Fyrirtækið Arnar-
fell hefur sótt um rúmlega
eins hektara svæði undir
geymsluna ofan við gamla
þjóðveginn innan við
Framnes. Umhverfisráð
Fjarðabyggðar segir þenna
stað, sem er ofan við svo-
kallaðar Klappir, uppfylla
öll skilyrði laga og reglu-
gerða um íjarlægðir frá öðr-
um mannvirkjum.
Handtekinn
ávinnupalli
Um helgina var til-
kynnt um innbrot í fyrir-
tæki við Hverfisgötu.
Maður klifraði þar upp
vinnupalla utan á húsinu
og fór inn um glugga.
Hann var handtekinn af
lögreglu og færður á að-
alstöð þar sem hann var
vistaður í fangageymslu.
r Þá var tilkynnt um inn-
brot í nokkrar bifreiðar
við Álfabakka. Stolið var
geislaspifara, radarvara,
farsíma og geisladiskum.
Sveiflaði
keðju við
Stjornarráðið
Lögreglan í Reykjavík
þurfti að hafa afsldpti af
manni sem sveiflaði keðju í
kringum sig við
Stjómarráðið á
laugardagskvöld.
Að sögn lögreglu
sagðist maðurinn
hafa tekið keðjuna
á Laugavegi. Keðj-
an var tekin af
manninum en ekki
urðu frekari eftirmæli af
þessu uppátæki. Síðar um
kvöldið var svo tilkynnt um
mann uppi á þaki Verslun-
arskólans. Rætt var við
manninn sem var á þakinu
og fór hann niður að beiðni
lögreglu.
duglegur bissnessmaöur. Allt
sem hann snertir virðist veröa
að gulli. Baldur hefur ómælt
sjálfstraust - eins og sést á því
að hann býður sig nú fram til
forseta til aö vinna hugmynd-
um slnum brautargengi þrátt
fyrir að sitjandi forseti sé alltaf
fastur fyrir á fleti.
Þór Ostensen Vildi gera
litið úr hlutverki sinu I Veg-
as en dómarinn trúði hon-
um ekki. Hann á að greiða
5 milljón króna sekt, en
Arnheiður Ragnarsdóttir
7 milljónir. Æá
Aðstandendur nektardansstaðarins Vegas, þau Þór Ostensen og
Arnheiður Ragnarsdóttir, hafa verið dæmd í fjögurra mánaða
skilorðsbundið fangelsi hvort og til greiðslu hárrar sektar fyrir
stórfelld undanskot á virðisaukaskatti og afdreginni staðgreiðslu
starfsmanna, sem eins og gefur að skilja voru ekki síst erlendar
fatafellur.
Við rannsókn málsins bentu Arn-
heiður og Þór hvort á annað um
skýringar og ábyrgð, en sitja nú bæði
í þeirri súpu að eiga að greiða sam-
tals 12 milljónir króna í sektir, en
fara í fangelsi ella.
Einkahlutafélagið utan um Club
Vegas var Pandíon ehf., en það varð
gjaldþrota vorið 2003. Dómsmál var
rekið vegna undanskota á virðis-
aukaskatti og staðgreiðslu frá mars
2001 til maí 2002. Arnheiður keypti
Vegas af dánarbúi í febrúar 2000 og
var hún þá í sambúð með Þór, en
fram kemur í gögnum málsins að
hann hafi ekki getað verið skráður
fyrir fyrirtækinu vegna fyrra per-
sónulegs gjaldþrots.
Dularfullt sjóðsútstreymi
Málsgögn bera með sér að Þór
hafi í fyrstu viðurkennt sig sem
framkvæmdastjóra fyrirtækisins, en
á síðari stigum benti hann fyrst og
fremst á Arnheiði og sagði að hann
hefði bara verið framkvæmdastjóri
að nafninu til en hefði þó haft með
„almenna umsjón í fýrirtækinu" að
gera. Virðist nokkur losarabragur
hafa verið á rekstri nektarstaðarins
Vitnið Bjcirni Sveinn
Kristjánsson, fyrr-
verandi starfsmaður,
segir „... peninga hafa
horfíð úr fyrirtækinu
og starfsmönnum ver-
ið kennt um".
og ekki liðu margir mánuðir
öll innkoma fór í laun og
rekstur, en hætt
var að gera skil á
virðisaukaskatti
og staðgreiðslu.
