Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Side 13
DV Fréttir ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ2004 13 Bjargað af skeri Tveimur sjómönnum var bjargað af skeri í fyrr- inótt um 1,5 sjómílu utan við Kaldrananes. Mennirnir voru á grásleppubátnum Hafbjörgu ST 77 er hann sökk skyndilega er þeir voru á honum á leið inn til Hólmvíkur. Um er að ræða tæplega sex tonna bát en Landhelgisgæslunni barst tilkynning um slysið um tvö leytið um nóttina. Þyrla LHG var komin í loftið 40 mínútum síðar en var svo snúið við er fregnir bárust af því að áhöfn á Guð- mundi Jónssyni ST 17 hefði bjargað mönnunum af skerinu. Samvinna í umferðar- málum f þessari viku, eða dag- ana 17., 18. og 19. maí mun lögreglan á Suðvesturlandi standa fyrir samvinnu í umferðarmál- um. Þá munu lögreglumenn einbeita sér að málum fólks á reiðhjólum, einkum hjálmanotkun hjól- reiðafólks og að á bifreið- um séu skráningarnúmer bæði að framan og að aft- an. Þá verður og kannað hvort torfærutæki, svo sem torfærubifhjól, séu rétt skráð og beri skráningar- númer. Árni vinsæll fyrirvestan Ámi Johnsen, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokks, hefur verið ráðinn til Tálknafjarðarbæjar. Ráðningin kemur í kjölfar þess að Ámi hefur unnið í verk- efnum á sviði ferða- og atvinnumála í ná- grannasveitarfélag- inu Vesturbyggð. Hann mun veita Tálknfirð- ingi krafta sína á sama sviði um mánaðarskeið í sumar. Ámi var á dögunum endur- skipaður í stjóm Rafmagns- veitu ríkisins. Breska íhald- ið villfær- eyskt kerfi Breski íhaldsflokkurinn hefur lýst því yfir að hann vilji innleiða nýtt fisk- veiðistjórn- unarkerfi í Bretlandi að færeyskri fyrirmynd. í frétt fær- eyska út- varpsins segir að Michael Howard, formaður flokks- ins, hafi lýst þeim vilja sín- um að breska þjóðin fái aft- ur full yfirráð yfir veiðum í sinni eigin landhelgi. Fær- eyingar búa við sóknar- dagakerfi. Lögreglan á Selfossi fann 32 skammta af LSD fyrir utan Litla-Hraun um helgina. Ekki vitað til þess að reynt hafi verið að smygla LSD inn í fangelsið síðan 37 skammtar voru teknir þar árið 2001. Fíkniefnalögreglan telur að um einangrað til- vik sé að ræða og hefur ekki orðið vör við aukna notkun fíkniefnisins. LSD á Litla-Hrauni Lögreglan á Sel- fossi fann 32 skammta afLSD á bíla- stæðinu við Litla-Hraun. LSD lá pakkað í plast á bflastaiðinu Á laugardag fundust 32 skammtar af LSD pakkaðir í plast á bif- reiðastæðinu fyrir utan Lida-Hraun. Engar upplýsingar liggja fyrir um tilurð efnisins á þessum stað en grunur um að einhver hafi ætlað að koma þeim inn í fangelsið en losað sig við skammt- ana vegna nálægðar lögreglu. Máhð er í rannsókn og efnið verð- ur sent til tæknideildar Lögreglunnar í Reykjavík til greiningar. Ekki er vitað til þess að reynt hafi verið að smygla jafnmiklu magni af LSD inn á Hraun- ið síðan 2001 er 37 skammtar af fíkni- efninu náðust af gesú þar. Fíkniefna- lögreglan telur að um einangrað tilvik sé að ræða og hefur ekki orðið vör við aukna notkun LSD á síðustu tveimur árum eða svo. Eh's Kjartansson, flkniefnalög- reglumaður á Selfossi, segir að fullvíst sé að LSD-skammtamir hafi verið skildir eftir á bílastæðinu á laugardag en ekki á einhverjum öðrum tímapúnkú. „Við höfum hert mjög eft- irht og gæslu við Lida-Hraun og þama ganga lögreglumenn reglulega um með leitarhunda," segir Ehs. „Það er bara