Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 16
I 16 MÁNUDAGUR 19.JÚLÍ2004 Fréttir DV DV Fréttir MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ2004 17 Rautt kjöt óhollt konum Líkurnar á að konur fái sýkingu í legslímhúð auk- ast verulega ef þær borða rautt kjöt á hverjum degi. Þetta kemur fram í nýrri ítalskri rannsókn. Þátttak- endur í rannsókninni voru 500 konur er höfðu fengið sýkingu í legslímhúð og aðr- ar 500 er höfðu enga sýkingu fengið. Konurn- ar voru spurð- ar um matar- æði síðastlið- ið ár, hversu oft þær borð- uðu kjöt, mjólkuraf- urðir, ávexti og grænmeti í hverri viku, og hversu mikið af áfengi og kaffi þær létu ofan í sig. Þykir rannsóknin staðfesta að hollt mataræði minnki líkur á sýkingu í legslím- húðinni um allt að 3 til 4%, sem jafngildir því að 800 þúsund færri konur í Evr- ópu fengju sýkingu af þessu tagi. Fjörfiskur er hættulaus Það er lítið sem ekk- ert hægt að gera við fjörfisk - nema kannski að leggja kaldan bakstur á augað. Fjörfiskur er óþægilegur eins og þeir vita sem hafa fengið hann enda ekki þægilegt þegar augnlokið kippist til ósjálfrátt, aftur og aft- ur. Talið er að þreyta og streita kunni að valda fjörfiski en fyrirbærið er hættulaust og stendur oftast ekki yfir nema í dagspart. Ef um lang- varandi fjörfisk er að ræða er ráð að panta tíma hjá lækni. • Vísindamenn hafa löngum hamrað á því að rauðvín og grænt te séu heilsusamlegir drykkir. Nú hefur granateplasafi bæst í hópinn en hann er talinn hafa fyrirbyggj- andi áhrif gegn hjartasjúkdóm- um. Safinn dregur úr skemmdum vegna of hás kólesteróls og dregur úr háum blóðþrýstingi. SÖjfí • LL-línan frá Önnumarie Börlind fæst i Heilsuhús- inu og þykir virka vel á þurra húð. Snyrtivörurnar ] eru unnar úr jurtum og hafa þann kost að veita húðinni raka og að vernda hana gegn út- ijólubláum geislum. Heilsuhúsið selur þessar snyrtivör- ur • Burt með verkina nefnist hand- bók sem fjallar um náttúrulegar i 8$ I sleiðir til að : losna við verk- | i. í bókinni er ilýst ýmsum náttúrulegum Júrræðum |gegn verkjum I og sársauka * og einnig eru töflur yfir mis- munandi verki og leiðir til að draga úr þeim. Bókin fæst á veftil- boði á edda.is og kostar 2.542 krónur. • Á alþjóðlegri ráðstefnu um AIDS, í Bangkok fyrir stuttu, var því spáð að eftir aðeins fimm ár verði komið fram krem, tO að bera á kyn- færi kvenna, sem muni hindra smit á HlV-veirunni. Talið er að 75% þeirra sem eru smitaðir í hinum vestræna heimi séu karlar, en í Afr- íku eru 57% smitaðra konur. Tannkrem virkar á flugnabit Tannkrem gegn flugnabiti virkar. Það er að minnsta kosti reynsla Guðrúnar Þorgeii sdóttur sem hefur barist við flugna- bit á hverju sumri með viðeigandi kláða og óþægindum. Guðrún hafði samband við DV og vildi deila reynslu sinni með lesendum. „Ég hef prófað öll möguleg smyrsl og krem en ekkert hefur dugað. Svo var mér bent á að prófa tannkrem og virknin er með ólíkindum," segir Guðrún. Hún hefur gert tilraun með tvö bit á líkamanum. Annað bitið hefur fengið „tannkremsmeðferð" en hitt hefð- bundna meðferð.Tannkremsbitið er með smároða eftir viku en kláðinn hefur ekki gert vart við sig. Hitt bitið er langt frá þvi að hverfa. Hún segist bera tannkrem á bitblettinn á nokkurra stunda fresti fyrstu dagana og síðan eftir hentugleikum. DV hvetur fólk til að senda inn hugmyndir á netfangið heilsa@dv.is og kaerilaeknir@dv.is ef fólk vill beina spurningum til Katrínar Fjeldsted. Heilsusíðan birtist í DV á mánudögum. Grænmeti bjargar mannslífum Lítil neysla grænmetis og ávaxta er talin