Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 19
DV Sport MÁNUDAGUR 19. JÚLÍ2004 1 9 KR - VALUR 1-1 9. umferð. - KR-völlur-16. júlí Mörkin: 1-0 Silja Atladóttir 43. skot úr markteig Edda 1-1 Laufey Ólafsdóttir 78. beint úr aukaspyrnu 18 metrar Boltar KR: Embla Grétarsdóttir @® Guðrún Sóley Gunnarsdóttir Hólmfríður Magnúsdóttir @ Edda Garðarsdóttir ® Katrín Ómarsdóttir ® Elfa Björk Erlingsdóttir @ Boltar Vals: Laufey Ólafsdóttir @@ Iris Andrésdóttir @ Málfriður Sigurðardóttir @ Ásta Árnadóttir @ Nína Ósk Kristinsdóttir @ Dóra Stefánsdóttir @ Pála Marie Einarsdóttir @ Tölfræðin: Skot (á mark): 11-10 (5-6) Varin skot: Marla 5 - Guðbjörg 3, Laufey 1 (spilaði 15 mín.). Horn: 6-8 Rangstöður: 4-2 Aukaspyrnur fengnar: 14-17. BEST Á VELLINUM: K O N U R LANDSBANKADEILD $ I? Staðan: Valur 9 8 1 0 32-4 25 (BV 9 6 2 1 47-7 20 KR 9 6 2 1 37-10 20 Breiðablik 8 3 0 5 11-23 9 Stjarnan 8 1 4 3 11-27 7 1 Þór/KA/KS 7 1 3 3 8-21 6 FH 8 1 1 6 6-43 4 1 Fjölnir 8 0 1 7 3-20 1 Eyjastúlkur aftur upp í 2. sæti Landsbankadeildar kvenna eftir 1-7 sigur á FH í gær: Fyrsta fimma Margrétar Láru Viðarsdóttur Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði fimm af sjö mörkum Eyjaliðsins í 1-7 sigri á FH í blíðunni í Kaplakrika. Með sigrinum komst ÍBV-liðið aftur upp í 2. sæti deildarinnar - fór upp fyrir KR á markatölu. Margrét Lára skoraði íjögur fyrstu mörk ÍBV í leiknum þar af tvö þeirra úr vítaspyrnum og kórónaði síðan leikinn með stórglæsilegu marki í blálokin með skoti nokkuð fyrir utan vítateig. Margrét er greinilega búinn að ná sér af meiðslunum en þetta er í fyrsta sinn sem hún nær að skora fimm mörk í einum og sama leiknum í efstu deild. Þetta var þó ekki í fyrsta sinn sem hún komst á blað því Margrét Lára er nú komin með sex marka forskot á listanum yfir markahæstu konur Landsbankadeildar kvenna - búin að skora 18 mörk í aðeins níu leikjum. FH-liðið var bitlaust í sóknarleiknum og skoraði markið nánast upp úr þurru úr öðru af sínum skotum í leiknum. Liðinu gekk engu að síður ágætlega að verjast tilviljunarkenndum sóknum ÍBV. Liðið gafst hinsvegar upp þegar Margrét Lára innsiglaði þrennuna og eftirleikurinn var því IBV-liðinu auðveldur. ÍBV-liðið á enn möguleika á titlinum en lengst af hafði liðið þó ekki gaman af leiknum í sólinni í gær. Með betra skipulagi og meiri einbeitingu getur liðið þó spilað góðan fótbolta. ooj@dv.is Laufey Ólafsdóttir, Val Valskonur uröu síðast íslandmeistarar fyrir fimmtán árum síðan. Eftir jafntefli á KR-vellinum á föstudagskvöldið stefnir allt í að þessi bið sé loksins á enda. Næstu leikir Mánudagur 19. júlf 20.00 Stjarnan-Fjölnir Þór/KA/KS-Breiðablik Mánudagur 26. Júlí 20.00 FH-Þór/KA/KS útu þegar Sif Adadóttir skoraði af harðfylgi af stuttu færi eftir að skot hennar hafði hafnað í varnarmanni. Seinni hálfleikur var að mestu í eigu Vals sem sótti stíft án þess að ná að opna almennilega KR vörnina sem var mjög þétt fyrir. Loks á 78. mín- útu kom jöfnunarmarkið þegar Laufey Ólafsdóttir skoraði beint úr aukaspymu rétt utan teigs. Sá tími sem var eftir var ekki nægur fyrir KR- inga sem lögðu allt í sölurnar til þess að reyna að tryggja sér sigur á með- an Valskonur bökkuðu til að verja stígið. Síðustu fjórar mínúturnar léku Valskonur án markvarðar síns, Guðbjargar Gunnarsdóttur sem varð að fara af leikvelh með höfuð- meiðsl. Laufey í markið Laufey Ólafsdóttir tók stöðu hennar í markinu síðustu mínúturn- ar og kórónaði mjög góðan leik sinn með því að halda hreinu. Valsliðið KR varð á föstudagskvöldið fyrsta liðið til þess að ná