Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Qupperneq 19
DV Sport
ÞRIÐJUDAGUR 18. MAÍ2004 19
Ekki er frá því að
áhugamenn um /s-
tenska kvennaknatt-
spyrnu harfí títteiks
ÍBV og Vats / síðustu
umferð sem hugsan-
tegs úrslitateiks um
titilinn.
sem höfðu spilað lykilhlutverk undan-
farin ár. Sigurður Víðisson er að gera
góða hluti í að auka sjálfstraustið í því
unga liði sem hann hefur í höndunum
og þá hefur munað mikið um að liðið
hefur fengið til sín nokkra leikmenn
úr liðum af höfuðborgarsvæðinu sem
ekki hafa komist að hjá stóm liðun-
um. Þessar stelpur hafa styrkt leik-
mannahópinn til mikilla muna og
fengið tækifæri til að dafna hjá liði í
úrvalsdeildinni. Það er samt meiri
pressa á FH í ár að bæta árangur síð-
asta sumars og markaleysi liðsins hef-
ur verið vandamál á undirbúnings-
tímabilinu. Spáln 6. sæd.
Þór/KA/KS
Hið sameiginlega lið Þórs, KA og
KS var í niðursveiflu í fyrra eftir að
hafa sýnt alla burði sumarið 2002 til
að fara að þokast nær toppbaráttunni
í deildinni. Liðið hefur nú misst
nokkra leikmenn, tvo burðarása úr
vörninni þær Ástu Ámadóttur og
Tinnu Mark Antonsdóttur og Guðrún
Soffíu Viðarsdóttur, sinn hættulegasta
sóknarmann undanfarin tímabil.
Norðanbandalagið hefur í þeirra stað
fengið efnilega leikmenn frá Króknum
sem hafa byrjað vel með liðinu í vor-
mótunum og enn er ágætur straumur
ungra leikmanna upp úr yngri flokk-
um félaganna þriggja. Spáin: 7. sætl.
Fjölnir
Fjölnir er að koma upp með efni-
legt lið þar sem margar af yngstu
stelpunum hafa barist um titlana við
Breiðablik í sínum aldursflokki und-
anfarin ár. Fjölnisliðið fær tvo sterka
erlenda leikmenn sem hjálpa mikið
reynslulitlu liði sem mun hafa það
númer 1, 2 og 3 á verkefnalistanum
að halda sér í deildinni. Takist það
er nægur efniviður til í Grafarvogi til
að skapa gott lið í næstu framtíð en
liðið er brothætt og því skiptir öllu
máli að byrja mótið vel. Spáin 8.
sætl.
Úrslitaleikur í haust?
Nú er bara að vonast eftir að
Landsbankadeild kvenna feli í sér
fleiri nýjungar en bara þær að einok-
un Breiðabliks og KR sé á enda. Úrslit-
in hafa aUtaf verið ráðin vel fyrir síð-
asta leikdag undanfarin ár en þegar
leikjaniðurröðun deildarinnar í ár er
skoðuð er ekki frá því að áhugamenn
um íslenska kvennaknattspymu horfi
til leiks ÍBV og Vals í síðustu umferð
sem hugsanlegs úrslitaleiks um titil-
inn.
Bæði liðin eru líkleg til afreka í
sumar og það væri gaman að sú staða
sem hefur komið svo oft upp hjá
körlunum á undanförnum árum h'ti
einnig dagsins ljós hjá stelpunum á
Hásteinsvelh 5. september næstkom-
andi.
ooj@dv.is
Im'm 1
I [Wi
|1| - Sa, »11 11
J/
[//§
wfÍd
M mÆwS ÆS A Ka
Sæti Framara miili veru í toppsætinu
Á leið f markið Framarinn Þorvaldur Makan horfir hér á eftir boitanum rúlla imark Víkings án þess að slóvaklski markvörðurinn Martin
Trancik eða varnarmaðurinn Steindór Gislason komi neinum vörnum við. Fyrsta mark leiksins staðreynd. DV-mynd Vilhelm
Framarar komust á topp Landsbankadeildarinnar í knatt-
spyrnu á sunnudaginn þegar þeir lögðu Víkinga að velli, 3-0,
á Laugardalsvelli.
Framarar rúlluöu
Framarar byrjuðu Lands-
bankadeildina á fljúgandi ferð
á sunnudaginn þegar þeir
tóku á móti Víkingum á
Laugardalsvelli. Þegar uppi
var staðið höfðu þeir skorað
þrjú mörk án þess að gestirnir
næðu að svara fyrir sig. Með
sigrinum komust Framarar á
topp deildarinnar í fyrsta sinn
síðan í 7. umferð árið 1992.
Framarar gerðu nánast út um
leikinn á fyrstu tólf mínútum
leiksins. Þeir skoruðu tvö mörk og
opnuðu vörn Víkinga hvað eftir
annað upp á gátt. Þeir kláraðu síðan
Víkingana endanlega rétt fyrir
leikhlé með þriðja markinu og sáu til
þess að síðari hálfleikurinn var lítið
annað en formsatriði.
Það er óhætt að segja að það hafi
verið nýtt útlit á Framliðinu. Knatt-
spyrnan sem liðið spilaði var allt
önnur heldur en hefur sést á undan-
förnum árum og mun meiri harka er
í liðinu. Færeyingarnir Hans Fróði
Hansen, Fróði Benjaminsen og
Þorvaldur Makan hafa losað liðið við
þann „kerlingastimpil" sem hefur
loðað við liðið síðustu ár - nú er
farið í tæklingarnar af hörku.
