Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Blaðsíða 10
70 FÖSTUDAGUR 11. JÚNl2004 Fréttir DV Kostir & Gallar Siv Friðleifsdóttir þykir hörku- dugleg og ákveðin mann- eskja. Hún hefurmikið keppn- isskap og er fylgin sér í sínum skoðunum. Hún veit hvað hún vill og það hefur fleytt henni langt í pólitíkinni. Siv þykir út- sjónarsamur stjórnmálamað- ur og er víst alveg eldhress á morgnana. Siv byrjaði snemma í pólitik og komst fljótt til metorða á þeim vettvangi. Siv er lagleg kona og tilfinningin virðist oft vera sú að hún sé ekki tekin alvarlega afþeim sök- um. Hún á það lika til að láta út úr sér óheppileg um- mæli þegar mikið liggur á sem hafa seinna komið i bakið á henni. „Siv er mikil keppnis- manneskja frá því I gamla daga þegar hún var í landsliðinu í bad- minton. Það endur- speglast í hennar stjórnmála- baráttu. Hún hefuralla tiö barist fyrir sínu og aldrei fengið neitt frítt. Ég myndi segja að íþróttirn- ar hafi hert hana og mér finnst hún hafa staðið sig mjög vel." Sigfús Æglr Arnason, framkvæmdastjóri TBR „Siv er hörkudugleg og ákveðin. Hún sat í bæj- arstjórn þegar ég var bæjarstjóri. Við vorum ekki alltafá sömu skoð- un og það neistaði stundum á milli okkar en það var gaman að eiga við hana. Við erum fínir vinir í dag. Það má kannski líka benda á það að hún var ekki fædd þegar ég byrjaði sem bæj- arstjóri." Sigurgeir Sigurðsson, fyrrverandi bæjarstjóri „Þegar ég starfaði með henni í stjórn ungra framsóknarmanna þá sá ég strax að hún var ákveðin í að byggja upp sinn feril, og hún þurfti að berjast fyrir því innan SUF. Hún stóð sig mjög vel iþvístarfi sem við vorum að vinna og var mikil morgunmanneskja. Siv stakk oft á tlðum upp á því að hafa fundi á sunnudagsmorgnum við mjög litlar undirtektir okkar hinna." Ragnar Þorgeirsson, framkvæmdarstjóri Björg SivJuhiin Friðleifsdóttir eins og hún heitir fullu nafni er fædd I Osló árið 1962. Hún mun víkja afstóli umhverfísráðherra I september þegar breytingar verða í ríkis- stjórninni, og óvíst er hvort hún haldi ráð- herrasæti. Siv er sjúkraþjálfari og er kvænt Þorsteini Húnbogasyni sem hún kynntist I háskólanum. Þau eiga tvo syni, Húnboga og Hákon. Tekinn með amfetamín Tæplega þrí- tugur karlmað- ur var handtek- inn í Kópavogi í fyrrakvöld er fíkniefni fund- ust í fórum hans. Við húseit á heimili hans í framhaldinu fannst meira af ffkniefnum. Að sögn lögreglunnar var það samtals um 20 g af am- fetamíni. Maðurinn var handtekinn og fluttur á lög- reglustöð til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og málið telst upplýst. Meirihlutinn í bæjarstjórn Vestmannaeyja er undrandi á þvi að bæjaryfirvöldum hafi ekki verið boðið að skipa fulltrúa í starfshóp um samgöngur til Eyja sem ráð- herra skipaði á dögunum. Fyrrum bæjarstjóri skipaður sem fulltrúi íbúa í staðinn. Aðstoðarmaður ráðherra segir að þingmenn í kjördæminu hafi sammælst um til- högunina en því vísar þingmaður kjördæmisins og bæjarfulltrúi á bug. Sturla hundsar Samgönguráðherra