Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Síða 21
ÐV Sport ÞRIÐJUDAGUR 18.MAÍ2004 21 vakt Ólafur Þórðarson að gera miklar breytingar á sínu liði frá því í undir- búningsleikjunum. Hann tók EUert Jón og Hjálm Dór úr leik-manna- hópnum, en þeir hafa spilað mikið á undirbúningstímabilinu, og í hægri bakvörðinn var mættur Kári Steinn Reynisson og enginn var hægri kantmaðurinn. Þessar hrókeringar gengu engan veginn upp hjá Ólafi því Kári var skelfilegur í fyrri hálfleiknum og gaf eitt mark. Fylkir lokaði síðan á Harald Ingólfsson og þegar hann var gerður ónothæfur var kantspil úr sögunni hjá ÍA og ítrekaðar langar spyrnur fram völlinn skiluðu litlu. Ólafur átti fá svör enda enginn vængmaður á bekknum. Blaða- maður DV Sports spurði Ólaf reyndar að því af hverju hann hefði ekki haft neinn vængmann á bekknum og svaraði Ólafur því til að hann hefði haft Unnar Valgeirsson á bekknum sem gæti vel leyst þá stöðu. Ólafur skipti síðan bak- verðinum Andra Karvelssyni inn á fyrir Harald þegar þeir voru undir í leiknum. Ólafur hefur ekki verið þekktur fyrir að vera mikill „taktfker" og fær hann falleinkunn fyrir tilraunastarfsemi helgarinnar. Ef hann sleppir álíka tilrauna- starfsemi í framtíðinni þá ættu Skagamenn að vera í fínum málum. Fylkir leit vel út og á aðeins eftir að batna er Björgólfur kemst í betra form og Ólafur Stígsson fer að leika af eðlilegri getu. Liðið virkaði vel skipulagt, þekkti sín takmörk og virtist njóta þess að leika ekki undir sömu pressu og undan farin ár. Nokkuð breytt vörn Fylkis leit lfka vel út og ef leikmenn halda áfram að halda stöðum sínum þá þarf Þorlákur ekki að kvíða miklu. Stóðust pressuna Á Akureyri sýndu hinir ungu leikmenn Keflavíkur að þeir geta vel staðið undir væntingum og að ekki er nein tilviljun að þeim sé spáð góðu gengi. KA-menn eru augljóslega enn að slípa sitt spil og eiga án vafa mikið inni. Þeir eiga aðeins eftir að batna og engin ástæða fyrir stuðnings- menn þeirra að örvænta. Þeir munu vaxa og dafna og í kjölfarið koma Stigin. oskar@dv.is, henry@dv.is Góð byrjun Rfkharðs Ríkharður Daðason byrjaði vel með Frömurum á sunnudaginn en hann lék sinn fyrsta leik með félag- inu siðan 1995 gegn Vik- ingi. Rikharður iagði upp tvö fyrstu mörk Framara og var lykilmaður i skemmti- legum sóknarleik liðsins. DV-mynd Vilhelm „Það segir meira en mörg orð um sóknarleik KR að það iifnaði töluvertyfir honum þegar Guðmundur Benediktsson, já, segi og skrifa það, Guðmundur Benediktsson, kom inn á. Guðmundur hefur varla æft knattspyrnu undanfarið ár ogþaðan af síður spilað hana Jóhannsson var öflugur á miðjunni og frammi voru þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Magnús Már Lúðvíksson skeinuhættir og klókir að hlaupa á bak við varnarmenn Grindvíkinga. Boltinn gekk ágætíega hjá Eyjamönnum og með þessari spilamennsku ættu þeir að sigla lygnan sjó um miðja deild. Upprisa Framara Framarar eru það lið sem kom mest á óvart í fyrstu umferðinni. Þeir rúlluðu yfir slaka Víkinga á Laugar- dalsvellinum og sýndu oft á tíðum frábær tilþrif. Ríkharður Daðason er kominn aftur í Safamýrina og hann var ekki lengi að finna torfuna sína. Hann lagði upp tvö mörk fyrir félaga sína og gerði það sem virkilega góðir leikmenn gera, hann gerði aðra leikmenn í kringum sig betri. Ríkharður er ekki kominn í sitt besta form en það verður erfitt að ráða við hann þá. Framarar hafa fengið til sín leikmenn sem kalla ekki allt ömmu sína í návígjum og það er ekki síst fyrir tilstilli Færeyinganna tveggja, Hans Fróða Hansen