Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Qupperneq 13
DV Fréttir
MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ2004 13
DÖMSTÓLL
KRiNGLUNNAR
Vegfarendum var rétt
mynd af Sturlu og þeir
spurðir hver þetta væri
og hvað þeim fyndist um
manninn
„Já, þetta er
Sturla Böðv-
arsson, sam-
gönguráð-
herra. Mér finnst
hann nú ekkert sérstakur
og fannst hann sérlega
aumingjalegur í Skerja-
fjarðarslysinu og atburða-
rásinni þaráeftir."
Sigurjón Einarsson
„Sturia Böðv-
arsson ráð-1
herra. Segi |
ekki orð um
hann en líst
ekkert sérstakiega
áhann.“
Gunnhildur Bjarnadóttir
„Nei, ég þekki
í hann ekki,
1 man ekki eftir
að hafa séð
hann.“
Svala
Garðarsdóttir
„Já er þetta ekkiÁ
hann þarna t
Sturla Sig- [
hvatsson,já '
eða Böðvars-
son. Ég veit voða
lítið um hann og get því lít-
iðsagt
Ragnhildur Anna
Jónsdóttir
„Kannast við
hann en veit
ekki hver hann
er."
Lilja Kristjáns-
dóttir
„Sturia Böðv-1
arsson. Ótta-
legur fáráður |
bara að mínu
mati."
Þórarinn Páll
Andrésson
„Sturia Böðvars-
l son.Hann er
j ráðherra sam-
göngumáia
held ég. Ég hef
nú litla skoðun
á honum, alveg
þokkalegur bara held ég."
Sigurður Sigurðsson
Palladómar
A næstu dögum og vikum mun DV skoða ítarlega hvern ráðherra
ríkisstjórnarinnar fyrir sig. Framundan eru nefnilega hreyfingar og margir munu
skipta um stóla. Fyrstur til að fá yfir sig palladóm DV er Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra en álitsgjafar okkar spá honum ekki langlífi.
Sturla Böðvarsson samgönguráðherra hefur þótt ansi mistækur
í ráðherratíð sinni og listi óvinsælla ákvarðana og umdeildra
mála er langur hjá þessum fyrrum bæjarstjóra í Stykkishólmi.
Samgönguráðherrann þykir standa veikum fótum í ráðuneyti
sínu og er ekki spáð pólitísku langlífi í ráðherrastóli.
Allt frá því Sturla tók við embætti
samgönguráðherra árið 1999 hefur
hann sætt gagnrýni fyrir embættis-
færslur sínar. Landssíminn og sala
hans - og þá í raun sú staðreynd að
því ferli sé ekki lokið, er af mörgum
talið vera vegna mistaka Sturlu og
skandala sem komið hafa upp í
einkavæðingarferlinu. Frægast er ef
til vill þegar Sturla gerði starfsloka-
samning við Þórarinn V. Þórarins-
son, þáverandi forstjóra Símans, sem
kostaði skattborgara 40 milljónir.
Sömu sögu er að segja af viðskiptum
þáverandi stjómarformanns Símans,
Friðriks Pálssonar, og fyrirtækis hans
Góðráða við Símann sem hlutu
harða gagnrýni. Stjórnarformaður-
inn endaði þá með því að hætta
störfum í einhvers konar málamynd-
aafsögn vegna viðskipta sem ráðgjaf-
afyrirtæki hans Góðráð stundaði við
Símann og metin vom á 5 til 7 millj-
ónir á ári í vasa stjórnarformannsins.
Friðrik hélt því fram að blessun
Sturlu hefði verið fyrir viðskiptum
Góðráða við Símann.
í ljósi mála eins og @ipbell-
málsins, þar sem erlendir
ævintýramenn í viðskiptum teymdu
forsvarsmenn Símans á
asnaeyrunum í vonlaus viðskipti í
fjarskiptum sem talin em hafa kostað
Símann allt að 500 milljónir, og
fjárdráttar aðalgjaldkerans má segja
að Góðráð Friðriks Pálssonar í skjóli
Sturlu hafi reynst Símanum og þar
með ríkissjóði dýr.
