Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Page 6
6 FÖSTUDAGUR 1 /. JÚNÍ2004
Fréttir DV
Hrefnu-Konni
hrefnulaus
Konráð Eggertsson frá
ísafirði, þekktur sem
Hrefnu-Konni fyrir
hrefnuveiðar sínar,
hafði seint í gær
enn ekki náð að
veiða hrefnu. Bátur
hans, Halldór Sig-
urðsson ÍS-14, hef-
ur verið við veiðar
frá því á fimmtu-
daginn í síðustu
viku. Konráð segist ekki
vera í keppni við hina
hrefnuveiðimennina tvo
sem eru á mála hjá Haf-
rannsóknastofnun. „En
maður verður að sjá eitt-
hvað til þess að veiða, hér
er óhagstætt veður og lítið
æti í sjónum," sagði Konráð
langt norður af landinu í
gær. Þrjár hrefnur voru
veiddar í gærmorgun.
Þórhallur Hjálmar Friðjónsson stal hálfri milljón frá Morfís og skildi eftir sig
skuldahala þegar hann starfaði sem framkvæmdastjóri félagsins. Markús Már Sig-
urðsson, formaður Morfls, segir félagið eiga í miklum erfiðleikum. Annaðhvort
þurfi peningarnir að skila sér eða hann fari til lögreglunnar.
Ríkissjóður
í mínus
Samkvæmt aprílupp-
gjöri ríkissjóðs er handbært
fé frá rekstri neikvætt um
2,7 milljarða króna sem er
0,2 milljörðum lakari út-
koma en á sama
tíma í fyrra. Tekju-
jöfnuður reyndist 3
milljörðum hag-
stæðari en áætlað
var en hreyfingar á
viðskiptareikning-
um um 6,1 millj-
arði króna óhag-
stæðari. Heildar-
tekjur ríkissjóðs námu
rúmlega 91 milljarði króna
á fyrstu fjórum mánuðum
þessa árs sem er nánast
sama íjárhæð og á sama
tímabili síðasta árs. Inn-
heimta skatttekna jókst
hins vegar töluvert, eða um
14,4 prósent.
Kennaraverkfall
20. september
Kari Björnsson,
framkvæmdastjóri launanefndar
sveitarféiaga.
„Við höfum boðið grunnskóla-
kennurum hækkanir umfram
hækkanir á almennum vinnu-
markaöi. Umframhækkanir
geta haft mjög alvarlegar af-
ieiðingar á fjárhag sveitarfé-
laga og þann efnahagslega
stöðugleika og aukna kaup-
mátt sem samningarASl hafa
lagtgrunninn að.“
Hann segir / Hún segir
„Meginástæða þess að grunn-
skólakennarar eru tilneyddir
til þess að grípa til verkfalls-
vopnsins er að ekki er ennþá
búið að koma kjörum þeirra í
viöunandi horf. Hvorki með til-
liti til útborgaðra launa né
vinnutíma
Elna Katrín Jónsdóttir, varafor-
maður Kennarasambandsins.
„Hann skildi okkur eftir í þungum skuldum," segir Markús Már
Sigurðsson, formaður Morfís. Fyrir ári síðan stal þáverandi
framkvæmdastjóri Morfís, Þórhallur Hjálmar Friðjónsson, um
hálfri milljón frá félaginu. Enn hefur Þórhallur ekki borgað einn
eyri til baka og segir Markús að ef engin breyting verði á íhugi fé-
lagið málssókn.
„Hann skildi okkur eftir í
þungum skuldum," segir Markús
Már Sigurðsson, formaður Mor-
fís. Fyrir ári síðan stal þáverandi
framkvæmdastjóri Morfís, Þór-
hallur Hjálmar Friðjónsson, um
hálfri milljón frá félaginu. Enn
hefur Þórhallur ekki borgað einn
eyri til baka og segir Markús að ef
engin breyting verði á íhugi fé-
lagið málssókn.
Sorgarsaga
„Þetta hefur verið sorgarsaga.
Það hefur ekki náðst í Þórhall svo
mánuðum skiptir og hann hefur
ekki borgað neitt," segir Markús.
„Við höfum yfirlit yfir allar milli-
færslur og samtals tók hann um
490 þúsund krónur frá félaginu.
Svo skildi hann eftir sig aðrar
skuldir sem nú eru komnar í van-
skil og ég er að fá persónulegar
lögfræðihótanir út af þessu
máli."
DV hafði samband við Þórhall
Hjálmar í gær. Hann sagðist vera
að vinna í því að borga félaginu.
//
Ég var bara einn í
þessu; hefunnið að
heilmiklum félags-
málum og oft komið
nálægt peningum.
