Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ2004 Fréttir DV Stefán Logi Myndin er tekin um svipað leyti og afbrotaferill hans hófst. Bðrðu móður Stefán Logi og Kristján Markús Sívarssynir eiga aö baki langan afbrotaferil. Fyrstu afskipti lögreglu af piltunum voru áriö 1992 en þá gengu þeir i skrokk á ungri móöur á Eiðistorgi er sú síöarnefnda reyndi aö vernda börn sin undan ein- elti drengjanna sem hrellt höfðu börn sem héldu tombólu á staönum. Þeir bræður höfðu þá stolið pen- ingum af tombólubörnun- um og hrækt á borð sem þau höfðu til afnota. Árás á ölsf ofu Árið 1997 þegarStefán Logi var 16 ára réðst hann á starfsmann Rauða Ijónsins á Eiðistorgi sem þá var að loka öl- stofunni. Stefán kýldi manninn ítrekaö og stal GSM-síma hans. Bræðurnir létu svo næst til skarar skríða á áramótabrennu á Ægissíðu áramótin þará eftir. Þá varð maðurásex- tugsaldri fyrir bræðrunum sem réðust að honum og veittu honum áverka. Innbrot&dóp Bræðurnir stunduðu inn- brot árið eftir og fengu dóma fyrir sex þeirra. Sam- kvæmt heimildum blaðsins var fíkniefnaneysla þeirra oröin grlðarlega mikil á þeim tíma og innbrotin til fjármögnunar neyslunni. ÁrásáVogi Þann 23. apríl réðust bræð- urnirsvo á mann I Hvera- geröi. Stefán Logi kýldi svo tönn úrmanni við meðferða- stöðina Vog það sama ár. Finnbogi Hermannsson deildarstjóri RÚVá Vestfjörðum „Mér finnst ekkert liggja á að skella skuldinni á fólkið á svæðisstöðvunum, þegar Textavarpið í Efstaleiti er að spara. Svo kom úrskurð- urinnfrá Hvað liggur á? boðs- ......... manni Alþingis og honum finnst Ríkisútvarpið stunda eitthvert vefjaspell. Og text- inn fráokkuráTextavarp- inu, meðan hann var og hét, var alltaf umsaminn texti ætlaður öllum lands- lýð, en ekki eins og hann kom fyrir beint afsvæð- iskúnni." Yngri Skeljagrandabróðirinn, Stefán Logi Sívarsson mætti í gær fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur þar sem ákærur fyrir þrjár alvarlegar líkamsárásir voru þingfestar á hendur honum. Stefán Logi framdi brotin á reynslulausn en alvarlegustu árásirnar þrjár framdi hann á þriggja daga tímabili í byrjun apríl. Stefán Logi sem nú er í sí- brotagæslu kvaðst saklaus og minnislaus en lýsti því yfir að hann legði ekki hend- ur á kvenfólk. Þrjáp hnottalegar líkams- árasir á revnslulausn Stefán Logi Sívarsson, annar svokallaðra Skeljagrandabræðra, kom fyrir dóm í gær vegna þriggja alvarlegra líkamsárása sem hann er ákærður fyrir að hafa framið á þriggja daga tímabili í byrjun apríl Stefán var á reynslulausn en hann hafði nýlokið við að afplána tvo þriðju tveggja ára dóms vegna hrottalegrar l£k- amsárásar sem hann og eldri bróðir hans frömdu þar sem fórn- arlamb þeirra var höfuðkúpubrotið. Ákæran gegn Stefáni er í fjórum liðum en brotin áttu sér stað meðan ákærði var á reynslulausn. Ákærða er geflð að sök að hafa þann 3. apríl síðastliðinn ráðist að 16 ára pilti á heimili Stefáns að Skeljagranda í Reykjavík og slegið hann með krepptum hnefa í andlit og maga svo hann féll í gólfið. Þá er Stefáni gefið