Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Page 18
78 FÖSTUDAGUR 17. JÚNl2004
Sport DV
LANDSBANKA
DEILDIN
íslandsmeistarar KR sýndu loks gegn ÍA af hverju þeim er spáð góðu gengi í
sumar. Þeir börðust eins og ljón fyrir stigunum þremur og þótt ÍA hafi ráðið
ferðinni nánast allan leikinn héldu KR-ingar þeim í öruggri fjarlægð.
ógnun í sókninni og fór verulega í
taugarnar á varnarmönnum ÍA.
Skagamenn litu ekki vel út í
þessum leik. Vörnin var í miklu basli
í fyrri hálfleik. Miðjan sá aldrei til
sólar og eini maðurinn sem bjó
eitthvað til var Haraldur Ingólfsson
en félagar hans unnu illa úr sínu og
fyrir vikið voru færin af mjög
skornum skammti.
Mistök þjálfarans
Ólafur þjálfari er ekki að hjálpa
sjálfum sér mikið með því að stilla
ekki upp sínu sterkasta liði. Hann
hefur innan sinna raða tvo af bestu
miðjumönnum landsins - Grétar
Rafn Steinsson og Julian Johnsson -
en í stað þess að nýta styrkleika
þeirra ákveður hann að stilla þeim
upp í stöður þar sem hæfileikar
þeirra fá ekki að njóta sín. Það er
mikil sóun og synd fyrir ÍA.
Grétar er duglegur og leggur sig
alltaf fram en er enginn framherji -
það sjá allir sem vilja. Verra er þó að
horfa á Julian á hægri kantinum en
þar er hann týndur og tröllum gefinn
lengstum. Það er hreint með
ólíkindum að Ólafur skuli ekki spila
4-3-3 ef hann ætlar bara að spila á
einum „alvöru" framherja. I því kerfi
myndu Grétar og Julian nýtast miklu
betur í sínum stöðum og það gerðu
þeir sannarlega á meðan ÍA spilaði
það kerfi. Ef þjálfarinn ætlar að vera í
þessari tilraunastarfsemi í allt sumar
eru Skagamenn ekki liklegir til
afreka.
Það var allt annað að sjá KR-liðið
í þessum leik og þjálfarinn hafði
skýringu á því. „Það hangir alltaf
saman þetta lfkamlega og andlega.
Eftir því sem kraftur og þróttur
aukast þá fylgir andinn með. Við
vorum í óvenjumiklum vanda í
byrjun móts en þetta er að koma. Við
höfum ekki virkað sem ein heild
hingað til en við erum að vinna í
þessum málum,“ sagði Willum Þór
Þórsson, þjálfari KR.
Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA,
neitaði að gefa blaðamanni viðtal.
henry@dv.is
KR-ingar lágu nánast í vörn
gegn ÍA í 80 mínútur en þrátt
fyrir það var sigur þeirra aidrei
í mikilli hættu. KR-ingar
skoruðu mark strax á 4.
mínútu, pökkuðu svo í vörn og
var engu líkara en þeir hefðu
hengt upp skilti við markið
sem á stóð: Aðgangur
bannaður! Skagamenn áttu
engin svör við grimmum og
skipulögðum varnarleik KR-
inga og fóru tómhentir heim í
gegnum göngin.
EfÓlafur Þórðarson ætlar að vera íþessari
tilraunastarfsemi í allt sumar eru Skagamenn
ekki líklegir til afreka.
Það var allt annar bragur á KR-
liðinu í upphafi leiks en I allt sumar.
Leikmenn mættu dýrvitlausir til
leiks og pressuðu taugaveiklaða
Skagamenn stíft. Það skilaði árangri
strax á 4. mfnútu er Andri
Karvelsson braut klaufalega á Arnari
Jóni Sigurgeirssyni. Arnar Gunn-
laugsson skoraði örugglega úr
vítaspyrnunni.
í stað þess að láta kné fýlgja kviði
og ganga frá gestunum féllu KR-
ingar í þá gryfju að detta aftar á
völlinn. Þeir féÚu síðan aftar með
hverri mínútunni sem leið af
leiknum og voru nánast komnir inn í
markið þegar leik lauk.
Skagamenn stýrðu umferðinni en
voru ákaflega hugmyndasnauðir og
hægir í aðgerðum sínum. Einu
skiptin sem þeir sköpuðu einhverja
hættu komu í föstum leikatriðum og
næst komust þeir að jafna er Julian
Johnsson skallaði £ slá eftir
homspyrnu á 24. mínútu.
