Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Side 3
DV Fyrst og fremst FÖSTUDAGUR 1I. JÚNÍ2004 3 „Ég fékk kranabómu beint í andlitið þegar ég var ungur maður," segir Jóhannes Gísli Svavarsson, líklega öflugasti happdrættismiðasali Blindrafélagsins síðustu áratugi. Jó- hannes slasaðist illa í vinnuslysi árið 1974 og hefur verið blindur síðan. „Ég var á spítala í tæpt ár og síðan fór ég að vinna hjá Blindravinnustofunni við körfugerð þar sem ég var í mörg ár. Ég þvælist mikið um, fer allra minna ferða með strætó. Stundum verð ég áttavilltur, það er alveg óþolandi. Ég bý í minni eigin íbúð uppi í Hamrahlíð skammt frá Blindrafé- laginu, ég bjó lengi vel á Njálsgötunni,“ segir Jóhannes og sýp- ur á kaffinu í gegnum sogrör. „Mér finnst best að drekka kaff- ið með röri ég vandist á það þegar ég var á spítalanum. Mig hefur alltaf langað til þess að eignast mitt eigið kafBhús. Svona kaffihús með tertum og kökum. Ég er voðalega hrifin af kök- um, það má alls ekki útiloka þær,“segir Jóhannes, tekur klút upp úr vasanum og þurkar innan úr kaffibollanum og svo af borðinu. „Ef allir væm jafn snyrtilegir og ég þá væri allt ódýrara, ég hef það fyr- ir reglu að þrífa eftir mig svo er ég með lítið box utan um stubbana, ég fleygi þeim ekki í götuna eins og sumir," segir Jóhannes og smrt- ar sígarettustubbum úr litlu plastboxi ofan í öskubakkann. „Ég er enn að selja miða öðm hvom, það hefur enginn selt jaffi marga happdrættismiða fyrir Blindrafélagið og ég, einu sinni seldi ég 1.480 miða á einum degi, það er metið mitt, það verður seint sleg- ið,“ segir Jóhannes og sýgur restina af kaffinu úr bollanum. Spurning dagsins Er Framsóknarflokkurinn að hverfa? „Vonandi hverfa stjórnarflokkarn- ir. Að minnsta kosti þangað til þeir átta sig á því hvað þeir eru að gera. Á meðan menn haga sér eins og þeir hafa gert er ekki nema \ von að fylgi þeirra hverfí enda al- gjörlega þeirra að stjórna því." Guðmundur Gunnarsson, formað- ur Rafiðnaðarsambandsins „Nei, það erhann alls ekki. Þeir þurfa hins veg- arað stokka aftur upp spilin og halda í heiðri grund- vallarhugsjón flokksins frá stofnun hans sem mér finnst hafa gleymst að- eins." Jón Einarsson, frambjóðandi til formanns SUF „Miðað við skoðanakannanir er að tálgast utan afflokknum.já. Þetta er nú æði oft svona hjá Framsókn í skoðanakönn- unum en síðan gerist alltaf eitthvað í kjörklefanum." Arnþrúður Karlsdóttir, fyrrv. þingmaður „Já veistu ég bara held það. En annars erég voða lítið inni í þessu svo ég segi bara no commentað öðru leyti." Eva ísleifs- dóttir, sól- dýrkandi Já, það bendir bara allt til þess. Ég held að þeir þurfi að taka sig á efþeirætla ekki að hverfa bara alveg." Hafsteinn Ólafsson, elliiífeyrisþegi Skoðanakannanir hafa sýnt Framsókn í sögulegu lágmarki und- anfarið og þykir mörgum nóg um fylgistap flokksins. Aðrir benda á að enginn flokkur sé jafnan minni í skoðanakönnunum en Framsókn, sem síðan sigli upp í kosningum. Bogart var ekki Gerber-barnið Þjóðsögur Flestir þekkja glaðlegt smábarnið sem prýðir barnamat frá fyrirtækinu Gerber í Bandaríkjunum. Sú saga er lífseig að þetta barn sé enginn annar en Humphrey Bogart, kvik- myndaleikarinn góðktmni, í frum- bernsku. Þar er því miður um þjóð- sögu að ræða. Gerber-barnið heitir í raun og veru Ann Turner Cook. Hún var fjögurra mánaða árið 1928 þegar nágrannakona foreldra hennar, Dorothy Hope Smith, dró upp mynd af henni og sendi síðar í samkeppni sem Gerber-fyrirtækið effidi til um einkennismynd fyrir nýja teg- und af barnamat. Þremur árum seinna var myndin gerð að vörumerki fyrirtæk- isins í heild. Hope Smith var teiknari sem vann við ýmiss konar auglýsingagerð og fékk 300 dollara fyrir myndina. Árið 1951 borgaði Gerber svo Ann Turner Cook 5.000 doUara fyrir affiot af myndinni af henni. Hún varð bók- mennta- kennari við fram- haldsskóla og eftir að hún settist í helg- an stein árið 1989 hefur hún gefið út nokkrar glæpa- sögur sem mælst hafa prýðilega fyrir. Þar leysir blaðamaðurinn Brandy O’Bannon erfið sakamál. Sagan um að Humphrey Bogart sé Gerber á sér stoð í því að móðir hans var vissulega teiknari sem dró upp mynd af honum nýfæddum sem síðan var notuð á barnamat. En það var Mellin barnamaturinn sem framleiddur löngu áður en Gerber kom til sögunnar. Bogart fæddist árið 1899. Því miður hefur okkur ekki tekist að finna neinar af fram- leiðsluvörum Mellins. leikarinn Þorvaldur Davíð Kristjánsson, ungleikari og söngvari, og Krístján Þorvaldsson, ritstjóri Séð og heyrt, eru feðgar. Fyrir utan að rit- Séð og heyrt er Kristján landskunn ur fyrir að drekka sunnudagskaffi um helgar á Rás 2. Þorvaldur Davíð gerði fyrst garðinn frægan sem barnastjarna með lag- inu um skólarappið. Síðan hefur hann tekið þátt í fjölmörgum söngleikjum og næst syngur íHárinu sem fært verður upp íAusturbæ íjúlí. IBOLLI RÚiMSTYKKI CROISSAIXIT VIDEO - DVD ALLAR MÝJU5TU MYIVDIRIXIAR! VIDEO - DVD SÍHffll 517 9000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.