Á ferð og flugi
Skerjafjarðarslysið svokallaða
reyndist Sturlu líka erfitt og rannsókn
rannsóknamefndar flugslysa sömu-
leiðis. Öll ákvarðanataka Sturlu í því
máli þótti mjög mótuð af vöm flug-
málastjóra í málinu þar sem allt kapp
var lagt á að koma sök á flugmann
vélarinnar en gagnrýni á eftirlitsleysi
flugmálayfirvalda var varið af Sturlu.
í því máli þótti Sturla sýna fádæma
linkind gagnvart Flugmálastjórn og
Flugslysanefnd sem aðstandendum
og erlendum sérfræðingum þóttu
hafa gert mistök í rannsókn og mála-
tilbúnaði í Skerj afj arðarslysinu.
Notkun Sturlu á flugvél Flugmála-
stjórnar hlaut harða gagnrýni en
gögn um notkun Sturlu og annarra á
vélinni hurfu óvænt. Sömu sögu er
að segja þegar Sturla greip fram fyrir
hendur á lækni Flugmálastjórnar
sem hafði svipt flugmann réttindum
sem Sturla dró til baka og gagnrýnt
var. Heimildarmenn eru sammála
um að í flestum þessara mála hafi
Sturla spilað af sér eða hreinlega gert
þau mistök að taka afstöðu með
vondum málstað sumra undirmanna
sinna.
Féll fyrir Ingibjörgu
Afskipti Sturlu af atkvæðagreiðslu
Reykvíkinga um ílugvöllinn í Vatns-
mýrinni þóttu mörgum einkennileg
og til marks um pólitískan hita þess
máls milli vinstri og hægri. Flokksfé-
lagar Sturlu segja að í flugvallarkosn-
ingunni hafi hann verið settur til höf-
uðs Reykjavíkurlistanum og Ingi-
björgu Sólrúnu en hann hafi hreint
ekki valdið því og því hafi hann að
mestu haldið sig til hlés í pólitískri
umræðu eftir síðustu kosningar.
Samgönguráðherrann hefur að
sama skapi sætt gagnrýni af hendi
flokksfélaga og andstæðinga vegna
áherslu sinnar á kjördæmi sitt í fram-
kvæmdum í vegamálum. Bakland
Sturlu í kjördæmi hans og þá ekki síst
á Snæfellsnesinu er aftur á móti talið
traust. Varnarsigur sjálfstæðismanna
í Vesturkjördæmi þótti ekki síður
sætur í ljósi prófkjörs sem haldið var
í kjördæminu fyrir kosningar þar sem
Sturla þótti beita vægast sagt óhefð-
bundnum aðferðum við atkvæða-
smölun. Vilhjálmur Egilsson gagn-
rýndi Sturlu harkalega enda missti
Vilhjálmur þingsæti sitt í kjölfar próf-
kjörsins en eftir að dúsu hafði verið
/ Ijósi mála eins og @ipbell-máisins, þar sem erlendir ævintýramenn í
viðskiptum teymdu forsvarsmenn Símans á asnaeyrunum í vonlaus
viðskipti í fjarskiptum, og fjárdráttar aðalgjaldkerans, má segja að
Góðráð Friðriks Pálssonar í skjóli Sturlu hafi reynst Símanum og þar
með ríkissjóði dýr.
Álitsgjafar um Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra
Hefði betur haldið sig í Stykkishólmi
DV fékk fimm álitsgjafa til að segja skoðun sína á Sturlu Böðvars-
syni samgönguráðherra. Álitsgjafarnir voru flestir á því að Sturla
hefði ekki spilað vel úr sínu í ráðherratíð sinni en voru jafnframt
sammála um að oftar en ekki hefði Sturla lent á löppunum eftir
þær byltur sem hann hafi fengið, hvort sem það væri nú honum
t-að þakka eða öðrum.
inn í hans kjördæmi strikuðu hann
villt og galið út.“
„Hefur komist upp með mjög
margt án þess að þurfa að borga fyrir
sig.“
„..alls ekki óviðkunnanlegur og
kemur ekki illa fyrir."
