Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.2004, Blaðsíða 29
DV Fókus MÁNUDAGUR I9. JÚLÍ2004 29 Britney Spears er loksins búin að bjóða í brúðkaupið sitt, að því er breska blaðið The Sun segir. Þetta verður annað brúðkaup hennar á árinu en eins og menn muna gekk hún að eiga Jason Alexander, æsku- vin sinn og nágranna, á fylleríi í Las Vegas í byrjun árs. Það entist í 55 klukkustundir en nú búast menn við að Britney nái alla vega heilum mánuði en þeir allra bjartsýnustu gefa henni ár. Kostar á aðra millj- ón dala Kærasti Britney, Kevin Federline, er ómerkilegur dansari sem byrjaði með Britney fyrir nokkrum mánuð- um. Hann skildi ófríska kærustu sína eftir heima og mun hún víst fæða skömmu áður en brúð- kaupið fer fram, þann 20. nóv- ember. Britney þurfti sjálf að leggja út fyrir trúlofunar- hring sínum þar sem kær- astinn er ómerkur al- múgamað- ur og að sjálfs- sögðu ætlar Britney að bera allan kostnaðinn af brúð- kaupinu sjálf. Það mun fara fram á Beverly Hills hótelinu í Los Angeles sem er eitt það glæsilegasta í heimi. Fréttir herma að brúðkaupið muni kosta vel á aðra miiljón dala. „Britney Britney Verður vonandi betur til fara þegar stóra stundin rennur upp i nóvember. Nú er verið að hanna brúðarkjólinn á hana og mun hann eflaust kosta ein- hverjar milljónir. vill hafa allt fuilkomið eftir klúðrið síðast,“ segir starfsmaður hjá fyrir- tækinu sem er að skipuleggja veisluhöldin. „Það er búið að panta 300 flöskur af Cristal kampavíni og túh'pana fyrir 100 þúsund dollara. Blómin munu koma beint ffá Hollandi en Britn- ey elskar hvíta túiípana." Fimm brúðarmeyj- ar og allt að verða klárt Það má því ætla að brúðkaupið verði ögn veglegra en það síð- asta sem fór fram í Las Vegas að viðstöddum bflstjóra popp- prinsessunnar og org- elleikara. Nú er búið að boða 400 manns á staðinn og mun fagn- aðurinn standa yfir heila helgi. „Britney er búin að ákveða flest þótt enn eigi eftir að staðfesta hvað verði boðið upp á í morgun- verðarhiaðborð- inu,“ segir starfs- maður brúð- kaupsskipulagn- ingarfyrirtækis- ins. Þá hefúr Britney fengið hönnuði til að hanna brúðar- kjól en ekki hef- ur fengist upp- gefið hver hönnuðurinn er. Brúðar- meyjamar verða hins vegar fimm talsins, þar á meðal systir hennar Jamie og æskuvinkona hennar úr bamaskóla. Móðir Britney mun hafa verið dugleg við að hjálpa stelpunni að skipuleggja herlegheitin en Kevin Morse snýr aftur Sjónvarpsþættimir um In- spector Morse snúa aftur á næstunni, en án löggunnar fúlu. Sjón- varpsstöð- in ITV er að undir- búa nýja seríu þar sem sdlt snýst um aðstoðar- mann hins láma Morse, Lewis lögregluforingja. John Thaw, sem lék Morse, lést fyrir tveimur ámm og þykir þetta útspil minna á það sem gerst hefur með Taggart-þætt- ina sem em að verða ansi þunnur þrettándi. Sjónvarps- þættir og myndir um Inspector Morse vom gerðar í 13 ár, frá 1987 til 2000. Christina að missa hárið Söngkonan ChristinaAguil- era er samkvæmt erlendum blöðum að missa hárið. Hún hefur fengið sér nýjar hárleng- ingar sem munu víst fela skalla- blettina sem undanfarið hafa verið að myndast á höfði söng- konunnar. Hárleysið mun orsa- kast af sjúkdómnum alopecia sem lítið er vitað um en er tal- inn tengjast stressi. Sjúkdómur- inn lýsir sér í því að skallablettir taka að myndast á höfði sem síðar getur leitt til þess að fólk missi allt hár á höfði, semog líkama. Talsmenn söngkonunnar segja þessar fréttir hins vegar vera lygar sem ekkert mark sé á takandi. „Þetta em lygar. Chri- stina er ekki að missa hárið," sagði talsmaður söngkonunnar í vikunni. Á sama tíma og þessar sögusagnir ganga manna á milli velta menn því mikið fyrir sér hvort stelpan sé á leið upp að altarinu. Hún