Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 11.06.2004, Side 23
DV Fókus FÖSTUDAGUR 7 7. JÚNÍ2004 23 *'k t; . líiisiili ; 1 Listamaourinn Vytautas Hann á að baki 15 ára klassíska menntun á sviði myndlistar.Á þeim tlma var honum gert að rækja þegnskyldu I sovéska hernum og misnotuðu yfirmenn hersins hæfileika hans með þvi að láta hann mála fyrir sig myndir. DV-mynd Stefán Ákaflega athyglisverð myndlistarsýning er nú á Næsta bar þar sem viðskiptavinir geta fylgst með þróun risastórs málverks sem snillingurinn Vytautas Narbutas er að vinna. Vytautas er hámenntaður mynd- listarmaður frá Litháen en er búsettur í Reykjavík. Hann er einkum þekktur fyrir vinnu sína í Þjóðleik- húsinu þar sem hann hefur hannað fjölda leikmynda. f f Vytantas malar a Næsta bar Betra aö pjóna með pensll en válbyssu Action painting Fastagestir Næsta bars fylgjast grannt með gangi mála en listamaðurinn Vytautas segir ferlið sem slíkt ekki skipta minna máli en hin endanlega niðurstaða. DV mun birta lesendum sínum Ijósmynd afþvi þegar verkið verður fullgert til samanburðar. „Jájá, þetta hefur vakið gríðarlega eftirtekt. Enda starir maður bara á þessa snilld. Hingað leggja myndlist- armenn leið sína, fá sér kollu eða kaffibolla og virða þetta fyrir sér,“ segir Guðmundur Ingi, vert á Næsta bar við Ingólfsstræti. Þar er nú Vytautas Narbutas að vinna verk, gríðarlega stórt málverk, og segir Guðmundur að stærðin sé jafnvel meiri sé tekið tillit til þess að hinar liggjandi fígúrur myndarinnar eru þrír metrar ef reistar eru við. „Ég hef aldrei séð neitt þessu líkt eftir ís- lenskan málara. Vinnubrögðin eru svo allt allt öðruvísi en við þekkjum. Enda er Vytautas hámenntaður í myndlisúnni og hefur búið við allt annað menntakerfi en hér þekkist." Eldhúspartí í öðru veldi Krár og barir eru víða um heim uppspretta menningar þó svo að ekki vilji allir gangast við þeirri kenningu. ísland er engin undan- tekning þar á. Guðmundur Ingi vert er velunnari hsta og hefur, aht frá því hann hóf rekstur barsins árið 1999, gengist fyrir tónleikahaldi og mynd- listarsýningum í salarkynnum brár- innar. Mánaðarlega er þar opnuð sýning. Næsú bar hefur jafnframt markað sér þá sérstöðu að vera ekki með tónhst í gangi alla jafna - nema hún sé flutt á staðnum. Margir fastakúnnar staðarinns kunna því vel að hafa ekki glymjanda í eyrun- um en geta þess í stað einbeitt sér að samræðum. „Já, manstu ekki eld- húspartíin? Maður er manns gam- an." Guðmundur Ingi segir að með þessu sé komist hjá ágreiningi um styrk og lagaval. En að hinu mikla verki og listamanninum. Kann álaginu vel „Ég legg ekki minna upp úr sjálfu ferhnu en hinni endanlegu útkomu. Að skapa þá tilfinningu að einhverju sé ólokið, síbreyúlegt og á hreyf- ingu,“ segir Vytautas, sem hóf gerð verksins 26. maí en myndin verður svo sýnd „fuhgerð" 25. júní. Sam- hliða vinnur hann að uppfærslu verksins „Svört mjólk" sem Kjartan Ragnarsson leikstýrir í Þjóðleikhús- inu. Vytautas ver nokkrum klukku- stundum daglega í að bæta við verk- ið en stekkur svo út í Þjóðleikhús. Hann segist kunna álaginu vel, stressið sem er því samfara leiði til þess að vinnubrögðin verði hvatvís, og það er efúrsóknarvert í huga Lit- háans. Vytautas