stigi gegn Val í Landsbankadeild kvenna í sumar. Lokatölur urðu 1-1 sem voru sanngjörn úrslit en KR-ingar vildu meira enda er staða Vals á toppi deildarinnar orðin vænleg eftir þessi úrslit. Það var Laufey Ólafsdóttir sem tryggði Val stigið með marki beint úr aukaspyrnu 12 mínútum fyrir leikslok og fór síðan í markið á lokamínútum og hélt markinu hreinu. að þessu smm. Leikurinn var opinn en lítið var um góð færi þökk sé góðum varnar- leik beggja liða. Valur var sterkari aðilinn framan af fyrri hálfleik, KR var að vísu nálægt því að skora á fyrstu mínútu þegar Þórunn Helga Jónsdóttir skaut í slá. Sóknir Vals þyngdust eftir því sem sjálfstraust leikmanna jókst og Nína Ósk Krist- insdóttir var tvívegis nálægt því að koma Val yfir. Katrín yfirgefur völlinn Leikurinn tók hins vegar tals- verðum breytingum eftir að Katrín Jónsdóttir varð að yfirgefa völhnn vegna meiðsla og Valskonur þurftu að endurskipuleggja lið sitt. KR-ingar komust betur inn í leikinn og voru aðgangsharðari það sem eftir lifði hálfleiksins, sérstaklega úr hornum og aukaspyrnum sem Valskonur áttu í mestu vandræðum að ráða við. Sólcn ■■ þeirra bar árangur á 43. mín- þarf að misstíga sig talsvert ef það á að missa af ís- landsmeistaratitlin- um að þessu sinni. Valur sótti meira í leiknum en KR fékkbetrifæriog náði á stundum þungum sóknum að marki Vals. Niðurstaðan var því sanngjarnt jafn- tefli og leikmenn Vals fögnuðu úrslitunum með stuðningsmönnum sínum í leikslok. Það eru komin 15 ár síðan að íslands- meistaratítilinn kom síðast á Hlíðarenda og nú getur fátt komið í veg fyrir að biðin sé loksins á enda. HRM Laufey fagnar Laufey Ólafsdóttir hefur spilað mjög vel með Val f Landsbankadeild kvenna I sumar og mikilvægi hennar sást á KR-vellinum á föstudagskvöld þar sem hún kórónaði mjög góðan leik með því að tryggja Valjafntefli og með því stigi er Islandsmeistaratitilinn nánast i höfn hjá Valskonum. Markahæstar Margrét Lára Viðarsdóttir, (BV Hólmfrlður Magnúsdóttir, KR Nína Ósk Kristinsdóttir, Val Olga Færseth, IBV Guðlaug Jónsdóttir, KR Elín Anna Steinarsdóttir, (BV Kristín Ýr Bjarnadóttir, Val Dóra Stefánsdóttir, Val Karen Burke, (BV Það fyrsta af fimm Margrét Lára Viðars- dóttir skorar hér fyrsta markið sitt í leik IBV og FH f Landsbankadeild kvenna. Á minni myndinni fagnar Olga Færseth hinni ungu markadrottningu sem skoraði fjögur mörk til viðbótar og hefur nú skoraði 18 mörk f 9 leikjum í sumar. DV-myndir Pjetur FH - ÍBV 1-7 9. umf. - Kaplakriki -18. júli Mörkin: 0-1 Margrét Lára Viöarsdóttir 13. skot úr vítateig Elin Anna 1-1 Lind Hrafnsdóttir 28. skot utan teigs Svava 1-2 Margrét Lára Viðarsdóttir 39. vítaspyrna hendi 1-3 Margrét Lára Viðarsdóttir 62. vítaspyrna Bryndís (fiskaði) 1-4 Margrét Lára Viðarsdóttir 72. skot úr vltateig Olga 1 -5 Rachel Kruze 78. skot utan teigs Elín Anna 1 -6 Olga Færseth 78. skalli úr markteig Elena 1-7 Margrét Lára Viðarsdóttir 88. skot utan teigs Olga Boltar FH: Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir @ 1 Valdís Rögnvaldsdóttir ® Boltar (BV: Margrét Lára Viðarsdóttir @® Elín Anna Steinarsdóttir ® Rachel Kruze © Olga Færseth @ Michelle Barr @ Elena Einisdóttir @ Mhairi Gilmour © Tölfræðin: Skot (á mark): 2-39 (1-25) Varin skot: Þóra Reyn 11- Claire 0. Horn: 0-9 Rangstöður: 1 -5 Aukaspyrnur fengnar: 15-5 BEST Á VELLINUM: Margét Lára Viðarsdóttir Aukaspyrna Laufeyjar gerOI nánast át um íslandsmái Valsliðið þarf að misstígci sig talsvert efþað á að missa af íslandsmeist- aratitlinum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.