Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2004, Side 15
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAÍ2004 15
Lýðveldið Island verður 60 ára
17. júní n.k. og á stórafmælum þykir við hæfi að gera sér
dagamun. Lýðveldið ísland er yfirskrift samsýningar sem
nú stendur yfir í Þrúðvangi í
Mosfellsbæ, á bökkum Varm-
ár. Ólöf Oddgeirsdóttir, Anna
Jóa, Bryndís Jónsdóttir, Guð-
björg Lind, Hlíf Ásgrímsdóttir,
Kristín Geirsdóttir og Kristín
Jónsdóttir frá Munkaþverá
nálgast viðfangsefnið með
ólíkurn hætti en allar vekja
þær til umhugsunar um lýð-
veldið ísland og hin ýmsu
sameiningartákn þjóðarinnar.
Frá íslenska fánanum að
fólkinu sem byggir landið.
LouLse Crossley, umhverfis- og
vismdasagnfræoihgur, flytur í kvöld klukk-
an 20 fyrirlestur í Reykjavíkur Akademíunni um baráttuna
gegn Franklinvirkjun í Tasmaníu og baráttuna gegn höggi
ósnortinna skóga. Þar syðra hefur hreyfing um-
hverfissinna nýtt sér beinar aðgerðir, pólitíska
baráttu, þrýsting erlendis frá, lagaleiðir, fjár-
hagslegar og hagfræðilegar greiningar.
Crossley segir ennfremur frá viðbrögðum
stjórnvalda og fyrirtækja við þessum mis-
munandi aðferðum náttúruverndarsamtaka.
Louise Crossley hefur starfað með græn-
ingjum í Ástalíu og Evrópu, nú starfar
hún við umhverfisráðgjöf og kennir
umhverfisstjórn og hnattvæðingu við
Boston háskóla.
JJ
HuhE
Arfurpfl.sagapakkhúss-
ms i Krrstjanshofn erviðfangs-
efni sýningar Daggar Guðmundsdóttur og
T.S. Hoeg á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn,
ekki síður en samband manns og náttúru.
Dögg er hönnuður og sér. um sjónrænan
hluta innsetningar þeirra en Hoeg legg-
ur til tónlist sem hann samdi sérstak-
lega fyrir þessa sýningu. Sýningin
samanstendur af samanofnum 1500
metra löngum íslenskum ullarþræði
sem strengdur er um sýningarrým-
ið og á honum hanga lampar og
púpur og geta gestir skriðið inn
og öðlast hugarró. Sýningin
stendur til 6. júní n.k.
Ragnheiður Gyða
Jónsdóttir vaktar mannlíf
og menningu.
rgj@dv.is
Víkin|ar á
Bretoníuskaga
„Evrópa vlkinganna" eryfir-
skrift sýningar sem nú stendur
yfir í menningarmiðstöðinni
Abbaye Daoulas á Bretóníu-
skaga í Frakklandi. Þar er
dregin upp mynd
af margslunginni
menningu víking-
anna, landvinn-
ingum, samskipt-
um við aðrarþjóðir
og ekki síst hvernig
rómantískar hugmyndir um
víkinga fengu byr undir báða
vængi á 19. og 20. öld og birt-
ast i óperum, kvikmyndum og
myndasögum. Söfn á Norður-
löndum, Bretlandseyjum og í
Frakklandi hafa lagt til gripi á
sýninguna sem stendur fram í
miðjan nóvember. Frá Stofnun
Árna Magnússonar á Islandi
kemur eftirlíking afFiateyjar-
bókog 15.aldarhandritsem
geymir Mágus sögu jarls, Jarl-
manns sögu og Þorsteins
sögu Víkingssonar.
Amo-amas-amat
Ferðamálayfirvöld suðurí
Rómarborg og félög sagn-
fræðinga þar í borg-
inni hafa tekið
höndum saman og
bjóða nú upp á
nýja tegund af
ferðamennsku í
borginni á hæðun-
um sjö við Tíber.