og kærasti henn- ar, Jordan Brigthman, em orðin mjög náin og vinir söng- konunnar segja hana vilja giftast sem fyrst. „Hún talaði alltaf um að brú- ðkaupið myndi verða einhvern tíma á næstu árum en nú segist hún vilja gifta sig eins fljótt og mögulegt er,“ sagðivinkona hennarvið dag- blaðið The Daily Star. Söngkonan Britney Spears giftir sig í annað sinn á þessu ári í lok nóvember. Sá heppni er Kevin Federline sem yfirgaf ólétta unnustu sína til að vera með Britney. Poppdrottningin ætlar að hafa allt eins glæsilegt og hægt er enda var síðasta brúð- kaup hennar í ódýrari kantinum. Britney við sundlaugarbakkann Britney og Kevin hafa haft það gott siðustu daga og notið góða veðursins í Los Angeles. Britney hefur verið sök- uð um óhóflega áfengisneyslu og óheilbrigt liferni og afmyndunum að dæma á það við rök að styðjast. mun víst hafa h'tinn áhuga á þessu öllu saman. „Hann gerir bara eins og hún viil," segir vinkona Britneyjar við The Sun. Parið mun víst vera mjög ástfangið eins og myndimar bera með sér. Britney getur vart hætt að fara höndum um Kevin, nema þá til að fá sér drykk eða sígarettu. Aukapersónumar í aðalhlutverki Shrek og Fíóna koma heim úr brúð- kaupsferðinni og em strax kölluð heim til foreldra Fíónu svoþau geti hitt nýja eig- inmanninn hennar. Shrek h'st iila á hug- myndina því hann veit hvað mannfólkið getur verið ilikvittið en Fíóna nær að plata hann og Asna til að koma og hitta tengdó. Þau fara til Langt langt í burtu lands og um leið og þau stíga út úr vagn- inum sjá þau að kannski hafði Shrek rétt fyrir sér eftir allt saman. Faðir Fíónu viil losna við tengdasoninn sem fyrst og leggur á ráðin með Álfkonunni og syni hennar, Prinsinum, að koma Shrek fyrir kattamef, bókstaflega. Shrek 1 fannst mér ekki mjög skemmtileg mynd, hún var tæknilega frekar iila gerð og svo var sagan sjálf fyrir- sjáanleg og auðgleymanleg. En henni gekk óskaplega vel í kvikmyndahúsum og græddi fullt af peningum þannig að framhald var óumflýjanlegt. Ég hlakkaði ekkert geðveikt til að sjá framhaldið en hugsaði að maður þyrfti að gera það vinnunnar vegna. En hvaða hvaða? Þessi mynd er alveg frábær og hún toppar þá fyrstu að öllu leyti í sögu, húmor, leik og grafík. Það sem kom mér mest á óvart er hve stór hluti brandaranna er meira fyrir ftill- orðna en gríslingana. Myndin er ótrúlega vel skrifuð og uppfull af litlum smáatrið- um sem vísa í hin og þessi ævintýri og hinar og þessar kvikmyndir, flestar frá Disney, sem fær vel á baukinn í þessari mynd. Það eina sem gæti dregið úr mætti grínsins vom brandarar sem tóku fyrir atvik hðandi stundar og geta þess vegna ekki virkað eftir nokkur ár. Skoski hreimurinn hans Myers er orðinn frekar þreyttur, varð það reyndar eftir So I Married anAxMurderer, en sem betur fer hættir maður að taka eftir því eftir smá stund og getur notið myndar- innar. Myers og Murphy bæta ekki mikið við persónumar frá fyrri myndinni en það er nú orðið þannig að Shrek er orð- inn „the straight guy“ sem aðrar, mun líflegri persónur leika sér með. Það em nefnilega aukapersónumar sem halda þessari mynd uppi, Rupert Everett er alveg stórkostiegur sem myndarlegi prinsinn, Jennifer Saunders (Ab Fab) sem Álfkonan fer á kostum og Antonio Banderas sem Stígvélaði kötturinn er í toppformi. Einnig verð ég að benda á at- riði með Gosa þar sem ég hreinlega táraðist úr hlátri og leit frekar kjánalega út, sitjandi einn, umkringdur lórökkum og foreldrum þeirra. Eins og ég sagði áðan þá er tæknilega hhðin mun betur úr garði gerð en áður og myndin htur alveg stórkostlega út. Allt heildarútht er í samræmi við annað ólíkt þeirri fyrstu og þeir hafa náð að skapa alveg sérstaklega skemmtilegan heim þar Shrek2 Sýnd í