Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Side 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 18.MAÍ2004
Neytendur DV
Afgreiðslu-
fólktil
fyrirmyndar
GuÖrún F. Jónsdóttir
skrifar.
Ég vil endilega hæla af-
greiðslufólkinu í Hagkaup-
um á Eiðistorgi fyrir liðlega
framkomu og greiðvikni. Ég
er þeirrar tegundar að ég
versla ekki alltaf í sömu
búðunum og get því vitnað
um að framkoma af-
greiðslufólks er eins mis-
jöfn og mennirnir eru
margir. f sumum búðum
lætur afgreiðslufólkið eins
og maður sé að trufla það
og sýnir manni beinlínis
Neytendliir
ókurteisi. Afgreiðslufólkið
virðist ekki skilja að það er
þarna til að þjónusta okkur
viðskiptavinina. En unga
fólkið sem afgreiðir á Eiðis-
torgi er til fyrirmyndar. Þau
eru kurteis, ræðin og ein-
staklega elskuleg á allan
hátt. Þau setja ekki upp
svip þegar maður spyr um
eitthvað heldur greiða úr
hvers manns vanda. Elsku-
legt viðmót er eitthvað sem
búðareigendur ættu að at-
huga þegar þeir ráða til sín
starfsfólk. Mér finnst það
skylda mín að láta aðra vita
af þessu.
Lesendur DVgetaö
ritaö blaöinu bréf um
neytendamál á netfangjö
neytendur@dv.is
nið
Veró miðast við hofuðbofgarsvÆðid
Esso
Shell
Öiis
ÖB
Atlantsolia
Ailar stoö'.
Ego
Orkan )
[Sker nmuvegi og Hafnarfirði - 96,80]
Kartöflur eiga til að spíra í plastpok-
unum, þrátt Jyrirgeymslu í kulda og
myrkri. Setjið eitt epli ípokann með
kartöjlunum, þá spíra þœr ekki.
Efmatur hefur verið saltaður um of
má skella út í hann flysjaðri kart-
öflu, hún drekkur í sig saltið.
• Tilboðsdagar hefjast í verslunum
Hagkaupa í dag. Kíló af skinnlaus-
um kjúklingabringum
kostar 1.299 krónur en
kostaði 1.998 krónur
áður. Þá kostar kílóið
af kjúklingalærum
með legg 324 krónur
en var áður á 499 króm
er Myllu-hvítlauksbrauð á tilboði,
kostar nú 219 krónur. Á kassa er
veittur 20% afláttur af olíum ffá
Philippo Berio, Hunfs tómatlínunni
og Scala-vörum.
• Tjaldvagnaleigan í Stykkishólmi
er með helgartilboð á tjaldvögnum
til 25. júní. Helgin kostar 7 þúsund
krónur, þ.e. föstud. til sunnud.
Vögnunum fylgir kolagrill, gas-
hella, stólar og borð og aukasvefn-
stæði fyrir þrjá. Frá og með 25. júm'
verður Tjaldvagnaleigan eingöngu
með vikuleigu á vögnunum.
• í Þinni verslun standa yfir til-
boðsdagar, verð á 420 gr. af Toro
Tikka Masala-sósu er nú 229 krónur
en áður kostaði hún 265 krónur.
Súkkulaði kremkex 500 gr. kostar nú
198 krónur í stað 259 króna áður.
Appelsínukexpakld frá Grazia sem
vegur 150 gr. kostar 99 krónur en
kostaði 136 krónur. Þá er ostanasl
frá Nacho 200 gr. á 179 krónur en
áður kostaði naslið 198 krónur. Til-
boðsdögunum lýkur á morgun.
• Raftækjaverslun íslands verður
með Ruglað verð í nokkra daga og
eru vörumar með tuttugu til sjötíu
prósenta afslætti. Meðal þess sem
hægt er að fá á
verulegum af-
slætti eru gas-
hefluborð, kæli-
og frystiskápar
og pottar og
pottasett.