Löngum hefur
mannkyn hópast
þangaðsuðurað
vitja páfans, skoða
Forumið og Colosseum, en nú
vilja stjórnendur ferðamála
bæta um betur. I sumar geta
Rómarfarar sótt hraðsoðin
námskeið í hvunndagslatínu,
brugðið sér i Scuola Gladiatori
Roma og stúderað bardagalist
skylmingaþræla, prýðst stol-
um og togum og lagst til
borðs og neytt kvöldverða að
hætti Cicerós og Sesars, Livíu
og Messalínu.
Clemente og Roni Horn
„Það er ein sýning á Listasafhi ís-
lands sem ég held að sé rosalega
spennandi. Francesco Clemente er
með vatnslitamyndir og Roni Hom
sýnir þar ljósmyndirnar sínar. Ég er
ekki búin að sjá þessar sýningar því
það er búið að vera svo rosalega
mikið að gera hjá mér og ég
er búin að vera erlendis
en mig langar mikið að
sjá þær og hef heyrt
að þær séu báðar
mjög skemmtilegar."
Hallveig Rúnais-
dóttiróperu-
söngkona
Gott í myndlist
293. bindi Dictionary of Literary Biographies er komið út hjá Cornell háskóla og
fjallar um íslensk skáld og rithöfunda. Silja Aðalsteinsdóttir skrifar um Matthías
Jóhannessen, Stein Steinar, Jón úr Vör, Tómas Guðmundsson, Stefán Hörð, Stefán
frá Hvítadal og Guðmund Böðvarsson.
„Þetta em uppflettibækur um
skáld og rithöfunda, ekki samfelld
bókmenntasaga heldur ævisögur
rithöfunda í stafrófsröð,“ segir Silja
og tekur fram bindi nr. 293, „þetta er
heimshöfunda-
tal, en margar
stórþjóðir hafa
fengið nokkur
bindi. Útgáfan
hófst á 4. áratug
síðustu aldar
og fyrstu bæk-
urnar hafa að
sjálfsögðu ver-
ið endumýjað-
ar síðan. Patrick J. Stevens, bóka-
vörður vestra ritstýrði þessu bindi,
hann les íslensku og pantaði greinar
um íslensk skáld víðs vegar að úr
heiminum, Frakklandi og Bret-
landseyjum t.d.“ Að sögn Silju fengu
skrásetjarar fýrst af öllu bæklinga
upp á tugi blaðsíðna um áherslur í
skrifunum, frágangsatriði og upp-
byggingu greinanna, „Sá texti var
mér næstum ofviða, þetta var svo
nákvæmt og pirrandi að þurfa að
sleppa skoðunum og túflom, halda
sig bara við staðreyndir."
Aðferð sem fór úr tísku hér
fyrir löngu
„Þegar fyrst var haft samband
við mig var ég beðin um að skrifa
um þrjú skáld og taldi það nú ekki
eftir mér, sagði m.a.s. að ef einhver
yrði afgangs mætti hafa samband
við mig,“ Silja hlær og skellir sér á
lær. „Enda nýbúin að skila 20. aldar
skáldum í IV. bindi íslensku bók-
menntasögunnar og ætlaði að
byggja á þeim skrifum. En öðru
nær, fyrst og fremst varð mér erfitt
að beygja mig undir þetta form,
þessi ævisagnaaðferð fór úr tísku
hér fyrir áratugum og þótti lengi
alls ekki fínt að tengja saman ævi-
söguleg atriði höfundur og verk
hans. Hugur skáldsins er frjáls og
hann er ekkert endilega að skrifa
um sjálfan sig þegar hann yrkir um
raunir, ástir, dauða eða önnur atvik
í lífinu en þetta vildu þeir hjá Corn-
ell og engar vangaveltur. Þessar
uppflettibækur eru bara unnar
svona, burt með samfélag, heim-
speki og lífsskoðanir. Bara útkoma
bóka, hvernig þeim var tekið og
hvaða máli þær skiptu fyrir höfund-
inn,“ segir Silja.
íslensk bókmenntasaga
„Mér fannst þetta rosalega erfitt,
ég hef sjaldan séð eins mikið eftir
einu jái, hvað þá að ég væri til í
meira." Silja hristir höfuðið hlæj-
andi. „í IV. bindi íslensku bók-
menntasögunnar skrifa ég
um ljóðskáldin, las
auðvitað skáldin
sjálf og dóma
um verk
þeirra eins
og ég lifandi
gat, alla 20.
