Tímarit Verkfræðingafélags Íslands


Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Blaðsíða 12

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Blaðsíða 12
útboði var gert ráð fyrir að ljúka verk- inu að mestu árið 1973, en því var ekki að fullu lokið fyrr en 1977, en tiltölulega rólegt var yfir framkvæmdum 1974 og 1975. BREIÐADALSHEIÐI Fyrir 20 árum var mikið rætt um að gera þyrfti 3 veggöng á íslandi, þ. e. a. s. Siglufjarðargöng (Strákagöng), Oddsskarðsgöng og göng undir Breiða- dalsheiði. Strákagöngum og Odds- skarðsgöngum hafa verið gerð skil en hér verður stuttlega vikið að Breiðadals- heiði. Á árunum 1965—66 voru gerðar jarð- fræðiathuganir á svæðinu og borað með kjarnabor í líklegu jarðgangasniði. Niðurstöður voru frekar neikvæðar m. a. vegna þess að berglög voru tiltölulega þunn, meðaltal 6,5 m (þynnst 2,0 m — þykkast 9,0 m) og þykk gjalllög á milli þeirra (allt að 2,0 m) (sjá mynd 4). Auk þess er halli berglaga ekki samsíða æski- legri legu jarðganga, þannig að jarð- göng verða að skerast skáhallt í gegnum 5—6 berglög og gjalllög milli þeirra, en stæðni bergsins yrði vafalítið léleg á þeim stöðum. Reynt var með stórri gröfu að kanna hvort berg væri heillegt við hugsanlega gangamunna, og átti að gera tilrauna- sprengingar í báðum endum, en gefist var upp á því vegna þess hversu bergið var sprungið. Grafan sem vann þetta verk hefði getað haldið áfram, ef fram- kvæmdum hefði ekki verið hætt vegna hrunhættu úr stálinu. Niðurstaðan varð sú að hugleiðingar um jarðgangagerð á Breiðadalsheiði voru lagðar til hliðar í bili, en ekki endanlega. ÓLAFSFJARDARMÚLI Nokkuð hefur verið rætt á undan- förnum árum um bættar vetrarsam- göngur við Ólafsfjörð og var þá fyrst rætt um vegsvalir, vegþekju, á hættu- legum stöðum þar sem snjóflóð falla. En þar sem kostnaður við slíkar fram- kvæmdir er mjög hár, hefur verið rætt meir og meir á síðari árum um jarð- göng, sem mundu liggja í gegnum Ólafs- fjarðarmúla, þar sem mest er hætta á snjóflóðum og lokun vegar. Mynd 5 sýnir þá valkosti, sem athygl- in beindist einkum að í upphafi. Jarð- fræðirannsóknir voru hafnar á árinu 1981 til að unnt væri að gera nákvæmari áætlanir og velja á milli valkosta. Flest snjóflóð falla á svæðinu milli Bríkargils og Vogagjár, en einnig falla hættuleg snjóflóð við Kúhagagil. Þá hafa fallið snjóskriður á svæðinu milli Ólafsfjarðarbæjar og Kúhagagils, en ekki eins títt og á svæðinu utan Kúhaga- gils. Sama gildir um svæðið frá Vogagjá að Míganda. Meginhluta jarðfræði- rannsóknanna lauk 1984, og var þá tek- in endanleg ákvörðun um gangaleið. Tveir valkostir voru einkum til um- ræðu, þ. e. Kúhagagil — Vogagjá (2,5 km) og Kúhagagil — Tófugjá (3,2 km) og varð sá síðarnefndi fyrir valinu. Mvnd 5. Valkostir sem kannaðir hafa verið með tillti til jarðganga i Ólafsfjarðarmtíla. Halldór Árnason, f. 21. okt. 1950 í Rvik. Foreldrar Árni lögfræðingur á Egilsstöð- um, f. 17. okt. 1922, Hall- dórsson alþm. og kaupfél- agsstjóra, Borgarfirði eystra, Ásgrímssonar og kona hans Kristín hjúkr- unarfræðingur, f. 15. mars 1921, Gissurardóttir vél- smiðs í Rvík Filippussonar. Próf frá Raungreinadeild TÍ 1973, sveinspróf í sútunariðn 1973, próf í efnafræði frá HÍ 1977, próf i hag- og rekstursfræði frá háskólanum í Lundi, Svíþjóð, 1981. Iðnráðgjafi á vegum Sambands sveitarfélaga í Austur- landskjördæmi 1980—82, starfsmaður Samstarfsnefndar um iðnráðgjöf i landshlutunum frá 1982. í stjórn Kísilmálm- vinnslunnar frá stofnun hennar 1982 og formaður 1982—83. Maki 31. des. 1973, Þórunn Sigríður meinatæknir, f. 24. febr. 1950 í Rvík, Einarsdóttir innkaupastjóra RARIK þar Egilssonar og konu hans Margrélar Hcrdísar Sigurðardóttur verkfræðings Thoroddsens. Börn 1) Árni Björgvin, f. 5. okt. 1972 í Rvík 2) Margj-ét Herdís, f. 3. okt. 1974 s. st., 3) Einar Egill, f. 31. maí 1979 í Lundi, Svíþjóð. Þórunn Sigríður meinatæknir er systir Egils Þ. Einarssonar efnaverkfræðings. Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 5. júlí 1984. H. G. 74 _ TÍMARIT VFÍ 1984

x

Tímarit Verkfræðingafélags Íslands

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Verkfræðingafélags Íslands
https://timarit.is/publication/860

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.