DV hvetur fyrirtæki til að senda tölvubréf til að láta vita af góðum tilboðum, helst með myndum, á netfangið neytendur@dv.is. Neytendasíða DV birtist í blaðinu á þriðjudögum og fimmtudögum.
Marga dreymir um aö koma sér upp sínum eigin matjurta-
garði. Björn Gunnlaugsson, tilraunastjóri hjá Garðyrkjuskóla
riksins að Reykjum í Hveragerði gefur nokkur góð ráð
„Það er auðveldast að rækta hvít-
kál, rófur og ýmsar salattegundir
sem plantað er út,“ segir Björn
Gunnlaugsson, tilraunastjóri hjá
Garðyrkjuskólanum að Reykjum.
„Venjulegur skólagarðaflötur er um
20 fermetrar og það er hæfileg stærð
fyrir venjulegt heimili. Vandamálið
við svona matjurtaræktun er nefni-
lega sú að uppskeran kemur öll í
einu og ef maður ætlar að fá mikið
út úr þessu þarf maður að hafa góð-
an kæli,“ segir Bjöm.
Að rækta garðinn sinn
Marga dreymir um að koma sér
upp matjurtagarði þar sem rækta
má ýmiss konar
grænmeti og annað
sem gott er að bera á
borð yfir sumartím-
ann. Sumir eiga stór-
an garð við hús sín
þar sem koma má
upp ágætis matar-
Björn jurtagarði og aðrir
Gunnlaugsson eru með slfka garða
við sumarbústaði.
Ýmsir telja að grænmetið sem mað-
ur ræktar sjálfur smakkist betur en
annað, kannski er sú tilfmning líka
lituð af því að hafa ræktað það sjálf-
ur. „Yfirleitt eru matjurtagarðarnir
svona 20 til 50 fermetar og í þeim
stærri er gert ráð fyrir kartöflurækt.
Maður byrjar á að stinga upp svæð-
ið með gafli, svona rúmlega gaffal-
dýpt, 25 til 30 sentimetra niður í
Gashitarar æðið í ár
Garðhúsgögnin fljúga út
jarðveginn. Þá sáldrar maður kalki
og blönduðum áburði í moldina, en
það má ekki kalka kartöflureitinn,
því þær fá kláða af kalki. Síðan sáir
maður til dæmis gulrótum, radísum
og næpum og það er ekki síðra að
planta rófum. Gulrótunum verður
að sá í maí því þær eru lengi að
spíra. Spergilkál er að mörgu leyti
hentugra fyrir smágarðaeigengur en
blómkál. Blómkálshausinn verður
að taka upp heilan en aðalhaus
spergilkálsins má skera af og síðan
hliðarsprotana í talsvert langan tíma
eftir á,“ segir Björn.
Krydd úr eigin garði
Ferskar kryddjurtir í matarrétti
geta gert gæfumuninn.„Það er
hægt að rækta flestar
kryddjurtir úti. Þó
ekki basilíku því hún
þolir ekki hita undir
tíu stigum og rós
marín myndi
maður heldur
ekki rækta í
matjurtagörð
um. En gras-
laukur,
dill,
kamflla,
garða-
blóð-
berg, or-
egano,
steinselja
og allar
myntujurtir eru tilvaldar í matjurta-
garða," segir Björn.
„Eftir sáningu og útplöntun verð-
ur að passa upp á að vökva garðinn
vel þannig að allt verði blautt í gegn.
Og svo verður maður náttúrulega að
huga vel um matjurtagarðinn næstu
mánuði, hreinsa arfa og aðra óværu
og hlúa að plöntunum," segir Björn.
Útsæði, áburður og fleira til rækt-
unar fæst í garðyrkjuverslunum en
smáplöntur af grænmeti í garð-
plöntustöðvum.
