Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Side 30
Auðun Sæmundsson, l'. 7
febr. 1951 á Akureyri. For-
eldrar Sæmundur skipstjóri
i Rvík, f. 4. okt. 1917, d. 30.
sept. 1977, Auðunsson skip-
stjóra frá Minni-Vatnsleysu,
Vatnsleysustrandarhreppi,
Gull., Sæmundssonar og
kona hans Arndís, f. 14.
sept. 1915, Ólafsdóttir
Thoroddsens skipstjóra frá
Vatnsdal, Rauðasands-
hreppi, V-Barð.
Stúdent MR 1971, BS-
próf í stærðfræði-reikni-
fræði frá Hl 1974 og MS-próf í rekstrarverkfræði með tölvur
sem sérgrein frá Rensselaer Polytechnic Institute, N.Y.,
Bandar., 1975. Kerfisforritari hjá Skýrsluvélum ríkisins og
Reykjavíkurborgar 1976, deildarstjóri þar 1977—82. Var við
framhaldsnám í Khafnarháskóla 1982—83 og rekstrarfræð-
ingur og ráðgjafi hjá Þróun í Rvík frá 1983.
Sambýlingur Björk Thomsen kerfisfræðingur, f. 28. okt.
1945 í Hobro, Danmörku, dóttir Sven Aage Thomsen skrif-
stofustjóra í Khöfn og konu hans Laufeyjar Sigurðardóttur
netagerðarmeistara í Rvík Jónssonar.
Auðun og bræðurnir Halldór og Steinar Friðgeirssynir,
verkfræðingar, eru systkinasynir.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 28. nóv. 1983.
H. G.
Ármann Jóhannesson (V
1979), f. 12. ág. 1952 í Rvík.
Foreldrar Jóhannes Sœvar
fulltrúi hjá Hafnarfjarðar-
bæ, f. 14. febr. 1925,
Magnússon bryggjuvarðar
þar Bjarnasonar og kona
hans Ragnheiður Eygló
tækniteiknari, f. 26. ág.
1925, Eyjólfsdóttir skip-
stjóra í Hafnarfirði Kristins-
sonar.
Stúdent frá Flensborgar-
skóla 1975, próf í bygg-
ingarverkfræði frá HÍ 1979
og civiling.-próf í sömu fræðum frá DTH i Khöfn 1982. Verk-
fr. hjá Hlaðbæ hf. í Rvík 1979, hjá E. Pihl & San AS í Khöfn
1980, hjá Ármannsfelli hf. í Rvík 1982 og hjá Hönnun hf. í
Rvík frá 1982.
Maki 4. jan. 1975, Gunnvör Sigríður læknaritari, f. 30. des.
1952 í Rvík, Karlsdóttir Óskars fv. útgerðarmanns þar Jóns-
sonar og Esterar Eggertsdóttur læknis Einarsonar. Börn: 1)
Jóhannes Magnús, f. 27. maí 1978 í Rvík, 2) Ester Anna, f. 9.
júní 1983 s. st.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 13. des. 1983.
H. G.
Kjartan Jónsson (V 1979), f.
20. nóv. 1952 á Selfossi.
Foreldrar Jón bankaútibús-
stjóri þar, f. 23. febr. 1916,
Ólafsson bónda í Fagradal í
Mýrdal Jakobssonar og
kona hans Ólöf, f. 31. jan.
1920, Árnadóttir bónda á
Oddgeirshólum, Hraun-
gerðishreppi, Árn., Árna-
sonar.
Stúdent Laugarvatni
1972, próf í rafmagnsverk-
fræði frá HÍ 1979, civiling,-
próf í sömu fræðum frá
DTH í Khöfn 1983. Verkfr. hjá Rafmagnsveitum ríkisins í
Rvík 1979—81 og hjá Verk- og kerfisfræðistofunni í Rvík frá
1983.
Maki 26. des. 1976, Takako Ósk Inaba stærðfræðingur, f.
1. júní 1946 í Tokyo, Japan, dóttir Hideo Inaba hagfræðings
þar og konu hans Tokiko Inaba f. Ogiwara. Börn 1) Árni
Rúnar, f. 2. júní 1977 í Rvík, 2) Ólöf Júlía, f. 29. júlí 1979 s.
st.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 28. nóv. 1983.
H. G.
Sigurbjörn Hallsson (V
1978), f. 27. maí 1948 á
Akureyri. Foreldrar Hallur
skattstjóri þar, f. 9. nóv.
1921, Sigurbjörnsson sjó-
manns og bónda á Þórshöfn
Ólasonar og kona hans
Aðalheiður, f. 9. jan. 1927,
Gunnarsdóttir útgerðar-
manns í Bakkagerði, Reyð-
arfirði, Bóassonar.
Stúdent Akureyri 1969, f.
hl. próf í verkfræði frá HÍ
1972, próf í byggingarverk-
fræði frá NTH í Þrándheimi
1974, próf í húsagerðarlist frá Det Kongelige Danske
Kunstakademi í Khöfn 1980. Verkfr. hjá Verktækni á Akur-
eyri 1975, hjá Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsens hf. á
Akureyri 1975—76, hjá E. Pihl & Son AS í Khöfn 1978 og hjá
Simonsen Associates ráðgjafarfyrirtæki arkitekta og skipu-
lagsfræðinga í Khöfn 1980—82. Við framhaldsnám í skipu-
lagningu borga í Rómaborg 1982—83. Skipulagsstjóri
Svæðisskipulags Eyjafjarðar frá 1983.
Sambýlingur Elsebeth Flarup stud. mag., f. 12. nóv. 1956 í
Kauslunde, Middelfart á Fjóni, Danmörku, dóttir Svenning
Flarup gripasala þar og konu hans Ingrid Flarup f. Jörgensen.
Sigurbjörn og Gunnar A. Guðmundsson, rafmagnsverkfr.,
eru systrasynir.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 13. des. 1983.
H. G.
88 - TÍMARIT VFÍ 1984