Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 11
DV Fréttir MÁNUDAGUR 19. JÚU2004 11 Áhorfendur Slagsmálin þóttu ekkijafnfyndin þegar höggunum fjölgaði, en sumir kimdu enn við og höfðu gaman að. Veðurblíðan í Reykjavík hefur verið með eindæmum undanfarna daga. Miðbærinn hefur sjaldan skartað eins miklum fjölda fólks. Blóðug slagsmál á Austurvelli voru látin óáreitt af fjölda manns sem fylgdist með. Högginn dundu á varnarlausum manni, en viðstaddir skemmtu sér yfir atburðunum. Fólk skemmti sér yfir barsmíðum í blíðunni Slagsmál brutust út á Austurvelli milli tveggja manna sem virtust hafa fengið sér of marga bjóra í góða veðrinu á dögun- um. Sá eldri hafði betur og lét höggin dynja á félaga sínum eftir að hafa legið með honum í túninu allan daginn berir á ofan við bjórdrykkju. Nærstaddir horfðu á í makindum sínum en gerðu ekkert. Túnið var troðfullt af fólki sem virtist ekki brugðið, lá hið rólegasta og fylgdist með manninum dúndra hverju högginu á fætur öðru í and- litið á hinum manninum sem gat sig hvergi hreyft. Ekki var náunga- kærleikurinn mikill þar sem fólk virtist skemmta sér ágætlega yfir barsmíðunum, einstaka maður stóð upp og tók mynd af félögunum sem veltust um í túninu. Ekki virtist nokkur hafa áhuga á að reyna að stöðva barsmíðamar. Horfðu bara á þetta eins og box á sjónvarps- stöðinni Sýn. Það var ekki fyrr en félagi „box- arans" varð var við lögregluna að hann rauk upp og reyndi að slíta mennina í sundur. Lögreglan stöðvaði ofbeldismennina og leiddi þá í burtu inn í Veltusund þar sem mennirnir föðmuðust að loktun. Lögreglan fylgdist svo með mann- lífinu um stund og öryggi fólksins í túninu var tryggt á ný. Miðbærinn iðaði af lífi enda veðrið frábært tæplega 20 gráður á Austurvelli. Á meðan mennirnir slógust í túninu seinni part föstudags tefldi Hrafn Jökulsson við krakkana í Það var ekki fyrr en félagi „boxarans“ varð var við lögregl- una að hann rauk upp og reyndi að slíta mennina í sundur. Lækjarbrekku, þar sem var líka fjör- legur bókamarkaður. Á torginu safn- aðist fólk saman í kringum tónlistar- menn sem spiluðu slökunartónlist undir klukknaturninum. Fólk var rausnarlegt kastaði peningum í mennina og keypti af þeim geisla- disk þeirra. Lífið á kaffihúsunum blómstraði, setið við öll borð. Þeir sem ekki fengu borð fóru í Ríkið, keyptu bjórinn þar og settust í túnið eða á bekki miðborgarinnar. Fólk hafði orð á því að stemningin væri engu lík eins og í miðborg stórborg- ar í útlöndum, margt skemmtilegt í gangi en svo náttúrlega alltaf eitt- hvað leiðinlegt sem líka er hægt að skemmta sér yfir. (s og slagsmál Þessi eldrí maður borðaði ís á meðan | hann fylgdist með I misþyrmingunum._ Sólarstúlkur Ungar stúlkur sleiktu sólina á Austurvelli á meðan mennirnir börðust. Boltaleikur I bllðviðrinu er vinsælt að halda á lofti I grjónabolta.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.