Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 21.06.2004, Blaðsíða 32
r* / t C CJjj C 0 ÍJ Við tökum við fréttaskotum allan sólarhrínginn. Fyrir hvert fréttaskot sem birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið íhverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar ^nafnleyndarergætt. r-j r-j 550 5000 SKAFTAHLÍÐ 24, 10$ REYKJAVÍK[STOFNAÐ 1910 ] SÍMIS50S000 • Þegar rætt hefur verið um hugsanlegan eftirmann Stefáns Baldurssonar í embætti þjóðleikhússtjóra hefur nafn Davíðs Oddssonar skotið upp kollinum og töldu sumir að svo virðingarfull stjórnun- arstaða í menningar- fyrirtæki gæti orðið kjörin út- gönguleið fyrir Davíð úr pólitík. Fáir tóku þó hugmyndina hátíð- lega í raun, en nú - eftir því sem bæði 15. september og leikhús- stjóraskipti í Þjóðleikhúsinu færast nær - kemur í ljós að hugmyndin viU ekki deyja, og vex henni raunar ásmegin eftir því sem tímar líða. Mjög er að vísu mismunandi hvort mönn- um þykir hugmyndin góð eða slæm, en hitt segja menn í gamni að þá þurfi Rúnar Freyr Gíslason vart að kvíða hlut- verkaþurrð á næstunni... Er brennivínið ekki orðið ódýrara en bensín? 3 tdoái Bjór í bensínstöö Brennivíns- kongurinn á Klaustni heitir AA Áfengisútsala verður opnuð á Kirkjubæjarklaustri innan tíðar. Um leið verða tímamót í sögu byggðarlagsins því áður hafa íbú- ar þurft að panta áfengi í póst- kröfu. Áfengið á Klaustri verður selt í Esso-skálanum sem rekinn er af Margréti Sigurbjörnsdóttur og eiginmanni hennar Alexander Alexanderssyni lögreglumanni. Að auki reka þau hjón veitinga- staðinn Systrakaffi á staðnum þar sem einnig er selt áfengi og er því ekki öðrum söluaðilum til að dreifa á svæðinu. Fyrir bragðið hefur Alexander Alexandersson hlotið nafnið brennivínskóngur- inn af sveitungum sfnum; skammstafað AA. „Ég er ekki á launum hjá þess- um fyrirtækjum því konan mín sér alfarið um þann rekstur. Sjálf- ur drekk ég lítið, kannski einu sinni á ári og er alls enginn AA- maður,“ segir Alexander Alexand- ersson og frábiður sér nafngiftina. Stefnt er að því að opna áfeng- isútsöluna í Esso-skálanum síðar í þessum mánuði með tilheyrandi breytingum á högum heima- manna. Systrakaffi er hins vegar rekið af krafti og mikið að gera yfir sumartímann þegar ferðamenn streyma að en Kirkjubæjarklaust- ur er sem kunnugt er ein mesta náttúruperla Suðurlands og þó víða væri leitað. „Áður var ég lögreglumaður í Reykjavík en við hjónin höfum búið hér í sjö ár. Hér er gott að vera og gott fólk,“ segir Alexander. Kirkjubæjarklaustur Bráðum fyllist Esso-skálinn á Klaustri afbjór, vínflöskum og sterkari drykkjum. Kistulagning íbeinni „Við emm með mynda- tökuvél til að sýna innan- húss í sjónvarpi messur úr kapellunni, enda ekki allt fótafært fólkið hjá okkur. Og það er rétt, vegna sérstakra aðstæðna og óska sýndum við kistulagningu," segir Margrétt Ýrr Sigurgeirsdótt- ir, settur hjúkrunarforstjóri á Lundi, dvalarheimili aldr- aðra á Hellu. Um 30 aldraðir dvelja að jafnaði á Lundi og kveðjuat- hafnir fara fram stöku sinnum, eins og gengur og gefur að skilja, í nýlegri kappellu í kjallara dvalarheimihsins. Með hjálp Lionsmanna gefst því heimilisfólki sem erfitt á með gang að fylgjast með messunum í innanhúss- A Séra Sigurður Presturinn I Odda þjónar dvalarheimilinu Lundi. sjónvarpskerfi dvalarheimil- isins. Og með kistulagningu í beinni í eitt skiptið. „Það er ekki ætlunin að sýna kistu- lagningar reglulega. Kapellan er ekki stór og heimilismaður sem dó átti stóra fjölskyldu. Heimilisfólkið vildi síður taka upp plássið í kapellunni og varð að ráði að sýna fr á henni í innanhússkerfinu,“ segir Margrét og DV tekur undir að þetta sé góð þjónusta, þótt all ■ sérstætt sjónvarpsefni sé. Það er sóknarpresturinn í _ Odda, séra Sigurður Jónsson, sem þjónustar vistmenn að Lundi. Hann þykir fjallmyndarlegur og fara vel í sjónvarpi og segja gárungamir á Lundi að aðeins vanti Gísla Martein til að gera sjónvarpsefnið frá messunum enn betra en EM í fótbolta. Björn kyssti hest Bjöm Bjamason dómsmálaráð- herra átti í núningi við hestamann á Hótel Valhöll á Þingvöllum á laugar- daginn fýrir rúmri viku þar sem hestamenn blönduðust hópi 40 ára útskriftarnema úr MR sem þar voru að fagna. Ráðherrann hafði athuga- semdir við að togarajaxl með hestinn Grána í taumi vildi fara inn á barinn. Ætlunin var að Gráni fengi salat á barnum en Björn ráðherra var fastur fýrir og meinaði manni og hesti inn- göngu. Lét ráðherrann falla athuga- semdir um hestinn sem togarajaxlin- um fundust óviðeigandi. Bauð hann sjálfan sig og hestinn fram til að ganga í væntanlegan her Björns og benti ráðherranum á að Gráni væri eðalhestur sem meðal annars hefði jafnað íslandsmet. „Hann vildi okkur ekki í herinn," segir togarajaxlinn, 1 ♦ sem er tröll að burðum. Hann krafðist þess að Björn bæði sig og hestinn af- sökunar á athugasemdunum. Varð það til þess að dómsmálaráðherra féllst á að smella kossi á flipa Grána í afsökunarskyni. Miklar hviksögur hafa sprottið vegna málsins og því er haldið fram að ráðherrann hafl verið neyddur til að kyssa hestinn og einnig því að tröllvaxni hestamaðurinn hafl stigið vangadans með ráðherrann í fang- inu. Togarajaxlinn segir þetta aflt orð- um aukið. „Ráðherrann kyssti Grána sjálfviljugur og við skild- um sáttir. Enginn var kærður vegna þessa," segir togarajaxlinn sem um ræðir. Hann óskaði eftir nafn- leynd til að forðast óþæg- indi vegna málsins. ' 0T

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.