„Þetta byrjaði smátt og
smátt en svo missti ég
stjórn á þessu," segir Þór-
hallur. „Ég var bara einn í
þessu; hef unnið að heil-
miklum félagsmálum og oft
komið nálægt peningum. Nú
er ég byrjaður að vinna í
Rúmfatalagernum og ætla að
reyna að borga peningana aft-
ur.“
Aðspurður um hve miklu
hann hefði stolið sagði Þórhallur
að bragði 300.000 krónur. Seinna
um daginn hafði sú upphæð
hækkað í 380.000 og að síðustu
viðurkenndi hann að hafa
stolið 440.000 krónum.
Þegar hann var spurður af
hverju ekki hefði náðst í
hann allan þennan tíma
sagði Þórhallur: „Það er
verið að klekkja á mér og
mér finnst þetta óþarfi
og ónauðsynlegt."
óvart. „Nei, ég vissi ekki af þessu
fyrr en eftir á,“ segir Konráð.
„Þetta var algjört sjokk." Konráð
segir að eftir að Þórhallur hætti
sem framkvæmdastjóri hafi ekki
náðst í hann. „Nokkru seinna
kom svo í ljós að peningar félags-
ins væru horfnir."
Morfís félagið heldur ræðu-
keppni fyrir framhaldsskóla-
Markús Már, formaður Morfís,
segir að eftir hvarf peninganna
hafi félagið rétt náð að halda
aðra keppni. Staðan sé afar slæm
og ljóst að eitthvað þurfi að ger-
ast ef Morfís á að halda áfram að
starfa. „Við höfum gefið honum
sjens að skila peningunum," seg-
ir Markús „en nú er maður alvar-
lega farinn að íhuga kæru."
simon@dv.is
Versló sigraði síðast f Morffs Vegna
fjárdrdtts Þórhails Hjálmars er framtið
féiagsins í óvissu.
Slæm staða
Konráð Jónsson var
formaður Morfís þegar
Þórhallur var fram-
kvæmdastjóri. Hann
segir hvarf pening-
anna hafa komið sér á
Lögmaður Jóns Ásgeirs og Gaums hættir
Verjandi með réttarstöðu grunaðs
Helgi Jóhannesson hæstaréttar-
lögmaður hefur hætt sem verjandi
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í lög-
reglurannsókn
á meintum
brotum hans
gegn Baugi og
er hættur að
gæta hags-
muna eignar-
haldsfélagsins
Gaums í skatt-
rannsóknar-
málinu.
Ástæða þess er
að hann er
kominn með
réttarstöðu
grunaðs
manns í skattrannsókninni. Helgi
var stjórnarmaður og stjórnarfor-
maður í félaginu Fjárfari sem er til
Jón Ásgeir Jóhann-
esson Baugurheldur
aðalfund í dag í skugga
skatt- og lögreglurann-
sókna.
rannsóknar. Ásamt Helga hafa ver-
ið yfirheyrðir þeir Sigfús Sigfússon í
Heklu, Eiríkur Sigurðsson í 10/11
og Sævar Jónsson. Þeir stóðu að
Fjárfari en það gerði Jón Ásgeir Jó-
hannesson einnig en félagið var
notað til kaupa á hlutabréfum í
Tryggingamiðstöðinni og Straumi.
Helgi vill ekkert tjá sig um málið
að öðru leyti en því að hann sé
hættur sem verjandi Jóns Ásgeirs og
Gaums. Hann sé bundinn trúnaði
gagnvart skjólstæðingum sínum.
Sævar Jónsson segist ekki vilja tjá
sig umfram það sem hann hafi gert
við Ríkisútvarpið. Þar sagði hann að
nafn hans hafi verið notað án hans
vitneskju í tengslum við Fjárfar.
Karl Axelsson er lögmaður fyrir
Helga Jóhannesson en Einar Þór
Sverrisson gætir hagsmuna Jóns
Ásgeirs.
Eftir því sem DV kemst næst
snýst skattrannsóknin um verðmat
á fyrirtækjum og færslu bókhalds
og hvernig standa átti straum af
skattgreiðslum. Gaumur og Baugur
hafa fjárfest í hlutabréfum fyrir 32
milljarða króna frá 1998. Baugur
telur, samkvæmt heimildum að ef
skattyfirvöld ætli að enduráætla
skattgreiðslur vegna stofnunar
Baugs, verði að taka fyrningu og
reglur frá þeim tíma um frestun á
hagnaði vegna hlutabréfakaupa,
með í reikninginn. Baugur held-
ur aðalfund í dag í skugga rann-
sókna skattayfirvalda og lög-
reglu.
kgb@dv.is
Helgi Jóhannesson Yfirheyrður
með réttarstöðu grunaðs manns.