Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2004, Síða 32
P'f Útt Cittk Ot m mun, riö
fréttaskotum allan sólarhringinn. Fyrirhvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^nafnleyndar er gætt. r-i <
55 D 5555
SKAFTAHLÍÐ24, 105 REYKJAVÍK [ STOFNAÐ 1910 ] SÍMISSOSOOO
US*»gi
Opið aila daga
til klukkan 21!
HEIMSENDINGAR-
ÞJÓNUSTA
1540 33 20
GARÐHEÍMAR
Heimur skemmtilegra hugmynda og hluta
Stekkjarbakka 6 • Mjódd • Sími: 540 33 00 • www.gardheimar.is
Sigurjón Sighvats
orðinn afi
Þórir Snær Sigurjónsson, kvik-
myndaframleiðandi hjá ZikZak, og
sambýliskona hans, Line Lind, eign-
uðust lítinn dreng á sunnudaginn.
Drengurinn vó þrjú og hálft kíló og
var 51 cm. Sigurjón Sighvatsson,
faðir Þóris og nýbakaður afi, mun
vera á leið frá kvikmyndahátíðinni i
Cannes til þess að bjóða þennan
kvimyndagerðarmann framtíðar-
innar velkominn í bransann.
Sigurjón Sighvatsson Varð afi á sunnudag.
íslensk krísa í suður-
afrískum fjölmiðlum
„ísland er í uppnámi vegna um-
deildra fjölmiðlalaga", er yfirskrift
greinar sem birtist í vefúgáfu dag-
blaðsins Mail and Guardian í Suður-
Afríku í gær. Fjallað er almennt um
þá eldfimu stöðu sem sé í íslenskum
stjórnmálum vegna fjölmiðlafrum-
varpsins og þeirrar hótunar sem leg-
ið hafi í loftinu um að Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti íslands, neiti að
staðfesta lögin. Hafi hann sniðgeng-
ið konunglegt brúðkaup í Dan-
mörku vegna málsins. Segir blaðið
frá þeim fullyrðingum íslensku
stjórnarandstöðunnar að málið allt
sé sprottið af persónulegri óvild
Davíðs Oddssonar forsætisráðherra
í garð eigenda Baugs. Greint er frá
því að forsætisráðherra hafi hellt
„olíu á eldinn" í harðvítugum póli-
tískum deilum með því að saka Ólaf
Ragnar forseta um að huga að eigin
hagsmunum með því að verja Baug
enda væru fjölmiðlar í eigu Baugs
hörðustu stuðningsmenn forsetans.
Þess utan hefði forsætisráðherra
bent á að dóttir Ólafs Ragnars vinni
hjá fýrirtækinu.
Fjölmiðlafrumvarpið fer viða
Mail and Guardian i Suður-Afríku fjall-
aði um fjölmiðlalög Daviðs i gær.
Hiti á Alþingi Þinglorseti veifaúi DV og
frestflði smábátamáli
Ólga var við upphaf þingfundar í
gærmorgun þegar Halldór Blöndal
þingforseti breytti skyndilega boð-
aðri dagskrá þingsins sem gerði ráð
fyrir að smábátamálið svokallaða
yrði fyrst á dagskrá. Skyndilega til-
kynnti forsetinn að dagsrá yrði rask-
að þannig að fyrsta mál yrði mjólk-
ursamningurinn. Allir þingflokks-
formenn stjórnarandstöðunnar fóru
í ræðustól og mótmæltu framkomu
forsetans. Magnús Þór Hafsteins-
son, alþingismaður Frjálslynda
flokksins, var einn þeirra sem mót-
mælti harkalega þessu háttalagi for-
seta. Þingfundi var loks frestað til að
menn gætu náð sáttum um málið.
Magnús Þór segir að Halldór Blön-
dal hafi borið því við á fundi með
þingflokksformönnum að ástæða
þessa væri frétt í DV þar sem Magn-
ús Þór sagði það álit sitt að smábáta-
málið yrði hitamál á þingi.
Halldór Blöndal Magnús Þór Haf-
Umfjöllun í DV varð steinsson Sagði að
til þess að hann brá smábátamálið yrði
skjótt við og breytti heitt.
boðaðri dagskrá.
„Hann veifaði DV máli sínu til
stuðnings og sagði þetta gert af til-
litssemi við þingmenn sem óskuðu
eftir að taka þátt í umræðu um
mjólk og landbúnað. Tillitssemin
var þó ekki meiri en svo að engir
þingmenn voru látnir vita af breyt-
ingu dagskrár, en hins vegar vissu
bæði landbúnaðarráðherra og hans
hirð um þetta því þessir voru mætt-
ir við upphaf þingfundar. Einnig
blaðamaður Bændablaðsins sem
sat eftirvæntingarfullur á þingpöll-
um,“ segir Magnús Þór.
Hann segir að sjávarútvegsráð-
herra hafi tímanlega verið látinn
vita af dagskrárbreytingunni enda
hafi hann ekki mætt.
„Við í þingflokki Frjálslynda
flokksins vorum mjög óhressir með
þetta. f forgangsröðun í undirbún-
ingi fyrir umræður dagsins þá höfð-
um við lagt áherslu á sjávarútvegs-
málin og ætluðum síðan að undir-
búa okkur betur fyrir umræðu um
landbúnaðarmál. Blöndal gerði þá
hlé á þingfundi og hélt fund með
formönnum þingflokkanna.
„Þetta mál sýnir vel þá tauga-
veiklun sem nú ríkir í herbúðum
ríkisstjórnarinnar. Stjórnarliðar
vita vel að trillufrumvarpið getur
orðið mjög erfitt fyrir ríkisstjórnina
þar sem það gengur þvert á fyrri lof-
orð stjórnarþingmanna frá Vest-
fjörðum. Svo virðist sem að um-
ræðu um það hafi verið frestað í
einhvers konar örvæntingu af því
að ég upplýsti alþjóð í DV um að
þetta væri stórt og erfitt mál. DV
virðist þar með vera farið að hafa
áhrif á fundarstjórn þingsins," segir
Magnús Þór.
Þingmenn lesa DV
Frétt DVigær varð til
þess að forseti Alþing
is frestaði umræðum
um smábátamálið.
• Útvarpsþátturinn Spegillinn
var ofarlega á baugi á fitndi út-
varpsráðs í gær. Svanhildur Jón-
asdóttir vakti máls á atburðar-
rásinni í kringum Helgu Völu
Helgadóttur, þátta-
gerðarmanns á
Speglinum, sem fékk
ekki sumarafleysing-
arstarf sem frétta-
maður með þeim
skýringum BogaÁgústssonar að
hún væri tengt Vinstri grænum.
Útvarpsráð sagðist í gær leggja
áherslu á að mikilvægt sé fyrir
trúverðugleika stofn-
unarinnar að reglur
um ráðningu starfs-
manna sem vinni við
fréttaflutning af ein-
hverjum toga séu
skýrar og gegnsæjar. Að þessu
gerðu bætti Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, formaður út-
varpsráðs, því við að
sér þætti undarleg
kynning á viðmæl-
anda í Speglinum, að
titla hann sérstaklega
sem stuðningsmann
Sjálfstæðisflokksins til margra
ára. Formaðurinn bað menn að
vanda til verka við kynningar...
Aðskilnaðarstefna
Davíðs!