Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Page 16
7 6 ÞRIÐJUDACUR 18.MAÍ2004
Fréttir DV
árás
Yfirmaður framkvæmda-
stjórnar fraks, Izzedin
Salim, lét lífið ásamt tíu
öðrum í sjálfmorðsárás sem
gerð var skammt frá höfuð-
stöðvum Bandarfkjahers í
Bagdad f gær. Atvrkið varð
með þeim hætti að bíll
hlaðinn sprengiefnum
sprakk fyrir utan bygging-
una. Salim tilheyrði flokki
hófsamra sjíta, hann var
heimspekingur og rithöf-
undur og þóttí hafa lag á að
finna friðsamlegar lausnir á
málum. Fráfall Salims er
talið kunna að hafa áhrif á
valdaskiptín sem fyrirhuguð
eru í írak í lok júní.
Strætó og
steypubíll
í árekstri
Steypubíll, fólksbíll og
strætísvagn skullu saman í
árekstri á Miklubraut um
miðjan dag í gær. Fólksbíll-
inn varð á milli steypubíls-
ins og strætísvagnsins og að
sögn lögreglu var einn mað-
ur úr minnsta bilnum flutt-
ur á slysadeild Landspítal-
ans í Fossvogi til aðhlynn-
ingar. Að sögn lögreglu eru
atvik ekki með öllu Ijós,
nema þarna skullu bílar
saman í mikilli umferð. Þeir
voru allir á leið í austurátt
en áreksturinn varð á
Miklubraut á móts við Hag-
kaup í Skeifunni.
Fangelsi fyrir
ölvunarakstur
Héraðsdómur Reykja-
víkur hefur dæmt Alex-
ander Björn Gíslason í 30
daga fangelsi og svipt
hann ökurétti ævilangt.
Hann er sakfelldur fyrir að
hafa ekið undir áhrifum
áfengis í janúar sl. um
Laugaveg og endaði öku-
ferðin með því að hann ók
á bíl á mótum Laugavegar
og Vegamótastígs. Ákærði
játdði brot sín skýlaust. Al-
exander hefur hlotið
fjölda refsidóma, þar af sjö
fyrir umferðarlagabrot.
Hann hefur þrisvar misst
skírteinið áður.
Fullnæglng í
súkkulaði
Súkkulaði sem veitir
jafnt körlum sem konum
fullnægingu er það nýjasta
nýtt. Dr. Trudy Ba
ber, sem hefur
unnið að þróun
vörunnar, segir
súkkulaðið
verða ekki síðri
kost en viagra. Að
sögn er að finna í súkkulað-
inu mikið magn af phenyl
ethylamine en það kvað
skylt dópamíni og adrena-
líni. Hermt er að fólk hafl
fengið fullnægingu af því
einu að eta súkkulaðið.
Fleiri prófanir verða gerðar
og ekki er gert ráð fyrir að
súkkulaðið komi á almenn-
an markað fyrr en að fimm
árum liðnum.
Ljúdmíla Kútsjma, eiginkona Leonids Kútsjma forseta Úkraínu, er þessa dagana í
heimsókn á íslandi. Stíf dagskrá var hjá forsetafrúnni í gær. Hún heimsótti Eden,
baðaði sig í sjónum hjá Þorláksöfn og skoðaði hvali með Hafsúlunni. Eyrún Björns-
dóttir fararstjóri ber Ljúdmílu vel söguna - segir hana ekki vitund snobbaða.
„Hún er afar eðlileg, ekki vitund snobbuð og kemur vel fyrir sig
orði,“ segir Eyrún Björnsdóttir, fararstjóri hjá Fjallamönnum. f
gær hóf Ljúdmfla Kútsjma, eiginkona Leonids Kútsjma, forseta
Úkraínu, óopinbera heimsókn sína til íslands. Eftir ævintýraferð
út á land náði DV myndum af forsetafrúnni þar sem hún brá sér
í hvalaskoðun um hádegið í gær. Það var létt yfir Ljúdmflu enda
mikil gleði í Úkraínu með sigur Rúslönu í Eurovision-keppninni
á laugardaginn.
„Við fórum fyrst upp á Úlfarsfell,
fyrir ofan Mosfellsbæinn og horfðum
yfir borgina,“ segir Eyrún sem telur
það mikinn heiður að hafa leiðbeint
Ljúdmílu um landið. „Svo keyrðum
við yfir Hellisheiðina, framhjá bor-
holunum og skoðuðum jarðhitann
sem kemur þar upp. Auðvitað sýnd-
um við forsetafrúnni Eden þar sem
hún fékk sér kaffi og keypti minja-
gripi."
