Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR I 9. JÚLÍ2004 Fréttir DV k r — i Vandræði á vegarkafla Tíu umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar í Hafnarfirði í síðustu viku, þar af fjögur á nýjum vegar- kafla Reykjanesbrautar frá Lækjargötu og að kirkju- garðinum í Hafnarfirði. Eru ökumenn hvattir til að gæta sérstaklega að sér á þeim vegarkafla sem margir eru að aka í fyrsta sinn og eru því óöruggir. Sagði mann sinn látinn Rússneskur leigubflstjóri gat ekki endumýjað vegabréf sitt þar sem blind fyrr- verandi eiginkona hans hafði borið kennsl á „lflc“ hans í kjölfar sprengingar f neðanjarðarlest þar sem 40 fórust. Maðurinn segir málið eins og brandara, enda sé konan blind og hann ferðist aldrei með jarðlest. Eignarhald á fárra höndum f mörgum tiMkum er eignahald á félögum í Kaup- höll íslands á fárra höndum, að því er kemur fram hjá Greiningu íslandsbanka. Fimm stærstu hluthafar 25 stærstu félaganna eiga allt frá 35% til 96% hlutafjár. Mesta samþjöpp- unin er hjá SH en þar eiga fimm stærstu hluthafar 96% hlutafjár. Fyrirtækið uppfyliir ekki skráningar- skilyrði Kauphallarinnar eins og stendur. Fimm stærstu hluthafar eru einnig fyrirferðarmiklir hjá Kald- baki (83%), Flugleiðum (81%), TM (77%) ogjarð- borunum (69%). bæjarstjóri Hveragerðis „Okkur Hvergeröingum fer sl- fellt fjölgandi. Við erum aö njóta fráhrindikrafta höfuö- borgarsvæðisins sem er orðiö svo stórt og þétt að fólk er fariö að leita út fyrir þaö í sí- auknum mæli. Fólk er að koma sér fyrir hérna og vinna í Reykjavfk. Hér er mikil veður- sæld og mjög fallegt. Maður er, samkvæmt mínum mæl- ingum, rétt rúmar 20 mínútur að keyra frá Rauðavatni til Hveragerðis. Fólk getur feng- iðansi ...................... Landsíminn hús I bænum fyrir verð blokkar- íbúðar I Lindarhverfínu, fast- eignaverðiö hér er um 65 - 70% lægra en á höfuöborgar- svæðinu. Hér eru nánast ein- göngu einbýlishús og raðhús. Samfélagið er opið og bærinn ekki gamall og þess vegna blandast borgarfólkið mjög vel við heimamenn og allir eru Ijómandi giaðir." Matthías Bjarnason og aðrir meðlimir stjórnarskrárnefndar lögðu til árið 1983 að synj- unarvaldið yrði tekið af forsetanum en ekki málskotsrétturinn. Þeir lögðu til að fjórðungur kjósenda gæti óskað eftir ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Stjórnarskrárnefnd efaðist ekki um málskotsréttinn Samkvæmt skýrslu stjórnarskrárnefndar, sem út kom 1983, var samstaða ríkjandi meðal fulltrúa allra þingflokka um að breyta núverandi 26. grein stjórnarskrárinnar á þann veg sem myndi gera forseta íslands auðveldara að skjóta einstökum málum til þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Tillaga nefndarinnar gerði hins vegar ekki ráð fyrir því að forsetinn væri með ósk sinni um atkvæða- greiðslu að synjað lögum staðfest- ingar - í stað synjunar kæmi ein- föld ósk og myndi staðfesting lag- anna ráðast af úrslitum þjóðarat- kvæðagreiðslunnar. í skýrslunni koma ekki fram fyr- irvarar nokkurra fulltrúa þáverandi þingflokka á þessari breytingatil- lögu. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í þáverandi stjórnarskrárnefnd voru Matthías Bjarnason og Tómas Tómasson, sem í eftir- mála tilgreindu að fyrirvarar væru á einstökum grein- um, sem þeir til- tóku ekki, en kváðust ætla að gera grein fyrir í þingflokki Sjálfstæðisflokksins. í kjölfar útkomu skýrslunnar lagði ggidÉÉ Gunnar heitinn Thoroddsen þá- verandi forsætisráðherra fram frumvarp í samræmi við skýrsluna, en frumvarpið sofnaði í nefnd. Skýrslan felur í sér síðustu allsherj- arendurskoðun stjórnarskrár lýð- veldisins. Synjun verður að ósk Breytingatillaga stjórnarskrár- nefndarinnar hvað 26. grein stjórn- arskrárinnar varðar var nokkuð róttæk en óumdeild að því er virð- ist. Núverandi ákvæði hljóðar svo: „Ef Alþingi hefur samþykkt lagafrum- varp, skal það lagt fyrir forseta lýðveldisins til staðfestingar eigi síðar en tveim vik- um eftir að það var samþykkt, og veitir staðfestingin því lagagildi. Nú synjar forseti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir at- kvæði allra kosningarbærra manna í landinu til samþykktar eða synj- unar með leynflegri atkvæða- greiðslu. Lögin falla úr gildi, ef samþykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu." Stjórnarskrárnefndin lagði 1983 til að þessu yrði breytt svo: „Ef Al- þingi hefur samþykkt lagafrum- varp, skal það lagt fyrir forseta eigi síðar en þremur vikum eftir að það var samþykkt. Áður en forseti tekur ákvörðun um staðfestingu frum- varpsins, getur hann óskað eftir því, að það fari fram þjóðarat- kvæðagreiðsla. Þjóðaratkvæða- greiðslan skal þá fara fram innan tveggja mánaða frá því að ósk um hana var borin fram. Sé frumvarpið þar fellt er forseta heim- ilt að neita að stað- festa það. Sé það samþykkt, skal for- seti staðfesta það.