að sök að hafa spark- að í kvið piltsins „Ég legg ekki hendur á kvenfólk." meðan hann var meðvitundarlaus með þeim afleiðingum að milta piltsins rifnaði og tönn brotnaði. Við þingfestingu málsins fyrir héraðs- dómi í gær lýsti Stefán sig saklausan af ákærunni og sagðist einungis hafa slegið fórnarlambið með flötum lófa. Aðspurður um spörk sem veitt voru fórnarlambinu sagðist Stefán ekki hafa sparkað í hann einungis „ýtt við honum“ til að athuga hvort hann væri með meðvit- und. í öðrum lið ákærunnar er Stefán Logi ákærður fyrir að hafa í félagi við Óskar Þór Gunnlaugsson ráðist á sofandi karl- mann í heimahúsi við Hverfisgötu og slegið hann marg- sinnis. Auk þess er Stefáni gefið að sök að hafa sveigt aftur fingur fórnarlambsins og bitið hann í eyra og handlegg með þeim af- leiðingum að flipi skarst af eyranu og bitsár kom á handlegg mannsins. Stefán Logi kvaðst ekki muna hvað hefði gerst á Hverfisgöt- unni umræddan dag fyrir dómi í gær. Þriðji liður ákærunn- ar er vegna lfkamsárás- ar sem ákærðu er gefin að sök sama dag og Guðjón Ólafur Jónsson í Hæstarétti árásin á Hverfisgötunni. Er þeim ákærðu, Stefáni Loga og Óskari Þór, gefið að sök að hafa ráðist á unga konu í bíl við Skólavörðustíg, marg- sinnis slegið hana og sparkað í hana svo á sá og hún tognaði á öxl. Stefán kvaðst saklaus fýrir dómi í gær af þessum ákærulið. „Ég hafna þessu,“ sagði Stefán Logi fyrir dómi í gær. „Ég legg ekki hendur á kvenfólk." Fjórði liður ákærunnar á hendur Stefáni Loga var svo ákæra fyrir brot á umferðarlögum, að hafa ökurétt- indalaus ekið bifreið um götur borg- arinnar og skemmt í leiðinni tvo bíla, sem hann játaði. Ekki reyndist hægt að þingfesta málið gegn Óskari Þór Gunnlaugs- syni, félaga Stefáns, í gær þar sem hann hefur ekki gefið sig fram. Fram kom fyrir dómi í gær að Óskar sé eft- irlýstur síðan 19. maí vegna annarra brota en sökum þess er óvíst hvenær aðalmeðferð fer frarn í málinu. Stef- án Logi er sem fyrr segir í síbrota- gæslu og bíður nú aðalmeðferðar í málinu. helgi@dv.is Móðir drengsins sem lenti í Stefáni Loga Hann bara og barði rændi hann Móðir 16 ára drengs sem varð fyrir hrottalegri árás Stefáns Loga Sívarssonar þann 3. apríl síðastlið- inn sagði í samtali við DV í apríl að sonur hennar hefði farið að heimih Stefáns til að kaupa kókaín sem hún segir að Stefán Logi hafi boðið á þeim tíma en hann var þá í mikilli fíkniefnaneyslu, nýlaus úr fangelsi. „Ég vissi bara að hann [Stefán Logi] hefði verið brunandi um allan bæ bjóðandi kókaín. Ég held að sonur minn hafi farið þangað til að spyrja hann og hann bara rændi hann og barði,“ sagði móðir drengsins en þá lá fýrir eftir að milta hans hafði sprungið eftir árás Stefáns. Árás Stefáns á unga drenginn var þó einungis byrjunin á afdrifa- ríkri helgi hans 3. - 5. apríl 2004. Stefán hafði þegar þarna var komið við sögu einungis verið utan rimla í tæpa Qóra mánuði, en hann hafði í Rændi og barði 16 ára dreng Móðir fórnarlambsins telur að sonur hennar hafi ætlað að kaupa kókaln afStefáni sem