Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Blaðsíða 3

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Blaðsíða 3
EFNISYFIRLIT: Ráöstefna um jarögöng á íslandi: Þorleifur Einarsson: Bls. Jaröfræóilegar aóstæóur í Strákagöngum 61 • Þorleifur Einarsson: Jaröfræöilegar aóstæöur í jarógöngunum I Oddsskaröi 68 • Jón Birgir Jónsson: Veggöng á íslandi 71 • Oddur Sigurósson: Jarógöng Laxárvirkjunar — Mannvirkjajaró- fræði 75 • Niels Indrióason: Laxá III — Jarógangageró 79 • Páll Ólafsson: Tveir frumherjar I Islenskum fiskiðnaöi: Jón Gunnarsson byggingaverkfræöingur og Guðni K. Gunnarsson efnaverkfræóingur 86 • Oróasafn um fráveitur, framhald 88 Nýir félagsmenn 74, 92 ÚTGEFANDI: VERKFRÆÐINGAFÉLAG ÍSLANDS BRAUTARHOLTI 20, SÍMI 19717 KYNNINGAR- OG RITNEFND: JÓN ERLENDSSON, form. BJÖRN MARTEINSSON EGILL B. HREINSSON GÚSTAV ARNAR HELGI SIGVALDASON JÓNAS FRI'MANNSSON PÁLL LÚÐVÍKSSON RITSTJÓRI: PÁLL LÚÐVÍKSSON UMBROT OG PRÓFARKALESTUR: GÍSLI ÓLAFSSON ÁRGANGURINN 6 HEFTI PRENTAÐ í STEINDÓRSPRENTI HF Strákagöng vió Siglufjöró. Myndin er tekin við NV- munna i ágúst 1981. Hallandi basaltlög og rautt milli- lag sjást vinstra megin vió steyptan forskálann. (Ljósm. Björn A. Haróarson). Ifmarit VERKFRÆÐINGAFÉLACS ISLANDS 69. árg. 5.-6. liefti 1984 RÁÐSTEFNA UM JARÐGÖNG Á ÍSLANDI Þorleifur Einarsson prófessor: Jarðfræðilegar aðstæður í Strákagöngum Eftirfarandi tvær greinar eru bygKÓar á erindi sem höfundur flutti á ráðstefnu um jarðgön}; á íslandi 3. apríl 1981. í grein þessari er fjallað um jarð- fræðilegar aðstæður í jarðgöngum á Siglufjarðarvegi í gegnum fjallið Stráka (676 m) milli Siglufjarðar og Sauðaness (sjá mynd I í grein Jóns Birgis Jóns- sonar hér á eftir). Jarðfræðiathuganir vegna jarðganga- gerðar í Strákum fóru fram í tveim áföngum. Frumathuganir gerði Tómas Tryggvason 1956 og 1960 og skrifaði um þær tvær álitsgerðir. Eftir að endanleg ákvörðun hafði verið tekin um gerð jarðganganna hófu jarðfræðingarnir Þorleifur Einarsson og Haraldur Sigurðsson jarðfræðirannsóknir þar haustið 1963 og var þeim haldið áfram sumarið 1964. Þetta sumar mældi Jón Skúlason verkfræðingur fjallshlíðina á jarðgangasvæðinu í Strákum eins og við var komið, allt upp i nær 200 m hæð og gerði kort af svæðin. Þó var víða erfitt eða ókleift að komast að til mælinga vegna bratta. Jarðfræðilegir punktar voru mældir jafnóðum þ. e. jarðlaga- mót, basaltgangar, brotalínur og mis- gengi. Eftir þessu korti var gert jarð- fræðikort í mælikvarða 1:1000 af svæð- inu og greinargerð um jarðfræðilegar aðstæður við gerð jarðganga skilað í janúar 1965. Engar boranir voru gerðar á jarð- gangaleiðinni enda aðstaða öll svo erfið í bröttum hlíðum fjallsins og hengiflug- um að því hefði vart verið komið við. Árið 1959 var gerður jarðgangamunni Þorleifur Einarsson stundaði nám í jarðfrœði við háskólann í Hamborg 1953-54, I Erlangen-Niirnberg 1954-56 og Köln 1956-60, lauk þar dipl. geol,- prófi í maí og doktorsprófi í júlí 1960. Framhaldsnám og rannsóknir við há- skólann í Bergen 1960-61, í Cambridge 1970 og aftur 1979. Jarðfrœðingur (sér- fr.) við iðnaðardeild Atvinnudeildar Iwskólans 1961-65, Rannsóknastofnun iðnaðarins 1965-68 og Raunvísinda- stofnun háskólans 1969-75. Prófessor í jarðfræði við Háskóla Islands frá 1975. Deddarforseti Verkfrœði- og raunvls- indadeildar 1983-85. Meðal rannsókna- starfa eru ýmsar grundvallarrannsóknir á jarðfræði Islands auk hagnýtra rann- sókna fyrir Vegagerð ríkisins, Borgar- verkfræðing, Reykjavíkurliöfn, Raf- orkumálastjóra, Gosefnanefnd o. fl. Eftirlit með mannvirkjagerð á vegum Nátlúruverndarráðs frá 1972. Marg- háttuð ritstörf í jarðfrœði þ. á m. kennslubœkur. Siglufjarðarmegin í fjallinu Strákum til reynslu (Sjá mynd 2). Göngin voru 8— 10 m breið og um 25 m að lengd. Gólfhæð var 94 m y. s. Við jarð- fræðirannsóknirnar var miðað við að tilraunagöngin yrðu munni jarðganga í gegnum fjallið. Vinna við jarðganga- gerðina sjálfa og frágang fór svo fram 1965—67. TÍMARIT VFI 1984 — 65

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.