Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Volume

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1890, Page 65

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1890, Page 65
Snarræði. í veitingaliúsi i Ameríku sátu nokkrir menn og voru að ræða um það sín á milli, að daginn áður liefðu stigamenn ráðist á ferðamann, rænt peningum og drepið hann. Enginn einn stigamaðnr skyldi geta rænt mig, sagði einn þeirra, er P. hjet. Daginn eptir hjelt hann ferð sinni áfram, mætir hann þá manni, er sctur skammbissu fyrir bijóst honum, heimtar peninga *> hans og minnir hann á orð lians í veitingahnsinu deginum áður. Jeg sagði, ef einn maðnr mætti mjer, en þið eruð tveir — segir P. Stigamanninum varð bilt við, ef fleyri væru viðstaddir og lítur um öxl sjer, til að sjá hver hinn maðurinn væri, en í sama augnabliki dregnr _P. upp skammbissu úr vasa sínum og skýtur ræningjann með kúlu gegnum höfuðið. Vasabókin. I Norðurbrúargötu íKpmh. bjuggu fátæk hjón, ung að aldri. Maðurinn var trjesmiður og hjelt sjer framan af vel að vinnu sinni, en þegar fram í sókti, byrjaði hann að drekka og kom sjaldan heim frá ölkjöllurunum fyrri en kl. 12 og vanalega tóm- hentur; vinnulaunin voru farin fyrir brv. og öl. " Ifonan varð því ein að vinna fyrir 4 börnum á unga aldri, en entist ekkitilþess, ► svo mest allt af búsgögnunum var veðsett og flutt burt á lán- stofur. Kvöld nokkurt í síðastl. október manuði var ekkert til að sýðja hungur ungbarnanna með og ekkert til að veðsetja lengur; fór konan þá í vandræðum sínum á gildaskálann, þar sem hún vissi að maður hennar sat, og biður hann um peninga fyrir mat handa börnunum; hann var fullur og önugur í svari, og sagði að það kæmi sjer ekkert við, því yrði hún að sjá fyrir. Konan var lagleg í sjón, en mjög föl og fátæklega búin, hún gekk grátandi heim, svo menn veittu henni eptirtekt, en sjálf var hún svo sorgbitin, að hún vissi valla hvert hún gekk, og tók naumast ► eptir, að hún rak fótinn í eitthvað, sem lá á götunni. í því gengur lítill drengur fram hjá og segir: »þjer misstuð eitthvað madama góð« og tekur það og fær henni; þegarhún kemurheim fer hún að skoða við ljóstýruna hvað það var sem hún hafði fundið; sjer hún þá að þetta er bijefaveski með 5000 kr. af pappírspeningum i, og hver eigindinn var. Svo marga peninga hafði hún aldrei haft handa milli fyrri. Hún svæfði börnin í » snatri, fer svo þegar að heiman aptur, og segir eigandanum frá fundinum og vandræðum sínum. Á sama stað í Norðurbrúargötu var við árslokin lagleg búð, þar stóð fátæka konan glöð við búðarborðið og var að selja varning sinn; börnin þokkalega búin voru að leika sjer í kring m um hana. — P «J)egar vandræðin standa hæzt, er hjálpin opt næst«. T. G.

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.