Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Síða 11
DV Fréttir
FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ2004 11
Björn velur
dómara
Bjöm Bjarnason dóms-
málaráðherra skipar nýjan
héraðsdómara við
Héraðsdóm
Reykjavíkur á
næstunni. Fimm
manns hafa sótt
um embættið, en
umsóknarfrestur
rann út 7. júní. Af
umsækjendum em
þrjár konur en tveir karl-
menn. Umsækjendur eru:
Arnfríður Einarsdóttir,
skrifstofustjóri við Héraðs-
dóm Reykjavíkur og settur
dómari, Ásgeir Magnússon
hæstaréttarlögmaður, Drífa
Pálsdóttir skrifstofustjóri,
Sigrún Guðmundsdóttir
hæstaréttarlögmaður og
Þorsteinn Pétursson hér-
aðsdómslögmaður. Björn
skipar í embættið frá og
með 1. september.
Ríkissjóður
í mínus
Samkvæmt aprflupp-
gjöri rfldssjóðs er hand-
bært fé ffá rekstri nei-
kvætt um 2,7 milljarða
króna, sem er 0,2 milljörð-
um lakari útkoma en á
sama tíma í fyrra. Áætlan-
ir gerðu ráð fyrir um 0,4
milljarða jákvæðri stöðu.
Tekjujöfnuður reyndist 3
milljörðum hagstæðari en
áætlað var en hreyflngar á
viðskiptareikningum um
6,1 milljarði króna óhag-
stæðari. Heildartekjur rfk-
issjóðs námu rúmlega 91
mÚljarði á fyrstu fjórum
mánuðum þessa árs.
Sextán ára piltur í Neskaupstað varð fyrir fólskulegri árás um helgina frá hendi
tveggja jafnaldra sinna. Var hann sleginn í götuna með glerflösku auk þess að vera
laminn ítrekað með hjólabretti. Þrettán ára bróðir hans reyndi hvað hann gat til
að hjálpa bróður sínum en átti fullt með að verja sjálfan sig.
Laminn með flösku
ng hjnlabretti
Tveir ungir piltar á 16. og 17. ári réðust að jafnaldra sínum í Nes-
kaupstað síðastliðinn föstudag, börðu hann í höfuðið með
flösku og lömdu hann síðan liggjandi með hjólabretti. Sökum
aldurs drengjanna er mál þeirra sent Barnaverndarnefnd til úr-
lausnar. Móðir drengsins sem ráðist var á segir nauðsynlegt að
tekið sé á málinu og prísar sig sæla fyrir að ekki fór verr.
„Ég var inni í sjoppunni þegar kall-
að er á mig og ég lít út og sé þegar
drengurinn er laminn með bjórflösku í
höfuðið," segirÁshildur Sigurðardóttir
en synir hennar tveir, 13 og 17 ára,
urðu fyrir árás tveggja drengja á plani
Olísskálans í miðbæ Neskaupstaðar
síðastliðið föstudagskvöld. Ashildur
hafði farið með sonum sínum í sjopp-
una og var stödd þar inni þegar kaflað
var á hana og henni sagt að sonur
hennar væri í áflogum við tvo drengi
úti á planinu. Samkvæmt frásögn vitn-
is vom málsatvik þau að synir Ashildar
stóðu utan við sjoppuna þegar bill
kom þar að og rifrildi hófst milli eldri
sonar Áshildar og hinna drengjanna. í
kjölfarið réðust tveir ungir drengir á
son hennar og slógu í höfuðið með
flösku.
„Þeir vom að rífast einn þeirra og
litli bróðir minn og þegar ég ætlaði að
skilja þá að þá sló hann mig í hnakk-
ann með glerflöskunni," segir Óli Kon-
ráðsson, sonur Áshildar. Eftir að árás-
armennimir höfðu slegið hann í höf-
uðið með flöskunni, sem brotnaði við
höggið, féll hann í götuna. „Þá slógu
þeir mig með hjólabretti og ég gat ekk-
ert varið mig þar sem ég vankaðist eft-
ir flöskuna. Bróðir minn náði þó að
verja sig en gat ekki stoppað þá," segir
Óli en hann er illa leikin eftir viðskipti
sín við árásarmennina, handleggs-
brotinn og marinn auk þess sem hann
hefur að sögn verið kvalinn í höfðinu.
„Ég verð með gifsið í mánuð
meðan ég jafiia mig," segir Óli.
Áshildur móðir Óla lagði
fram kæru gegn pfltunum en
að sögn lögreglunnar liggja
játningar í málinu fyr*r °g
telst það upplýst. „Mér finnst
liggja á að tekið sé á málum
sem þessum enda er ekki
um að ræða eitthvað tusk
mifli barna heldur alvarlega
árás og mesta mildi að ekki
fór verr," segir Áshildur Sig-
urðardóttir, móðir fórnar-
lambsins, í samtali við DV.
Árásarmennirnir tveir
em 16 og 17 ára gamlir
heimamenn í Neskaupstað
að sögn lögreglu og telst mál
þeirra upplýst. Árásarmenn-
imir em báðir sakhæfir að
sögn lögreglu en mál
þefrra verður einnig sent
bamavemdaryfirvöldum til
úrlausnar.
hetgi@dv.is
Skoðaðu bílana í smáauglýsingum DV og Fréttablaðsins.
Skoðaðu bílana á www.brimborg.is. Komdu í Brimborg Reykjavík, Akureyri.
brimborg
Öruggur stadur til ad vera á
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 6, sími 515 7000 | Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 462 2700 | Brimborg Reykjanesbæ: Njarðarbraut 3, sími 422 7500 | www.brimborg.is