öldina, Ég
byrjaði að
skrifa fyrri
hlutann í
bókina fyrir
12 árum,
það eru
nefnilega 8 ár
síðan III. bindi kom
út, og sem betur fer
leið mér ekkert illa
þegar ég las yfir
það sem ég
hafði skrifað fyrir rúmum áratug, ég
varð auðvitað að taka til í tilvísunum
og færa þær til dagsins í dag. Það
versta við að skrifa svona bók-
menntasögu er að ekki skuli hafa
verið önnur fyrri að miða við. Það
væri svo miklu frjórra að halda
áfram, svara þeim fyrri,
bæta við og samþykkja,
bregðast við. Allar
grannþjóðir okkar gefa
út bókmenntasögur
reglulega en þetta
hefur verið svo mikið
stórmál hér að þær
vantar alveg. Og þess
vegna urðu tvö fýrir-
huguð bindi að fjórum
risastórum, en vonandi
bætir framtíðin úr
þessu, einfaldar útgáf-
una og gefur örar út,“ segir
Silja Aðalsteinsdóttir að lok-
um.
Silja Aðalsteinsdóttir „Leiðbein-
ingarnar voru mér næstum
ofviða“
Tónlistarlandslið íra og íslendinga
mætast í Laugardalshöll
Landsliðin spila í Laugardalshöll
nk. laugardag, þá leggja þau í tónlist-
arferðalag undir leiðsögn Donal
Lunny, en Bono í U2 kallar hann
hinn eina sanna tón, og Hilmars Am-
ar Hilmarssonar. Bretinn Damon
Albam og Færeyingurinn Eivör Páls-
dóttir fara með í ferðalagið. Hilmar
Öm segir Þórunni Sigurðardóttur,
stjómanda Listahátíðar, hafa átt hug-
myndina að því að leiða saman tón-
listarmennn frá íslandi og írlandi,
„Ég hef þekkt Lunny í 30 ár,“ segir
Hilmar Öm, „kynnti honum hug-
myndina og hann sló til. Við höfum
hist nokkrum sinnum en nú höldum
við í Hvítarsíðuna að klára verkið. Við
finnum sameiginlega fleti, t.d
Donal Lunny Bono í U2 segir hann hinn
eina sanna tón.
Darraðaljóðin okkar og þeirra tónlist
um Brian Bom, Brján kóng og omst-
una á írlandi hvar hann féll en hélt
velli. Hugsum okkur að renna frá ís-
landi til írlands og til baka aftur. Þess-
ar þjóðir eiga ótrúlega margt sameig-
inlegt, írskar formæður okkar hafa
skilið margt eftir í menningararfin-
um, t.d. nykurinn og sjö börn á landi
og sjö í sjó. Okkur langar að seilast
aftur og spinna þráðinn áfram," segir
Hilmar Öm Hilmarsson og brunar
með hópinn í Borgarfjörð. I íslenska
tónlistarlandsliðinu em m.a. Guð-
mundur Pétursson gítarleikari,
Tómas Tómasson bassaleikari, Pétur
Grétarsson slagverksleikari, Bryndís
Halla Gylfadóttir sellóleikari, Stein-
dór Andersen kvæðamaður og Páll á
Húsafelli og steinharpa hans. Lands-
banki íslands styrkir þessa tónlistar-
hátíð í Laugardalshöll.
Egill, Tatu
íslei
V'M ' ::
Egill Ólafsson
söngvari og Tatu
Kantoma harmonikku-
leikari verða á tónlistar-
torgi Listahátiðar í
Kringlunni á morgun,
miðvikudag kl. 17 og
flytja gest-
umog
gangandi íslensk dægurlög..
Byrjað var að leika téniist á
torginu í tiðinni vikuog
verður haidið áfram til
mánaðamóta. Listahátið I
Reykjavik og verkefnið „Tón-
list fyrir alla" standa að ténlist
artorginu.