Skyndisóknir KR-inga í fyrri
hálfleik voru hættulegar þar sem
táningurinn Kjartan Henry Finn-
bogason gerði Reyni Leóssyni og
Hjálmi Dór Hjálmssyni lífið leitt. Úr
einni slíkri hefðu KR-ingar átt að
skora en Kristinn Hafliðason og
Arnar Gunnlaugsson vom klaufar.
KR-ingar skipulögðu varnarleik
sinn enn frekar í hálfleik, byggðu
múr í kringum vítateiginn. Sá múr
var algjörlega ókleifur fyrir
Skagamenn sem ógnuðu KR-
markinu aldrei almennilega í seinni
hálfleik. í raun sköpuðu þeir sér
ekki eitt einasta færi fýrir utan þau
sem komu úr föstum leikatriðum.
KR-ingar þurftu svo sannarlega á
þessum sigri að halda til þess að
komast á beinu brautina eftir erfiða
byijun á mótinu. Menn mættu til
leiks með réttu hugarfari og vom
tilbúnir að fórna lífi og limum til að
ná sigri. Sigurinn var kannski ekki
mjög fallegur og í raun var engin
ástæða til að bakka eins mikið og
þeir gerðu eftir markið því þeir vom
með heljartök í leiknum en það em
stigin sem telja.
Vörnin var frábær þar sem menn
stigu ekki feilspor, Ágúst og Kristinn
vom öflugir á miðjunni og
sérstaklega var Kristinn góður.
Kjartan Henry var síðan stöðug
K A R L A R LANDSBANKADEILD C/|l
Staðan:
Fylkir 5 3 2 0 7-2 11
Keflavík 5 3 1 1 7-5 10
(A 5 2 2 1 5-3 8
FH 5 2 2 1 5-4 8
KR 5 2 1 2 6-7 7
[BV 5 1 3 1 6-6 6
Grindavlk 5 1 3 1 5-6 6
Fram 5 1 2 2 7-7 5
KA 5 1 1 3 4-6 4
Víkingur 5 0 1 4 2-8 1
Markahæstir:
Grétar Hjartarson, Grindavík
Gunnar Heiðar Þorvaldsson, (BV
Atli Sveinn Þórarinsson, KA
Arnar Gunnlauqsson, KR
■
>A
Frestaður leikur úr 1. umferð Landsbankadeildar kvenna:
Valsstelpur áttu öll skot og öll horn
Valsstelpur burstuðu stöllur
sínar úr FH með átta mörkum
gegn engu á Kaplakrikavelli í
Landsbankadeild kvenna á
miðvikudag.
Leikurinn var, eins og tölurnar
gefa nokkuð sterklega til kynna, eign
Valsstelpna frá upphafi tfi enda og
hefði sigur þeirra getað orðið tals-
vert stærri. Sterk og ömgg vöm Vals,
með þær Pálu Marie Einarsdóttur og
írisi Andrésdóttur í broddi fylkingar,
er ekki árennileg og virkar öllu
traustari en vörn ÍBV en þessi tvö lið
koma líklega til með að bítast um þá
titla sem í boði em.
Strax eftir átta mínútna leik var
ljóst hvert stefndi en þá þegar
höfðu tvö Valsmörk litið dagsins
ljós. í hálfleik stóðu leikar 0-5 og
undirrituður hálfkveið eiginlega
fyrir seinni hálfleiknum því allt leit
út fýrir tveggja stafa tölu. Það fór þó
á annan veg og FH-stelpur fengu
„aðeins" á sig þrjú mörk í seinni
hálfleik.
Valshðið er afar jafnt og hvergi
veikan blett að finna. Áður hefur
verið minnst á vörnina en miðjuspil-
ið með Laufeyju Ólafsdóttur er mjög
sterkt. Þá voru fýrirgjafir liðsins afar
góðar og geti Uðið haldi áfram að
dæla svona góðum boltum inn í
teiginn verður liðið Ulstöðvanlegt.
Þá em framherjar Uðsins eldsprækir,
hreyfanlegir og afar skapandi. Síðan
er alveg vert að minnast á „fögn"
leikmanna sem setja skemmtilegan
svip á leikina.
sms@dv.is
K O N U R LANDSBANKADEILD M
Staðan:
Valur 3 3 0 0 14-1 9
ÍBV 3 2 1 0 17-2 7
Breiðabllk 3 2 0 1 6-10 6
Þór/KA/KS 3 1 1 1 4-4 4
KR 3 11 1 4-5 4
Stjarnan 3 0 2 1 3-5 2
Fjölnir 3 0 1 2 2-5 f n
FH 3 0 0 Markahæstar: 3 0-18 0
Margrét Lára Viðarsdóttir, IBV 7 |
Nína Ósk Kristinsdóttir, Val 4
glHildur Einarsdóttir, Breiöabliki 3 I
Karen Burke, IBV 3
Olga Færseth, IBV 3
KR-ÍA 1-0
5. umf. - KR-völlur -9. júnf
Dómari: GarðarÖrn Hrinriksson (5).
