Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Årgang

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1890, Side 63

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1890, Side 63
SMASÖGUR. Spilahúsið. Yið spilahúsið í Monaco, öðru nafni »Spilahelvítið«, sóa margir menn aleigu sinni á fám dögum og gjöra sig sjálfa og skildmenni sín ógæfusöm um alla æfi; sjálfsmorð eru þar og stundum í hverri viku, oft sjást menn ganga þar frá spilaborðinu náfölir, öreiga, búnir á lítilli stundu að spila burt aleigu sinni, og að einni stundu liðinni eru þeir liðið lík út í skógi með kúlufar gegnum höfuð eða hjarta. þrír menn höfðu ráðið sjer hana á 14 dögum, spilagestirnir fækkuðu og illur kur var kominn meðal þeirra sem eptir voru. "petta er rjettnefnt ræningjabæli — hjer eru svik og verstu prettir viðhafðir, hveijum sem hjer kemur er glötun húin, það er óforskammað að stjórnin skuli loka augunum og ekki fyrirbjóða »Hasarðspil«. fað er víst full þörf að fara að st-ækka kirkju- garðinn hjerna. Allt fer til helv. — nei til spilabánkans«. Svona sögðu menn sín á milli, svo B. forstjóri spilabánkans fór að verða hræddur um að gestunum færi að fækka um of, eða • Hasarðspilið" yrði fyrirboðið. Hann gekk því mjög auðmjúkur og vinsamlegur á meðal gesta sinna, og var að segja þeim sögur, að hann hefði nákvæmlega þekkt þann og þann sem hafði grandað sjer og orsökin hefði alls ekki verið fjármissir við spil, heldur ólukkulegt hjónaband, eða heitmeyjamissir. Fæstir lögðu trúnað á sögur lians, cn liann sagðist síðar skyldi sína þeim þetta svart á hvítu. Út af þessu datt honum ráð í hug, sem hann trúði trúnaðar- manni sínum P. fyrir og bað hann að framkvæma. Atta dögum síðar missti maður aleign sína við spilaborðið, fór út í skóg og skaut kúlu í gegnum höfuðið. Vinur formanns- ins sem sifeldlega var að njósna, heyrði fyrstur skotið, hljóp að líkinu og ljet í frakkavasann veski með 5000 frönkum í, og gul- um hárlokki, rjett á eptir kemur B. hlaupandi með stóran hóp af spilagestunum á eftir sjer, til að sjá hvað nú sje um að vera. »En þá eitt offur, það er skammarlegt, hjer falla fleiri fyrir kúlum en í stríðunum, þetta er óþolandi. — J>að ætti að sprengja hölv. spilaholuna í lopt upp« — svona sögðu áhorfendur. B var sá eini rólegi »ennþá einn heytmeyjar uissir« sagði hann. »Og það er lýgi« segja hinir, »hann hefir víst tapað öllu sínnogckki viljað lifa lengur, vjer skulum rannsaka hvort hann hefur peninga«. þegar líkið var skoðað fannst vesldð með 5000 fr. og hár- lokknum, þótti þá mörgum að hjer væri talsverð sönnun fengin fyrir orðum B. og fóru að hakla heim. Aðeins A, úngur aðals- maður velbúinn, starði á B, og segir »5000 fr. er ekki neitt, menn geta vel drepið sig fyrir fátækt þo þeir eigi 5000 fr. ef þeir hafa tapað tuttugfallt ijett áður« og svo gengur hann til B. og hvislar að honum. »Mikill makalaus klaufi eruð þjer, þjer hafið sjálf- sagt sett einhvern út lil að láta þessa 5000 fr. á líkið, en það er engin sönnun, hefðuð þjer látið 100,000 fr. í vasa mannsins.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.