Eftír stoppið í Eden fóru Fjalla-
menn með forsetafrúna niður að
sandijörunni við Þorlákshöfn. „Þar
baðaði hún sig í söltum sjónum með
tærnar upp í loftið," segir Eyrún en
hún fékk að launum fýrir fararstjórn-
ina forláta helgimynd úr gulli.
Það var því stíf dagskrá fyrir há-
degi en klukkan eitt var ferðinni heit-
ið út á sjó að skoða hvali. Þegar DV
bar að garði var Eldingin að láta úr
höfn en Hafsúlan var lokuð af fýrir al-
menning enda sérpöntuð fyrir föru-
neyti Ljúdmílu. Aðeins nokkrum
mínútum fyrir klukkan eitt birtust
svo þrír þéttsetnir jeppar frá Fjalla-
mönnum og Ljúdmíla steig út um-
kringd einum tólf lífvörðum.
„Það er alltaf gaman að geta gert
vel fyrir góða gesti,“ segir Guðmund-
ur Gestsson, eigandi Hafsúlunnar. Á
heimasíðu Hafsúlunnar kemur fram
að í bátnum er notalegur veislusalur
sem tekur 110 manns í sætí; góð að-
staða fyrir hlaðborð, skipsbar og
dansgólf fyrir þá sem vilja fá sér
snúning. Þá er Hafsúlan búin öflugu
hljóðkerfi sem nær um allt skip.
Guðmundur segir ferðina hafa
gengið vel. Þrátt fýrir góða veðrið í
Reykjavík var svolítið vont í sjóinn.
„Þar baðaði hún sig í
söltum sjónum með
tærnar upp í loftið"
„Við fómm hins vegar með þau út á
sund þar sem sjórinn er spegilslétt-
ur,“ segir Guðmundur. „Svo fóru þau
út í Lundey að skoða Lunda og likaði
bara vel.“
Ekki er vitað hvort heimsókn
Ljúdmílu sé á vegum íslenskra yfir-
valda. Davíð Oddsson heimsótti Le-
onid Kútsjma, forseta Úkraínu, fyrir
nokkmm mánuðum en sú ferð hlaut
nokkra gagnrýni. Kútsjma er þekktur
fyrir mannréttindarbrot og einræð-
istilburði. Fjöldi blaðamanna hefur
verið drepinn í landinu fýrir að gagn-
rýna stjórnarhættí Kútsjma.
simon@dv.is
Fjölskylduhagir Leonids
Kútjsma
Leonid Kútsjma fæddist 9. ágúst 1938.
Faöir.Danylo Kútsjma.dó í
seinni heimsstyrjök
árið 1944.
Móðir: Paraska
Kútsjma, vann á
samyrkjubúi.
Eíginkona: Ljúdmila
Kútsjma, heiðursforseti
landssjóðs Úkrainu til
styrktar mæðrum og börn-
Börn: Dóttir hans Olena er verkfræðingur.
Menntun: Arið 1960 útskrifaðist Kútsjma
frá Dnipropetrovsk-háskólanum með
gráðu i eldflaugaverkfræði.Hann erpró-
fessor, höfundur fjölda verka á vísindasvið-
inu og heiðursdoktor fjölda erlendra há-
skóla. Þá hefur hann samið bókina„Úkra-
ína er ekki Rússland. “
Ljúdmíla um borð í Hafsúlunni Klæddi
sig i rauðan jakka og setti á sig sólgler-
augu.
Ljúdmíla Kútsjma á leið í Hafsúluna Var
umkringd tólf lifvörðum. DV-Myndir E.ÓI
Eyrún Björnsdóttir fararstjóri Fékk
gullmerki að launum fyrir fararstjórnina.
Guðmundur
Gestsson eig-
andi Hafsúl-
unnar Segist
ánægður með
gestina.
Lagt í hann Komið var við ÍLundey og
fuglalifið skoðað.
Stjórnarhættir Leonids Kútsjma forseta Úkraínu
16. september 2000 Georgiy Gongadze, blaðamaðursem studdi stjórnarandstöðuha,
hverfur sporlaust. Nokkrum vikum siðar finnst lik hans, höfuðlaust, I skógi i nágrenni Kiev.
Upptökur af samtölum Leonids Kútsjma benda til þess að hann hafi fyrir-
skipað morðið.
