Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Side 27
að hver „salvi” hryndi niður í göngin og
væri mokað þaðan út.
Þegar þessari miklu borun var lokið
var byrjað að hlaða og sprengja en svo
illa tókst til að „salvarnir” hreinsuðu
sig ekki niður í göngin heldur brann á
milli hola og þær eyðilögðust. Eftir að
sprengt hafði verið þrisvar sinnum var
gefist upp við þessa aðferð.
Þá var valinn sá kostur að þræða stál-
vír ofan af fjalli niður í gegn um heila
holu og karfa hengd i hann. Úr körf-
unni var borað upp fyrir sig með „fót-
borum” og sprengdur strokkur,
2,0 x 2,0 m alla leið upp úr. Tæplega 2ja
m „inndrift” náðist í hverri sprengingu.
Gerð þessa strokks var tafsöm. Síðan
var jöfnunarþróin boruð út og sprengd
ofan frá í rétt mál (014 m í efri hluta og
05 m í neðri hluta) og fór allt efni í
gegnum áðurgerðan strokk niður i
göngin þaðan sem því var mokað út.
Við gerð stærri strokksins (014 m) var
Bröyt-gröfu slakað niður í strokkinn
eftir hverja sprengingu og mokaði hún
efninu niður í miðstrokkinn.
Áfram var haldið með aðrennslis-
göngin ofan við greiningu í nokkuð
sprungnu basalti. í beygjunni ofan við
greiningu var farið í gegnum nokkuð
stóra leirfyllta sprungu, gekk hún langs
með göngunum og kom talsvert vatns-
rennsli úr henni. Síðar var steypufóðrað
upp fyrir þessa sprungu. í efsta (syðsta)
hluta aðrennslisganga er túff í gólfi og
veggjum en basalt i hvelfingunni.
Algeng sprengiefnisnotkun þar var 1,2
kg/mJ og borun 2,1 lm/mJ.
Lokustrokkur við greiningu var unn-
inn á sama hátt og jöfnunarþróin og
gekk það verk áfallalítið. Þó var vinna
þar erfið vegna mikils vatnsaga og sóttist
seint.
Inntaksmannvirkin eru inni í fjallinu,
stutt þvergöng inn yfir aðrennslisgöngin
liggja að mestu í góðu basalti og gekk
sprenging þeirra vel.
Varnarstífla var gerð út í inntakslónið
áður en aðrennslisgöngin voru opnuð út
í lónið.
Göngin voru ýmist ófóðruð (basalt),
fóðruð með steypuásprautun í bendinet
(túff og kargalög) eða heilfóðruð með
60 cm steyptum veggjum og kemur
skiptingin fram á mynd 3.
Þegar litið er til baka er óhætt að
segja að jarðgangagerð við Laxárvirkj-
un hafi gengið vel og að fátt hafi komið
á óvart í því verki.
Mynd 6. Stöðvarhús. Gólf í 73.200.
Grunnmynd.
TÍMARIT VFÍ 1984 - 85