og Fróða Benjaminsen, og Þorvaldar Makan að ásýnd liðsins er önnur. Þessir leikmenn fara í návígin til að vinna þau og því fengu leikmenn Vfkings að kynnast. Flottur bragur á Framliðinu undir stjórn Rúmenans Ion Geolgau. Eftir langan tíma undir stjórn heimamanna, sem skilaði engum árangri, er kominn maður sem hefur gjörbreytt Framliðinu í aðeins einum leik. Víkingar vilja sennilega gleyma þessum leik sem fyrst. Frammistaða þeirra í þessum leik var ekki til þess fallin að réttíæta veru þeirra í deildinni. Vörnin var glæpsamlega léleg, miðjan þung og þreytt og sóknarleikurinn ..., hann var ekki til staðar. Strákarnir hans Sigurðar Jónssonar munu væntanlega berjast til síðasta blóðdropa en sú barátta er ansi vonlaus þegar ógnunin í fram- línunni er engin. Langt og erfitt sumar framundan hjá Víkingum. Taktík Óla klikkaði Langbesti fótboltinn í fyrstu umferðinni var á Skipaskaga þar sem ÍA tók á móti Fylki. Einhverra hluta vegna ákvað Bestu ummælin Willum Þór Þórsson, þjálfari KR-inga, var ekki sammála öllum þeim sem töldu FH-inga hafa verið mun betri aðilinn í leiknum gegn KR á laugar- daginn. „Það bar ekkert á milli liðanna í dag. Ég ætía ekki að taka þátt í því að menn búi eitthvað til," sagði Willum í samtali við Morgunblaðið eftir leikinn og hélt áfram: „Við gáfum FH- ingum þetta mark enefviðtel- jum færin þá sktídi ekkert á milli lið anna dag.“ Anton og Hlynur orðnir IHF-dómarar Ungir dómarar á uppleið Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson eru nýjasta IHF-dómara- par okkar íslendinga en þeir félagar þreyttu aljóðlegt IHF-próf dómara í Grikklandi í lok mars og stóðust það að sjálfsögðu með miklum sóma. Fyrir þá sem ekki vita þá eru IHF- réttindi efsta stig alþjóðlegra rétt- inda sem dómarar geta fengið. „Það eru ekki mörg dómarapör sem fá tækifæri til þess að taka þetta próf og við lítum á það sem mikinn heiður og viðurkenningu fyrir okkar störf að hafa verið valdir til þess að taka prófið í Grikklandi," sagði Anton Gylfi í samtali við DV Sport og bætti við að lítill tími hefði gefist ttí þess að sóla sig í Grikklandi. „Við tókum fjögur skrifleg próf ásamt Hkamlegu prófi og svo dæmdum við tvo leiki. Þetta var hörkupúl en gekk sem betur fer vel.“ Þakklátir HS( Það kostar blóð, svita og tár að komast á toppinn og hjálp góðra manna á þeirri leið er alltaf vel þegin. „Þetta hefði ekki verið hægt án aðstoðar HSI sem greiddi farseðil okkar til Grikklands og kunnum við þeim bestu þakkir fýrir. Þeir hafa alltaf stutt vel við bakið á okkur og vonandi verður framhald á því í framtíðinni," sagði Anton Gylfi að lokum. henry@dv.is Röggsamir ungir menn Anton Gylfi og Hlynur dæmdu leik Islands og Danmerkur á Seltjarnarnesinu um helgina og leystu það verkefni með miklum sóma. DV-mynd Vilhelm Jaap Stamfarinn til AC Milan Hollenska varnartröllið Jaap Stam gekk í gær ffá samningi við ítölsku meistarana í AC Milan. Stam gerði tveggja ára samning við félagið en kaupverð var ekki gefið upp. Milan eru ekki hættir að versla ogAdriano Galliani hefur lofað tveim stórum nöfnum í sumar. Stam er annar leikmað- urinn sem Milan fær til sín í sumar en áður höfðu þeir gengið frá samningi við Frakkann Vikash Dhorasoo sem kemur frá Lyon. Galliani segir að þótt vissulega megi styrkja liðið enn frekar séu menn sáttir við þann hóp sem þeir hafa í höndunum. „Við unnum meistaradeildina í fyrra með þennan mannskap og erum ítalskir meistarar. Þetta er fínt eins og það er,“ sagði Galliani. henry@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.