kom til íslands fyrst árið 1992 í tengslum við verkefiú í Þjóð- leikhúsinu og nú er hann búsettur í Reykjavík. Hann á að baki fjölda leik- mynda og búninga í Litháen, Finn- landi og Danmörku og ekki síst hér á íslandi, einkum við Þjóðleikhúsið. Má þar nefna Við Mávinn, Don Juan, Þrjár systur, Hamlet, Draum á Jóns- messunótt, Ríkarð þriðja, Edith Piaf og svo Mýs og menn í Loftkastalan- um og Töfraflautuna í íslensku óper- unni. Einnig gerði hann búninga fyr- ir kvikmyndina Ungfrúin góða og húsið. Action painting Þetta últekna verkefni er þannig Vytautas var i sov- éska hernum í tvö ár og lenti íþví að verða einskonar hirðmálari í hernum. th komið að Guðmundur Ingi hafði boðið Vytautasi að vera með sýn- ingu hjá sér. Hins vegar féll það eig- inlega um sjálft sig, bæði vegna verkefna í leikhúsinu auk þess sem hann hefur enga vinnustofu. Þetta varð svo lendingin. Fastagestir Næsta bars geta fylgst með þróun- inni og Vytautas hefur á því orð að þeir séu siðmenntaðir vel því aldrei hafi borið á því að átt hafi verið við verkið. Á spjaldi einnar súlunnar getur að líta þessi orð: „Vytautas Narbutas, Næsti bar, 29.05.04 - 25.06.04. This action painting is a journey through process of creation, journey to the artist’s KITSCH’en." Tæknin er athyglisverð, liggur einhvers staðar milli málverks og teikningar. Þó svo að Vytautas leggi áherslu á hvatvísi og það að verkið snúist ekki síður um ferlið sem slíkt en niðurstöðuna er hann búinn að skissa flest það sem kemur á mynd- ina auk þess sem strúktúr hennar liggur fyrir í stórum dráttum. Vytaut- as segist ekki síst vera að glíma við andstæður í myndverkinu: Líf/dauða, gott/hlt, ljós/skugga, konu/karl, kristni/heiðni. Á mynd- inni, sem er ákaflega leikræn í eins konar barokksúl, getur að líta tvo risavaxna líkama, karl og konu. Virð- ist sem leggöngin séu inngangur í mikla dómkirkju og limur karlsins verður í líki kirkjuturns. Athyglisvert verður svo að fylgjast með hvert þessi leið liggur. Myndlistarmaður í þjónustu sovéska hersins Aðeins 11 ára gamah hóf Vytautas nám í listaskóla barna og var þar í fjögur ár. Þaðan lá leiðin í listaskóla og þar var hann í fimm ár. Þá fór hann í listaakademíu þar sem hann var í sex ár. Samtals gerir þetta 15 ár en á þeim ú'ma, árunum 1983 th 1985, var hann hermaður í sovéska hernum. Þetta er fýrir fah múrsins og Litháen hluú Sovétríkjanna. Aðeins ári efúr að Vytautas gekk í herinn var lögunum breytt þannig að ekki mátú herinn sehast efúr nemendum í þegnskyldu í listaakademíuna. í hernum var Vytautas sem sagt í tvö ár og lenti í því að verða eins konar hirðmálari í hernum. Yfirmenn þar misnotuðu aðstöðu sína með þeim hætú að munstra þennan menntaða myndlistarmann úl að mála fyrir sig myndir af ýmsum toga sem þeir svo notuðu th að prýða eigin híbýh. Ljóst er að Vytautas þykir þetta ffemur sví- virðhegt. Þetta var á þeim tíma þegar Sovétmenn voru með herrekstur í Afganistan og Vytautas er reyndar þeirrar skoðunar að ólflct betra hafi verið að fullnægja þegnskyldu sinni með framleiðslu málverka en að flækjast th Afganistan í herbúningi með byssu í hönd. „Betra að þjóna með pensh en vélbyssu." jakob@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.