skipaði nýverið starfshóp til að fjalla um samgöngur til Vestmannaeyja. Starfshópur ráðherra á að skoða og taka afstöðu til fimm kosta í samgöngumálum eyjarskeggja en meðal þeirra er jarðgangatillaga og ný ferjuhöfn við Bakka. Bæjaryfirvöldum í Eyjum var ekki boðið að skipa fulltrúa í nefndina. Þess í stað skipaði ráðherra flokksbróður sinn og fýrr- um bæjarstjóra, Inga Sigurðsson, í hópinn. Sturla Böðvarsson samgöngu- ráðherra var ekki til viðtals þegar DV leitaði eftir svörum við því hvers vegna bæjarstjórn Vestmannaeyja hefði ekki verið boðið að skipa full- trúa í starfshópinn. Aðstoðarmaður ráðherrans, Bergur Ólafsson, sagði að á fundi þingmanna Suðurkjör- dæmis og Vegagerðar hefði verið ákveðið að skipa ekki formlegan fulltrúa frá bænum og því hefði Ingi Sigurðsson, fulltrúi Ægisdyra, orðið fyrir valinu. „Þetta var ákveðið í samráði við þingmenn Suðurkjör- dæmis, eftir fund þeirra með Vega- gerðinni, að hafa þetta svona,“ segir Bergur. Aðspurður hvort ekki hefði verið eðlilegra að lýðræðislega kjör- inn meirihluti skipaði fulltrúa íbúa Vestmannaeyja í nefndina sagði Bergur að þar sem frumkvæði að vinnu starfshópsins hefði ekki kom- ið frá bænum heldur frjálsum fé- lagasamtökum, Ægisdyrum, treysti hann Inga Sigurðssyni til að gæta hagsmuna Eyjamanna. „Bæjar- stjórnin hefur ekki haft frumkvæði að þessu máli heldur Ægisdyr sem eru frjáls félagasamtök sem ég treysti fullkomlega til að takast á við vinnu starfshópsins," segir Bergur Ólason, aðstoðarmaður samgöngu- ráðherra, í samtali við DV. „Sú ályktun sem hægt er að draga afþessu eríraunarsú sem maður átti að vera búinn að draga mun fyrr og ersú að som- gönguráðherra valdi hreinlega ekki emb- ættinu. „Þetta er einfaldlega kolrangt og veruleikinn allt annar," segir Lúðvík Bergvinsson, bæjarfull- trúi meirihlutans í Vestmanna- eyjum og alþingismaður Suður- kjördæmis. Lúðvík segir alrangt hjá aðstoðarmanni samgöngu ráðherra að þingmenn Suðurkjör- dæmis hafi valið þá leið sem farin var við skipun í starfshópinn og að ekki séu fordæmi fyrir því að í nefnd sem falið er að vinna að málefni tengdu einu sveit- arfélagi sitji ekki íúlltrúi bæjaryfirvalda. „Ég bendi á að hér er verið að fjalla um eitt helsta hagsmunamál Vestmanney- inga án þátttöku bæjaryfirvalda í Eyjum. Hér er einfaldlega verið að reyna að niðurlægja bæjaryfirvöld og Vestmannaeyinga sem við erum eðlilega ósáttir við,“ segir Lúðvík, sem telur að í ljósi fyrri samskipta bæjaryfirvalda í Vestmannaeyjum við samgönguráðuneytið komi þetta ekki á óvart. „Við erum eðlilega ósáttir við að slík samskipú og sam- ráð um hagsmunamál tíðkist í ráðu- neytinu en í ljósi samskipta núver- andi meirihluta í Eyjum við þann samgönguráðherra sem nú situr kemur þetta ekki á óvart,“ segir Lúð- vík og bætir við: „Sú ályktun sem hægt er að draga af þessu er í raunar sú sem maður átti að vera búinn að draga mun fyrr og er að samgönguráðherra ( valdi hreinlega ekki emb- ættinu," segir Lúðvík. Að sögn hans munu bæjaryfir- völd