Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Page 31
Bjurn Zophonías Ás-
grímsson (V 1984), f. 27.
jan. 1958 á Siglufirði. For-
eldrar Ásgrímur Guðmund-
ur vélstjóri þar, f. 22. febr.
1927, Björnsson skipstjóra
þar Sigurðssonar og kona
hans Guðbjörg, f. 10. apríl
1936, Friðriksdóttir verka-
manns á Siglufirði Stefáns-
sonar.
Raungreinadeildarpróf
frá TÍ 1979, próf í hagverk-
fræði frá TH Linköping í
Sviþjóð 1983. Verkfr. í
rekstrartæknideild lðntæknistofnunar íslands frá 1983.
Maki jan. 1984, Jónína Sóley hjúkrunarfræðinemi, f. 9.
des. 1960 á Siglufirði, Ólafsdóttir lögregluþjóns þar Jóhanns-
sonar og konu hans Önnu Björnsdóttur. Barn Ásgrímur
Guðmundur, f. 14. júlí 1983 í Linköping.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 10. jan. 1984.
H. G.
Steinþór Skúlason (V 1982),
f. 20. okt. 1958 í Rvík. For-
eldrar Skúli Brynjólfur flug-
stjóri þar, f. 9. ág. 1934,
Steinþórsson útgerðar-
manns á Akureyri Helga-
sonar og kona hans Ólöf
bankastarfsmaður, f. 30.
júlí 1934, Sigurðardóttir
mjólkurbússtjóra í Borgar-
nesi Guðbrandssonar.
Stúdent MR 1978, próf í
vélaverkfræði frá HÍ 1982,
M.Sc. próf í iðnaðarverk-
fræði frá Stanford Uni-
versity, Bandar., 1983. Verkfr. hjá Fitch and Associates,
Seattle, Bandar. 1983 og hjá Plastprent hf. í Rvík frá 1984.
Maki 7. ág. 1982, Bryndís íris land- og jarðfræðinemi, f.
24. nóv. 1961 í Rvík, Stefánsdóttir vélgæslumanns þar Karls
Lingströms Eiríkssonar og konu hans Eddu Irisar hárgreiðslu-
meistara þar Eggertsdóttur.
Steinþór Skúlason er systursonur Elísabetar Sigurðardóttur
konu Björns E. Péturssonar vélaverkfræðings.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 10. jan. 1984.
H. G.
Guöjón Jónsson (V 1981), f.
7. sept. 1957 í Vestnranna-
eyjum. Foreldrar Jón skatt-
stjóri Vesturlandsumdæmis
á Akranesi, f. 14. mars
1916, Eiríksson dr. theol.
prests Valdimars Alberts-
sonar og kona hans Berg-
þóra, f. 21. apríl 1919, Guð-
jónssóttir járnsmíðameist-
ara í Rvík Jónssonar.
Stúdent MA 1977, próf í
rafmagnsverkfræði frá HÍ
1981 og civil.ing. próf í
sömu fræðum frá DTH í
Khöfn 1983. Verkfr. í Merkjafræðistofnun HÍ sumarið 1981
og hjá Landssíma íslands í Rvík frá 1983.
Maki 29. nóv. 1980, Sigurlaug, f. 29. okt. 1960 á Akureyri,
Vilhelmsdóttir framkvæmdastjóra þar Vernharðs Þorsteins-
sonar og konu hans Önnu Kristjánsdóttur. Barn Vilhelm, f.
25. maí 1978 á Akureyri.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 24. jan. 1984.
H. G.
Jón Örn Jakobsson (V
1981), f. 5. okt. 1957 í Rvík.
Foreldrar Guðmundur Jak-
ob, dr.phil, efnaverkfræð-
ingur og framkvæmdastjóri
þar, f. 15. febr. 1916, Sig-
urðsson bónda á Veðramóti
Skagafirði, siðar fram-
færslufulltrúa í Rvík Árna
Björnssonar og kona hans
Katrín Sigríður læknaritari,
f. 15. okt. 1927, Jónsdóttir
skólastjóra Verslunarskóla
íslands Sivertsen.
Stúdent MR 1977, próf í
vélaverkfræði frá HÍ 1981, MS. í varmaverkfræði frá
University of California, Los Angeles, Bandar. 1982. Verkfr.
í Teiknistofu SÍS í Rvík sumarið 1981, við rannsóknastörf hjá
University of California 1982—83 og hjá Perry Engineering
Co. í Los Angeles frá 1983.
Maki 5. júlí 1980, Hallfríður BA í frönsku, f. 11. sept. 1957
á Akranesi, Helgadóttir úrsmiðs þar Júlíussonar og konu hans
Huldu Jónsdóttur.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 24. jan. 1984.
H. G.
Hcrmann Þórðarson (V
1984), f. 10. sept. 1955 á
Húsavík. Foreldrar Þórður
skipstjóri og útgerðarmaður
í Rvík, f. 19. apríl 1924,
Hermannsson sjómanns á
ísafirði Hermannssonar og
kona hans Vigdís, f. 2. maí
1929, Birgisdóttir aðalbók-
ara Kaupfélags Þingeyinga á
Húsavík Steingrímssonar.
Stúdent MH 1974, BS
próf í efnafræði frá HÍ
1979, próf í efnaverkfræði
frá KTH í Stokkhólmi 1981.
Kennari í efnafræði við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Rvík,
1981—83 og verkfr. í Efnafræðistofu Raunvísindastofnunar
HÍ frá 1983.
Sambýlingur Oddný Guðleif efnafræðingur, f. 21. jan.
1955 í Rvík, Ágústsdóttir framkvæmdastjóra þar Hafberg og
konu hans Arnheiðar Guðmundsdóttur. Barn Elfur Hildisif,
f. 6. apríl 1983 í Rvík.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 28. febr. 1984.
H. G.
TIMARIT VFÍ 1984 — 89