Er athyglis-
vert að Arnheið-
ur ber að ein af
ástæðunum fyrir
blankheitum fyr-
irtækisins hafi
verið að einhver
hafi stolið pening-
um úr sjóðum fyr-
irtækisins. Vitnið
Bjarni Sveinn
Kristjánsson, fyrr-
verandi starfsmað-
ur, segir „...peninga
hafa horfið úr fyrir-
tækinu og starfs-
mönnum verið
kennt um,“ en þess-
um meinta þjófnaði
virðist enginn hafa
fylgt eftir með kröfu
um rannsókn.
Harður ágrein-
ingur
Hins vegar kemur
ffam að sumarið 2002 hafi Þór geng-
ið út úr stjórn félagsins og verið sagt
upp sem framkvæmdastjóra, en eft-
irmaður hans í stjórn var Ásta
Ómarsdóttir. Jafhframt kemur fram
að þau Arnheiður og Þór hafi átt í
hörðum ágreiningi um rekstur fyrir-
tækisins.
Dómari málsins, Pétur Guðgeirs-
son, taldi skýringar Þórs ekki trú-
verðugar. Þau Arnheiður og Þór voru
ákærð fyrir að standa ekki skil á virð-
isaukaskatti upp á sam- H
tals 2,3 milljónir króna og
staðgreiðslu upp á samtals ■
4 milljónir króna, eða alls 6,3 "
milljónir króna. Sektardóm-
urinn hljóðar því alls upp á
nær tvöfalda þessa upphæð.
fridrik&dv.is
þar til
annan
Mikið um slagsmál um helgina
Hópslagsmál á Laugavegi
Atvinnuleysi á íslandi breytist lítið
Óbreytt atvinnuleysi
Lögreglan í Reykjavík þurfti
þrisvar að hafa afskipti af fólki um
helgina vegna hópslagsmála. Seint á
laugardagskvöldið var tilkynnt um
hópslagsmál á Laugavegi við Klapp-
arstíg og síðar um að hópur manna
væri að misþyrma einum. Að sögn
manna munu upptök átakanna hafa
verið þau að viðkomandi hafði verið
að kasta glösum í fólk inni á veit-
ingastað og var honum hent út af
hópi gesta sem síðan gekk í skrokk
honum.
Sama kvöld var tilkynnt um
(jöldaslagsmál úti á götu í Mosfells-
bæ. Þrír piltar voru handteknir og
fluttir á lögreglustöð. Einn var
vistaður í fangageymslu en tveimur
sleppt eftir viðræður við varðstjóra.
Snemma á sunnudagsmorgni var
tilkynnt um hópslagsmál í Hafnar-
stræti. Lögreglan kom að og leysti
upp slagsmálin. Einn maður reynd-
Mikið að gera hjá lögreglu Lögreglan I
Reykjavik hafði I nógu að snúast um helgina
enda Eurovision-helgi.
ist nefbrotinn og var hann fluttur á
slysadeild. Annars urðu ekki teljandi
meiðsl á fólki í þessum þremur til-
vikum.
Skráð atvinnuleysi var 3,5% af
mannafla í apríl og var óbreytt frá
marsmánuði. Á sama tíma í fýrra var
atvinnuleysi 3,9%. Ársú'ðarleiðrétt at-
vinnuleysi hefur minnkað undan-
fama mánuði en stendur nú í stað á
milli mánaða. Greiningardeild ís-
landsbanka fjallar um málið og kem-
ur fram hjá deildinni að atvinnuleys-
ið hafi minnkað hægar en vonir
stóðu til og nýjustu tölur gefa ekki til
kynna breytingu á þeirri þróun.
Vinnumálastofriun hafði spáð 3,3%
til 3,6% atvinnuleysi í mánuðinum og
er niðurstaðan því í efri hluta þess
bils.
Fjöldi starfa í boði á vinnumiðlun-
um jókst í apríl, en 625 störf voru í
boði í mánuðinum samanborið við
482 í mars. Á sama tíma í fyrra voru
hins vegar 448 störf í boði. Fjölgun
starfa í boði hefur að mestu verið á
landsbyggðinni. Atvinnuleysi er mest
Atvinna Atvinnuleysið hefur minnkað hæg-
ar en vonir stóðu til og nýjustu tölur gefa
ekki til kynna breytingu á þeirri þróun.
á Suðumesjum (4,1%) um þessar
mundir en minnst á Austurlandi
(2,1%) og Norðurlandi vestra (2,1%).
Uppsagnir á Suðumesjum vega því á
móti áhrifum stóriðju um þessar
mundir í atvinnuleysistölum. Líkur
eru á minnkandi atvinnuleysi á
næstu mánuðum og reiknar Vinnu-
málastofnun með að atvinnuleysið
verði á bilinu 3,1% til 3,4% í maímán-
uði.