Áhorfendur: 2505. Gæði leiks: 2.
Gul spjöld: KR:Gunnar (16.), Kristinn
H. (67.), Sigmundur (69.), Jökull (88.).
- (A: Hjálmur (31.), Ólafur Þ. (54.),
Reynir (70.), Stefán (86.)
Rauð spjöld: Enginn.
Mörk
1 -0 Arnar Gunnlaugsson 4.
víti Arnar Jón
Leikmenn KR:
Kristján Finnbogason 4
Bjarni Þorsteinsson 4
Kristján Örn Sigurðsson 4
Gunnar Einarsson 4
Jökull Elísabetarson 3
Ágúst Gylfason 4
Kristinn Hafliðason 5
ArnarGunnlaugsson 4
(67., Kristinn Magnússon 3)
Arnar Jón Sigurgeirsson 3
Sigmundur Kristjánsson 3
Kjartan Henry Finnbogason 5
(75., Sigurður R. Eyjólfsson -)
Leikmenn ÍA:
Þórður Þórðarson 3
Andri Karvelsson 3
Gunnlaugur Jónsson 4
Reynir Leósson 2
Hjálmur Dór Hjálmsson 2
Haraldur Ingólfsson 4
Pálmi Haraldsson 2
Kári Steinn Reynisson 1
(78., Ellert Jón Björnsson -)
Julian Schantz Johnsson 1
(57., Garðar Gunnlaugsson 1)
Grétar Rafn Steinsson 2
Stefán Þórðarson 2
(86., Hjörtur J. Hjartarson -)
Tölfræðin:
Skot (á mark): 9-10 (4-5)
Varin skot: Kristján 4 - Þórður 3.
Horn:1-8 Rangstöður: 5-3
Aukaspyrnur fengnar: 16-21.
BESTUR Á VELLINUM:
Kjartan Henry Finnbogason, KR
Ókleifur múr KR-ingar mynduðu múr á
heimavelli sínum gegn lA. Hann var svo
sterkur og þéttur að leikmenn lA fundu
engar leiðir ígegnum hann. DV-mynd Valli
FH-VALUR 0-8
3. umf. - Kaplakrikavöllur -9. júni
Mörkin:
0-1 Kristín Ýr Bjarnadóttir 5.
Skalli úr markteig Dóra María
0-2 Nína Ósk Kristinsdóttir 8.
Skot úr teig Kristin Ýr
0-3 Laufey Ólafsdóttir 8.
Skot úr teig Rakel
0-4 Dóra Stefánsdóttir 8.
Skot úr teig Laufey
0-5 Kristln Ýr Bjarnadóttir 8.
Skot úr teig Laufey
0-6 Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir 8.
Skot úr markteig Laufey
0-7 Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir 8.
Skot úr markteig Kristín Ýr
0-8 Nína Ósk Kristinsdóttir 8.
Skotúrteig einlék
Boltar FH:
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir @
Boltar Vals:
Nína Ósk Kristinsdóttir
Laufey Ólafsdóttir
Kristín Ýr Bjarnadóttir
Dóra María Lárusdóttir
Rakel Logadóttir
Pála Marie Einarsdóttir
fris Andrésdóttir
Ásta Árnadóttir
Margrét Lilja Hrafnkelsdóttir
Dóra Stefánsdóttir
Tölfræðin:
Skot (á mark): 0-36 (0-19)
Varin skot: Þóra Reyn Rögnvalds-
dóttir 5 (51 mfnúta, 5 mörk á sig),
Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir 6 (39
mínútur, 3 mörk á sig) - Guðbjörg 0.
Horn: 0-11 Rangstöður: 4-9.
Aukaspyrnur fengnar: 6-11.
Valsstelpurnar höfðu ekki skorað (
fyrri hálfleik fyrir leikinn I fyrrakvöld
en skoruðu fimm mörk fyrir hlé hjá
FH-stelpunum.
BESTÁ VELLINUM:
Nfna Ósk Kristinsdóttir, Val