Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 26
r 26 MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ2004 Fókus DV smHRHy bíú '1UG5ADU STÓHT æi 3 barnalegir menn - 3 börn - 3falt gaman! Léttgeggjuð grínmynd. SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 kÍ. 8 og Yo| [THE DAY AFTER TOMORROW kl. 5.151 PÉTUR PAN kl. 3.50 [nÖRÐURUÓS kí. 4] 3 Dolby /DD/. Thx slMI 564 0000 - www.smarablo.is www.sambioin.is HUDS ' IGAMAN- MYNDINNI i Frá leikstjóra Pretty Woman RAISING HELEN SYND kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.30 SÝND I LÚXUS VIP kl. 3.30, 5.45, 8 og 10.30 SÝND kl. 4, 6 og 8 M/fSLTALI SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI CHRONICLES OF RIDDICK kl. 8 og 1030 B.1.12 AROUND THE WORLDIN 80 DAYS kl. 10 HARRY POTTER 3 kl. 530 SÝND kL 5.30,8 og 10.30 M/ÍSL. TALI M/ENSKU TALI * Leikfélag Akureyrar hefur gengið frá því að Hárið verði sett upp á Akureyri í lok sept- ember. Sýnt verður í íþrótta- höllinni á Ak- ureyri sem tekur um 1.700 manns í sæti. Hárið varsem kunnugt er frumsýnt í Reykjavík nú fyr- ir skemmstu og hafa við- brögð áhorfenda verið afar já- kvæð þó gagnrýnendur hafl ekki verið eins hrifnir. Lakkrisinn sem seldur er í Kolaportinu réttlætir fulikom- lega ferð þangað. Nú eru að vísu nokkrir dagar þangað til næst er opið en gott er að vita af þessu fyrir helgina. Ekki er svo úr vegi að kippa eins og einni kókosbollu með. Ágæt ferð það. Vefsíðan hiphop.is er heil- agt athvarf aðdáenda þess háttar tónlistar hér á landi. Afar vel upp- settog þægi- leg sfða. Svo ekki sé nú minnst á að hún er stút- full affróðleik og skemmti- legheitum. Jæja Nú eru flestir búnir að sjá Spiderman og þá má fara að blða eftir næstu stórmynd. Hún er án alls efa I, Robot sem frumsýnd verður (Smára- biói, Regnboganum, Laugar- ásbíói og Borgarbíói á Akur- eyri á föstudaginn. Will Smith f hörkustuði. Björk er búin með nýju plötuna sem mun víst vera framúr- stefnulegri en allt sem hún hefur gert hingað til Björk er búin að klára nýjustu plötu sína sem hefur fengið nafhið Medulla en hún hefur síðustu mán- uði unnið hörðum höndum að gerð verksins. Fjöldi fólks kemur Björk til aðstoðar á plötunni, s.s. Rahzel úr hljómsveitinni Roots, íslandsvinur- inn Mike Patton úr Fantomas, Gregory Pumhagen, Robert Wyatt, Tagaq og svo nokkrir kórar - bæði íslenskir og enskir. Lagasmiðir á plötunni eru Björk sjálf, Sjón, Olivi- er Alary, Tanya Taga.q, Jórunn Viðar & Jakobfna Sigurðardóttir ásamt E.E. Cummings. Furðulegri en allt furðulegt Björk mun hafa stjórnað öllum upptökum meira eða minna sjálf með dyggri aðstoð vinar síns Marks Bell. Gert er ráð fyrir að platan komi út þann 31. ágúst næstkomandi og að vonum ríkir mikil eftirvænting bæði hér heima og erlendis. Þeir sem hlustað hafa á gripinn segja hann góðan en sérstakan í meira lagi. Björk hefur löngum þótt framúrstefnuleg í tónlistarsköpun sinni en þessi nýjasta plata mun þó vera það skrýtnasta sem hún hefur gert hingað til. Kannski að sambúð- in með listamanninum Matthew Bamey sé farin að hafa áhrif á hana en hann er einn af vinsælli sam- tímalistamönnum heimsins og þykja verk hans oft vera illskiljanleg og framúrstefnuleg. Lagalistinn á nýju Bjarkarplötunni er birtur hér með greininni og gaman er að sjá að tvö laganna bera íslensk nöfn og eitt til viðbótar fær íslenskt heiti innan sviga. íslendingar syngja á ólymp- íuleikunum Björk heldur svo til Aþenu í ágúst til að syngja á opnunarhátíð ólympíuleikanna ásamt íslenskum kór sem var henni einmitt innan handar við upptökur á Medulla. Það er óneitcinlega mikiU heiður fyrir okkar hæfileikaríka tónlistar- fólk að fá að taka þátt í stóri athöfh sem þessari. Viðburðinum verður að sjálfsögðu sjónvarpað um gjörvaíla heimsbyggð þannig að búast má við að mörg hundmð milljónir muni fylgjast með þegar okkar fólk stígur fram til að syngja. Platan kemur svo eins og áður sagði út í lok ágúst en einnig verða takmarkaðar sérútgáfur á plötunni settar á markað í Japan og víðar. Japanska útgáfan mun innihalda aukadisk með myndefni frá vinnslu plötunnar