“ Forseti og Alþingi ekki andstæðingar Stj ómarskrámefitdin kallaði þetta vem- legar breytingar; áður hafi forsetinn haft rétt til að neita að skrifa undir lög, sem með þessu breyttist í ósk um at- kvæðagreiðslu áður en hann tæki ákvörðun um undirskrift. „Er slflcur háttur eðlilegri því ella þurfa forseti og meirihluti þings að standa að þjóðaratkvæðagreiðslu sem and- stæðingar," sagði nefndin í rök- semdarfærslu sinni. Breyting var því lögð tfl en á engan hátt efast um að forsetinn hefði virkan málskotsrétt. Stjómarskrámefndin lagði einnig til að tekin yrði upp ný grein í stjóm- arskrána svohljóðandi: „Fjórðungur alþingiskjósenda getur óskað eftir því að fram fari ráðgefandi þjóðarat- kvæðagreiðsla um einstök málefni." Var þetta kallaður lýðræðislegur réttur kjósenda og þótt úr- slitin væm ekki bind- andi fyrir Alþingi mætti ætla „að þau verði engu að síður mjög stefnumótandi og til- lit tekið tfl niðurstöð- unnar af hálfu þess.“ í dag er fjórðungur alþingiskjósenda lið- lega 50 þúsund manns. fridrik@dv.is Engir fyrirvarar Matthlas Bjarnason var for- maður Stjórnarskrárnefndarinnar sem árið 1983 hafði engar efasemdir um málskotsrétt forsetans, en viidi hllfa honum við synjuninm með þvíað leyfa honum að óska eftir þjóðar- atkvæðagreiðslu. I Flutningsmaðurinn GunnarThorodd- sen, þáverandi forsætisráðherra, lagði fram frumvarp í anda tillagna Stjórnar- skrárnefndar eftirsíðustu allsherjarend- urskoöun stjórnarskrárinnar, 1983. Martha Stewart dæmd í fimm mánaða Átök í húsvagni í Flórída fangelsi fyrir innherjasvik Hagsýna húsmóðirin á bakvið lás og slá Frægasta húsmóðir Bandaríkj- anna, Martha Stewart, var í gær dæmd í fimm mánaða fangelsi fyrir að ljúga að stjórnvöldum um hluta- bréfaviðskipti sem hún átti árið 2001. Hún var einnig dæmd til að sæta eftirliti í tvö ár og til greiðslu 2 milljóna króna sektar. Forsaga málsins er sú að Stewart átti hlutabréf í lyfjafyrirtækinu ImClone. Hún mun haJfa orðið þess áskynja að stofnandi fyrirtækisins Sam Waksal var að selja hlutabréfin sín. Stewart nýtti innherjaupplýs- ingar og seldi bréfin sín með hraði. Hún hafði Qórar milljónir upp úr krafsinu því bréfin tóku að lækka daginn eftir þegar ljóst var að Lyfja- eftirlit Bandaríkjanna hafði hafnað nýju krabbameinslyfi, sem miklar vonir höfðu verið bundnar við innan fyrirtæksins. Stewart áfrýj- aði dómnum þegar í stað en hann þyk- ir ekki þung- ur mið- að við svipuð mál sem komið hafa til kasta dómstóla. Sam Waksal afplánar nú sjö ára fangelsisdóm. Martha Stewart hefur byggt upp stórveldi í kringum „hinu hagsýnu húsmóður." Hún hefur kennt bandarísku þjóðinni hvemig á að klæða sig, borða, gifta sig, rækta garðinn og taka á móti gestum. Martha Stewart „Þetta er skammarlegur dag- ur fyrir mig og fjölskylduna, “ sagði Martha Stewart eftir dómsuppkvaðninquna. Barði kærustuna með krókódíl Havenner Barði kær- ustu slna með krókódil og grýtti hana með bjór- flöskum. Maður í Port Or- ange í Flórída hefur verið handtekinn eft- ir að hann barði kær- ustu sína með metra löngum krókódfl og grýtti í hana bjór- flöskum þar sem þau áttu í hörkurifrildi í húsvagni sínum. Hinn 41 árs David Havenner hefur ver- ið ákærður fyrir lík- amsárás og að hafa krókódfl í fómm sínum. Krókódfllinn sem Havenner geymdi í baðkari sínu hefur verið afhentur umhverfisyfirvöldum í Flórída. Að sögn talsmanns lög- reglunnar í Port Orange sagði kær- asta mannsins, hin 39 ára gamla Nancy Monico, lögreglunni að fyrst hefði Havenner látið hnefahögg dynja á henni en síðan hefði hann sveifl- að krókódflnum í kringum sig og náð að berja hana einu sinni með honum. Auk þess hefði hann grýtt hana með bjór- flöskum. Havenner segir aðra sögu af rifr- ildinu. Að sögn hans beit Nancy hann í hendina sökum þess hve æst hún var yfir því að þau væru orðin uppiskroppa með áfengi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.