meðal sjö helstu áhættuþátta ótíma-\ bærra dauðsfalla í Evrópu. Þetta kemur fram I nýlegri skýrslu Alþjóða- heilbrigðisstofnunarinnar. Talið er að hægt sé að bjarga lífi 2,7 milljóna manna á ári hverju með því einu að ýta undir aukna neyslu grænmetis og ávaxta. Auki menn neyslu þess- ara fæðutegunda getur það komið í stað fæðutegunda sem innihalda mettaða fitu, sykur eða salt. Hægt er að nálgast skýrslu um þetta efni á heimasíðu Lýðheilsustöðvar. Sjórinn ng seltan hnfn góö áhrif Sjósund hefur alla tíö verið stundað. Grettir Ásmundarson og fleiri stunduðu löng sund, og hafa hetjusund síðan verið kunn. Markmið Sjósundfélags íslands er að vekja áhuga fólks á sjósundi og vekja til vitundar um gildi sjósunds fyrir heilsuna og alla líðan. „Við köllum okkur þessu stóra nafni vegna þess að markmiðið okk- ar er að ná til allra á íslandi sem eru að stunda sjósund," segir Benedikt S. Lafleur, listamaður og formaður Sjósundfélags íslands. „Það sem er kannski ánægjulegast í þessu er að menn eru farnir að synda sér til heilsubótar. Menn hafa fundið það að sjórinn og seltan í sjónum hefur góð áhrif á líkamann. Kuldinn ekki óbærilegur, það hefur aðeins hitnað í sjónum að undanförnu, um 1 - 2 gráður síðastliðin ár. Sjórinn hreyfir þannig við líkamanum, það er að segja við verðum fyrir léttu áfalli þegar við förum í sjóinn í fyrsta sinn. Þetta er til þess fallið að vekja upp ónæmiskerfið og reyna á það, en Jákvætt hugarfar og aukakílóin hverfa • Nýjasta megrunaræðið er svokallaður„heilakúr“ en hann felst í hugarfarsbreytingu I bland við rétt mataræði og llkams- rækt. Kúrinn skiptist þannig að 20% tilheyra líkamanum - það er að borða minna eða hreyfa sig meira - og 80% snúa að heilastarfseminni. „Efhugurinn veit hvað lík- aminn vill þá er miklu auðveldara að grenna sig," segir Dave Lea, einkaþjálfari og aðdáandi kúrsins, en meðal viðskiptavina hans eru AshleyJudd, Jennifer Love Hewitt og Ben Affleck. Lífsreglurnar í kúrnum eru nokkrar: Til dæmis að hafa það hugfast að aukakllóin hverfa ekki nema þú brennir fleiri hitaeiningum en þú innbyrðir. Fólk á að gleyma kúrunum sem klikkuðu og alltafað borða hægt og rólega. Þá verður að passa að gefa heilanum rétta fæðu með þvi að sleppa sykrinum og auka próteinn- eysluna. Þegar öllu er á botninn hvolft virðist kúrinn t minna á marga aðra kúra sem eru I gangi; svosem : Atkins og South Beach, en auðvitað er ekki verra ef hugarástandið er líka Igóðu lagi. j I „Sjósund styrkir ónæmiskerfið og kæl- ir líffærin eins og lifr- ina, sem veitir ekki af þegar við erum svo full afframkvæmda- semi/' ekki of mikið.“ Að sögn Benedikts fer ónæmiskerfið við þetta í gang og ver líkamann fyrir ýmsum kvillum. Góð áhrif á andlega líðan „Sjósund styrkir ónæmiskerfið og kælir líffærin eins og lifrina, sem veitir ekki af þegar við erum svo full af framkvæmdasemi, og viljum gera hitt og þetta, þá hitnar lifrin. Þetta kælir lifrina," segir Benedikt. út, við getum synt inn eftir vogin- um. Hættan er í raun engin og ef við syndum löng sund, þreksund yfir fjörð, þá förum við með björg- unarbát með okkur." „Allir sem hafa prófað þetta venjast kuldanum. Menn taka þetta í áföngum, það er misjafnt hvað menn þola í fyrstu og eru til- búnir að láta yfir sig ganga,“ bætir Benedikt við. „Það er engin áhætta og við setjum okkur í sambandi við siglingaklúbba ef þeir eru á svæð- inu þar sem við ætlum að synda, og höfum I för með okkur björgunar- sveitir. Lögreglan sjálf hefur synt. Það er siður hjá lögreglunni að synda alltaf á nýársdag. Hún gerir þetta