auk þess sem sérstakt plakat mun fylgja með annarri sérútgáfu. Fyrir þá sem áhuga hafa er hægt að panta þess- ar sérútgáfur á netinu og fá sendar til lEmdsins. Lagalisti Medulla Pleasure Is All Mine ShowMe Forgiveness Where Is the Line? Vökuró ÖU Birtan Who Is It (Carry My Joy on the Left, CarryMyPain on the Right) Submarine Desired Constellation Oceania Sonnets / Unrealities XI Piano II Mouths Cradle Wednesday (Midvikudags) Triumph of a Heart Bjork Guð- mundsdóttir Hefur lokið við nýjustu plötu sina, Medullu, og er liún væntan- leg i lok næsta mánaðar. Medulla fædd Meira ofbeldi en skemmtanagildi Þeir hjá Rockstar Games hafa sér- hæft sig í því að gera leiki sem láta foreldra fá vægt hjartaáfall með leikj- um eins og Grand Theft Auto og Manhunt. Þetta em leikir sem geta orðið ansi ofbeldisfullir þegar á reynir og nú ætla þeir að gera villta vestrið að sínu. Ég var búinn að bíða lengi eftir góðum vestraskotleik eftir að Lucas Arts sendu frá sér hinn frá- bæra Outlaws fyrir mörgum ámm en reyndu ekki aftur fyrir sér í þeim geira því miður. Tekst Rockstar að toppa Lucas og félaga? Ekki alveg. Þú ert Red, ungur hausaveiðari sem ráfar um Vestrið og tekur að þér ýmis verkefni á meðan þú kemst að því hver slátraði fjölskyldu þinni þegar þú varst pjakkur. Þú berst á móti allskyns ribbalda- lýð og notar tækifærið til að verða betri og betri byssumaður fyrir vikið. Þú getur keypt þér vopn og allskyns aukahluti sem hjálpa þér á leiðinni og svo kynnist þú öðru fólki sem hjálpar þér ef til vill í framtíðinni. Mitt helsta vandamál með Red Dead Revolver er stjórnunin. Maður er helst til viðbragðsseinn og það hefur lítið upp á sig að skýla sér fyrir skotum óvinanna sem em margir og of snöggir til að maður nái almenni- lega að skjóta þá. Fyrir vikið verður leikurinn frekar erfiður þegar líður á hann og einnig er myndavélin til trafala oft á tíðum. Grafíkin er ffn, allt er frekar rykugt en ekkert gífurlega mögnuð. Borðin em stundum of lítil þannig að það verður frekar þröngt á þingi þegar mest gengur á og fyrir vikið verður leikurinn svolítið einhæfur. En hann er ofbeldisfullur, hann má nú eiga það. Gosbrunnar af blóði standa úr gaurum þegar þeir fá banaskotið í sig og þeir koma úr öllum áttum þannig að slátmnin er mikil. Fyrir utan leikinn sjálfan getur maður tekist á við fleiri persónur í einvígi og einnig keppt við aUt að þrjá leikmenn í einu. Satt að segja bjóst ég við meiru frá framleiðendunum þar sem ég var búinn að heyra og lesa mikið af toppdómum um leikinn. Það vantar Keppendur (Tom Selleck-keppn- inni 2004 Samankomnir á Sirkus áður en keppnin hófst. Maggl með bestu mottuna Sigurvegarinn Maggi legó úrGus Gus þótti bera af öðrum keppendum með bleiku mottuna sína. Tom Selleck-mottukeppn'm var haldin í þriðja sinn á Sirkus við Klapparstíg á fimmtudagskvöldið. Nokkur fjöldi ungra manna með myndar- leg yfirvara- skegg var mættur til leiks til að reyna að feta í fótspor þeirra Ragga í Botnleðju og Harrys á Kaffi- barnum sem unnu keppn- ina í fyrra og hittiðfyrra.Við- staddir virtust sammála um að keppnin hefði tekist vel að þessu sinni og þegar úrslit höfðu verið kunngjörð skemmtu keppendur og aðrir sér saman frameftir nóttu. Það var enginn annar en Maggi legó úr Gus Gus sem fór með sig- ur af hólmi að þessu sinni. Maggi, sem kallar sig nú Buckmaster, er vel að sigrinum kominn enda eiga þeir Gus Gus-drengir einna mestan heiður af því að keppnin er haldin.Maggi skartaði glæsi- legri bleikri mottu og bræddi dómnefndina alveg. (öðru sæti varð Reynar úr Brimi og (þriðja sæti varð Jóhannes Tryggvason. Piltur að nafni Víðir var valinn Hýjungur ársins og grafíski hönn- uðurinn Gunnar Þorvaldsson var valinn vinsælasti keppandinn. Red Dead Revoler (PS2/Þriðju persónu skotleikur) ★ ★★ Tölvuleikir þennan ekta spagettívestrafíling sem Lucas Arts náðu að galdra fram meö frábærri tónlist og hljóðum hér um árið og finnst mér miður að Rockstar skuli heldur einbeita sér að ofbeldinu en skemmtanagildinu. Ómar öm Hauksson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.