tvennt sem kemur til greina, annaðhvort hefur viðkomandi misst kjarkinn og hent fiá sér efninu eða þá hreinlega misst það úr vasa sínurn." Sem fyrr segir er málið nú í rann- sókn. Vitað er hvaða gestir komu á Liúa-Hraun á laugardag og segir Ehas að þeir séu að nú að fara í gegnum nafnahstann. í máh Elísar kemur einnig fram að ekki hafi náðst jafnmikið magn af LSD á Litia-Hrauni síðan árið 2001 er 37 skammtar vom teknir þar. „Það hefur sárasjaldan komið við sögu hjá okkur síðan og þá hefur yfirleitt verið um einn til tvo skammta að ræða í einu,“ segir hann. Einangrað tilfelli Ásgeir Karlsson, yfirmaður fikni- efnadeildar Reykjavíkurlögreglunnar, segir að sennilega sé hér um einangr- að tilvik að ræða. „Við höfum ahavega í okkar starfi ekki orðið mikið varir við þeúa fíkniefni á síðustu tveimur ámm eða svo og lagt hald á óverulegt magn Sem fyrr segir er mál- ið nú í rannsókn. Vit- aðerhvaða gestir komu á Litla-Hraun á laugardag og segir Elías að þeir séu að nú að fara í gegnum nafnalistann. af því á þessum tíma," segir Ásgeir. „En þetta efni dúkkar upp af og til og þá í húu magni í einu. Hinsvegar er þetta ekki lengur það ú'skuefni sem það var í fíkniefnaheiminum hér á árum áður.“ Fórnarlambið stundaði sjó eftir meiðslin Vogaskóli rýmdur Sýknaður af árás frá árinu 1999 26 ára gamall Keflvíkingur var sýknaður fyrir Héraðsdómi Reykjaness í gær af því að hafa slegið mann ítrekað í bakið með Bailey’s-flösku á Stapanum í Njarðvík annan í jólum 1999. Sá sem varð fyrir árásinni sagðist hafa hlotið skurð á hnakka, disklækkun á tveimur hálslið- um og tognun á hálsi. Dómnum þótti vega á móti framburði hans að hann hafði stundað sjó- mennsku allt frá því að árásin varð, hann slasaðist viku síðar á hnakka, hann lenti í alvarlegum átökum 18. mars 2000 og að fram- burði vitna hafi ekki borið saman. Fórnarlambið var í átökum við Keflvíkingur sýknaður Var kærður fyrir barsmiðar með llkjörsflösku. bróður meints árásarmanns þegar höggin áttu að hafa dunið á hon- um. Prakkarastrik meo táragas Rýma varð Vogaskóla í gærmorg- un. Einhver mun hafa úðað maze eða táragasi í einni skólastofunni og gaus upp töluverð lykt í skólanum sökum þessa auk þess að nemendur fundu fyrir ónotum. Símon Örn Reynisson, nemandi í 10. bekk, segir að þetta hafi verið piparúði sem not- aður var og einhverjir nemenda munu hafa tárast og töluvert var um hóstaköst. Samkvæmt upplýsingum frá slökkvihðinu leið nokkur tími frá því að lykún gaus upp og þar til haft var samband við yfirvöld. Slökkviliðið var síðan kahað að Vogaskóla og notaði það reykblásara til loftskipta í skóláhúsinu upp úr klukkan 10 í gærmorgun. Málið kom ekki til kasta lögreglu en starfsmaður skólans hafði samband við slökkvi- liðið gegnum skipúborð þess en ekki gegnum Neyðarlínuna. Dælubíll var Lögreglan í Vogaskóla Rýma varð allan skólann vegna prakkarastriks. einnig sendur á vettvang og fylgdi sjúkrabíll með í för en ekki kom til þess að neinn yrði fluttur á sjúkrahús vegna óþæginda af völdum úðans. Skólahúsið hafði verið rýmt áður en slökkviliðið kom á vettvang en um 500 nemendur eru í skólanum. Ekki þykir útilokað að um prakkarastrik hafi verið að ræða. „Kannski hefur einhver nemendana verið að ná sér í aukafrí með þessum hætti," segir Símon Örn en kennsla var komin í eðlilegt horf um hádegisbihð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.