og sýnir ákveðið fordæmi." Ætlum að skrá helstu þreksund Blaðamað- ur spyr hvað hópurinn er stór. „Þetta kannski 15 - 30 manns. Það eru ör- ugglega fleiri sem eru að stunda sjó- sundið. Við erum með heimasíðu á slóðinni sjosundfelagislands.com og eru þar öryggispunktar sem menn geta farið eftir. Á þessari heimasíðu ætlum við að skrá sjósundferðir sem hafa verið farnar. Eins og þegar Kristinn Magnússon synti frá Vest- mannaeyjum, og önnur söguleg sund, eins og Guðlaugssundið. Guð- laugur bjargaði sér í lífsháska og synti 5-6 kílómetra, til Vestmanna- eyja. Síðan hafa menn verið að synda. Menn hafa synt svona löng sund, bjargsund, og svo hafa menn synt þreksund sér til ánægju. Eins og frá Drangey, það er líka þekkt,“ segir Benedikt að lokum. Hvít\ Hópurinn syndir á þriðjudögum og föstudögum kl. 17:15, og er gott að hafa með sér 2 handklæði og sandala. Aðgangur í heitan pott og búningsaðstöðu kostar 200 kr. hrís- \ ^ . Nánari upplýsingar í síma 659 grjón, \ N. 3313. fínt \ brauð, \ guttesen@dv.is kartöflur, \ pasta, sæt- \ indi „Menn sem hafa verið með astma finna að sundið styrkir ónæmis- kerfið og heldur sjúkdómnum í skefjum. Ég hugsa að sjósund hafi góð áhrif á andlega líðan. Það hefur góð áhrif á mann að, Hnykkingar halda mér gangandi „Bakhnykkingar eru mjög góðar," segir Þórir Jens Ástvaldsson, rafvirki og meðeigandi Rafgjafans. Hann fer reglulega til hnykklæknis. „Ég fékk í bakið fýrir mörgum árum og leitaði læknis. Hann sendi mig til sjúkraþjálfara sem klappaði eitthvað á bakið á mér. Mér fannst það ekki gera neitt gagn og að það væri verið að hafa af mér peninga," segir Þórir og hlær. „Ég greip í framhaldinu til ýmissa örþrifaráða, byijaði að synda á fullu og fór í nudd. það virkaði hins vegar ekkert og á endanum var mér bent á að fara til hnykklæknis. Röntgenmynd leiddi í ljós að bakið var í miklu ólagi. Hnykklæknirinn byijaði að hnykkja mig.“ Þórir Jens hefúr látið hnykkja sig reglubundið í áratug og segist þurfa að fara þrisvar til fjórum sinnum á ári. „Það er engin spuming að hnykkingamar halda mér gangandi," segir Þórir Jens Ást- valdsson. finna að maður verður eitt með náttúruöflunum. Sjórinn er kannski eitthvað, sérstaklega fyrir utan ís- land, sem manni finnst ógnvæn- legt." Benedikt segir það vera þægi- lega tilfinningu að vera sáttur við sjóinn. „Maður veit ekkert hvað er í sjónum, en með tímanum lærir maður á sjóinn," bætir hann við. Aðspurður hvenær hann hafi byrj- að svarar Benedikt: „Ég byrjaði í fyrra og er búinn að vera í eitt ár. Ég fer tvisvar í viku. Við hvetjum fólk til að sýna varfærni, sem er að byrja í fyrsta sinn, og fara með reyndara Tékklistinn j/ Bílveiki getur verið afskaplega hvim- leið eins og þeir vita sem hafa kynnst henni. Bílveiki erí raun ein tegund ferðaveiki sem fólk finnur fyrir þegar það ferðast í bifreið, flugvél, á skipi eða í lest. Á Vísindavef Háskólans eru gefin nokkurgóð ráð um hvernig sporna megi við óþægindum afþessum orsök- um. Efþú ert i bíl gættu þess að horfa ekki á hluti sem þeysa framhjá. Hafðu augun á sjóndeildarhringnum og sittu í framsætinu. %/ Fáðu sæti í miðju farþegarými flug- vélar. l/ Ekki snúa aftur í lest eða skipi. / Vindrykkja er aldrei til bóta þegar ferðaveiki erannars vegar. / Boröaðu ekki þungan mat rétt fyrir brottför. / Engifer getur dregið úráhrifum ferðaveiki. Hægt er að kaupa engifer- , töflur eöa bryðja bara ferska engiferrót. / Piparmyntute hefur löngum verið talið stemmandi fyrir ferð á vegum, sjó og í lofti. / Tvær teg- undirlyfja eru seldarán lyf- seðils. Annars