Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Blaðsíða 19
T
DV Sport
MÁNUDAGUR21. APRÍL 2004 19
Hetjur frá Uverpool Lhetpool-teikmennimir Milan Baros og
Vladimit Smicer ikotoðv rvú srðvstu tnórk Tékka gegn Hollendingum.
Her sjða þeir íegna manti 5mken sem reyntíist vem sigurmark leiksins.
UndirEM-
smásjánni .. ...
Pavel Nedved Tékklandi, í
leik gegn Hollandi
Tölfræði Tékkans Pavels Nedved
gegn Hollandi:
Mínúturspilaðar 90
Skotin
Skot (Skot á mark) 6(3)
Skot innan teigs/úr aukasp. 3/2
Mörk skoruð/stoðsendingar 0/0
Samspiiið
Sendingar 27
Heppnaðar sendingar 19
Sendingahlutfall 70%
Fyrirgjafir 6
Heppnaðar fyrirgjafir 2
Gaf hann oftast á Poborsky 8 Fékk hann oftast frá Jankulovski 6
Baráttan
Brot 3
Fiskaðar aukaspyrnur 3
Tæklingar frá mófherjum 3J
Tæklingar á mótherja 3
Gul spjöld/rauð spjöld 0/0
Annað
Rangstöður 0
Óvænt úrslit í D-riðli Evrópumótins
Lok, lok og Ises
hjá Lettlondi
Þjóðverjar standa nú frammi
fyrir því erfiða hlutskipti að þurfa
að vinna Tékka í síðustu umferð
D-riðils á miðvikudaginn til að
eiga möguleika á því að komast í
átta liða úrslit EM í fótbolta.
Þýska liðið tapaði tveimur
dýrmætum stigum gegn Lettum
á laugardaginn þegar þeim tókst
ekki að brjóta sterka vörn
Lettana á bak aftur.
Lettar, sem höföu aldrei áður
leikið á stórmóti fyrir þetta mót,
kræktu sér í sitt fyrsta stig og geta
með sigri gegn HoUendingum á
miðvikudaginn komist upp úr
riðlinum ef Þjóðverjar vinna ekki
Tékka.
Fyrirfram var búist við því að
leikurinn yrði Þjóðverjum auð-
veldur. Þeir sóttu reyndar aUan
tímann en þau skot sem rötuðu á
markið enduðu öU í öruggum
höndum Aleksandrs Kolenko,
markvarðar Letta. Það voru þó
ekki Þjóðverjar sem fengu besta
færi fýrri hálfleiks því marka-
hrókurinn Maris Verpakovskis
brenndi af dauðafæri um miðjan
hálfleikinn.
í síðari hálfleUc pressuðu
Þjóðverjar stíft að marki Lettana
en þar var lok, lok og læs og
lokað fyrir þýska stálið. Frábær
frammistaða Letta ogAleksandrs
Starkovs, þjálfari liðsins, var að
vonum himinlifandi eftir leikinn.
„Ég er ótrúlega stoltur af
mínum mönnum. Þeir börðust
eins og ljón allan tímann og
unnu svo sannarlega fyrir þessu
stigi. Fyrir mótið bjóst enginn við
neinu af okkur en það er ljóst að
þessir drengir eru frábærir
fulltrúar þjóöar sinnar," sagði
Starkovs.
Rudi VöUer, þjálfari Þjóðverja,
var daufur í dálkinn eftir leUdnn
en vUdi ekki skamma sína menn.
„Við lögðum okkur aUa fram
en stundum gerast hlutirnir bara
ekki. Við fengum færi til að klára
leikinn en það verður ekki tekið
af lettneska liðinu að það er erfitt
viðureignar. Nú þurfum við að
einbeita okkur að leiknum gegn
Tékkum," sagði VöUer.
oskar@dv.is
Vonbrigði Oliver Kahn, markvörður
Þjóðverja, átti erfitt með að leyna
vonbrigðum sínum i leiknum gegn
Lettum á laugardaginn. Úrslitin þýða að
eini möguleiki Þjóðverja á að komast
upp úr riðlinum er að vinna Tékka nema
Hollendingar tapi fyrir Lettum. Reuters
Michael Ballack, Þýska-
landi, í leik gegn Lettlandi
Tölfræði Þjóðverjans Michael
Ballack gegn Lettlandi:
Mínútur spilaðar 90
Skotin
Skot (Skot á mark) 5(4)
Skot innan teigs/úr aukasp. 4/1
Mörk skoruð/stoðsendingar 0/0
Samspilið
Sendingar 72 |
Heppnaðar sendingar 63
Sendingahlutfall . > 88% |
Fyrirgjafir 1
Heppnaðar fyrirgjafir 1
Gaf hann oftast á Frings17 Fékk hann oftast frá Hamann 18
Baráttan
Brot 2
Fiskaðar aukaspyrnur 4
Tæklingar frá móherjum 4
Tæklingar á mótherja 1
Gul spjöld/rauð spjöld 0/0
Annað
Rangstöður 0
Tölfræðin:
5 Skot 22
3 Skot á mark 9
9 Varin skot markvarða 3
3 Skot innan teigs 11
4 Horn 7
20 Aukaspyrnur fengnar 25
1 Rangstöður 3
2 Gul spjöld 3
0 Rauð spjötd 0
35% Bolti innan liðs 65%
MAÐUR LEIKSINS:
Michael Ballack, Þýskalandi
STAÐAN í D-RIÐLiNUM
€uro2oo4
PORTUGAL
Úrslitin:
Lettland-Þýskaland 0-0
Holland-Tékkland 2-3
Staðan: Tékkland 2 2 0 0 5-3 6
Þýskaland 2 0 2 0 1-1 2
Holland 2 0 1 1 3-4 1
Lettland 2 0 1 1 1-2 1
Leikir sem eru eftir: Holland-Lettland 23. júní 18.45
Þýskaland-Tékkland 23. júní 18.45