Grænmeti Það sem maður ræktar
sjálfur smakkast betur.
og dekurinnhaup
„Eg kaupi matvöruna i Bonus og Mela-
búðinni, badar eru alveg frabærar, Bonus
fyrir magninnkaup og Melabuðin fyrir
dekurinnkaup. Mer er mjög annt um
Melabuöina, það er einstök þjonusta hja
þeim. Ég er búin að fara tvisvar a veit
ingastaðinn Vox á
Hotel Nordica og
var mjog anægö
meö mat og
þjonustu. Eg
kaupi fatnað
her og þar, fer 1
autsölurog \
skammast min \
ekkert fyrir
Hvað kosta
gashitarar
í garðinn?
Nýjasta æðið
eru gashitarar J
Rúmfatalagerinn •
13 kílówatta hitari 2,25 sm á hæð
14.900 kr.
Ekki henda síðustu lögginni úr
vinflöskunni, jafnvel þótt hún hafi
staðiðyfir nótt. Setjið vínafganginn í
ísmolabakkann ogfrystið, seinna
má nota molana í kássur ogsósur.
Mörgum hefur reynst vel við höfuð-
verk að skera súraldin (lime) í helm-
inga og rjóða þeim svo á ennið. Þá
hverfur höfuðverkurinn.
„Nú er þetta að skella á,“ segir
Gísli Sigurðsson, eigandi og fram-
kvæmdastjóri Garðheima í Mjódd-
inni. Mikil örtröð hefur verið í garð-
vöruverslunum landsins síðustu
daga. Gísli segir þetta einmitt tím-
ann sem blómavertíðin fer af stað.
„Garðhúsgögnin fljúga út, grillin
seljast í bílförmum og svo eru gas-
hitarar nýjasta æðið,“ segir Gísli.
Gashitarar eru þekktir víða er-
'ndis sem góð leið til að halda á sér
,iita eftir að sólin gengur til viðar.
Menn safnast saman í kringum gas-
hitarann og oft er kátt á hjalla. Hér
heima hafa gashitarar aðallega verið
notaðir í sumarbústöðum en Gísli
segir enga ástæðu til að einskorða
sig við það - gashitari sómi sér vel í
garðinum heima.
„Nú vilja allir lengja hjá sér sum-
arið,“ segir Gísli óg bætir við: „Því
eru gashitarar sniðug lausn." Hann
segir jafnframt mikla samkeppni
Gfsli Sigurðsson, eigandi Garðheima
„Gashitarar eru sniðug lausn."
ríkja á gashitaramarkaðnum; það
séu allir að auglýsa og salan að sama
skapi mikil - gashitarar séu það sem
tísku-jóninn kaupi í ár.
Sjálfur ætlar Gísli að taka því ró-
lega í sumar. „Bara að njóta þess að
fara í sumarbústaðinn og dúllast í
garðinum," segirhann.
Húsasmiðjan
13 kílówatta hitari 2,35 sm á hæð
24.900 kr.
BYKO
13,5 kílówatta hitari 2,30 sm á hæð
29.900 kr.
13,5 kílówatta ryðfrír hitari 2,30 sm á hæð
36.900 kr.
Garðheimar
13,5 kílówatta ryðfrír hitari 2,35 sm á hæð
39.950 kr.
Skorri
11 kílówatta hitari 2,25 sm á hæð
26.900 kr.
11 kílówatta ryðfrír hitari 2,25 sm á hæð
34.900 kr.
Expert
14 kílówatta hitari 2,20 sm á hæð
19.900 kr.
Gamalt & Gott Það eru ekki allir hrifnir af þeyttum tjóma.
Prófaðu að þeyta saman hálfan lítra af jógúrt, 150 gr. af sykri og þrjár
eggjahvítur. Þeyttu eggjahvítumar þannig að þær verði stinnar, bland-
aðu sykrinum saman við og síðast jórgúrtinni. Jógúrt-eggja-ijóminn er
sérstaklega braðgóður með ávaxtaeftirréttum.