vegar lyfið Kofflnátln og hins vegar Postafen. Það fyrrnefnda þarfað taka hálftíma fyrir brottför og virknin varirí fjórar til sex stundir. / Hitt lyfíð kallast Postafen og þarfað taka einni til tveimur stundum fyrir brottför - síðan á 12 tíma fresti efþörf krefur. / Ef ferðaveikin er á alvarlegu stigi borgarsig að panta tima hjá heimilis- lækninum. fólki. Svo þegar maður er vanur og reyndur þá veit maður hvar maður á að fara." Engin áhætta Um öryggisráðstafanir seg- ir Benedikt: „Við kunnum öll björgunarsund, erum ágætt sundfólk. Við synd- um í Nauthólsvíkinni og kosturinn þar er að í fjöru þá getum við fótað okkur á ströndinni. Við þurfum ekki að fara svo langt Hreyfing settí fæðupíramídann Þessi fæðupíramídi er ættaður frá Harvard háskóla og var settur saman fyrir þremur árum. Píramfdar af þessu tagi taka stöðugt breytingum og nú hefur Bandarfkjastjórn boðað nýjan píramfda á næstu dögum. Ekki er ólfklegt að hann verði í svipuðum dúr en þessi píramídi er sér- stakur fyrir þær sakir að hreyfing og eft- irlit með þyngdinni er komið inn. Heil- kornafæða er afskaplega mikilvæg sam- kvæmt píramfdanum og sama gildir um ýmsar ómettaðar jurtaolíur. Ávextir og grænmeti koma næst sem mikilvægasta fæðan og einnig hnetur. Þá má sjá að rautt kjöt situr á toppnum ásamt smjöri og er ráðlegt að reyna að skipta þessum fæðuteg- undum út fyrir til dæmis fisk, fuglakjöt og ólífuolíu. Svo er hvftt hveiti, pasta, fínt brauð, kartöflur og hrísgrjón efst í píramíd- anum sem merkir að þessar fæðutegundir ber að borðaíhófi. FISKBUÐIN HAFBERG GNOÐARVOGI 44 - S. 588 8686 Ferskir og safaríkir fiskréttir tilbúnnir __________i ofninn og á grillið._________ Stór humar frá Hornafírði. Ferskleiki og fagmennska i fyrirrúmi. Veíkomin Halldóra spyr: „Kæri læknir. Égá tvö böm oghef, eins og sennilega Oestir, baristmeö þeim viö eymabólgumar, bronkítis og allt þetta sem þau gleypa í sig á leikskólunum. Strákamir hafa veriö hjá tveimurlækn- um, annarbeitir penisillíni óspart, hinn er algjörlega á móti þvi og ávísar þvf ekki. Iivað býr þarna að baki? Ég hef einhvers staöar heyrt aö of mik- il penisillínnotkun dragi smám saman úr áluifum þess, einhverjar bakt- eríurkurmiaö verjast því. Þú svaraöir bréfi um heilahimnubólgu bama íDVísföustu viku, hvað er t.d. hægt að gefa barni með heilahimnubólgu ef þaö hefur fengið pensilín of oft?" Of mikil og óþörf sýkla lyfjanotkun er skaðleg Þakka þér kærlega fyrir bréfið. Það kemur mér á óvart að þú skulir ekki leita á einn stað með bæði bömin heldur hafir þau hjá tveimur lækn- um. Ég hefði talið farsælast að halda sig við einn og sama lækni og fýrir þeirri skoðun em margar ástæður. Því fylgir án efa minni fyrirh- öfn, betri nýting á tíma þínum og læknanna og þar með minni kostn- aður fýrir þig. Það er öryggi fyrir barnið að þekkja lækninn sinn og tre- ysta honum og mikilvægt fyrir lækni að þekkja bamið. Sé svo er ívið lík- legra að hægt sé að bíða með lyfja- gjöf heldur en ef læknir þekkir ekki sjúkling eða gerir ekki ráð fýrir að geta fylgt honum eftir. En gott og vel, þú hefur þinn háttinn á. Það getur verið fróðlegt að h'ta til baka og velta fyrir sér hvor þessara tveggja lækna, sá sem notar mikið af sýklalyfjum eða hinn sem forðast þau eins og hægt er, hefur náð betri árangri frá þinum sjónarhóh. Mér segir svo hugur að sá drengur sem h'tið fær af sýklalyfjum sé allt eins fljótur og hinn að ná sér af algengustu umgangspestum, sérsta- klega ef þeir em báðir heilbrigð böm. Meta þarf samt hvert tilvik fyrir sig svo það er erfitt að