Sóknarleikur liðsins hefur einnig
tekið miklum stakkaskiptum. End-
urkoma Ríkharðs Daðasonar hefur
sitt að segja um flæðið í sóknar-
leiknum. Með honum hefur liðið
fengið frábæran uppspilspunkt og
það er ekki á neinn hallað þó sagt sé
að hann hafi verið potturinn og
pannan í sóknarleik liðsins á
sunnudaginn.
Ríklrarður var duglegur við að
spila boltanum á bak við vörn
Víkinga og í fyrsta sinn síðan Pétur
Ormslev var og hét, þá stungu
miðjumenn Fram sér inn fyrir vörn
andstæðinganna. Fróði og Þorvald-
ur voru duglegir í því og uppskáru
eitt mark hvor. Eina vandamál
Ríkharðs var að hann er ekki
kominn í sitt besta form og gat því
ekki alltaf komið sér inn í teig eftir að
hann hafði losað sig við boltann.
Þegar hann kemst í almennilegt
form þá verður hann enn betri og
skeinuhættari.
Vandamál Víkinga eru hins vegar
stærri í sniðum. Þeirra vanmáttur
var opinberaður fýrir alþjóð á
sunnudaginn.
Varnarleikur liðsins var afskap-
lega slakur, miðjuspilið hægt og
sóknarleikurinn bitlausari en smjör-
hnífur. Baráttan sem Víkingar hafa
verið þekktir fyrir varð að engu eftir
byrjun leiksins sem var martröð fyrir
liðið.
Eins og ítrekað var bent á fyrir
mót þá vantar Víkinga almennilegan
framherja. Miðjumaðurinn Kári
Árnason var frammi í þessum leik og
þrátt fyrir viðleitni þá var
árangurinn lítill. Liðið mátti einnig
illa við því að missa varnarmanninn
efnilega Sölva Geir Ottesen.
Hópurinn er lítill, liðið er
reynslulaust og miðað við þennan
leik verður sumarið erfitt hjá
Víkingum. Góðu fréttirnir eru hins
vegar þær að leiðin liggur einungis
upp á við eftir þennan leik.
oskar@dv.is
FRAM-VÍKINGUR 3-0
1. umf. - Laugardalsvöllur -16. ma(
Dómari: Jóhannes Valgeirsson (1).
Áhorfendur: 1418. Gæöi leiks: 4.
Gul spjöld: Fram: Ingvar (20.),
Ragnar (59.), Hans Fróði (75.) -
Víkingur: Enginn.
Rauð spjöld: Víkingur: Viktor Bjarki
(75.).
Mörkin:
1- 0ÞorvaldurMakan 5.
Skotúrteig Rfkharður
2- 0 Fróði Benjaminsen 12.
Skot úr teig Ríkharður
3- 0 Andri Fannar Ottósson 42.
Skot úr markteig Ómar
Leikmenn Fram:
Gunnar Sigurðsson 3
Andrés Jónsson 4
Hans Fróði Hansen 4
Eggert Stefánsson 4
Ómar Hákonarson 4
Ragnar Árnason 4
IngvarÓlason 4
Þorvaldur Makan 4
(64., Viðar Guðjónsson 2)
Fróði Benjaminsen 5
Ríkharður Daðason 5
(66., Heiðar Geir Júlíusson 2)
Andri Fannar Ottósson 4
(82., Andri Steinn Birgisson -)
Leikmenn Víkings:
MartinTrancik 2
Höskuldur Eiríksson 1
Þorri Ólafsson 2
Grétar Sigurðsson 2
Steindór Gtslason 1
(46., Daníel Hjaltason 1)
VilhjálmurVilhjálmsson 2
Sigursteinn Gíslason 1
Haukur Armin Úlfarsson 1
(73., Þorvaldur M. Guðmundsson -)
Stefán Örn Arnarson 1
(46., Egill Atlason 1)
Viktor Bjarki Arnarsson 1
Kári Árnason 2
Tölfræðin:
Skot (á mark): 18-12(7-4)
Varin skot: Gunnar 3- Trancik 3.
Horn: 3-5 Rangstöður: 3-1
Aukaspyrnur fengnar: 13-14.
BESTUR Á VELLINUM:
Ríkharður Daðason, Fram
Fram ífyrsta sinn átoppnum ítólfár
Framarar eru í toppsæti
Landsbankadeildar karla í
knattspyrnu eftir fyrstu umferð en
það eru liðin rétt tæp tólf ár og 191
umferð frá því að Safamýrarliðið sat
í toppsætmu síðast.
Fram var í efsta sæti eftir 7.
umferð sumarið 1992 en liðið hafði
þá unnið fjóra leiki í röð. Toppsætið
var þeirra eftir 3-1 sigur á ÍBV en liðið
vann aðeins 3 af síðustu 11 leikjum
sinum og endaði í 5. sæti. Síðan þá
hefur Framliðið aldrei komist á
toppinn en hér í grafinu til hliðar má
sjá í hvaða sætum liðið hefur verið
eftir þær 191 umferðir sem spilaðar
hafa verið síðan Fram sat í
toppsætinu í lok júm' 1992.