í Eyjum gera formlegar at- hugasemd- ir við skipun ráð- herra reyna til þrautar að fá fulltrúa frá bænum í nefndina. „Menn liljóta að sjá það að ef ríkið og bærinn verða ekki samstíga um þessar til- y lögur verður enn meiri verið hefur um þessi mál". helgi@dv.is Sturla Böðvarsson Skipaði starfshóp um samgöngur til Vest- mannaeyja án þdtt- töku bæjarins. Lúðvík Bergvinsson Bæjarfulltrúinn og þing- maðurinn er æfur vegna ákvörðunar ráðherra um að skipa ekki fulltrúa bæj- aryfirvalda I starfshópinn Bandaríkjamenn og stríðsrekstur Stefna Bush kyndir undir stríðsátökum Ófriður í heiminum jókst á síð- asta ári vegna áherslu Bandaríkja- manna á fýrirbyggjandi stríð gegn hryðjuverkum. Þetta er mat hinnar virtu alþjóðlegu friðarrannsóknar- stofnunarinnar Sipri sem starfar í Stokkhólmi. Bandaríkjamenn eru ábyrgir fyrir helmingnum af útgjöldum heimsins til hernaðarmála, samtals um 956 mifijarða dollara, sem jafngildir 70 þúsund milljörðum króna. í árbók Sipri sem kom út í vikunni kemur fram að stríðið í írak hafi ekki greitt fyrir lýðræði í arabaheiminum heldur vakið upp nýjar vfglínur fyrir hryðjuverkamenn. Þau áhrif vega þyngra en fyrirbyggjandi áhrif stríðs- ins. Sipri telur ekki útilokað að stjórn- völdum í Washington takist að byggja upp lýðræði í írak en samtök- in óttast að átökin í landinu geti leitt til borgarastyrjaldar. Sipri bendir á að aukin hemaðarútgjöld Bush- stjórnarinnar séu gagnstæð þeirri þróun sem verið hefur frá níunda áratugnum. Frá 1987 til 1998 minnk- uðu útgjöld til hemaðarmála en milli 1998 og 2001 jukust þau óverulega. Lögreglumenn þriggja embætta í stórræðum Geðveill á 200 kílómetra hraða á Reykjanesi Lögreglubílar frá þremur emb- ættum á höfuðborgarsvæðinu komu við sögu er geðveill maður á fimm- tugsaldri var stöðvaður eftir tugi kilómeúa eftirför úr Reykjavík og út á Reykjanes snemma í gærmorgun. Talið er að hann hafi ekið á allt að 200 kílómeúa hraða og hann hætti ekki þótt hjólbarðarnir tættust af felgum bflsins. Það var loksins á Strandaheiði að stöðva tókst mann- inn með því að lögreglubfl var ekið utan í bfl hans þannig að hann lenú utan vegar. Friðrik Björgvinsson, yfirlögregluþjónn í Kópavogi, segir að almenningi hafi stafað stórhætta af akstri mannsins enda mikil um- ferð á Reykjanesbrautinni á þessum úma í tengslum við flugumferðina um Leifsstöð. Það var laust fyrir kl. fimm um morguninn að lögreglan varð fyrst var við glæfraakstur mannsins við Mjóddina. Var honum súax veitt eft- irför suður Reykjanesbraut en hann Reykjanesbraut Ökumaðurinn náði alltað 200 kílómetra hraða. sinnti engum stöðvunarmerkjum Hann ók ffam úr fjölda bifreiða á leiðinni og hluúr úr bfl hans lentu á öðrum bflum á leiðinni, m.a. mun járnhringur hafa lent utan í rútu sem kom úr gagnstæðri átt. Eftir að tókst að stöðva manninn var hann fyrst fluttur á lögreglustöðina í Kópavogi og sviptur ökuleyfinu en síðan var hann fluttur á viðeigandi stofnun til meðferðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.