Tímarit Verkfræðingafélags Íslands - 01.12.1984, Qupperneq 33
fræðideild LTH 1981. Kennari og rannsóknari við LTH
1975—81, settur dósent við LTH 1981—82, verkfr. við Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins i Rvík 1982—84. Sjálf-
stæður ráðgjafarverkfræðingur frá 1984. Átti sæti í sænsku
staðalnefndinni fyrir einangrun BST-TK42 1979—82, fulltrúi
BST í alþjóðlegri staðalnefnd um einangrun ISO-TC163, full-
trúi íslands í Nordtest Brand frá 1983.
Ritstörl': Varmeflödesniatningar, I III: Rapport TVBH — 3003.
Preliminary report on the use of heat flow meters in bnildings LTH;
Rapport TVBH 7005. Varmeflödesmatningar í fált, möjliga med ny
och snabb metod. Tímaritsgrein, Byggmástaren 1—2, 1978.
Varmeflödesmatningar i Hiilsingborg. LTH; Rapport TVBH —
7035. Köldbryggor i yttervaggar och den nya byggnormen. Timarits-
grein, VVS 6.7. 1977. Köldbrvggor i plátkonstruktioner. LTH;
Rapport, TVBH — 3006, ásamt Olle Áberg. Mekaniskt ventiterad
takkonstruktion som varmeváxlare och solfángare. Byggforsknings-
rádet. Rapport R 111: 1980. M. fl. Villkorför varmeátervinning och
vármevaxling i byggnadsstommen. Tímaritsgrein, Byggmástaren 11,
1980. Active Heat Capacity — Models and Parameters for the
Thermal Performance of Buildings. Doktorsritgerð, LTH 1981.
Rapport TVBH — 1003. Lágenergihus — nuláge och forsknings-
behov. Byggforskningsrádet, í prentun.
Maki 17. ág. 1974, Hulda Brvndís safnkennari, f. 6. febr.
1953 á ísafirði, Sverrisdóttir iðnaðarráðherra Hermannssonar
og konu hans Grétu Lindar Kristjánsdóttur klæðskerameist-
ara. Börn 1) Gunnhildur Margrét, f. 18. sept. 1973 í Rvík, 2)
Sverrir Páll, f. 12. sept. 1978 í Lundi, Svíþjóð.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 9. apríl 1984.
H. G.
Þorlákur Magnússon (V
1984), f. 19. mars 1956 í
Rvík. Foreldrar Magnús
Þór kaupmaður í Garðabæ,
f. 16. júní 1928, Mekkínós-
son kaupmanns í Rvík
Björnssonar og kona hans
Guðrún bókavörður, f. 23.
ág. 1926, Sigurðardóttir sjó-
manns í Rvík Jónssonar.
Stúdent MT 1976, próf í
vélaverkfræði frá HÍ 1984.
Verkfr. hjá Skýrsluvélum
ríkisins og Reykjavíkur-
borgar frá 1984.
Veitt innganga í VFI á stjórnarfundi 9. apríl 1984.
H. G.
Friðfinnur Knútur Daníels-
son (V 1984), f. 5. maí 1954
á Akureyri. Foreldrar
Daníel bóndi á Gnúpufelli,
Eyjaf., f. 21. júní 1912,
Pálmasonar Jónasar bónda
þar Þórðarsonar og kona
hans Ingibjörg, f. 22. sept.
1926, Bjarnadóttir bónda í
Lambadal, Dýraf., Sigurðs-
sonar.
Vélstjórapróf frá Vél-
skóla íslands 1976, B.Sc.
próf í almennri verkfræði
frá Heriot-Watt University,
Edinborg 1982 og viðbótarnám við HÍ 1981—82 og 1983. Iðn-
ráðgjafi Fjórðungssantbands Norðlendinga frá 1983.
Maki 1. jan. 1977, Arna Þorvalds, f. 21. ág. 1956 á Akur-
eyri, dóttir Hrafnhildar verkakonu þar Þorvaldsdóttur brúar-
smiðs Guðjónssonar. Börn 1) Hilda, f. 12. ág. 1976 á Akur-
eyri, 2) Birkir, f. 29. júlí 1982 s.st.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 23. maí 1984.
H. G.
Hulda Guðmundsdóttir (V
1984), f. 5. ág. 1958 í Rvík.
Foreldrar Guðmundur
kennari á Seltjarnarnesi, f.
11. ág. 1936, Magnússon
vélstjóra þar Guðmunds-
sonar og kona hans Herdís
afgreiðslumaður, f. 18. júni
1937, Óskarsdóttir bókara
Sigurðssonar.
Stúdent MR 1978, BS
próf í tölvunarfræðum frá
HÍ 1982 og próf í rafmagns-
verkfræði frá HÍ 1984.
Verkfr. hjá Atlantis hf.
Rvik frá 1984.
Dóttir Huldu og Jóns Braga viðskiptafr., f. 28. júní 1958 í
Rvík, Gunnlaugssonar: Heiða Dögg, f. 31. des. 1975 í Rvík.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 23. maí 1984.
H. G.
Ögmundur Snorrason (V
1984), f. 12. júní 1959 á
Akureyri. Foreldrar Snorri
Þór húsgagnasmiður og for-
stjóri þar, f. 2. júlí 1926,
Rögnvaldsson Tímóteusar
bónda í Dæli, Svarfaðardal,
Þórðarsonar og kona hans
Margrét Hrefna, f. 1. ág.
1932, Ögmundsdóttir húsa-
smiðs á Illugastöðum,
Fnjóskadal, Ólafssonar.
Stúdent MA 1979, próf í
rafmagnsverkfræði frá HÍ
1983. Er við franthaldsnám
erlendis.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 23. maí 1984.
H. G.
Heimir Þór Sverrisson (V
1982), f. 1. júlí 1957 í Rvík.
Foreldrar Sverrir stýrimaður
þar, f. 16. ntars 1927, d. 11.
júlí 1965, Guðmundsson
skipstjóra þar Guðmunds-
sonar og kona hans Anna
ATargrét húsvörður, f. 22.
júlí 1928, Guðjónsdóttir
bónda að Stór-Holti, Dal.,
Guðmundssonar.
Stúdent MH 1976, próf í
rafmagnsverkfræði frá HÍ
1981 og civil.ing.próf í sömu
fræðum frá DTH í Khöfn
1984. Verkfr. hjá Mícrótölvunni sf. í Rvík frá 1984.
TÍMARIT VFÍ 1984 - 91