„...hefúr betri hemil á skapi sínu
en margir flokksbræður hans.“
ÁLITSGJAFARNIR OKKAR
„Hann er náttúrulega alveg ómet-
anlegur sem kosningasmali og fyrir
það á hann að fá stig.“
„Landssímamálið er skandall og
hann heldur á meirihlutavaldi þar en
hefur ekki staðið sig vel."
„Ég held að hann sé kominn alltof
langt, mun lengra en hann ræður
við."
„Hefði betur haldið sig í Stykkis-
hólmi."
„Hann er frekar litlaus stjómmála-
maður hefði betur haldið sig við sveit-
arstjómarmálin."
„Ljúfur maður sem vill eflaust öll-
um vel sem einstaklingur en sem ráð-
herra ræður hann ekki við djobbið."
„Hefúr klúðrað alltof mörgum
málum, nánast öllum stóm málun-
um sem hann hefur komið nálægt."
„Veit ekkert hvað hann stendur
fyrir eða hvaða hugmyndaffæði hann
vinnur eftir."
„Sjálfstæðismenn sem kusu flokk-
stungið upp í Vilhjálm var því máli
lokið. Mörgum flokksfélögum hans
fannst hann þó ganga of langt í að
eigna sjálfum sér varnarsigur flokks-
ins í Vesturkjördæminu enda hafi
það verið fótgöngusveit undir stjóm
Einars Odds Kristjánssonar sem
reddað hafi því sem reddað varð í
kosningabaráttunni.
Fyrirgreiðslumaestroinn
Hluta þess fylgis sem Sturla hefur
sótt svo stíft undanfarin ár á hann að
þakka fyrirgreiðslupólitík sem hann
hefur rekið af miklum dugnaði fr á því
að harm kom á þing. Gott dæmi um
þetta em umdeildar breytingar á
skipuriti Vegagerðarinnar sem Sturla
kom á ásamt Vegamálastjóra. í kjöl-
far gagnrýni á skipuritið og flutning
starfa frá landsbyggðinni, lýsti svo
Sturla því yfir að þvert á móti yrðu
störf á vegum Vegagerðarinnar flutt
út á land. En viti menn, nær öll í hans
eigið kjördæmi og þá sérstaklega hið
gamla Vesturkjördæmi.
Það má ljóst vera af samtölum við
flokksbræður Sturlu sem og aðra sem
til þekkja að staða Sturlu innan
flokksins er afar veik. Fáir samherjar
hans em tilbúnir að skrifa upp á fyrir
hann í mörgum þeim málum sem
hann hefur komið að. Sturla hefur
því veikustu stöðu ráðherra síns
flokks þó stólaskipti Halldórs og Dav-
íðs hafl ekki bein áhrif á stöðu hans
líkt og ráðherra Framsóknar og því er
jafnvel spáð að næstu skipti á ráð-
herrum sjálfstæðismanna eftir 15.
september verði í ráðuneyti Sturlu.
Þessi fyrmm vinsæli bæjarstjóri hefði
því ef til vill átt að halda sig við sveit-
arstjórnarmálin, líkt og einn álits-
gjafa blaðsins orðaði það.
helgi@dv.is
Skjaldarmerkin
Einkunnarskalinn
1 skjaldarmerki- Falleinkunn,
þingsæti jafnvel ekki verðskuldað
2 skjaldarmerki - Öruggt þingsæti
en lítið að gera í stjórnarráðið
3 skjaldarmerki - Á friðarstóli í aug-
um samherja sinna en á rangri hillu
samkvæmt andstæðingum sínum.
4 skjaldarmerki - Á réttri hillu
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsmaður og fyrrum þingkona. Kristján Kristjánsson, umsjónarmað-
ur Kastljóssins. Hildur Helga Sigurðardóttir, blaðamaður. Þórhallur Gunnarsson, Islandi í dag.
S skjaldarmerki- Hinn fullkomni
ráðherra