alhæfa. Rétt er að hafa í huga að ýmsar sýkingar sem herja á böm geta farið í manngreinarálit. Bakteríusýkingar em heldur líklegri hjá minnstu böm- unum, segjum innan við eins árs, og hjá þeim getur verið meiri þörf á sý- klalyfjum heldur en hjá eldri börn- um. í þeirra tilviki em oftar veimr á ferðinni en eins og þú veist hafa pen- isilh'n og önnur sýkialyf engin áhrif á þær. Ég hef oft leitt hugann að því og alloft rætt um það við unga foreldra hve útsett börn verða fyrir sýkingum með því að vera tímunum saman hvem virkan dag innan um önnur böm, einkum þegar það er haft í huga að ónæmiskerfi lítilla bama ræður ekki vel við umgangspestir og stundum finnst manni bara ein sýk- ing taka við af annarri. í stöku tilfell- Katrín Fjeldsted svarar spurningu um penisillíngjöf fyrir börn. Heimilislæknirinn um getur þurft að hafa barnið heima um hríð og í sjálfu sér er auðveldara að vera heima með frískt barn en að þurfa sífellt að taka frí úr vinnu tíl að sitja yfir veiku bami. Hraðinn í þjóðfélaginu er ekki vinsamlegur bömum og foreldrar ætlast til þess að komast aftur út á vinnumarkaðinn sem fyrst þótt lang- þráð barn hafi komið í heiminn. Auð- vitað vill fólk sjá fýrir sér, halda í vinnuna og standa sig vel en það hentar ekki endilega baminu. Þótt fæðingarorlofsmál séu nú í miklu betri farvegi en fýrir örfáum árum þá finnst mér að enn betur megi gera. Eins árs bami h'ður best hjá foreldr- um sínum og hefur takmarkað gagn af því að vera á leikskóla, ólíkt því sem segja má um eldri böm, t.d. upp úr tveggja og hálfs eða þriggja ára aldri en þá er næsta víst að barnið hafi gagn og gaman af því að um- gangast önnur börn. Hitt sem þú nefnir, að dregið geti úr áhrifum sýklalyfja við ofnotkun þeirra, lýsir sér aðallega í því að fram á sjónarsviðið koma bakteríustofnar sem sýklalyf verka illa eða ekki á, svo- kallaðir fjölónæmir sýklar. Sýkingar af þeirra völdum geta orðið erfiðar við að eiga svo máhð er ekki léttvægt en víða um lönd em slíkar sýkingar vaxandi vandamál. Of mikil og óþörf sýklalyfjanotkun í þjóðfélaginu er skaðleg í mörgu tilliti. Miklu skiptir að greina veikindi sem fyrst og æski- legt að sami læknir fylgi málum eftir svo hægt sé að grípa inn í sé þess þörf. Best hlýtur að vera að grípa ein- ungis til sýklalyfja þegar það er óhjá- kvæmilegt og velja þá jafnan einföld- ustu lyf sem hægt er að komast af með. Hvernig er best að losna við Margrét Valdimarsdóttir lyfjataeknir Mælir með B-vítamíni fyrir | og eftir dfengisneyslu. Flestir sem einhvern tíma hafa smakkað vín þekkja tim- burmennina sem fylgja harka- legri áfengisneyslu. Margrét Valdimarsdóttir, lyfjatæknir hjá Lyfju á Smáratorgi, segir ýmislegt til ráða. „Það albesta er B-vítamín og gott að taka það áður en farið er út að skemmta sér og svo aftur fyrir svefninn. Þetta er ein falt og virkar vel á marga," segir Margrét. „Við erum meö eitt timburmannalyf sem hefur veriö vinsælt síðustu árin. Lyfið heitir Treo og þetta eru töflur sem leystar eru upp i vatni. Kosturinn við Treo er að það virkar fljótar en verkjatö- flur, svo sem Panódil og Parkódin. Treo er ekki ósvipað Alka Seltz- er sem fæst ekki hér á landi en margir þekkja. Lyfið inniheldur B- vítamín og koffín meðal annars." Annars er nýjasta húsráðið í þessum efnum ættað frá Bandarí- kjunum en þar hafa menn komist að þvi að fikjusafi dregur mjög úr timburmönnum. Safinn er unninn úr fikjukaktus en hann inni- heldur efni sem draga úr virkni vínanda í likamanum. timburmennina? i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.