þá rændi og misþyrmdi syni hennar. nóvember í fýrra hlotið reynslu- lausn frá dómi vegna hrottafeng- innar líkamsárásar sem hann og bróðir hans höfðu hlotið í maí árið áður fyrir að höfuðkúpubrjóta jafn- aldra sinn á heimili bræðranna og gera svo tilraun til að fela hann meðvitundarlausan við göngustíg í nágrenni Skeljagranda. Níðingsdómur mildaður um 5 mánuði Nanoqmálið vanreifað „Margoft" hjálpaði perra Falleinkunn Prófmálið svo vanreifað aö því var kastað út úr dómsölum. Hæstiréttur vísaði í gær frá máh Austurbakka gegn forsvarsmönnum Nanoq-verslunarinnar, þeim Jó- hannesi Rúnari Jóhannessyni og Þor- birni Stefánssyni. Þótti það óhjá- kvæmilegt þar eð Hæstiréttur taldi skorta gögn í málinu og það vanreif- að. Um var að ræða síðara prófinál Guðjóns Ólafs Jónssonar héraðs- dómslögmanns til að öðlast réttindi fyrir Hæstarétti. Máhð var höfðað eftir að Nanoq fór í gjaldþrot. Heildverslunin Aust- urbakki höfðaði mál gegn tvímenn- ingunum, sem voru ffamkvæmda- stjóri og stjórnarformaður Nanoq, á þeim gmnni að þeir hafi vegna við- skipta vorið 2002 mátt vita um slæma stöðu fyrirtækisins og hafi því átt að óska eftir gjaldþrotaskiptum mun fyrr, sem hefði takmarkað tjón Austurbakka. Málið vannst í héraðsdómi, þar sem tvímenningamir vom dæmdir til að greiða Austurbakka tæplega 10 milljónir króna í bætur. Taldi héraðsdómur að fjárhagsstaða félagsins hafi verið með þeim hætti að forráðamönnum félagsins var löngu orðið skylt að gefa bú félagsins upp til gjaldþrotaskipta og þreifingar um sameiningu félagsins við önnur félög breyttu þar engu um. En Hæstirétt- ur taldi ekki hggja fýrir gögn um skuldbind- ingar Nanoq við aðra en stefhda á einstökum tímabilum. Hæstiréttur mildaði í gær dóm yfir barnamðingi frá Vestfjörðum vegna ónálcvæms orðalags í ákæm. Maður- inn hafði hlotið 15 mánaða fangelsis- dóm í undirrétti fýrir að hafa margoft og í nokkur ár misnotað bamunga stjúpdóttur og dóttur en Hæstiréttur taldi að ekki hefðu verið færðar nægi- legar réttlætingar fyrir því að ákæra manninn fyrir að hafa „margoft" mis- notað stúlkumar kynferðislega. Mað- urinn var ákærður fyrir að hafa mis- notað stjúpdóttur sína á tímabilinu 1997 til 2001 þegar hún var 10 til 14 ára, „margoft" káfað á kynfærum stúlkunnar. Þá var hann ákærður hvað varðar dótturina, sem þá var 12 til 13 ára, fyrir að hafa „að minnsta kosti sex skipti" farið höndum um kynfæri hennar. Hæstiréttur hafnaði orðinu „margoft“ og „sex skipti" og dæmdi aðeins eftir atvikum sem þóttu sönn- uð. Hæstiréttur tók hins vegar ekki til Fórnarlamb Orðalag varð tilþess að dóm- urinn var mildaður. Samsett mynd DV greina kröfu mannsins er laut að því að skýrslutökur yfir stúhcunum hefðu verið svo gahaðar að ekki væri unnt að leggja ffamburðinn til grundvah- ar. Maðurinn er hins vegar dæmdur th að greiða stúlkunum th samans eina miUjón króna í bætur. Þær þykja enn búa við ýmis einkenni áfaha- röskunar vegna brota ákærða. Hann neitaði sakargiftum eindregið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.