7. júli 2001 Árásarmenn ráðast á Igor Alexandrov,yfirmann TOR-
sjónvarpsstöðvarinnar, með hafnaboltaky/fum. Hann deyr fjórum dög-
um siðar. Sjónvarpsstöðin taldi morðið tengjast umfjöllun um spillingu
rlkisstjórnarinnar.
2002 62% blaðamanna I landinu segjast hafa orðið fyrirpóli-
tískri ritskoðun. Starfsmenn Leonids Kútsjma hafa itök i öllum
fréttastöðvum landsins.
24. desember 2003 Stjórnarskránni breytt þannig að
þingið kýs forseta landsins en ekki þjóðin. Leonid Kútsjma
kom breytingunni ígegn að mati andstæðinga hans til
að festa sig endanlega ísessi.
16. janúar 2004 Serhii Rakhmanin, blaðamaður hjá
Zerkaio Nedeli, gagnrýnir Leonid Kútsjma og stingur
upp á því að 102. grein stjórnarskrárinnarsé breyttá
eftirfarandl hátt:„Forseti Úkrainu er æðsti maður þjóð-
arinnar, verndari fullveldisins og æðsti yfirmaður herafl-
ans. Nafn forsetans er Leonid Kútsjma.“
Leonid Kútsjma
Fráárinu 1991 hafa
20 blaðamenn verið
drepnirí Úkraínu.
Ólgan vex innan Framsóknarflokks vegna framgöngu Davíðs Oddssonar
Framsóknarmaður efast um „andlegt hæfi" forsætisráðherra
„Síðustu misseri er eins og allt
sem Davíð Oddsson geri snúist í
höndunum á honum og hitti hann
sjálfan fyrir. Þannig eru bolludags-
málið, sldpan hæstaréttardómara og
fjölmiðlafrumvarpið allt búið að snú-
ast í höndum hans,
S minnka fylgi við
ý : Sjálfstæðisflokkinn
og ríkisstjórnina og
®f>f setja blett á ímynd
hans,“ segir Jón Ein-
arsson, stjórnarmað-
ur í Félagi ungra
Fram-
L sóknar-
manna
I Davíð Oddsson Spjótin jMH í
I standa víða á forsætis-
I ráðherra þessa dagana.
Skagafirði, á vef Sambands ungra
framsóknarmanna. Jón líkir stöðu
Davíðs við það þegar Grettir Ás-
mundarson féll eftir að öxi hafhaði í
fætí hans.
„Nú síðast eru komnar fram ffétt-
ir um símtal við umboðsmann Al-
þingis sem Davíð hefur ekki borið til
baka og reyndar viðurkennt að hafi
átt sér stað...“, segir Jón í pistíi sínum.
„Og þó svo hann hafi ekki tjáð sig
um efni samtalsins þá er það alvar-
legt ef rétt reynist að forsætisráðherra
sé málvinur umboðsmanns Alþingis.
Og jafnvel þótt fullyrðingar um
meintar hótanir væru ósannar og allt
hefði verið í mesta bróðerni milli for-
sætísráðherra og umboðsmanns Al-
þingis þá hljóta menn að spyrja sig að
því hvað það eigi að þýða að milli for-
sætísráðherra og umboðsmanns Al-
þingis séu að eiga sér stað einhver
óskilgreind símtöl...?".
Jón segir að það eigi að vera „kína-
múr“ á milli umboðsmanns og allra
ráðherra ríkisstjórnarinnar. Honum
blöskrar ffammistaða forsætísráð-
herra í fjölmiðlamálinu.
„Með ffamgöngu sinni í fjölmiðla-
málinu hefur forsætísráðherra náð
að verða sjálfum sér til minnkunar og
hvoru tveggja efast menn nú um lög-
ffæðikunnáttu hans sem og andlegt
hæfi," segir Jón í greininni.
Hann telur að ffumvarpið feli í sér
augljóst stjórnarskrárbrot þar sem
forsætisráðherra hafi eins og aðrir
þingmenn fært drengskaparheit að
stjórnarskránni og telur að frumvarp-
ið brjótí gegn stjórnarskránni. „Meira
að segja Jón Steinar Gunnlaugsson
hrl. og prófessor við Háskólann í
Reykjavík, sem stundar oft lögfræði-
lega loftfimleika til að reyna að bjarga
íhaldsmönnum úr klípum sem þeir
koma sér í, treystir sér
Jón Steinar Gunnlaugsson
Greinarhöfundur á suf.is segir að
meira að segja lögmaðurinn treysti
sér ekki til að gefa fjölmiðlafrum-
varpinu vottorð.