Sambióunum, Háskóla bíói og Laugarásbíói. Leikstjórar: Andrew Ad- amson, Kelly Asbury, ' Conrad Vernon Aðalhlutverk: Mike Myers, Cameron Diaz, Eddie Murphy, Antonio Banderas. ★ ★★★ Ómar fór í bíó sem ævintýrin fá á sig hversdagslegan blæ, eitthvað sem nokkrir aðrir kvik- myndagerðarmenn hafa gert áður, eins og í Princess Bride og Ella Enchanted en hér geta þeir aiveg farið yfir um. Alveg druhufyndin ræma sem ég held að eigi eftir að ganga vel í landann og krógana þeirra. Ómar öm Hauksson Stjörnuspá Listamaðurinn Erró er 72 ára í dag. „Þegar maðurinn er beittur ýtni þá reið- ist hann en sjaldnast stígur hann fram og segir það. Hon- um er ráðlagt að vera hrein- skiptnari og heiðarlegri varð- andi eigin líðan," segir í stjörnuspá hans. Mðinsberm (20. jan.-18.febr.) Erró w w Fyrir þér er ávallt til ein rétt leið og hana finnur þú með því að safna að þér upplýsingum ómeðvitað að hætti vatnsberans en hér ættir þú að til- einka þér að opna hjarta þitt og tjá hugmyndir þínar þegar starf/nám þitt er annars vegar. Fiskam (19. febr.-20.mars) Sektarkennd er stöðnuð orka, hafðu það hugfast ef þú ert fæddur undir stjörnu fiska. Sektarkennd hefur alls enga þýðingu og hneppir nánast allt í fjötra en það er hins vegar lofsvert að bera ábyrgð á gjörðum sínum og dreyma stóra drauma. CY3 MWm(21.mars-19.april) Efnahagslegt öryggi knýr hjarta þitt ekki áfram því hér knýr ástríða þig áfram varðandi eitthvað verkefni (júlí, ágústbyrjun). X ö Nautið (20. aprll-20. mal) n Þú heldur huga þínum opnum og fordæmir ekki gjörðir annarra sem er svo sannarlega jákvæður eiginleiki en einnig er minnst á að þú ættir að gera þér grein fyrir yfirburðasviði þínu svokölluðu ef þú kýst að ná ásættanlegum árangri þegar fjármálin eru annars vegar. Tvíburarnir (21. mai-21.júnl) Stjarna tvíbura kann að virðast skrýtin þegar viðskipti/áherslur eru ann- ars vegar en það er eingöngu misskiln- ingur þeirra sem þekkja hana ekki og fá eflaust aldrei tækifæri til þess. Hér er ein- ungis styrkur á ferðinni sem aðstoðar þig við að klífa hæsta fjall drauma þinna. oö Krabbinn(22.júri-27jti;o Hér er þörf á jafnvægi á milli starfs og einkalífs. LjÓnÍð (23.JÚII-22. ágúst) Vertu ávallt viss um hvað er mikilvægast fýrir fyrirtæki þitt (starf eða nám) kæra Ijón. Þú býrð yfir þeim ágæta eiginleika að taka réttar ákvarð- anir og þar er færni þín svo sannarlega á ferðinni. Þér er ráðlagt að hugsa. Tjáðu þig og temdu þér þolinmæði. 115 Meyjan(2i.ííjúsf-22.s Líf þitt blómstrar ef þú ein/n kýst að láta hlutina ganga upp. Hérna er þér ráðlagt að hegða þér af hugrekki og festu þegar fjármunir og áhættur eru annars vegar. Q Vogin (23.sept.-23.okt.) Fólk fætt undir stjörnu vogar er fært um að sá eigin rökhugsun yfir tilfinningalegar þrár. Fagnaðu því að vera óyfirveguð/-vegaður því þegar þú leyfir þér að fá útrás á tilfinningasviðinu getur hjarta þitt opnast og þú verður fær um að takast á við velgengni. HL Sporðdrekinn (24.okt.-21.n0v.) Sporðdrekinn er ábyrgðarfullur mjög sem er mikill kostur þegarfjármál eru annars vegar. Hann er sterk mann- eskja þegar kemur að andlegum styrk en er oft á tíðum með hugann við annað en starfið/námið árið framundan. / Bogmaðurinn (22. nfo.-21.tksj Hér þarfnast þú breytinga. Þú ættir ekki að leyfa kunnuglegu mynstri og vana að stjórna gjörðum þínum heldur læra að taka meðvitaðar ákvarð- anir til að ná stjórn á eigin tilveru, verð- ur þú fyrst að ná valdi á þínum eigin huga. Steingeitin (22.des.-19.jan.) Hæfileiki þinn til að hugsa um það sem þú kýst að eiga og njóta er ein- faldlega að ákvarða æskileg markmið og ekki síður árangur sem er upphafs- punktur farsældar þinnar. z SPÁMAÐUR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.